Morgunblaðið - 05.10.2006, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Benidorm
12. eða 19. október í 1 eða 2 vikur. Þú bókar og tryggir þér sæti
og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tæki-
færið og tryggðu þér sumarauka á frábærum kjörum á einum vin-
sælasta sumarleyfisstað Íslendinga.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Benidorm
12. eða 19. október
frá kr. 29.990 m.v. 2
Allra síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð í viku, 12. eða 19. október.
Aukavika kr. 12.000.
SENDINEFND frá kínverska
þinginu átti fund með allsherjar-
nefnd Alþingis í gær og heimsótti
fleiri opinberar stofnanir. Kín-
versku þingmennirnir, sem eru hér
í heimsókn, sitja í nefnd sem fæst
við innri málefni og lagaleg hjá
þingi þeirra og gegnir hún hlið-
stæðu hlutverki og allsherjarnefnd
Alþingis Íslendinga.
Sólveig Pétursdóttir, forseti Al-
þingis, tók á móti kínversku gest-
unum í þingsalnum og fræddi þá
um störf þingsins. Síðan gengu
gestirnir í efrideildarsal Alþingis-
hússins og rituðu þar nöfn sín í
gestabók Alþingis. Á myndinni má
sjá kínversku gestina ásamt Sól-
veigu Pétursdóttur, forseta Alþing-
is.
Morgunblaðið/Sverrir
Kínversk heimsókn
VALTÝR Sig-
urðsson, forstjóri
Fangelsismála-
stofnunar, er
sáttur við framlag
til uppbyggingar
á fangelsum í
fjárlagafrum-
varpi fyrir árið
2007. Í frumvarp-
inu er lagt til að
168 milljónum verði varið til fangels-
isbygginga, fyrst og fremst til að
ljúka endurbótum á Akureyri og á
Kvíabryggju.
Valtýr segir að allt sé til reiðu til
að hefja endurbætur á Akureyri og
Kvíabryggju. Þá fáist á fjárlögum
nægt fé til að halda áfram undirbún-
ingi að breytingum á Litla-Hrauni
og til að útbúa frumathugun vegna
byggingu nýs fangelsis á Hólms-
heiði. „Ég er sáttur við þetta eins og
þetta lítur út í dag,“ segir Valtýr.
Markmið Fangelsismálastofnunar
er að nýtt fangelsi á Hólmsheiði
verði tekið í notkun árið 2010 og til
þess þarf stofnunin fjárheimildir á
fjárlögum 2008–2010. Um svipað
leyti á að ljúka endurbótum á fang-
elsinu á Litla-Hrauni.
Landið metið á 145 milljónir
Í frumvarpinu er lagt til að fjár-
málaráðherra fái heimild til að selja
land í eigu ríkisins við Litla-Hraun
og mun andvirðið renna upp í kostn-
að við betrumbætur á fangelsinu.
Landið sem um ræðir er norður af
fangelsinu, um 290 hektarar, og var
af matsmanni metið á 145 milljónir,
að sögn Valtýs. Áætlaður kostnaður
við endurbætur á Litla-Hrauni er
450 milljónir.
Sáttur við fram-
lög til bygginga
Selja 290 hektara land við Litla-Hraun
Valtýr Sigurðsson
NÍTJÁN ára piltur var tekinn á 142
km hraða í Ártúnsbrekku á þriðju-
dagskvöld og missir ökuskírteinið
auk sektar. Segist lögreglan vonast
til að þessi úrræði hafi loksins til-
ætluð áhrif á piltinn sem hefur
ítrekað brotið umferðarreglur. Var
hann tvívegis tekinn fyrir hraðakst-
ur í september og jafnoft á vormán-
uðum. Í apríl ók hann á ofsahraða
og missti þá ökuleyfið. Í sumar,
þegar hann hafði ekki tekið út þá
refsingu að fullu, var hann tekinn
fyrir að aka gegn rauðu ljósi. Að
sögn lögreglu má öllum vera að ljóst
að pilturinn þarf að taka sig mikið á.
Sama má segja um 21 árs öku-
mann sem var tekinn 136 km hraða
á svipuðum slóðum og sá fyrri.
Eldri pilturinn hefur sömuleiðis
margoft komið við sögu lögreglunn-
ar vegna umferðarlagabrota. Þá
hefur hann líka verið sviptur öku-
leyfi vegna hraðaksturs og einnig
átt erfitt með að taka út sína refs-
ingu. Hefur hann verið tekinn próf-
laus undir stýri.
Á ofsahraða í
Ártúnsbrekku
MÁLEFNI spilavefjarins Betsson-
.com er í rannsókn lögreglunnar í
Reykjavík eftir skoðun hennar frá því
í vor á meintu löglausu athæfi með því
að auglýsa vefinn í íslenskum fjöl-
miðlum. Sumir fjölmiðlar, eins og
Fréttablaðið, fóru að tilmælum lög-
reglu um að hætta birtingu auglýs-
inganna en íþróttastöðin Sýn og
Vísir.is auglýsa enn samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu.
Betsson hefur leyfi til veðmála-
starfsemi en ágreiningurinn snýst um
það hvort auglýsa megi vefinn í ís-
lenskum fjölmiðlum. Lögreglan hefur
fyrir sitt leyti ekki lokið rannsókn og
þar af leiðandi hefur ákæruvaldið
ekki fengið málið til meðferðar.
Vænta má, að á næstunni verði
ákveðið hvort höfðað verði mál gegn
fjölmiðlunum, að líkindum fyrir brot á
happdrættislögum sem kveða á um
allt að árs fangelsi fyrir brot á þeim.
Júlíus Þór Júlíusson, formaður
samtaka áhugafólks um spilafíkn,
kvartaði undan Betsson.com í vor til
lögreglu og fékk þau svör að hún gæti
lítið aðhafst. „Almennt er fólk úti í
þjóðfélaginu á móti fjárhættuspili,“
bendir hann á. „Þegar þessar auglýs-
ingar birtast hringir fjöldi fólks í okk-
ur. Margar reynslusögur lúta að því
hvernig fólk hefur misst aleiguna í
veðmálum og það er ekki langt síðan
ungur maður spilaði fyrir 2–3 millj-
ónir á fáum dögum en þessi fjárhæð
nam eignarhlutnum í íbúðinni hans.
Það að auglýsa fjárhættuspil í fjöl-
miðlum jafnast á við að auglýsa bjór
sem er auðvitað bannað rétt eins og
fjárhættuspil. En enginn vill gera
neitt í þessu. Þegar ég talaði við lög-
regluna sagðist hún myndu senda
umræddum aðilum bréf en að öðru
leyti gæti hún ekkert gert þótt hún
væri algerlega sammála því sjónar-
miði að ekki ætti að leyfa þetta.“
Júlíus bendir á að hérlendis sé ekk-
ert þak á því hve háar fjárhæðir megi
taka út af kreditkortum og því geti
þeir spilasjúku tekið út af kortum sín-
um fyrir milljónir króna og tapað öllu
fyrir framan tölvuna heima hjá sér.
„En í Noregi verða menn að fá að-
gangsorð sem þeir stimpla inn þegar
þeir fara á spilavefina. Þegar þeir eru
komnir upp í ákveðna upphæð fá þeir
ekki lengur úttektarheimild.“
Visa skiptir sér ekki af
Um þennan hluta málsins segir
Leifur Steinn Elísson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri VISA Ísland, að hugs-
anlega væri tæknilega gerlegt að
setja þak á úttektir fólks eins og Júl-
íus lýsir. „En við lítum svo á að
greiðslukort séu greiðslumiðill rétt
eins og peningaseðlar,“ segir hann.
„Seðlabankinn gefur út peningaseðla
og hefur engin afskipti af því hvernig
fólk notar þá. Eins er því farið hér,
þegar einstaklingur er orðinn kort-
hafi fær hann notkunarheimild frá
sínum banka innan ákveðinna marka.
Af persónuverndarástæðum er varla
hægt að skipta sér af því hvernig við-
komandi notar kortið. Ég tel því sið-
ferðilega rangt af okkur að vera með
afskipti af því hvernig kortanotkun er
háttað auk þess sem slíkt ætti sér lík-
lega ekki lagastoð.“
Leifur bendir á að Persónuvernd
og fleiri eftirlitsaðilar hefðu ýmislegt
við slík afskipti að athuga og í ljósi
fyrri reynslu af áþekkum málum, þ.e.
eyðslu á nektardansstöðum, eru af-
skipti nú ekki inni í myndinni.
Benda má á að af hálfu Betsson
hefur verið fullyrt að engin íslensk lög
banni auglýsingar á vefsíðum. Bets-
son sé vörumerki og hvergi í auglýs-
ingunum sé vikið að happdrætti.
Hafa engar
athugasemdir fengið
Sjónvarpsstöðin Sýn er einn þeirra
miðla sem hafa birt auglýsingar frá
Betsson og segir Einar Logi Vignis-
son, sölustjóri sjónvarpsmiðla 365, að
stöðin hafi engar athugasemdir feng-
ið frá lögreglunni vegna þessara aug-
lýsinga. „Ef auglýsingar eru ekki
ólöglegar, þá birtum við þær, nema
þær særi blygðunarkennd áhorf-
enda,“ segir hann. Bendir hann á að
samkvæmt lögfræðiáliti Sigurðar G.
Guðjónssonar séu Betsson-auglýsing-
arnar ekki ólöglegar og þar til dómur
falli um annað geti Sýn ekki hafnað
því að birta þær.
Tapa milljónum á kredit-
kortum í veðmálum
Morgunblaðið/Kristinn
Deiluefni Styrinn stendur um lögmæti þess að auglýsa Betsson í fjöl-
miðlum. Ákæra liggur ekki fyrir en talsmenn spilafíkla hafa áhyggjur.
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt íslenskum lög-um um happdrætti varðar
það sektum eða fangelsi að
auglýsa happdrætti sem ekki
hefur fengist leyfi fyrir. Refs-
ingin er eins árs fangelsi fyrir
meiri háttar brot.
»Forsvarsmenn Betssonhafa bent á að ekki sé víst
að lögin standist reglur ESB
og EES um þjóðfrelsi. Ekki
verði því séð að yfirvöld geti
bannað einum eða neinum að
auglýsa vefsíðu sína sem
stundar löglega starfsemi í
Evrópu.
Fréttaskýring | Lög-
reglan í Reykjavík rann-
sakar enn lögmæti þess
að auglýsa spilavefinn
Betsson í íslenskum fjöl-
miðlum. Talsmaður spila-
fíkla kvartar undan að-
gerðaleysi
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
REIKNAÐ er
með því að skrifað
verði undir sam-
komulag milli ís-
lenskra og ind-
verskra stjórn-
valda á næstunni
vegna samstarfs
um jarðskjálfta-
rannsóknir. Und-
irbúningur hefur
staðið yfir í nokkurn tíma en sam-
komulag milli stjórnvalda þarf til að
skriður komist á verkefnið.
Sagt var frá verkefninu í indversk-
um fjölmiðlum í gær. Það snýst m.a.
um að nýta þekkingu á því hvernig
segja má fyrir um jarðskjálfta og
setja upp viðvörunarkerfi á tveimur
stöðum á Indlandi; í Himalajafjöll-
unum og norðan við Nýju Delhí, seg-
ir Ragnar Stefánsson, prófessor í
jarðvárfræðum við Háskólann á Ak-
ureyri.
Eins og sagt hefur verið frá í
Morgunblaðinu byggist tæknin á
svokölluðum smáskjálftamælingum.
„Við metum upplýsingar sem berast
með örsmáum jarðskjálftum [...] sem
verða djúpt niðri í jarðskorpunni.
Þessir skjálftar bera með sér fjöl-
breytilegar upplýsingar, um aðstæð-
ur er þeir leystust úr læðingi og
einnig um leiðina sem þeir fara upp á
yfirborðið,“ segir Ragnar.
„Þessir litlu skjálftar verða svo
gott sem stöðugt á jarðskjálftabelt-
um. Þeim má líkja við sendiboða með
fréttir að neðan. Kúnstin er að geta
unnið úr þeim, bæði hratt og vel,“
segir Ragnar. Það er gert með að-
ferðum sem verið hafa í þróun hér á
landi síðan 1988 og eru nú eftirsóttar
víða um heim.
Ragnar segir að vel sé hægt að
nota tæknina á Indlandi þótt landið
sé stórt. Lykillinn sé að bera kennsl
á líklega staði og fylgjast síðan með
og taka eftir breytingum sem verða
áður en stór skjálfti verður.
Vinna upplýsingar
úr fréttum að neðan
Ragnar Stefánsson