Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 16

Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING GUÐMUNDUR Sigurðsson, organisti Bústaðakirkju, leikur átta verk á September- tónleikum Selfosskirkju þriðjudaginn 19. september. Flutt verða verk eftir J.S. Bach, Dietrich Buxtehude, David N. Johnson, Georg Böhm, Francois Couperin, Jón Þórarinsson og Smára Ólafs- son. Guðmundur lauk mast- ersprófi frá Westminster Cho- ir College í Princeton árið 2002. Þar var aðalkennari hans Mark A. Anderson. Hann kennir orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar og er for- maður Félags íslenskra organleikara. Orgeltónleikar Guðmundur í Selfosskirkju Guðmundur Sigurðsson ÞAÐ ER músík sem margir hafa yndi af sem verður á efn- isskrá tónleika Peters Mátés í Salnum annað kvöld kl. 20. Etýður, valsar og prelúdía eftir Liszt, Næturljóð eftir Chopin, og Ballaða eftir Hjálmar H. Ragnarsson er meðal þess sem Peter spilar, – og ekki má gleyma að nefna A- dúr sónötunni eftir Schubert, sem margir þekkja. Peter Máté hefur um árabil verið öflugur liðs- maður í íslensku tónlistarlífi, en á rætur í Tékkó- slóvakíu, eins og Leos Janacek, en eftir hann spil- ar Peter einnig Sónötu frá 1905. Píanótónleikar Rómantískt hjá Pétri Máté Peter Máté ÚT ER kominn diskurinn Fagurt er í Fjörðum sem hefur að geyma veraldleg og trúarleg þjóðlög sem eru flutt með rödd og strengj- um. Flytjendur eru Gerður Bolladóttir sópran, Hlín Erlendsdóttir á fiðlu og Sophie Schoonjans á hörpu. Disknum er ætlað hvort tveggja í senn að færa þjóðlögin nær uppruna sínum og nær almenningi. Það er gert með nýjum útsetningum og flutningi í gömlum stíl en harpan og fiðlan eru þau hljóðfæri sem eiga sér hvað lengsta hefð hérlendis. Geisladiskaútgáfa Nýjar útsetningar íslenskra þjóðlaga Gerður Bolladóttir, Hlín Erlends- dóttir og Sophie Schoonjans Í ÁR minnast Hollendingar 400 ára fæðingarafmælis Rembrandts, og hefur aðsókn að sýningum og við- burðum afmælisársins farið fram úr björtustu vonum. Nú þegar hef- ur um ein og hálf milljón manna sótt afmælisdag- skrána, og búist er við að um 250 þúsund manns muni sækja hana það sem eftir lif- ir ársins. „Eng- inn annar menn- ingarviðburður í sögu Hollands, fyrr og síðar hef- ur átt viðlíka velgengni að fagna,“ sagði Jan Michiel Hessels, forseti afmælisdagskrárinnar í blaða- viðtali á dögunum. Hollendingar áætla að tekjur af Rembrandt-afmælinu geti numið andvirði níu milljarða íslenskra króna. Hessels sagði að af þeim 900 þúsund manns sem sótt hafa Rembrandtsýningar hafi 60 pró- sent verið erlendir gestir. Hann bætti því að ánægjulegt væri, að þrátt fyrir erfiðleika í flug- samgöngum hefðu 11 prósent er- lendu gestanna komið frá Banda- ríkjunum. Norðmenn sleikja sárin Norski dómsmálaráðherrann, Knut Storberget, þvertekur fyrir það að norska lögreglan hafi gert samning við undirheima Óslóar um að skila meistaraverkum Munchs, Madonnu og Ópinu, en orðrómur um það í Noregi. Enn er margt á huldu um það hvernig fund verk- anna bar að og enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. Gjöfull Rembrandt horfir yfirveg- aður í augu sýningargests. Rembrandt skapar gjaldeyri Metaðsókn á viðburði afmælisársins Ópið Norska MYNDLISTARMAÐURINN Ragnar Kjartansson tók að sér fyrir nokkru að endurgera stúku Hitlers, sem reist var árið 1941 í Admiral Palast-leikhúsinu í Berlín fyrir Hitler sjálfan. Hugmyndin var að Ragnar væri sjálfur hluti af verkinu og áhugasamir gætu fylgst með honum endurgera stúk- una frægu. Vinnan átti að vera hluti af sýningunni Pakkhús post- ulanna sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur. Nú hefur gjörningnum hins veg- ar verið aflýst og boðaði Ragnar til blaðamannafundar í gær þar sem hann tilkynnti meðal annars: „Nú þegar komið er að því að hefja gjörninginn hefur efnið yf- irtekið upphaflega áætlun mína. Efnið sem í þessu verki er er það þungt og merkingarhlaðið að verkið sjálft hefur borið lista- manninn Ragnar Kjartansson of- urliði. Ég gefst upp fyrir efninu og andanum í þessu verki, ég ætla ekki að halda lengra. Ég ákvað í samráði við sýningarstjóra sýning- arinnar og Listasafn Reykjavíkur að aflýsa gjörningnum sem átti að standa frá deginum í dag til 11. október. Verkið er fullklárað.“ Stúkan enn til sýnis Í samtali við Morgunblaðið sagði Ragnar að verkið hefði fljót- lega borið hann ofurliði. „Um leið og ég sá stúkuna í toll- inum grunaði mig þetta en er þó búinn að vera að reyna að halda mínu striki. Eftir því sem nær dró, því ómögulegra varð að eiga við verkið. Ég var hræddur um að eyðileggja það með því að vera sjálfur inni í því. Verkið gerði sig sjálft,“ segir Ragnar. Stúkan stendur þó almenningi til áhorfs í Listasafni Reykjavíkur til og með 11. október næstkom- andi. „Verkið gerði sig sjálft“ Morgunblaðið/Ásdís Fullklárað Ragnar Kjartansson myndlistamaður ásamt Stúku Hitlers, verkinu sem kláraði sig sjálft. Ragnar Kjartansson hættir við endurgerð á Stúku Hitlers í Hafnarhúsinu Nýtt á söluskrá 1. Hársnyrtistofa í miðborginni til sölu. Er með 6 stóla og aðstöðu fyrir hársnyrtifræðing. Sala á snyrtivörum. Mikið að gera. Stofan sem beðið er eftir. 2. Tölvuskóli í fjarkennslu. Mikið að gera og mikið af við- skiptavinum. Tilvalið með öðrum tölvuskóla eða fyrir snjallan einstakling. 3. Kaupmaðurinn á horninu. Ein stærsta búðin sem eftir er af hverfisbúðum. Mikil velta. Öruggt og gott fyrirtæki. 4. Gullmoli á Suðurnesjum. Vínbar sem hefur opið aðeins um helgar. Tekur um 150 manns. Öll leyfi til staðar. Sæmilegt eldhús. Mjög snyrtilegur. 5. Mjög þekkt hjólbarðafyrirtæki sem hefur að auki góða að- stöðu til að gera við bíla og auka veltuna. Góð viðskipta- sambönd. Mikill annatími framundan. 6. Skemmtileg innrömmunarfyrirtæki á besta stað. Mikil viðskipti. Góður tækjakostur og frábær vinnuaðstaða. Þekkt fyrirtæki. Fastir viðskiptavinir. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni, ekki í síma eða á netinu. Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is. Elsta fyrirtækjasalan á landinu. Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl. Elsta fyrirtækjasalan á landinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.