Morgunblaðið - 19.09.2006, Síða 27

Morgunblaðið - 19.09.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 27 Ljóst er að ýmsir leiðtogar borgara- flokka í Evrópu hafa fylgst grannt með ár- angri Reinfeldts. Breska blaðið The Guardian bendir á að Reinfeldt hafi verið byrjaður að gera hosur sínar grænar fyrir miðjufylgi löngu áður en David Cameron, hinn nýi leiðtogi Íhaldsflokksins breska, varð leiðtogi og tók upp sömu stefnu. Ang- ela Merkel, kanslari Þýskalands og leiðtogi Kristilegra demókrata, hefur sagt að for- dæmi Svía, sem skáru niður mikið af bruðl- inu í velferðarkerfinu þegar Persson var fjármálaráðherra 1994–1996, sýni að hægt sé að gera breytingar án þess að afnema umfangsmikið velferðarkerfi. The Guard- ian segir það vera létti fyrir Merkel að sjá að Reinfeldt ætli ekki að leggja niður sænska módelið. Þjóðverjar eru ekki frekar en Svíar hrifnir af því að gera róttækar kerfisbreytingar í átt til markaðskerfis og það veit Merkel. Bætur lækkaðar og hlutabréf seld Kosningabandalag borgaraflokkanna hefur heitið því að lækka skatta miðstétt- anna og lágtekjufólks en sjúkrabætur og atvinnuleysisbætur verða lækkaðar tals- vert, úr 80% af fyrri launum í 65%, og þann- ig fæst fé upp í tapaðar skatttekjur. Hluta- bréf ríkisins í nokkrum stórfyrirtækjum, alls um 50 milljarðar sænskra króna, verða auk þess seld. Einnig stendur til að leyfa einkaframtakinu að njóta sín á nokkrum sviðum, þ.á m. í viðskiptum með lyf og í umönnunarstörfum. En allt bendir til þess að skattbyrði verði áfram mikil í landinu. Oft hefur verið sagt að jafnaðarmenn séu bestu vinir sænsku risafyrirtækjanna, Ericsson og slíkra, en ný stjórn borgara- flokkanna hyggst á hinn bóginn leggja sig fram um að ýta undir vöxt og viðgang smá- fyrirtækja. Hætt er við að nýrri stjórn muni reynast örðugt að draga úr atvinnu- leysi meðal unga fólksins, sem líklega er um 25%, nema aðstæður smáfyrirtækjanna batni, þar er helst svigrúm fyrir fleiri ný störf. Yfir 80% Svía eru í verkalýðsfélögum og þau munu seint hvika frá því að lágmarks- laun skuli gilda í landinu, hugsunin á bak við velferðarkerfið er einmitt að engir launamenn skuli þurfa að lepja dauðann úr skel. En oft er bent á að með lögbundnum lágmarkslaunum sé einnig dregið verulega úr líkunum á að ungt, lítt menntað fólk geti fengið vinnu, að vísu láglaunastörf, í þjón- ustugreinum. Lágmarkslaunin og það hve erfitt er að reka fólk úr vinnu gera litlum fyrirtækjum afar erfitt fyrir í Svíþjóð, sveigjanleikinn er of lítill. Svíþjóð er hátæknivætt samfélag og því ekki auðvelt að finna vinnu handa fólki sem hefur orðið utanveltu í menntakerfinu. Þetta er reynsla margra annarra Vestur- Evrópuríkja sem búa við mikið atvinnuleysi hjá ungu fólki. En Reinfeldt leggur áherslu á að auka og bæta menntun í von um að minnka atvinnuleysið. Reynslan mun sýna hvernig til tekst. baráttunnar „en auka þarf valkosti einstak- linga í því“. Hægrimenn Reinfeldts [Hægriflokkurinn heitir reyndar á sænsku De nya moderaterna eða Nýi hófsami flokkurinn] hafa síðustu árin lagt sig í líma við að þvo af sér alla stimpla ofurhægri- stefnu og frjálshyggju. Eftir sigurinn mikla á sunnudag er flokkurinn á ný tvímælalaust orðinn helsti keppinautur Jafnaðarmanna- flokksins í baráttunni um forystuna í sænskum stjórnmálum en því má ekki gleyma að í kosningunum 2002 galt hann afhroð. Þá var fylgt eindreginni hægri- stefnu og markaðshyggju sem mótuð var í tíð Carls Bildts, fyrrverandi forsætisráð- herra samsteypustjórnar borgaraflokk- anna fyrir hálfum öðrum áratug. Reinfeldt gerði upp hug sinn: Flokkurinn átti að sækja inn á miðjuna og ávinna sér traust hikandi kjósenda á miðjunni og sumra jafn- aðarmanna með því að lofa að verja velferð- arkerfið. „Bandalag flokkanna sem hafna jafnað- arstefnu hefur í grundvallaratriðum ekki lýst andstöðu við samfélagsmódel jafnaðar- manna,“ segir stjórnmálaskýrandinn Tommy Möller. „Það er öðru nær, banda- lagið bað um umboð til að gera á því um- bætur.“ nga jafn langar,“ segri Henrik ískur ritstjóri Dagens Nyheter. eysið virðist hafa vegið þungt m ákváðu að gefa borgaraflokk- m tækifæri til að spreyta sig á nni. En einnig þykir ljóst að leiði egna 12 ára setu sama flokksins lana, með þeim valdhroka og em oft fylgir langri setu á ráð- m, hafi grafið undan hinum 57 Persson og flokki hans. reyndi í kosningabaráttunni ra við hægrimönnum Reinfeldts ð þar væri á ferð úlfur í sauð- m myndi eyðileggja velferðar- ka. En sú atlaga hans mistókst. a velferðarmódelið er að mörgu sagði Reinfeldt í lok kosninga- í Svíþjóð en ar á velferðarkerfinu AP öran Hägglund, leiðtogi Kristilegra demókrata, Maud Olofsson, leiðtogi og Fredrik Reinfeldt, leiðtogi Hægriflokksins [De Nya Moderaterna]. SKURN níu milljónir manna búa í óð og lífskjör eru með tu í heimi. aðarmenn hafa setið við nvölinn í landinu í sam- 5 af síðustu 74 árum. kjon@mbl.is Göran Persson, fráfarandiforsætisráðherra Svíþjóð-ar, baðst í gær lausnar fyr-ir sig og ráðuneyti sitt eft- ir ósigur sænskra jafnaðarmanna í þingkosningunum í fyrradag. Persson hefur gegnt embætti for- sætisráðherra í tíu ár og á þeim tíma varð hann atkvæðamesti stjórn- málamaður Svíþjóðar frá valdatíma Olofs Palme sem var myrtur árið 1986. Persson er 57 ára að aldri og að- eins einn forsætisráðherra í Evrópu, Jean-Claude Juncker í Lúxemborg, hefur verið lengur við völd samfleytt. Persson kvaðst ætla að draga sig í hlé í mars og hvatti til þess að mynd- uð yrði yngri forystusveit sem gæti fellt stjórn hægri- og miðflokkanna í næstu þingkosningum. Sakaður um hroka Sænskir jafnaðarmenn hafa verið við völd síðustu tólf ár. Persson varð for- sætisráðherra árið 1996 þegar Ingv- ar Carlsson lét af embætti. Persson fór fyrir flokknum í þing- kosningum árið 1998 og aftur fjórum árum síðar. Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, lýsti Persson sem kænum og úrræðagóð- um stjórnmálamanni en aðrir sökuðu hann um hroka og ráðríki. Persson var fyrst kjörinn á þing þrítugur að aldri. Eftir að hafa verið bæjarstjóri Katrineholm í fjögur ár sneri hann sér aftur að landsmála- pólitíkinni og varð mennta- málaráðherra árið 1989. Fimm árum síðar var hann skipaður fjár- málaráðherra og hafði yfirumsjón með erfiðum efnahagsaðgerðum til að greiða fyrir inngöngu Svíþjóðar í Evrópusambandið árið 1995. Olle Svenning, sænskur blaðamað- ur sem skrifaði bók um forsætisráð- herrann, sagði að endurreisn efna- hagsins um miðjan síðasta áratug væri helsta afrek Perssons. Efnahagsástandið í Svíþjóð er gott nú þegar Persson kveður. Hagvöxt- urinn á öðrum fjórðungi ársins mældist 5,5%, fjárlögin voru halla- laus, útflutningur jókst og atvinnu- leysið minnkaði í 5,7% í ágúst. Í kosningabaráttunni var Persson þó gagnrýndur fyrir að hafa ekki tek- ist að ná því markmiði að atvinnu- leysið yrði undir 4%. Stjórn hans var einnig gagnrýnd fyrir silaleg við- brögð við flóðbylgjunni miklu á Ind- landshafi sem kostaði 543 Svía lífið. Hugðist víkja fyrir Lindh Persson var mikill stuðningsmaður Evrópusambandsins og varð fyrir miklu pólitísku áfalli árið 2003 þegar Svíar höfnuðu evrunni í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Nokkrum dögum fyrir atkvæða- greiðsluna var Anna Lindh utanrík- isráðherra myrt í miðborg Stokk- hólms. Persson viðurkenndi síðar að hann hefði ætlað að draga sig í hlé fyrir kosningarnar í ár og víkja fyrir Lindh en ákveðið eftir morðið að gegna embættinu áfram vegna óvissu um hver gæti tekið við af hon- um. Reuters Endurreisti efnahaginn Endurreisn efnahags Svíþjóðar um miðjan síðasta áratug er talin helsta afrek Görans Perssons á 10 ára valdatíma hans. Hon- um tókst þó ekki að ná því markmiði að atvinnuleysið yrði undir 4%. Persson kveður eftir tíu ár við stjórnvölinn ef til var það þá er hann tók að færa sig inn á miðj- una, að sögn norska blaðsins Aftenposten. Reinfeldt var kjörinn leiðtogi Hægriflokksins í október 2003 í stað Bo Lundgrens. Í þingkosn- ingum árið áður fékk flokkurinn aðeins 15,2% at- kvæðanna og er það minnsta kjörfylgi hans frá árinu 1932. Frá því að Reinfeldt varð leiðtogi Hægriflokks- ins hefur hann dregið úr gagnrýninni á sænska velferðarkerfið. Hann hefur boðað lagfæringar á velferðarkerfinu en engar stórbreytingar og með- al annars lofað að lækka skatta á lágtekjufólk. „Við erum nýi Verkamannaflokkurinn,“ sagði Reinfeldt í kosningabaráttunni og skírskotaði til „New Labour“, breska Verkamannaflokksins undir forystu Tonys Blairs. Reinfeldt var í fyrstu umdeildur í Hægriflokkn- um og sumum flokksbræðrum hans þótti hann hann seilast of langt inn á miðjuna. Þeim var til að mynda ekki skemmt þegar hann lýsti stefnu flokksins í atvinnumálum með því að vitna í Maó formann: „látum þúsund blóm blómstra.“ Gagnrýnisraddirnar þögnuðu þó að mestu eftir að fylgi flokksins tók að aukast í skoðanakönn- unum. Fredrik Reinfeldt býr í Täby og eiginkona hans, Filippa, er borgarfulltrúi. Þau eiga þrjú börn á aldrinum sex til þrettán ára. undanbrögð og skipti um skoðun. Ef menn aka alltaf seglum eftir vindi eru þeir illa til þess fallnir að gegna embætti forsætisráðherra,“ hafði Svenska Dagbladet eftir Thorwaldsson. Per West- erberg, varaforseti sænska þingsins og flokks- bróðir Reinfeldts, er á öndverðum meiði og segir að forsætisráðherra samsteypustjórnar þurfi að geta hlustað og verið sveigjanlegur. „Hann lætur ekki eins og hann viti allt. Hann er auðmjúkur og hlustar. Það er mikilvægur eiginleiki farsæls stjórnmálamanns og forsætisráðherra.“ Eftir að Hægriflokkurinn beið ósigur í þing- kosningum árið 1994 gagnrýndi Reinfeldt þáver- andi leiðtoga flokksins, Carl Bildt, og taldi hann alltof ráðríkan. Skömmu síðar skrifaði hann bók- ina „Nostalgitrippen“ og lýsti þar öðrum for- ystumönnum flokksins sem eftirlíkingum af Carl Bildt. Forystumenn flokksins töldu Reinfeldt hafa gengið of langt í gagnrýni sinni og boðuðu hann á fund sem hann lýsti sjálfur sem „einni langri skammaræðu“. Hann var þá settur út í kuldann og tar á fólk“ AP Fjölskyldumaður Fredrik Reinfeldt hefur lýst sér sem miklum fjölskyldumanni og kveðst hafa gaman af hreingerningum og öðrum heimilisstörfum, barnauppeldi og lestri góðra bóka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.