Morgunblaðið - 19.09.2006, Side 38

Morgunblaðið - 19.09.2006, Side 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Framleiðslustjóri Verkstjóri Leitum að kraftmiklum verkstjóra til að stjórna framleiðslu og uppsetningarvinnu í bygg- ingariðnaði. Kostur ef viðkomandi sé iðn- menntaður t.d. járn- eða trésmiður en ekki skil- yrði. Viðkomandi þarf að eiga gott með mann- leg samskipti og vera drífandi og úrræðagóður. Leitað er að manni til að hefja störf sem fyrst. Áhugasamir sendi nafn og upplýsingar um starfsreynslu og fyrri störf á zz066@hotmail.com. KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is - www.job.is Arkitekt Á Bæjarskipulagi Kópavogs er starf arkitekts laust til umsóknar. • Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár. Á bæjarskipulagi starfa auk skipulags- stjóra, arkitekt, landslagsarkitekt og ritari. Öll aðstaða á vinnustað er með ágætum og góður starfsandi. Allt nýskipulag er unnið í Auto-cad. Ert þú tilbúin(n) til að takast á við krefj- andi hönnunar verkefni með okkur, eink- um á sviði deiliskipulags? Viðkomandi, sem og aðrir starfsmenn Bæjarskipulags þurfa að taka við og svara erindum bæj- arbúa er varða skipulags- og umhverfis- mál. Umsóknarfrestur er til 4. október 2006. Hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Smári Smárason í síma 570 1450. Raðauglýsingar 569 1100 Tilboð/Útboð Útboð Akraneskaupstaður í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur og Símann hf. óskar eftir tilboðum í verkið Grenigrund malbikun og frágangur Helstu magntölur eru: Malbik 5.500 m2 Steyptar gangstéttar 1.650 m2 Skurðir v. lagna 850 m Jarðstrengir 1.500 m Verklok eru sem hér segir: Malbikun götu: 15. des. 2006 Göngustígar og annar frágangur: 1. júní 2007. Útboðsgögn eru til sölu frá og með 22. sept. nk. hjá tækni- og umhverfissviði Akraneskaup- staðar, Dalbraut 8 á Akranesi, fyrir kr. 3.000. Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn 2. okt. 2006 kl. 11.00. Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs. Tilkynningar Verkalýðsfélagið Hlíf Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör fulltrúa Verkalýðs- félagsins Hlífar á ársfund Alþýðusambands Íslands, sem haldinn verður á Nordica Hotel í Reykjavík dagana 26. og 27. október 2006. Tillögum með nöfnum 7 aðalfulltrúa og 7 vara- fulltrúa ber að skila á skrifstofu Hlífar fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 26. september nk. Tillögunum skulu fylgja meðmæli minnst 50 til 60 félagsmanna. Kjörstjórn Hlífar. Innköllun víkjandi skuldabréfa 1. flokkur 1999 Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur ákveðið að nýta sér heimild til innköllunar á skuldabréfaflokknum SPR 99 1. Innköllunin miðast við vaxtagjalddaga bréf- anna 21. desember 2006. Skuldin verður greidd í samræmi við ákvæði skuldabréfaflokksins. Greiðslustaður skuldabréfanna er hjá Spari- sjóði Reykjavíkur og nágrennis, Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Vísað er að öðru leyti í ákvæði skuldabéfa- flokksins. Ýmislegt Harður dómur Framsóknar um eigin störf og forystu? Hvers vegna var ut- anþingsmaður, Jón Sigurðsson, óvænt kjörinn formaður Framsóknarflokksins og hvers vegna hafa sex ráðherrar hans (F.I., G.B., I.P., Á.M., J.K. og H.Á.) óvænt valið að hætta í stjórnmál- um? Framsóknarmenn hafa sagt og segja ár- angur ríkisstjórnarinnar og stöðu málaflokka þeirra góða. Þarf Framsókn ekki að gefa hér trúverðugar skýringar? Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti. FRÉTTIR Í TILEFNI af 50 ára afmæli NTR (Norræna umferðar- öryggisráðsins) sem fagnað var í Kaupmannahöfn ný- lega voru sex manns heiðraðir fyrir mikilvægt framlag til umferðaröryggis á Norðurlöndum. Það eru Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs, Kirsten Ebbens- gaard frá Danmörku, Valde Mikkonen Finnlandi, Pet- ur Jacob Sigvardssen frá Færeyjum, Leif Agnar Ell- evset Noregi og Britt Marie Utterström frá Svíþjóð. Þau hafa öll haft mikil áhrif á jákvæða þróun í umferð- aröryggismálum og er sérstök ástæða til að heiðra það í tilefni af afmælinu, segir í fréttatilkynningu. Óli H. Þórðarson hefur tekið virkan þátt í starfsemi NTR allan sinn starfsferil sem framkvæmdastjóri frá árinu 1978 og síðar sem formaður Umferðarráðs. Við sama tækifæri var Claes Tingvall, sem er einn helsti hugmyndafræðingur að baki „núllsýn“ Svía í umferðaröryggismálum, heiðraður fyrir sinn þátt í þróun umferðaröryggis á hemsvísu. Hann hefur meðal annars tekið virkan þátt í EuroNCAP, sem er verkefni sem miðar að því að meta öryggi bíla bæði gagnvart ökumönnum og gagnvart gangandi fólki. Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs, heiðraður fyrir mikilvægt framlag til umferðaröryggis á Norðurlöndum. Óli H. Þórðarson heiðraður JAKOB Hrafns- son var endur- kjörinn formað- ur Sambands ungra Fram- sóknarmanna á 33. sam- bandsþingi þeirra sem var haldið um helgina. Jakob var kjörinn í 2 ár og er þetta því annað starfstímabil hans sem formaður SUF. Aðrir í stjórn voru kjörnir: Fanný Jónsdóttir, Ella Þóra Jónsdóttir, Þórunn Benný Birgisdóttir, Jóhanna Hreiðarsdóttir, Ármann Ingi Sigurðsson, Brynja Lind Sævarsdóttir, Egill Arnar Sigurþórsson, Stefán Bogi Sveinsson, Axel Kárason, Inga Guðrún Kristjánsdóttir, Guðmundur Ómar Hafsteinsson og Hlini Melsteð Jóngeirsson. Jakob endurkjör- inn formaður SUF NEMENDUM í iðn- og starfs- menntaskólum býðst nú tækifæri til að sækja um Leonardo da Vinci styrk til Menntar, til að fara í starfsþjálfun erlendis.Skilyrði fyrir styrk er að þjálfunin tengist á ein- hvern hátt náminu og sé helst metin sem hluti af verklegri þjálfun. Nemendur geta dvalið frá 3 vik- um og upp í 3 mánuði. Ferðakostn- aður er greiddur að fullu upp að 650 evrum á mann. Skólarnir geta aðstoðað við að út- vega nemendum tengsl erlendis eða útvegað þeim vinnu beint. Einnig getur Mennt haft milligöngu um að finna pláss við hæfi og eru sam- starfsaðilar í flestum löndum Evr- ópu. Alþjóðafulltrúar skólanna sjá um samskipti við Mennt og kynn- ingar á styrkjunum. Nemendur sækja um á íslensku, ensku eða tungumáli vinnulandsins beint til skólanna eða til Menntar. Upplýs- ingar gefur Aðalheiður Jónsdóttir á skrifstofu Menntar í síma 599 1440 eða í netfangið alla@mennt.is. Styrkir til starfsþjálfunar FEMÍNISTAFÉLAG Íslands skor- ar á formann velferðarsviðs Reykjavíkur að endurskoða til- lögur um að leggja niður Konu- kot, athvarf fyrir heimilislausar konur. „Ástæðan fyrir því að Konukot var stofnað var sú að ekki reynd- ist mögulegt að tryggja öryggi kvenna í gistiskýlinu í Þingholts- stræti og telur stjórn félagsins það óásættanlegt að aftur verði horfið til fyrra ástands í þessum efnum. Reynslan af rekstri Konu- kots hefur verið góð og hafa starfsmenn lögreglunnar í Reykjavík og Kvennaathvarfsins talið Konukot hafa bætt til muna umhverfi og öryggi heimilislausra kvenna í borginni. Við teljum það skyldu borg- aranna að styðja við heim- ilislausar konur og útvega þeim skjól fyrir veðri og vindum, þar sem þær eiga ekki á hættu að verða fyrir ofbeldi. Velferðarsvið borgarinnar ber ábyrgð á velferð- arþjónustu fyrir íbúa borgarinnar og teljum við að til að uppfylla skyldur sínar gagnvart borg- urunum sé mikilvægt að bjóða heimilislausum konum öruggt skjól,“ segir í fréttatilkynningu. Konukot verði ekki lagt niður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.