Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 31 Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is halda að kjósendur séu búnir að gleyma vinstristjórnunum, sem settu verðbólguna upp úr öllu valdi, og öll efnahagsmálin á slig. Það er talsvert langt síðan vinstri- stjórn var við völd og vil ég ein- dregið biðja ungt fólk sem búið er að koma sér í húsnæðisskuldir, eða aðrar skuldir, að muna eftir R-listanum. Núna eru nær 16 ár síðan vinstristjórn var síðast við völd á landsvísu og þjóðarsáttarsamning- arnir voru gerðir. Það er hættu- lega langur tími fyrir yngstu kjós- endurna og er því bráðnauðsynlegt að biðja þá eldri, að segja þeim hvernig var að berj- ast við skuldir, atvinnuleysi, lok- aða banka og bókstaflega allar ÁKAFLEGA geta sumir stjórn- málamenn verið óheppnir. Stein- grímur J. Sigfússon grátbiður hina stjórnarandstöðuflokkana að heita því fyrir kosningar, að ganga með þeim í eina sæng að vori komanda, og mynda vinstristjórn kommanna. Þetta var náttúrlega beiðni um að mynda hræðslu- bandalag. Ingibjörgu Sólrúnu leist ekki á bandalagið nema hún leiddi stjórnina, man nokkur eftir R- listanum sem Ingibjörg leiddi? Steingrímur mun ekki hæna að sér marga kjósendur með hræðslubandalagi í vor. Furðu- legur maður, Steingrímur: Að nauðsynjar. Steingrímur þarf ekk- ert að fá stórmennskubrjálæði þó kommar hrökkvi upp í 20% í einni skoðanakönnun, það hefur skeð áður. Hann getur bara litið yfir farinn veg síðan í kosningunum í fyrravor þegar stórsigur átti að verða til vinstri. Nú er útkoman sú að kommar stjórna með öðrum í tveim til þrem sveitarstjórnum allt í allt. Sannleikurinn er nefnilega sá, að stjórnarandstöðuflokkarnir eru logandi hræddir hver við annan og þora ekki að fara með Steingrími í hræðslubandalag, þeir halda að Steingrímur svindli eitthvað á þeim. Þeir geta mikið sem vanir eru. Ingibjörg Sólrún bauð þeim í kaffi heim til sín, þau gætu talað saman þar. Þá kom nú óttinn í ljós, flokkssystir Steingríms sagði að hún vildi ekki drekka kaffi heima hjá Ingibjörgu Sólrúnu, hún teldi betra að vera á veitingahúsi. Að sjálfsögðu eru kommarnir líka hræddir við hina stjórnarand- stöðuflokkana. Steingrímur J. rek- ur upp ramakvein þegar Davíð Oddsson talar eins og ekki sé mál- frelsi hérna. Steingrímur verður bara að búa við það að Davíð Oddsson og Jón Sigurðsson eru langt um fremri honum í stjórnvisku, prúð- mennsku, og allri framkomu, Steingrímur er alltaf öskrandi eins og allir séu heyrnarlausir í kring um hann og ekki er kurteisinni fyrir að fara. Ég vil eindregið skora á alla rit- færa menn og konur að berjast eins og hægt er gegn því að stjórnarandstaðan komist í að- stöðu til að mynda vinstristjórn, það yrði þjóðinni slæmt. KARL JÓHANN ORMSSON, Starengi 26, Reykjavík. Sporin hræða Frá Karli Jóhanni Ormssyni FYRIR rúmu ári, 7. ágúst 2005, skrifaði ég stutta grein hér í Morgunblaðinu um störf Þing- vallanefndar. Þar tók ég undir óánægju sveit- arstjórnar Blá- skógabyggðar vegna afskipta Þingvallanefndar varðandi nýjan veg milli Þingvalla og uppsveita Árnessýslu. Nýr hreppur á Þingvöllum? Á þessari leið hefur verið gamall vegur, sem að grunni til var Kóngs- vegurinn frá 1907. Þeir sem fara þennan veg vita að hann er hlykkj- óttur með fjölda blindhæða og beygja svo og brekkur og er ekki upphækkaður. Sérstaklega er hann óheppilegur fyrir rúturnar. Vega- gerðin taldi réttilega þetta vega- stæði ekki henta og ákvað nýja legu á lægri og sléttari leið. Þingvalla- nefnd var ekki stætt á öðru en að samþykkja tillögu Vegagerðarinnar en þurfti endilega að taka þá hé- gómlegu afstöðu að vegurinn mætti ekki fara inn fyrir mörk þjóðgarðs- ins. Enn skal á það minnt að innan þjóðgarðsins liggja margir bílvegir, sem hafa verið notaðir um áratuga- skeið. Ég lít svo á að umferð fólks- bíla geti vart spillt jarðvegi. Sjálfsagt er að banna umferð flutningabíla með olíu, bensín og önnur hættuleg spilliefni um garð- inn. Til þess að tefja sem mest var umhverfisráðherra látinn fella um- hverfismat úr gildi. Einhver und- arleg árátta hvílir á Þingvallanefnd í andúð á veg milli Þingvalla og Laugarvatns þó svo að margsannað sé að um nauðsynlegan veg er að ræða fyrir uppsveitir Árnessýslu. Víst má telja að ferðaþjónustunni sé mjög umhugað um að fá þennan veg sem fyrst, veg sem tengir helstu ferðamannastaðina sunn- anlands saman. Þessu greinarkorni, sem ég skrif- aði fyrir rúmu ári, svaraði Björn Bjarnason, formaður Þingvalla- nefndar. Mesta athygli mína vöktu þær upplýsingar að Alþingi hefur samþykkt að fjölga nefnd- armönnum úr þremur í sjö! Sjö menn! Ekki nefndi hann ástæðu eða þörf á svo mikilli fjölgun. Þetta er sami fjöldi og í meðalstórri sveit- arstjórn. Skiljanlegt væri ef í nefndina væri kosið sérmenntað fólk, t.d. sagnfræðingar, landslags- arkitekt eða menntað fólk í rekstri þjóðgarða. Nei – öðru nær! Í lögunum er ákveðið að allir nefndarmenn verði úr hópi alþing- ismanna og sjö til vara. Þegar ég sá þetta varð ég bæði undrandi og hneykslaður. Eitthvað liggur hér að baki. Nú skal uppfylla hégóma sumra þingmanna, sem langar svo ósköp að vera í „fínni“ nefnd. Ekki er annað að sjá en að Alþingi er að stofna nýjan hrepp á sama tíma og unnið er að því að fækka þeim með sameiningu. Ekki er öll vitleysan eins. Þessi fjölgun verður ekki ókeypis. O-nei! Nú er til fjármagn í slíka til- gangslausa vitleysu. Sama Alþingi neitar að leggja til fjármagn í ýmsa nauðsynlega starfsemi, ekki síst í heilbrigðisgeiranum og ber við fé- leysi! Sei-sei, en sú skinhelgi. Ásýnd þjóðgarðsins Ásýnd þjóðgarðs er margvísleg. Varla fer á milli mála að ein mest áberandi ásýndin er trjágróðurinn. Í bæði 1. og 3. grein reglugerðar um þjóðgarðinn er tekið fram að Þingvallanefnd er skylt að gæta ásýndar garðsins. Nú skulum við athuga hvernig Þingvallanefnd og starfsfólk hennar sinna skyldum sínum. Í grein minni fyrir ári getur að sjá: „Þegar ekið er um veginn frá þjónustumiðstöð að Gjábakka, veginn sem var lagður 1974, blasir við vegfarendum sérstakur sóða- skapur, sem eru gapandi svartar kalviðarhríslur víða á þeirri leið.“ Þessi vegur liggur inni í miðjum þjóðgarðinum. Um þennan veg fer flest ferðafólk, sem heimsækir Þingvelli, þar með fjöldi útlendinga. Álitamál er hvort fólki finnst stein- dauð tré falleg eða ljót. Oftast vill fólk losna við kalvið. Þessi ásýnd er óbreytt enn í dag og hefur verið ár- um saman. Sjá mynd. Beiðni til forsætisráðherra Ég fer fram á við forsætisráðherra, Geir H. Haarde, að gefa okkur skattgreiðendum skýringar á þeirri þörf að fjölga svona stórlega í Þing- vallanefnd, sem augljóslega hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér. JÓN OTTI JÓNSSON, prentari, Efstasundi 2, Reykjavík. Frá Jóni Otta Jónssyni Jón Otti Jónsson Fjölgun fulltrúa í Þingvallanefnd Páll Jóhann Einarsson skrifar um trú og vísindi. Gunnar Jóhannesson skrifar um trú og vísindi. Guðjón Sveinsson: Rík þjóð en fátæk í anda. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar NÝLEGAR blaðagreinar og við- töl við foreldra sem eiga börn sem hafa ánetjast eiturlyfjum, eða gengur illa að fóta sig í skólakerf- inu, hafa vakið athygli mína. Það er ekki hægt að lesa um reynslu þessa fólks án þess að vera snortin. Á sama tíma finnur maður fyrir van- mætti. Að bjarga barni úr klóm eitur- lyfja eða styðja við barn sem þrífst illa í bóknámsmiðuðu skólakerfi er svo stórt verkefni að einstaka foreldri má sín lítils við lausn þess. Hér þarf heilt samfélag til. Fréttir af drukknum unglingum á útihátíð- um hafa sömuleiðis skotið mér skelk í bringu. Það viðgengst ennþá að ólögráða börn ráfi um nánast án vits og rænu með- an fullorðnir skemmta sér nálægt. Hér bera foreldrar auðvitað ríkustu ábyrgðina en ef þeir láta sér fátt um finnast verða aðrir að ganga fram fyrir skjöldu og stoppa slíkt ódæði – í þágu barnsins og samfélagsins alls. Ísland er gríðarlega ríkt land. Þrátt fyrir miklar þjóðfélagslegar breytingar er samfélagið enn þá frekar einsleitt og félagslegur jöfn- uður skiptir miklu máli. Hér er líka samhljómur um að hlúa að börnum og við Íslendingar eyðum miklum fjármunum í menntun, uppeldi og þjónustu við börn. Samt lætur ár- angurinn á sér standa. Sumir segja að ekki sé nóg að gert og að enn skorti fjármuni meðan aðrir kalla á breytta forgangsröðun verkefna. Enn aðrir kenna agalausum börn- um og foreldrum um slakan árang- ur. Sjálfsagt er eitthvað til í öllum þessum útskýringum. Það vill hins vegar gleymast að rétt eins og hraði og stöðug umbrot í umhverf- inu kalla á breytingar á högum hinna fullorðnu, kalla þau líka á breytingar á stöðu barnsins. Það er erfitt að átta sig á því hvernig við getum gefið öllum börnum kost á bestu mögulegu skilyrðum til vaxt- ar og þroska ef við setjum þau sjálf aldrei í brennidepil þegar við ræð- um málefni þeirra. Hér gleymist líka oft hversu miklu máli foreldrið skiptir. Foreldri er áhrifavaldur í lífi barns Vandasamasta og ábyrgðarmesta hlutverkið sem við fáum um ævina er að ala upp barn. Rannsóknir staðfesta að þeir sem hafa mest mótandi áhrif á börn og unglinga eru foreldrar. Foreldrahlutverkið verður seint fullkomnað en það skiptir máli að við sinnum því af al- úð og lítum á það sem þroskandi reynslu þrátt fyrir erfiðleika sem kunna að koma upp. Það er ekki nóg að búa til barnið, foreldri verð- ur að veita því stuðning og fylgja eftir í uppvextinum. Við gegnum öll mörgum hlutverkum í lífinu og setj- um okkur reglulega markmið. Það er mikilvægt til að ná árangri. Stað- reyndin er samt sú að ekkert skipt- ir okkur meira máli en þroski, ham- ingja og framtíð barnanna okkar. Foreldrar eru sérfræðingar í börn- unum sínum og þekkja best þarfir þeirra fyrir stuðning og þjónustu. Þeir eru líka málsvarar þeirra til 18 ára aldurs. Þess vegna skiptir svo miklu máli að foreldrar fái tækifæri til að móta umhverfið sem börn alast upp í og þá þjónustu og stuðn- ing sem samfélagið veitir þeim til að koma börnunum til manns. Hér skortir hins vegar samhljóm meðal þjóðarinnar. Aðgerðaleysi í málefnum fjölskyldunnar Við váleg tíðindi og á tyllidögum er kallað á foreldra að rækja skyld- ur sínar gagnvart börnum. Á sama tíma hefur samfélagið hvorki sammælst um mikilvægi þess að veita foreldrum þann stuðn- ing sem þarf, né tryggt að rödd þeirra heyrist við mótun og fram- kvæmd stefnu um stuðning og þjónustu við börn. Þetta sannar nýlegt dæmi um neitun umönnunargreiðslna fyrir foreldra fatlaðra barna meðan þeir eru í fæðingarorlofi. Þessi stuðningur getur skipt sköpum fyrir viðkom- andi fjölskyldur en eru smáaurar fyrir rík- issjóð. Árið 1998 álykt- aði Alþingi um mótun opinberrar fjöl- skyldustefnu en árið 2001 var ríkisstjórn- inni falið að undirbúa heildstæða og sam- ræmda opinbera stefnu í málefnum barna og unglinga. Í kjölfarið var skipuð nefnd sem skil- aði skýrslu í apríl 2005. Í byrjun sama árs tók til starfa fjöl- skyldunefnd á vegum forsætisráðu- neytis. Nefndin, sem var stofnuð eftir ákall ráðamanna í jóla- og ára- mótaávörpum, á að móta heild- stæða fjölskyldustefnu fyrir rík- isstjórnina og fella tillögur fyrri nefndarinnar að öðrum tillögum sem miða að því að styrkja stöðu fjölskyldunnar. Það verður fróðlegt að sjá tillögur nefndarinnar og hvaða breytingar verða gerðar í kjölfarið varðandi áherslur í fjöl- skyldumálum. Látum rödd foreldra að heyrast Menntun, uppeldi og þjónusta við börn er samvinnuverkefni foreldra og samfélags en ekki viðfangsefni þar sem annar aðilinn er verkkaupi og hin verktaki. Með því að tryggja aðkomu þiggjenda þjónustu að mót- un og framkvæmd ákvarðana köll- um við þá til ábyrgðar. Það er for- senda árangurs. Samhliða á samfélagið að senda skýr skilaboð til foreldra um að vera sú fyr- irmynd sem börnin geta tekið með sér inn í fullorðinsárin. Samfélag sem byggir stoðir sínar á velferð fyrir alla ætti að vita að það þarf heilt samfélag til að ala upp barn. Skortur á meðferðarúrræðum fyrir börn sem eiga við geðræn vanda- mál að stríða, þeim sem hafa ánetj- ast eiturlyfjaþrælnum, sem og skortur á heildstæðri stefnumörk- un og forgangsröðun úrræða, er ekki foreldrum til vansa, heldur öllu samfélaginu. Ég er foreldri – mín rödd skiptir máli María Kristín Gylfadóttir fjallar um málefni barna og unglinga María Kristín Gylfadóttir » Samfélagsem byggir stoðir sínar á velferð fyrir alla ætti að vita að það þarf heilt samfélag til að ala upp barn. Höfundur er formaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra. FORSTÖÐUMAÐUR Nýju fréttastofunnar (NFS), Róbert Marshall, sendi Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni opið bréf sem birtist í Morgunblaðinu hinn 18. sept- ember sl. Í bréfi þessu leggst Ró- bert eins og hundur á fjóra fætur og biður eiganda sinn ásjár og er óskin sú að eigandinn haldi lífi í NFS í tvö ár a.m.k. Forsvarsmenn svokallaðra Baugsmiðla hafa verið óþreytandi að halda því fram að eigendur miðlanna hafi engin afskipti af starfsemi þeirra. Frægt var þeg- ar Jóhannes Jónsson fyrirskipaði brottrekstur þáttastjórnanda sem þjarmaði að honum í viðtali um vöruverð. Þetta opna bréf sýnir fram á að starfsmenn NFS eiga lifibrauð sitt alfarið undir duttlungum Jóns Ásgeirs. Engu máli skiptir þótt félagið sé á markaði eða tjaldað sé til ofurstjórnendum. Hvernig er hægt að treysta því að hundur á fjórum fótum fjalli á hlutlausan hátt um málefni hús- bónda síns? Sveinn Andri Sveinsson Sá á hundinn sem elur Höfundur er hæstaréttarlögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.