Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 21
AUSTURLAND
LANDIÐ
Eftir Örn Þórarinsson
Austur-Húnavatnssýsla | Í eft-
irleitum í Laxárdalsfjöllumum á
dögunum fundust tveir veturgamlir
hrútar sem gengið höfðu úti í fyrra-
vetur. Hrútarnir voru frá bæjunum
Holtsmúla og Stóru-Gröf ytri í
Skagafirði. Þeir voru rígvænir en
mjög villtir og erfiðir viðfangs, eft-
ir hið frjálsa líf á fjöllum.
Það var Guðmundur Valtýsson,
gangnastjóri og bóndi á Eiríks-
stöðum í Svartárdal, sem fann hrút-
ana uppundir fjallsbrún á mörkum
Víðidals og Mjóadalsskarðs. Þegar
þeir urðu hans varið tóku þeir á rás
uppá fjall. Guðmundi tókst með
harðfylgni að komast fyrir þá. Það
reyndist svo ströng barátta sem
stóð í nokkrar klukkustundir fyrir
hann að koma þeim niður í Þver-
árdal sem er upp af Bólstaðahlíð.
Þegar þangað var komið voru hrút-
arnir gersamlega uppgefnir og
voru keyrðir síðasta spölinn til
rétta.
Ekki kom annað til greina
Guðmundur sagði að þetta hefði
verið mjög erfið barátta ekki síst
vegna þess að hann meiddist á fæti í
öðrum göngum í haust. Hins vegar
hefði ekki komið til greina annað
en að koma skepnunum til byggða.
Guðmundur sagði að um sjötíu fjár
hefði fundist í eftirleitinni og dag-
ana þar á undan.
Erfið barátta við
útigangshrúta
Eftir Sigurð Sigmundsson
Eystsri-Rangá | Sett hefur verið ný
brú yfir Eystri-Rangá. Brúin er
skammt frá eyðibýlinu Reynifelli en
þar er frístundahúsabyggð með um
fjóra tugi húsa. Gamla brúin er
nærri aldar gömul og hefur þjónað
vel á fleiri en einum stað í sýslunni.
Gamla brúin sem nú var tekin af
stöplum sínum hjá Reynifelli er einn
þriðji hluti brúar sem byggð var yfir
Ytri-Rangá árið 1912 þar sem síðar
byggðist kauptúnið Hella á eystri
bakka árinnar.
Hún þjónaði sínu hlutverki við
Hellu til ársins 1960 þegar þar var
byggð ný brú sem enn stendur á
þessum fjölfarna þjóðvegi. Árið 1968
var einn þriðji þessarar öldnu brúar
fluttur að Eystri-Rangá og settur
hjá Reynivöllum. Nú er hún orðin
illa farin, er við það að ryðgja í sund-
ur og er í raun orðin varasöm.
Rangárþing ytra bauð út smíði
nýrrar brúar. Vélsmiðja Suðurlands
á Hvolsvelli átti lægsta tilboð, tæpar
17 milljónir króna, og fékk samning
um verkið.
Verkið gekk vel
Vel gekk hjá starfsmönnum vél-
smiðjunnar, undir stjórn Magnúsar
Halldórssonar yfirverkstjóra, að
fjarlægja gömlu brúna og setja þá
nýju í hennar stað. Til þess var not-
aður stór krani. Nýja brúin byggist á
25,5 metra stálbitum sem verða
brátt klæddir og með því lýkur smíði
hinnar nýju brúar.
Myndin var tekin þegar nýja brúin
var sett upp í stað þeirrar öldnu.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Nærri aldar gömul
brú lýkur þjónustu
Djúpivogur | Þau eru misjöfn við-
fangsefnin sem björgunarsveitirn-
ar takast á við.
Á dögunum
fékk slysa-
varnasveitin
Bára á Djúpa-
vogi útkall
vegna 13 sauð-
kinda sem
höfðu flætt úti
í hólma sem er
við innanverð-
an Hamars-
fjörð.
Björgunar-
sveitin brá að sjálfsögðu skjótt við
og renndi á bát út í hólmann. Ærn-
ar voru síðan reknar á sund og
þurftu nokkrar þeirra smáhjálp síð-
ustu metrana að landi en allt fór vel
að lokum.
Myndlistarsýning Tolla Mort-
hens verður opnuð í Kirkju- og
menningarmiðstöðinni á Eskifirði
nk. sunnudag og hefst með guðs-
þjónustu kl. 14. Gestir stundarinn-
ar verða Tolli og bróðir hans Bubbi.
Sýningin stendur til 4. nóvember
n.k. og er opin kl. 17–19 virka daga
og á laugardögum á milli kl. 15 og
18.
Hornfirska skemmtifélagið býður
nú sem fyrr upp á metnaðarfulla
haustdagskrá, nú rokksýninguna
American Graffiti, ásamt undir-
stöðugóðum kvöldverði á Hótel
Höfn og dansleik í annan endann
með hljómsveitinni KUSK.
Sauðfé kom-
ið til bjargar
Björgun Ærin vand-
ræði en slapp þó til.
Fáskrúðsfjörður | Fáskrúðsfirð-
ingar hafa fengið nýjan og full-
kominn slökkvibíl á staðinn.
Hann er af gerð-
inni Scania P420,
með drif á öllum
hjólum. 4000
lítra af vatni er
hægt að hafa í
bílnum og 200
lítra af froðu. Á
honum er 6
manna hús og
þar er hægt að
hafa fjóra reyk-
kafara. Að sögn Steins Jónas-
sonar slökkviliðsstjóra er slökkvi-
liðið nú mjög vel útbúið til
útkalls. Slökkviliðið er nú hluti
sameiginlegs brunaliðs Fjarða-
byggðar. Bíllinn kostaði um 20
milljónir kominn á staðinn.
Klár í útkall
Öryggi Nýr
slökkvibíll.
AÐALMEÐFERÐ í máli AFLS
starfsgreinafélags gegn starfs-
mannaleigunnar 2B lauk hjá Hér-
aðsdómi Austurlands í gær. 2B er
sökuð um að hafa brotið gróflega
á rétti pólskra verkamanna sem
unnu við Kárahnjúkavirkjun í
fyrra og er málið höfðað fyrir
hönd 12 manna. Nema kröfur frá
250 til 350 þúsundum króna fyrir
hvern þeirra vegna vangoldinna
launa og annarra starfskjara. M.a.
hefur verið tekist á um hvort 2B
hafi verið heimilt að draga ýmsan
kostnað af launum mannanna, sem
ráðnir voru á grundvelli virkj-
unarsamnings. Dóms er að vænta
innan skamms.
Aðalmeðferð máls
gegn 2B lokið
Kárahnjúkavirkjun | Fylling Háls-
lóns hefur vakið talsverð viðbrögð á
Austurlandi og bæði meðmæltir og
andmælendur látið í sér heyra.
Félag um verndun hálendis Aust-
urlands mótmælti fyllingu lónsins
með því að skrifa skrifa nöfn þeirra al-
þingismanna sem gáfu samþykki sitt
fyrir Kárahnjúkavirkjun á flata
steina sem lagðir voru í flæðarmál
Hálslóns fyrir neðan Lindur, um það
bil fimm kílómetra frá Kárahnjúka-
virkjun. „Þetta var gjörningur sem
félagið stóð fyrir,“ segir Þórhallur
Þorsteinsson, talsmaður samtakanna.
„Þarna var raðað upp þeim fjörutíu
og fjórum sem samþykktu virkjunina
ásamt Davíð Oddssyni sem var að
vísu ekki nærri en stóð til hliðar. Við
vöktum svo yfir þessu uns það sökk
og þarna verða geymd nöfn þeirra
sem þetta hervirki samþykktu.“
Félagsmenn köstuðu rósum í lónið
og flutt voru ljóð. Það tók Jöklu eina
og hálfa klukkustund að færa grjótið
á kaf í lónstæðinu.
Heimilisböl fyrir byggðarlögin
Fleiri mótmælaaðgerðir áttu sér
stað á Austurlandi í kringum upphaf
fyllingar Hálslóns. Þannig hittust
náttúruverndarsinnar við Lagar-
fljótsbrú að kvöldi dagsins er lokað
var fyrir rennsli Jöklu og nokkru fyrr
fóru Þórhallur og fleiri á Kára-
hnjúkastíflu, reistu þar fánastöng og
flögguðu í hálfa stöng. Hann las þar
yfirlýsingu þar sem sagði m.a. að
aldrei hefði ríkt einróma sátt um
framkvæmdirnar á Austurlandi.
Þvert á móti væru átökin um virkj-
unina orðin eins konar heimilisböl
fyrir byggðarlögin.
Virkjunarsinnar fögnuðu
Þeir sem meðmæltir eru virkjunar-
framkvæmdinni og fyllingu Hálslóns
létu líka í sér heyra og drógu menn
fána víða að húni, m.a. á Fljótsdals-
héraði og í Fjarðabyggð, til að fagna á
lónsfyllingardaginn.
Á vefnum www.myweb.is/virkjum/
virkjum.php hafa rúmlega þrjú þús-
und netverjar skrifað undir meðmæli
með virkjuninni og álversfram-
kvæmdum á Austurlandi.
„Ófáir hafa látið skoðun sína í ljós á
þessu máli og svo virðist sem fjöl-
miðlar séu hrifnastir af glundroðan-
um, þeim fáu, og hugnast ekki að
fjalla um málefni lýðræðislegra sjón-
armiða, heldur sérhagsmuni ein-
stakra mótmælenda. Því viljum við
hin skrifa nafn okkar við meðmæla-
skrá …“ segir á vefnum undir yfir-
skriftinni Virkjun velferð Íslands.
Nöfn þingmanna máluð
á grjót og sökkt í Hálslón
Styrinn magnaðist á Austurlandi við fyllingu lónsins
Ljósmynd /Félag um verndun hálendis Austurlands
Geymdir Nöfn þeirra þingmanna er samþykktu Kárahnjúkavirkjun voru
rituð á steina og þeir lagðir í vatnsborð Hálslóns þar sem fljótt vatnaði yfir.
OPIÐ HÚS - Birkihlíð 34 - Laust strax
Fallegt og vel staðsett endaraðhús á eftirsóttum
stað. Húsið er skráð 169,3 fm en að auki fylgir
tvöfaldur 56 fm bílskúr. Búið er að útbúa stódíó-
íbúð í hluta bílskúrsins. Húsið skiptist þannig að á
neðri hæð er forstofa, forstofuherbergi, gesta-
snyrting, hol, stofa, borðstofa, þvottahús og
eldhús. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og
baðherbergi. V. 48,4 m. 5641
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG
FRÁ KL. 17.30-18.30.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali