Morgunblaðið - 05.10.2006, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 13
FRÉTTIR
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
INNMATUR og afurðir úr honum
njóta nú aukinna vinsælda og selj-
ast lifur, hjörtu og slátur vel. Slát-
ur fæst á ýmsum vinnslustigum og
frosin ósoðin lifrarpylsa og blóð-
mör seljast sem aldrei fyrr. Eins
nýtur soðið slátur aukinna vin-
sælda og lifrin er fastur liður á
matseðli „danska kúrsins“ svo-
nefnda.
Hagstætt verð, hollusta og gæði
innmatarins eru talin stuðla að
aukinni sölu þessara matvara, sem
um tíma áttu í vök að verjast.
Ódýr matur og hollur
Sigurður Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri SAH Afurða ehf. á
Blönduósi, telur að starf við
vöruþróun undanfarin ár sé nú að
skila sér. Sigurður bendir á að
þótt kjötverð hafi hækkað sé inn-
matur ódýr vara og gott hráefni
til matargerðar. „Lifur er fyr-
irskipuð í danska kúrnum einu
sinni í viku og það munar um
allt,“ segir Sigurður. „Þetta er
ánægjuleg þróun. Sláturleyf-
ishafar hafa lagt aukna áherslu að
koma innmat í verslanir í neyt-
endavænum pakkningum.
Fólk getur gengið að þessu með
þokkalega góðum hætti í umbúð-
um sem henta. Þetta er jákvæð
þróun, því innmatur er ódýr, holl-
ur og góður. Það er oft kvartað yf-
ir háu matvælaverði hér á landi.
En það gleymist að við höfum
ekki verið nógu dugleg við að nýta
ódýran mat. Víða erlendis er t.d.
mikil pylsu- og bjúgnamenning
þar sem menn nýta ódýrt hráefni í
ódýrari matvörur.“
Slátrið selst allan ársins
hring
Hermann Árnason, stöðvarstjóri
SS á Selfossi, segir að sala á inn-
mat hafi breyst í áranna rás. SS
hefur boðið upp á hefðbundið slát-
ur í kassa, hreinsaðar vambir,
hjarta, nýru, lifur, óskorinn mör
og sviðinn haus. Einnig er boðið
upp á sláturkassa með „söxuðu og
saumuðu“, það er sami innmatur
og svið en með brytjuðum mör og
saumuðum vömbum.
Hermann segir að söluaukn-
ingin hafi verið í slátrinu sem er
meira forunnið. Hann segir að SS
hafi verið stórtækast í kalúnun og
þrifum á vömbum hér á landi og
hefur verið góð sala í þeim. Vamb-
irnar hafa m.a. verið seldar fyr-
irtækjum sem selja innmat frá
öðrum framleiðendum. „Það held-
ur sem betur fer töluvert velli að
fólk geri þetta eftir gamla laginu í
kalúnaðar vambir,“ segir Her-
mann.
Þá hefur sala á tilbúinni soðinni
lifrarpylsu og blóðmör aukist und-
anfarin ár. Þessi vara er orðin vin-
sæl og selst allt árið, að sögn Her-
manns.
Eiður Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Kjarnafæðis á Ak-
ureyri, telur ýmsar ástæður skýra
auknar vinsældir innmatarins og
unninna kjötvara. Þar á meðal sé
hagstætt verð á innmat og unnum
vörum. Íslendingar séu orðnir víð-
förlir og veraldarvanir og fólk sjái
hvað aðrar þjóðir borða fjölbreytt-
ari mat en við höfum vanist und-
anfarin ár. Á Norðurlöndum og
annars staðar í Evrópu og víðar er
mikil hefð fyrir ýmsum pylsuteg-
undum og öðrum unnum kjötvör-
um.
Eiður segir að í seinni tíð hafi
Íslendingar valið að borða ungann
úr afurðunum, steikur og þess
háttar gæðabita, sem kosta sitt,
en sneitt hjá ódýrari bitunum.
Eiður kveður sölu á lifrarpylsu
og blóðmör hafa aukist mjög, en
Kjarnafæði selur bæði ósoðið fros-
ið og soðið slátur. Meðal kaupenda
eru stofnanir á borð við leikskóla,
grunnskóla og verslanir. Þá segir
Eiður að hollusta innmatar og af-
urða úr honum sé mikil. Hann
nefnir t.d. að læknar ráðleggi
guggnum unglingsstúlkum að
borða slátur sér til heilsubótar.
Vilja það sem
áður var hent
Útlendingar sem flutt hafa
hingað gera sér einnig mat úr
ýmsu sem við höfum hent. Eiður
nefnir að verslanir og veit-
ingamenn falist í auknum mæli
eftir að fá keypta svínaskanka,
svínabein og lambanýru svo eitt-
hvað sé nefnt en hingað til hefur
þessum afurðum að mestu verið
fargað.
„Meðan við höfum borðað miðj-
una úr nautalundinni og öðrum
steikum, sem er að sjálfsögðu
gott, nýta aðrar þjóðir feitu end-
ana af svínasíðunni og beinin og
sjóða úr þessu súpu. Verðlagið
þarna á milli er auðvitað ekki
samanburðarhæft. Það er orðin
miklu meiri eftirspurn eftir því
sem við töldum varla söluvöru áð-
ur fyrr. Hreinlega orðin sprenging
í sölu á lambalifur og -hjörtum og
afurðum unnum úr því eins og lifr-
arbuffi og lambahjartasnitseli.
Þetta er mjög jákvæð þróun og ég
hef beðið eftir henni í mörg ár.
Vakning hefur orðið varðandi
gamlar íslenskar matarhefðir og
nú sækjast nýjar kynslóðir í aukn-
um mæli eftir mat sem ekki hefur
verið í tísku í tvo til þrjá áratugi.
Það er vel hægt að kaupa góðan
og ódýran heimilismat á Íslandi ef
fólk er svolítið hagsýnt.“
Nýjar kynslóðir sækjast
eftir mat sem ekki var í tísku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góðgæti Afurðir úr innmat eiga
vaxandi vinsældum að fagna.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ALLT útlit er fyrir að plágu fiðrilda-
lirfunnar sem herjað hefur illilega á
birkiskóga á Austurlandi sl. fjögur
til fimm ár sé nú lokið enda varð lirf-
unnar og maðka hennar ekki vart í
sumar. Að sögn Lárusar Heiðars-
sonar, skógræktarráðunautar hjá
Skógrækt ríkisins, standa vonir til
þess að þar með sé þessu lokið í bili,
en síðasti stóri faraldur fiðrildalirf-
unnar á Austurlandi átti sér stað á
fjórða áratug síðustu aldar.
„Birkiskógar á Austurlandi eru
margir hverjir mjög illa farnir eftir
4–5 ára skordýraplágu hér, en það
sást enginn maðkur í sumar. Þetta
virðist hafa tekið enda í fyrra. En
það eru stór svæði t.d. í Hamarsfirði
og Álftafirði þar sem birki hefur
hreinlega drepist út af þessu,“ segir
Lárus og bendir á að birkiskógurinn
á Austurlandi hafi hins vegar ekki
litið jafn vel út síðan í kringum 2000.
„Og raunar lítur gróður almennt vel
út þetta árið á öllu Austur- og Norð-
urlandi.“
Að mati skógræktarráðunauta
kom trjágróður ágætlega út í sumar.
Þó má ljóst vera að um meðalsumar
var að ræða hvað sprettu varðar,
enda helst spretta í hendur við hita-
far.
Lerkiskógurinn varð fyrir
áfalli í vorfrostunum
Hjá Aðalsteini Sigurgeirssyni,
forstöðumanni Skóræktarinnar á
Mógilsá, fengust þær upplýsingar að
á Suður- og Vesturlandi hefði
spretta verið góð, enda hefði ágúst-
og septembermánuður verið mildir
og góðir. Segir hann að um tíma hafi
verið óttast að brostið gæti á skæður
sitkalúsafaraldur með haustinu en
sem betur fer hafi ekkert orðið úr
því. Bendir hann á að líkt og fyrri ár
hafi bæði síberíulerki og rússalerki
fengið talsvert áfall í vor eftir fremur
mildan vetur þegar skyndilega kom
annars meinleysislegt vorfrost. Hafi
trén sökum þessa litið býsna illa út
fram eftir sumri. Sama eigi við um
alaskaöspina þar sem einstaka tré
þoldi vorfrostið ver en önnur. Að
sögn þeirra Lárusar og Aðalsteins
tekur vöxtur trjáa að nokkru leyti
mið af árferði árið á undan og miðað
við sumarið í ár þá lofi næsta sumar
góðu komi engin óvænt áföll upp á.
Morgunblaðið/Kristinn
Gott ár Að mati skógræktarráðunauta kom trjágróður ágætlega út í sum-
ar. Spretta var líkt og í meðalsumri. Skógræktarmenn fagna því sér-
staklega að vera lausir við fiðrildalirfupláguna.
Ágætur vöxtur
trjáa í sumar
Fiðrildalirfan hefur ekki verið á kreiki
í austfirskum birkiskógum á þessu ári
Kynning
Snyrtifræðingur frá Dior verður
á staðnum og býður upp á
húðgreiningu og aðstoð við
val á förðunarvörum.
Ef keyptar er tvær Dior vörur
fylgir fallegur kaupauki.*
*Kaupauki fylgir á meðan birgðir endast.
Verið velkomin.
fimmtudag
klukkan 13 -17
til laugardags
s. 568 5170
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands mun
standa fyrir stjórnmálaskóla ætl-
uðum konum um komandi helgi, 6.
– 7. október. Markmið skólans er
að vekja áhuga á stjórnmálum
meðal kvenna og kynna þær leiðir
sem konur hafa til áhrifa.
„Vonir standa til að skólinn virki
hvetjandi fyrir konur til að gefa
kost á sér í prófkjörum en einnig
til að kjósa aðrar konur og leið-
rétta þannig þá kynjaskekkju sem
virðist vera rótföst í stjórn lands-
ins,“ segir í fréttatilkynningu.
Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrver-
andi þingkona Kvennalistans, mun
sjá um vinnustofu þar sem unnið
verður með raunveruleg málefni
líðandi stundar. Að auki verður
haldið pallborð á laugardeginum
þar sem þingkonur frá hverjum
flokki fjalla um möguleika einstak-
lingsins til þess að hafa áhrif á
málefnastarf innan stjórnmála-
flokkanna og komast þar til áhrifa.
Þingkonurnar sem taka þátt eru
Kolbrún Halldórsdóttir VG, Sig-
ríður Anna Þórðardóttir Sjálfstæð-
isflokki, Oddný Sturludóttir Sam-
fylkingunni, Una María
Óskarsdóttir Framsókn og Mar-
grét Sverrisdóttir Frjálslynda
flokknum.
Stjórnmálaskólinn mun fara
fram föstudagskvöldið 6. október
frá kl. 19 – 22 og laugardaginn 7.
október frá kl. 12 – 18.
Skólinn verður haldinn í sal
BHM, Bandalags háskólamanna,
Borgartúni 6, og er þátttaka
ókeypis. Hægt er að skrá sig með
því að senda nafn og símanúmer
með tölvupósti á feministinn@fem-
inistinn.is en nánari upplýsingar
um dagskrá má finna á www.fem-
inistinn.is.
Femínistafélagið
með stjórnmála-
skóla fyrir konur