Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 40
Staðurstund
Arnar Eggert Thoroddsen segir
frá ferskjunum fersku sem
listamaðurinn Peaches fram-
reiddi í Berlín nýverið.» 43
af listum
Hekla Dögg fleytir þúsundum
álkróna í sundlaug á Reykjanesi
og hreifst myndlistargagnrýn-
andi vor af framtakinu.» 43
myndlist
Oprah vill ekki kannast við að vera á
leið í framboð til embættis forseta
Bandaríkjanna og hefur stefnt helsta
stuðningsmanni sínum.» 48
fólk
Kraftajötnar ráða ríkjum í bíói
bæði vestan hafs og austan;
Jón Páll á Íslandi og The Rock í
Bandaríkjunum.» 42
bíó
H
ljómsveitin Baggalútur leikur á tónlistarhátíðinni Popkomm
sem haldin er í Berlín dagana 20.-22. september. Samkvæmt
Útgáfufélaginu Baggalúti þykir hátíðin um margt merkileg og
fer samhliða fram á henni umfangsmikil tónlistarráðstefna.
Köntrísveit Baggalúts leikur á tónleikastaðnum Kult-
urbrauerei/Alte Kantine að kvöldi 21.
september.
Baggalútur sendi nýlega frá sér
sína aðra hljómskífu sem
kallast Aparnir í Eden. Sú
plata er í efsta sæti Tón-
listans yfir mestseldu
plötur á Íslandi.
Fyrir plötuna
Pabbi þarf að vinna,
sem kom út í fyrra,
var sveitin tilnefnd til
íslensku tónlistarverð-
launanna í þremur
flokkum; fyrir
hljómplötu árs-
ins, sem besti
nýliði og fyrir
lag ársins.
Bragi Valdi-
mar Skúlason
segir að boð
hafi komið frá
skipuleggj-
endum hátíð-
arinnar og þetta
geti reynst sveit-
inni happadrjúgt
skref. „Þetta er
mjög stór hátíð
og þeir sem til
þekkja segja að
hún sé afskaplega
merkileg. Þetta er
hátíð sem hentar
mjög vel til þess
að sýna sig og sjá
aðra. Gosar úr
þessum iðnaði
koma á hana til
þess að leita sér
að uppfylling-
arefni á aðrar hátíðir. Við gætum þess vegna átt von á því að þurfa að fara til
Brasilíu og Malasíu. Draumurinn er reyndar að fara til Nashville en spurn-
ing er hvort nokkur hafi áhuga á okkur þar,“ segir Bragi.
Þetta verður ellefu manna sveit sem kemur fram á hátíðinni. Tveir Svíar
hafa bæst í hópinn, sem leika á klarinett og píanó og harmonikku. „Við segj-
um það að sjálfsögðu á hátíðinni að klar-
inett hafi frá upphafi fylgt íslenskri
kántrítónlist. Við ætlum að
spila efni af Öpunum í
Eden og eitthvað meira.
Við reynum að skemmta
fólkinu.“
Baggalútur hafði lýst
því yfir að ekki stæði til
að spila á erlendri
grundu. „Við lýstum
því einhvern tíma
yfir að þetta
væri innrás-
arband ætl-
að til þess að
kynna
kántrítónlist
fyrir Íslend-
ingum. En
þetta hefur
farið úr
böndunum
eins og flest
annað sem
við tökum
okkur fyrir
hendur,“
segir Bragi.
Hann segir
að hljóm-
sveitin geri sér
hóflegar vonir
um mikla vel-
gengni á þýska
tónlistarmark-
aðnum. „Það er
spurning hvað
hægt er að
teygja þennan
ágæta brandara
langt yfir höfin.“
Ágætur brandari teygður yfir höfin
Baggalútur
á Poppkomm
í Berlín
|þriðjudagur|19. 9. 2006| mbl.is
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
„VIÐ REYNDUM að halda upp á 15 ára af-
mæli hljómsveitarinnar og byrjuðum að
undirbúa það með ársfyrirvara. Okkur tókst
á endanum að halda 15 ára afmælið hátíð-
legt þegar við vorum orðin 17 ára,“ segir
Einar Örn Benediktsson, einn af liðs-
mönnum Sykurmolanna, og lofar að betur
takist til núna, þegar Sykurmolarnir hittast
til að fagna því að 20 ár eru liðin frá því
smáskífan með smellinum „Ammæli“ kom
út.
„Okkur datt fyrst í hug að hafa þetta á
Sirkús og létum það fréttast til vina og
vandamanna, en miðarnir hreinlega hurfu
svo við sáum okkur ekki annað fært en að
stækka við okkur,“ segir Einar Örn, en af-
mælistónleikar Sykurmolanna verða haldnir
í Laugardalshöll 17. nóvember og er FL
Group bakhjarl uppákomunnar. Tilkynnt
verður um fyrirkomulag miðasölu þegar
nær dregur tónleikunum.
Á tónleikarnir koma Sykurmolarnir fram
í þeirri mynd sem þekktust varð og starfaði
lengst: Björk Guðmundsdóttir, Sigtryggur
Baldursson, Einar Örn Benediktsson, Þór
Eldon, Bragi Ólafsson og Margrét Örnólfs-
dóttir, en Einar Melax lék einnig með
hljómsveitinni um stutt skeið.
Sykurmolarnir hættu að spila saman árið
1992 og fóru hver í sína áttina: „Síðan þá
höfum við unnið mikið saman, í einu eða
öðru formi, og héldum áfram að stafa innan
Smekkleysu,“ segir Einar Örn, en Smekk-
leysa fær að njóta þess fjár sem aflast með
miðasölu: „Það er ekki hægt að kalla þetta
fjáröflun, en við notum tækifærið til þess að
láta Smekkleysu njóta góðs af. Það hefur
alltaf verið þannig í starfsemi Smekkleysu,
sem þróaðist mikið samhliða Sykurmolunum
á sínum tíma, að leyfa því sem til verður að
renna aftur inn í félagið.“
Á tónleikunum ætla Sykurmolarnir að
leika öll sín þekktustu lög: „Svo verðum við
með leynigest, sem samt er ekkert leyni,
því það er hinn ágæti Johnny Triumph sem
ætlar að koma og tekur sjálfsagt „Luftgit-
ar“,“ uppljóstrar Einar Örn að lokum.
Sykurmolarnir saman
á ný 17. nóvember
Morgunblaðið/Sverrir
Humar eða frægð Sykurmolarnir eru ein þekktasta hljómsveit Íslandssögunnar.