Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 22

Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 22
daglegt líf 22 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ É g réði mig hingað í vinnu fyrst og fremst vegna þess að ég hef óbilandi áhuga á ís- lenska hestinum,“ seg- ir hin átján ára Katelyn Jean Ber- nett, eða Kata eins og hún er kölluð af heimilisfólkinu á Kálfsstöðum í Hjaltadal, þar sem hún hefur búið frá því í vor. Kata er fædd og uppalin í Alaska og snýr ekki aftur þangað heim fyrr en í desember. Hún segist ekki hafa hugmynd um hvaðan hestabakterían komi sem hefur tekið sér bólfestu í henni, því engin í fjöl- skyldu hennar hefur minnsta áhuga á hestum. „En foreldrar mínir hafa alltaf stutt mig heilshugar í þessu hestastússi og þeim finnst íslenskir hestar fallegir og njóta þess að horfa á þá, en áhugi þeirra nær ekki lengra en það,“ segir Kata sem á tvo ís- lenska hesta í heimahögunum í Alaska. „Annar þeirra er frá Hellis- sandi en hinn frá Leysingjastöðum. Þeir heita Tinni og Blossi og vinkona mín sér núna um að hreyfa Tinna en Blossi er svo erfiður að enginn annar en ég treystir sér til að ríða honum svo hann safnar bara spiki á meðan ég er hér. Það bíður mín því heilmikil vinna að koma hestunum mínum í form þegar ég kem heim í vetur,“ segir Kata sem kom fyrst til Íslands fyrir tveimur árum og vann þá á hestabúi fyrir sunnan í einn mánuð. Hryssan Fiðla er í uppáhaldi Starf Kötu á Kálfsstöðum felst fyrst og fremst í því að þjálfa og temja hestana á bænum. „En ég geng í öll störf og hjálpa til við hvað sem þarf hverju sinni, hvort sem það eru útiverk, húsverk eða að gæta hennar Unu litlu sem er aðeins þriggja ára. En ég hef lært það sem ég kann í íslensku af henni Unu, því hún skilur ekki ensku svo ég verð að tala við hana á íslensku og hún er hörð í því að leiðrétta mig ef ég tala ekki rétt. Ég hef líka lesið ótal bæk- ur á íslensku fyrir Unu og horft með henni á teiknimyndir sem eru tal- settar á íslensku. Fyrir vikið skil ég íslensku ágætlega þó ég tali hana lít- ið.“ Kata unir sér vel í norðlensku sveitinni og stundar tamningar af miklum móð. „Vissulega er mikið að gera en það á vel við mig. Ég fer á bak nokkrum ungum hestum á tamningaaldri á hverjum einasta degi og hreyfi líka reiðhestana til að halda þeim í þjálfun. Hestarnir eru Fámennið hentar mér vel Víst hefur hún Kata á Kálfsstöðum ljósa lokka en hún er kannski minna fyrir að rokka, líkt og nafna hennar í laginu góða. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti stúlku norður í landi sem tók sig upp frá Alaska til að gerast vinnukona í ís- lenskri sveit. Ljósmynd/Kristín Heiða Kristinsdóttir Uppáhaldshryssan Þó ekki vilji Kata gera upp á milli hrossanna sem hún er að temja segist hún kunna best við Fiðlu. „ÉG ER áhugasamur um lýðræði og vil sjá meira af því í menntun ungra barna og á leikskólum. Ung börn dvelja meira og minna inn á allskonar stofnunum í dag, þar inni þarf að líta á þau sem einstaklinga og hlusta á það sem þau hafa að segja,“ segir Peter Moss frá Lund- únaháskóla. Moss var staddur hér á landi ekki alls fyrir löngu þar sem hann hélt fyrirlestur um lýðræð- islegt starf í leikskólum á al- þjóðlegri ráðstefnu í Kennarahá- skóla Íslands. „Það þarf að vera ákveðinn rammi utan um allt starf í skólum en það þarf líka að vera rými fyrir ákvörðunartöku. Ég er að vinna í því að finna jafnvægi á milli hins ákveðna staðals á leikskólum, sem yfirvöld móta, og rýmis fyrir lýð- ræðislegar umræður og ákvarðanir. Á Norðurlöndunum sé ég að leik- skólar hafa færst nær lýðræðinu en t.d. í mínu heimalandi er ákveðið stjórnkerfi sem ræður öllu.“ Börn vinna með arkitektum Moss segir börn eiga að fá að tjá sig um það sem skiptir þau máli á leikskólanum og vill að hlustað sé á þau. „Þar sem ég vinn, í miðstöð menntarannsókna við Lundúnahá- skóla, höfum við verið að skoða hvernig mjög ung börn geta tekið virkan þátt í ákvarðanatökum, t.d. í arkitektúr, við erum að láta 3–4 ára börn vinna með arkitektum við að hanna nýjar byggingar. Viðhorf barnanna eru notuð til að móta um- hverfið inni og úti. Í öðru verkefni létum við börn á leikskóla taka myndir af því sem þeim þótti mik- ilvægast í skólanum, því börn eiga ekki alltaf auðvelt með að tjá sig með orðum, og kom þá ýmislegt skemmtilegt í ljós. Þau tóku myndir af vinum sínum, starfsfólki, dóti og leynistöðum.“ Að mati Moss er samt ekki nóg að börnin búi við lýðræði í skólanum ef starfsfólkið og foreldrarnir geri það ekki. „Það á að hafa alla með, for- eldra, börn og starfsfólk, því hver og einn hefur eigin reynslu, sjón- armið og hugmyndir. Starfsfólk leikskóla þarf að hafa skilning á ólíkum viðhorfum og ýta undir for- vitni, fjölbreytni, áhuga og gagnrýni hjá börnunum. Foreldrar eiga að vera þátttakendur og þá á að fá inn í umræðuna um hvað sé leikskóli og hvað sé menntun. Menntun getur verið mótuð af sérfræðingum ein- göngu eða af lýðræðislegri umræðu í samfélaginu. Ég er mjög áhuga- samur um sýnileika þar sem fólk getur rætt ákvarðanir og að lokum komist að niðurstöðu sem hópur á lýðræðislegan hátt. Ef samfélagið er lýðræðislegt og telur lýðræði mikilvægt ætti það að endurspegl- ast í leikskólum og grunnskólum.“ Auka þarf fjölbreytni Moss segir tilhneigingu hjá menntasamfélaginu að fara til baka í verksmiðjumódelið þar sem allt sé klippt og skorið. „Margir foreldrar halda að það sé það besta fyrir börnin en lífið er ekki svoleiðis og því er lýðræðisleg ákvarðanataka strax í leikskóla til góðs. Það er líka vert að spyrja hvað það sé að vera kennari; er það sá sem veit allt og hefur það starf að koma sinni vitn- eskju á framfæri eða er kennari ein- hver sem vill vinna á lýðræðislegan hátt, skilur að hann býr yfir ákveð- inni vitneskju og er opinn fyrir um- ræðum,“ segir Moss og bætir við að umræðan núna snúist mikið um hversu mikið frelsi eigi að vera á fyrri skólastigum til að taka ákvarð- anir. Moss segir að líta verði á lýðræði sem mikilvægan hlut í menntun ungra barna. „Það verður að við- urkenna mörg sjónarmið í leik- skólum og opna möguleika á meiri fjölbreytni. Þá fer fólk að sjá ung börn sem virka þegna innan sam- félagsins sem leikskólinn er,“ segir Moss að lokum. Leynistaðir voru börnunum mikilvægir Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Eyþór Lýðræði Peter Moss vill að börn ráði meiru í umhverfi sínu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Virðing Fullorðnir verða að hlusta á það sem börn hafa að segja. Við erum að láta 3–4 ára börn vinna með arkitekt- um við að hanna nýjar byggingar. menntun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.