Morgunblaðið - 05.10.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.10.2006, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ HÚS undir heilsuræktarstöð verður væntanlega risið milli Íþróttahall- arinnar og Sundlaugar Akureyrar næsta vor og starfsemi Vaxtarrækt- arinnar flyst þangað næsta haust. Samþykkt var í bæjarstjórn í vik- unni að heimila Sigurði Gestssyni, eiganda Vaxtarræktarinnar, bygg- ingu húss á lóðinni en á hluta hennar hefur verið fjölskyldugarður. Sigurður vonast til þess að fram- kvæmdir hefjist sem fyrst. Á bæjarstjórnarfundinum var felld tillaga frá bæjarfulltrúa VG um að unnið yrði deiliskipulag fyrir sundlaugarsvæðið með það í huga að tengja þar saman í byggingu líkams- ræktarstöð, fimmtíu metra sundlaug og aðstöðu fyrir útivistarsvæði, og að deiliskipulagið gerði ráð fyrir tengingu við svæðið ofan Þórunn- arstrætis og heildrænni nýtingu sem fjölskyldu- og útivistargarðs. Nokkrar deilur hafa verið um fyr- irhugaða byggingu í bæjarstjórn. „Það er algjör misskilningur að fjöl- skyldugarðurinn hverfi; byggingin skerðir hann lítið en bætir hann hins vegar ansi mikið. Ég tel að hann verði mun betri og er sannfærður um að þetta verður fjölskylduvænsti bletturinn í bænum. Þarna getur öll fjölskyldan komið saman og allir finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Sigurður við Morgunblaðið. Heilsurækt við sundlaugina Í HNOTSKURN »Framkvæmdum þarf að ljúkaað utan fyrir vorið svo opna megi fjölskyldugarðinn. »Baldvin H. Sigurðsson, VG,lét bóka mótmæli við veit- ingu byggingarréttar til einka- fyrirtækis á framtíðarlandi Sundlaugar Akureyrar, „og án auglýsingar, þar sem öðrum fyr- irtækjum í sama rekstri er ekki gefinn kostur á að sækja um...“ Glæsileg aðstaða Nýja húsið rís á milli sundlaugarsvæðisins og íþróttahallarinnar. Fjölskyldugarður verður á milli nýja hússins og Þórunnarstrætis. Horft í austur Séð að nýja heilsuræktarhúsinu frá Þórunnarstræti. Myndir/Kollgáta AKUREYRI Morgunblaðið/Ásdís Bera saman bækurnar Gísli Marteinn Baldursson og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson ræða saman á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur. Reykjavík | Tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um flutning á málefnum aldraðra frá ríki til Reykjavíkurborgar var vísað til stjórnkerfisnefndar á fundi borgar- stjórnar Reykjavíkur á þriðjudag- inn. Í tillögunni segir að borgar- stjórn samþykki að fela borgarstjóra að hefja nú þegar viðræður um flutn- ing á málefnum aldraðra, fatlaðra, heilsugæslu, þ.m.t. heimahjúkrun, og tengdum verkefnum frá ríki til Reykjavíkurborgar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg- arstjóri, sagði að sveitarfélögin hefðu í raun og veru miklu stærra hlutverk en ríkið varðandi ýmsa nærþjónustu við aldraða. Hann spurði hvaða verkefni ætti að flytja frá ríki til sveitarfélaga. „Hafa menn ekki gert sér grein fyrir því að það er á ábyrgð sveitarfélaga að byggja þjónustu- og öryggisíbúðir sem mikil þörf er fyrir í Reykjavík fyrir eldri borgara,“ sagði Vilhjálmur og ítrek- aði að borgin hefði mikilvægu hlut- verki að gegna í þjónustu við aldr- aða. „Við höfum á okkar könnu gríð- arlega mörg verkefni og það er jafn- vel eins og sumir borgarfulltrúar hafi ekki áttað sig á því hversu mikl- ar skyldur við höfum hvort sem þær eru lögbundnar eða venjubundnar gagnvart eldri borgurum.“ Vilhjálmur sá ekkert því til fyr- irstöðu að farið yrði betur yfir málið og lagði til að fjallað yrði um flutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga í stjórnkerfisnefnd. Hann benti þó á að flutningur á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga væri langt kominn og leggja bæri áherslu á þann málaflokk. Tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-listans, um tak- mörkun á hæð Hálslóns var vísað frá á fundi borgarstjórnar. Til borgarráðs „lýðræðisins og kurteisinnar“ vegna Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, lagði það til að tillögunni yrði vísað til borgarráðs „lýðræðisins og kurt- eisinnar vegna“. Svandís Svavars- dóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sagðist styðja tillögu Ólafs en hún gæti jafnframt fellt sig við þá tillögu Samfylkingarinnar að vísa henni til borgarráðs. Björn Ingi Hrafnsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokks, taldi ekki efni til þess að vísa tillögunni til borgarráðs. „Ég tel að slík málsmeð- ferð sé ekki heiðarleg vegna þess að ef það liggur fyrir að ekki eigi að gera neitt með tillöguna í borgarráði er engin sérstök ástæða til þess að taka hana fyrir þar,“ sagði hann. Ræddu flutning á málefnum aldraðra Í HNOTSKURN »Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-son segir að flutningur á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga hafi forgang hvað varðar verkefni sem sveitarfélögin taki yfir en mál- efni aldraðra komi þar á eftir. » Í stefnu borgarstjórn-arflokks Sjálfstæðisflokks- ins segir að leitað verði samn- inga við ríkisvaldið um að flytja ákveðna þjónustu við aldraða frá ríki til borgar. Seltjarnarnes | Að ósk bæjaryfir- valda á Seltjarnarnesi hefur heil- brigðisráðuneytið fallist á að heimila fjölgun dagvistarrýma fyrir aldraðra frá og með 1. september síðastliðn- um. Dagvist fyrir aldraða á Seltjarn- arnesi tók fyrst til starfa í byrjun árs 2005 og fólst í henni mikil þjónustu- aukning fyrir eldri borgara á Sel- tjarnarnesi. Í upphafi veitti heilbrigðisráðu- neytið leyfi fyrir fimm plássum en fljótlega varð ljóst að þörfin var meiri. Fjölgun plássa í níu sem nú hefur fengist heimild fyrir er því kærkomin og var eitt af stefnumál- um meirihlutans fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar í vor, segir í frétta- tilkynningu. Dagvist aldraðra hefur það hlut- verk að bjóða eldri borgurum á Sel- tjarnarnesi þjónustu sem miðar að því að þeir geti sem lengst búið á eig- in heimili. Í boði er meðal annars tómstundaiðja, aðstaða til léttra lík- amsæfinga, hvíldaraðstaða, böðun, fæði og akstur til og frá dagvist. Starfsemin felur í sér félagslegan stuðning eftir aðstæðum hvers og eins. Dagvistin er því mikil þjónustu- aukning fyrir aldraða á Seltjarnar- nesi sem hingað til hafa þurft að sækja þjónustuna vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið. Dagvistarrýmum aldraðra fjölgað SIGURÐUR Gestsson hefur rekið Vaxt- arræktina í kjallara Íþrótta- hallarinnar í tæpan ald- arfjórðung. Hann segir um það bil tíu ár síðan hann viðr- aði fyrst þá hugmynd við forráðamenn bæj- arins að reisa hús eins og nú hef- ur verið samþykkt fyrir heilsu- rækt hans. „Já, þetta er auðvitað stór áfangi fyrir mig og gamall draumur að rætast. Ég hlakka mikið til þess að halda áfram því starfi sem ég hef unnið en ég held líka að þetta sé frábært fyr- ir bæinn og ég er viss um að bæj- arbúum á eftir að líka mjög vel það sem þarna verður gert,“ sagði Sigurður við Morgunblaðið. Byggingin verður í austasta hluta svæðisins sem notað hefur verið fyrir fjölskyldugarð, á milli Íþróttahallarinnar og Sundlaugar Akureyrar. Sigurður segir að nýja byggingin verði alveg sjálf- stæð og það eigi eftir að semja við Akureyrarbæ um samgang á milli hennar og sundlaugarinnar, en við hugmyndavinnuna hafi hann haft til hliðsjónar samning World Class við Reykjavíkurborg varðandi Lauga í Laugardalnum. „Það samstarf hefur komið mjög vel út, svo vel að nú er Seltjarn- arnesbær búinn að semja við World Class um sams konar að- stöðu við sundlaugina þar,“ segir Sigurður. „Gamall draumur að rætast“ Sigurður Gestsson Digranes | Um 200 ungmenni komu saman í Digraneskirkju á vegum ÆSKR (Æskulýðssamband kirkj- unnar í Reykjavíkurprófasts- dæmum) sl. mánudagskvöld til að taka þátt í árlegri þrautakeppni. Keppt var í mismunandi greinum og meðal þeirra má nefna ógeðs- drykkju, hlaup á milli stóla, spurn- ingakeppni, að þekkja pipar og að þora í veltibílinn svo nokkuð sé nefnt. Meðfylgjandi mynd er frá keppninni. 200 þátt- takendur í þrauta- keppni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.