Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Washington. AP. | George W. Bush
Bandaríkjaforseti hefur hvatt til
þess að veiðar sem valda umhverf-
isspjöllum verði stöðvaðar og sagt að
stjórn sín hyggist beita sér fyrir
banni við botnvörpuveiðum á úthöf-
unum eða strangari reglum um þær.
Bush fól utanríkisráðuneytinu og
viðskiptaráðuneytinu í Washington
að beita sér fyrir „sjálfbærum“ fisk-
veiðum og leggjast gegn veiðiaðferð-
um sem spilltu sjávarbotninum og
sköðuðu fiskstofna.
Bush sagði að Bandaríkjastjórn
hygðist vinna með öðrum þjóðum og
alþjóðlegum samtökum að breyttum
veiðiaðferðum og að stofnun alþjóð-
legra samtaka til að setja reglur um
veiðarnar ef þörf krefði.
Forsetinn birti minnisblað um
þetta í fyrradag og í gær hófust
samningaviðræður í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í New York um
hugsanlegt bann við botnvörpuveið-
um á hafsvæðum þar sem þær lúta
ekki neinum reglum. Auk Banda-
ríkjastjórnar hafa stjórnvöld í Bras-
ilíu, Chile, Þýskalandi, Hollandi og
Suður-Afríku lýst yfir stuðningi við
botnvörpubann á úthöfunum. Ríki á
borð við Spán, Rússland og Ísland
hafa lagst gegn slíku banni.
Leikkonan Sigourney Weaver
kom fram á blaðamannafundi í New
York í fyrradag á vegum 60 um-
hverfisverndarhreyfinga og ríkja
sem styðja tímabundið bann við
botnvörpuveiðum á úthöfunum.
„Þetta gæti verið síðasta tækifæri
okkar til að bjarga nokkrum af mik-
ilvægustu vistkerfum heimsins,“
sagði Weaver.
Markmiðið með tímabundnu
banni er að skapa svigrúm til vís-
indarannsókna á hafsvæðunum til að
meta hver þeirra megi við botn-
vörpuveiðum og hvar ástæða sé til að
banna þær til frambúðar.
Bush vill takmarka
botnvörpuveiðar
Reuters
Styður bann Leikkonan Sigourney Weaver og sendiherra Ástralíu á blaða-
mannafundi í New York þar sem hún lét í ljós stuðning við botnvörpubann.
Í HNOTSKURN
» Takmarkaðar botnvörpu-veiðar eru leyfðar innan
landhelgi Bandaríkjanna.
» Úthöfin, eða hafsvæði ut-an fiskveiðilögsögu ríkja
heims, þekja um tvo þriðju
jarðarkringlunnar en aðeins
um 25% þeirra lúta alþjóð-
legum reglum.
Washington. AFP. |
Repúblikana-
flokkurinn reynir
nú að lágmarka
þann skaða sem
hlotist hefur af
hneykslismáli
Marks Foleys,
fyrrverandi þing-
manns í Texas.
Málið hefur stöð-
ugt undið upp á sig og í fyrradag
birti dagblaðið Wall Street Journal
skoðanakönnun, þar sem ánægja
með störf George W. Bush Banda-
ríkjaforseta mælist nú 39%, en var
42% í nýlegri könnun. Þá kom fram,
að 41% sagðist síður tilbúið til að
styðja áframhaldandi meirihluta
repúblikana í báðum deildum vegna
málsins.
Aðeins eru um fimm vikur til þing-
kosninga í Bandaríkjunum og þykir
málið hafa sett aukna pressu á repú-
blikana sem kunna að missa meiri-
hluta sinn í að minnsta kosti annarri
deild þingsins.
Í gær dró svo til frekari tíðinda
þegar David Roth, lögmaður Foleys,
lýsti því yfir að Foley hefði verið
beittur kynferðislegu ofbeldi af
presti á unglingsaldri. Jafnframt
upplýsti Roth, að Foley væri sam-
kynhneigður, um leið og hann hafn-
aði ásökunum um að umbjóðandi
sinn hefði átt í „kynferðislegu sam-
bandi við aðila undir lögaldri“.
Skjálfti á meðal flokksmanna
Repúblikanar óttast að þetta mál
kunni að draga úr áhuga flokks-
manna sinna á að mæta á kjörstað,
enda samfélagsleg gildi jafnan í önd-
vegi í áherslumálum flokksins.
Þá hafa margir íhaldsmenn farið
fram á afsögn J. Dennis Hasterts,
leiðtoga flokksins í fulltrúadeildinni,
vegna mistaka við að kanna málið áð-
Foley-hneykslið dregur
úr fylgi repúblikana
Mark Foley
STRANGTRÚAÐUR gyðingur í Jerúsalem grandskoðar ávöxt til að skera úr um hvort hægt sé að nota hann ásamt
þremur öðrum táknrænum hlutum á meðan á Sukkot, árvissri hátíð gyðinga, stendur. Á hátíðinni, sem hefst á morgun,
er fjörutíu ára eyðimerkurgöngu gyðinga minnst með ýmsum hætti. Samkvæmt gamalli hefð þurfa karlar að dvelja í
„sukkah“, skreyttu bráðabirgðaskýli, alla hátíðisdagana sjö. Konur og stúlkur eru hins vegar undanþegnar hefðinni.
AP
Minnast eyðimerkurgöngunnar
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÍRSKI lýðveldisherinn, IRA, á Norð-
ur-Írlandi hefur staðið við fyrirheit
um að leggja til hliðar hryðjuverk og
hvers kyns ofbeldi í baráttuaðferðum
sínum til frambúðar og mun þess í
stað leggja áherslu á að fara samn-
ingaleiðina til að ná samkomulagi um
endurreisn heimastjórnar í héraðinu.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
óháðrar eftirlitsnefndar (IMC) til
stjórnvalda á Bretlandi og Írlandi,
þar sem segir að IRA hafi leyst upp
hernaðararm sinn, hætt að taka á
móti nýjum sjálfboðaliðum og að
þiggja fjárframlög.
„Fyrir þremur árum [var IRA]
þróaðasta og hugsanlega hættuleg-
asta hreyfing vopnaðra hópa öfga-
manna, sem hafði yfir að ráða stærsta
vopnabúrinu. Hún fylgir nú fast eftir
pólitískum baráttuleiðum og þannig
sneiða hjá hryðjuverkum og annarri
birtingarmynd ofbeldis.“
Þrýstingurinn hafi borið ávöxt
Ian Paisley, leiðtogi stærsta flokks
mótmælenda, DUP, fagnaði niður-
stöðu skýrslunnar og sagði hana sýna
að þrýstingur flokks síns hefði borið
árangur. Jafnframt leituðu forystu-
menn DUP viðræðna við vopnaeftir-
litsaðila til að ganga úr skugga um að
IRA hefði látið af vopnaðri baráttu
fyrir fullt og allt.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Bertie Ahern, forsætisráð-
herra Írlands, settu í aprílmánuði
stríðandi fylkingum á Norður-Írlandi
tímamörk til að ná samkomulagi um
endurreisn heimastjórnar í héraðinu.
Því gæti breytt afstaða IRA til of-
beldisaðgerða verið til að liðka fyrir
því ferli, en forystumenn kaþólikka
og mótmælenda hafa tíma fram til 24.
nóvember nk. til að mynda saman
stjórn.
IRA fellur frá
hryðjuverkum
AP
Áróður Kona gengur hjá veggmynd
til stuðnings IRA í Ulster-héraði
Hafna hvers kyns ofbeldi og leggja
áherslu á að fara samningaleiðina
OFT er sagt að ljónið sé konungur
dýranna, það sé efst í langri fæðu-
keðju náttúrunnar og leggi sér flest
öll dýr nema fíla til matar. Þessar
algengu hugmyndir eru þvert á
sögusagnir frá leiðsögumanna frá
Afríkuríkinu Botswana, sem hafa
nú fengist staðfestar í nýrri heim-
ildarmynd breska ríkisútvarpsins,
BBC, sem sýnir myndskeið af árás
ljóna á fíl að næturlagi í fyrra.
Breska dagblaðið Times, sem var
með BBC í för, segir frá þessu á vef-
síðu sinni í gær, en þar er því lýst
þegar hópur ljóna í leit að bráð um
niðdimma nótt gerir árás á fíl. Mikl-
ir þurrkar höfðu verið á svæðinu og
lítið um bráð fyrir hungruð ljónin.
Því er talið, að þau hafi gripið til
þess ráðs að ráðast á fíla, fyrst fíls-
unga en svo fullvaxna fíla.
Blaðamaður Times sagði ljónin
ekki leggja í fílana í dagsbirtu, öðru
máli gegndi í náttmyrkri.
Þegar fílamóðir gengur með átta
til tíu ára gamalt afkvæmi sitt um
nóttina á leið til vatnsbólsins taka
ljónin við sér, ráðast á ungann og
fella hann á aðeins hálfri mínútu.
Botswana er heimkynni um 130.000
fíla, eða fjórða hvers fíls í heim-
inum.
Staðfesta að ljón veiði fíla
Reuters
Grimm Ljón eru hugrökk dýr.
Iðnaðarhúsnæði óskast
í Kópavogi
Við leitum að iðnaðarhúsnæði fyrir fjársterkan aðila í
Kópavogi, við voginn eða í nágrenni Smiðjuvegar.
Húsnæðið þarf að vera 900-1.300 fm.
Þar af þyrfti að vera pláss fyrir um 200 fm skrifstofurými.
Húsnæðið þarf að vera með aðgengi frá jarðhæð.
Mikil lofthæð er einnig skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir
Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn