Morgunblaðið - 05.10.2006, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 05.10.2006, Qupperneq 28
M argir hafa misjafna reynslu af iðnaðar- mönnum, sem fengnir eru til hinna ýmsu starfa, því fjöldi kvartana berst til Neytenda- samtakanna ár hvert vegna þeirra. „Þetta er stór málaflokkur hjá okkur og við mælum alltaf með að verkkaupi og verksali geri með sér þjónustusamning til að hafa allt á hreinu sín í milli. Til er að fólk sem gefur sig út fyrir ákveðna iðnaðar- mannavinnu sé alls ekki með tilskilin réttindi og svo freistast fólk iðulega til að taka svarta vinnu til að losna undan virðisaukaskattinum sem er auðvitað ekkert nema lögbrot og í slíkum málum er lítið hægt að gera,“ segir Þuríður Hjartardóttir, fram- kvæmdastjóri Neytendasamtak- anna. Í ljósi allra þeirra kvartana, sem berast, er ljóst að til eru „svartir sauðir“ meðal iðnaðarmanna þó flest- ir séu heiðarlegir í sínu starfi. Gott að leita eftir tilboðum Það getur, áður en af stað er farið, verið gott að leita tilboða frá fleiri en einum iðnaðarmanni, sér í lagi þegar um stór verk er að ræða, því munað getur háum fjárhæðum á milli til- boða. Hafa ber í huga að það er ekki endilega lægsta tilboðið sem er hag- stæðast þar sem gæði efnis og vinnu skipta líka máli. Áhætta getur fylgt því að velja einhvern af handahófi úr símaskránni, en betra er að ráða iðn- aðarmann sem kunningjar eða vinir hafa reynslu af og mæla með. Iðn- aðarmaðurinn þarf í flestum tilvikum að koma á staðinn til að gera tilboð í viðkomandi verk og hefur hann rétt á að taka gjald fyrir tilboðsgerðina, að sögn Írisar Aspar Ingjaldsdóttur, lögfræðings Neytendasamtakanna. „Mikilvægt er að hafa skriflegan pappír í höndunum frá iðnaðar- manninum þar sem tilgreint er allt sem gera á, hvað það skuli kosta og hvenær verkinu skuli lokið. Í flestum ágreiningsmálum, sem upp koma, hefur iðnaðarmaðurinn gert munn- legt tilboð eða verðáætlun. Ágreiningurinn rís gjarnan eftir að reikningur berst verkkaupa, en þá getur reynst erfitt að sanna munn- lega samninga. Oft er þá eina leiðin að sýna fram á að reikningurinn sé ósanngjarn miðað við verkið sem unnið var, t.d. með því að fá mats- menn til að meta verkið. Það getur þó verið kostnaðarsamt og tíma- frekt.“ Ólögleg og óráðleg viðskipti Að sögn Írisar eru nótulaus við- skipti ekki bara ólögleg heldur einnig óráðleg. „Minna er greitt fyrir verk- ið, en á móti kemur að enginn reikn- ingur er gefinn út og staðan því að flestu leyti verri ef galli kemur upp síðar. Í nýjasta Neytendablaði kem- ur fram að auk leiðbeiningaskyldu iðnaðarmanna, sem eiga m.a. að gefa kaupendum upplýsingar um hvort verk borgi sig, ber þeim að standa við tilboðið sem þeir gefa. Hafi þeir að- eins gefið upp áætlað verð mega þeir ekki fara verulega fram úr áætlun. Samkvæmt lögum um þjónustukaup eiga iðnaðarmenn rétt á að krefjast hærri greiðslu en fram kemur í til- boði ef ófyrirséðar framkvæmdir koma upp í vinnuferlinu. Hækkanir skal þó tilkynna kaupanda án tafar. Verkið dregst og gallar koma Hafi ekki verið samið um sérstök verklok skal iðnaðarmaðurinn ljúka við verkin innan sanngjarns frests eftir að kaupandinn gerir kröfu um það, hafi óviðráðanleg atvik ekki komið upp. Kaupandi getur í flestum tilvikum gripið til þess ráðs að rifta samningi við iðnaðarmann dragist að ljúka verki. Það þýðir að ekki kemur til frekari vinnu af hálfu viðkomandi iðnaðarmanns eða greiðslna af hálfu verkkaupa. Kaupanda ber þó al- mennt að greiða fyrir það, sem þegar hefur verið gert. Verði kaupandi fyr- ir tjóni vegna tafa iðnaðarmanns má fara fram á skaðabætur, en takist iðnaðarmanninum að sýna fram á að tafirnar séu ekki honum að kenna þarf hann ekki að greiða bætur. Komi galli upp getur kaupandi far- ið fram á að iðnaðarmaðurinn lagfæri gallann nema það valdi honum ósanngjörnum kostnaði eða verulegu óhagræði. Yfirleitt eru það hags- munir beggja aðila að iðnaðar- maðurinn bæti úr göllum því annars getur kaupandi leitað til annars aðila til að laga gallann á kostnað iðn- aðarmannsins. Í sumum tilvikum hefur verkkaupi rétt á að halda eftir greiðslum þótt fara verði varlega í slíkt, að sögn Ír- isar, og borgar sig að ráðfæra sig við lögfræðing um slíka ákvörðun. Og iðnaðarmaður, sem skemmir eign er hann vinnur verk, skal bæta tjón nema hann geti sannað að skemmdin hafi ekki verið af hans völdum. Þjónustusamningar eru þarfir Morgunblaðið/Þorkell Samningar Það getur verið gott að leita tilboða frá fleiri en einum aðila áður en gengið er að verktilboði. Morgunblaðið/Kristinn Viðskipti Nótulaus viðskipti eru bæði ólögleg og óráðleg. Flestir þurfa oft á lífsleið- inni á iðnaðarmönnum að halda vegna stórra sem smárra verka. Jóhanna Ingvarsdóttir komst að nokkrum mikilvægum atriðum, sem vert er að hafa í huga í samskiptum við iðnaðarmenn. neytendur 28 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Apakaffi Nú fæst hér á landi svokallað Apakaffi sem er náttúruræktað úr- valskaffi frá eldfjallahlíðum Pan- ama. Hettuapar halda til á kaffi- ekrum og borða kaffibaunir á haustin. Þeir dreifa fræjum kaffi- trjánna og annarra plantna og hjálpa þannig til við að viðhalda skóginum. Uppskeran er sérvalin og aðeins lítið magn brennt í hvert sinn til að tryggja ferskleika. Ís- lendingar fá að þessu sinni á bilinu 7–8.000 kaffipakka til landsins en uppskeran er nánast alltaf uppseld fyrirfram. Apakaffið var valið besta náttúruræktaða kaffið í heiminum í fyrra í Seattle í Washington og lenti í öðru sæti sem sérstæðasta kaffið í heiminum nú í apríl síðast- liðnum í Charlotte í Norður- Karólínu. Að sögn Svavars Guðmunds- sonar hjá innflytjandanum Kaffi Latino ehf. byggist kaffifram- leiðslan á heiðarlegum við- skiptaháttum og kaffibændur á þessu svæði fá 25% í sinn hlut að viðbættu 25% álagi sem bændurnir fá síðan af andvirði hvers kaffi- pakka. Kaffið er selt í fimm löndum og pokinn af kaffinu kostar út úr búð um 1.400 krónur en í honum eru 454 grömm. Svavar segir að kílóið af apakaffinu kosti í Japan um 100 dollara eða sem samsvarar 7.000 ís- lenskum krónum og í Bandaríkj- unum nemur verð þess um 68 doll- arum. Kaffið fæst í Nóatúni, Fjarð- arkaupum, Samkaupum, Hag- kaupum og fleiri verslunum. NÝTT  óskaðu eftir tilboðum frá nokkrum aðilum þar sem verðmunur getur verið verulegur.  fáðu vini og vandamenn til að benda þér á góðan iðn- aðarmann.  hittu iðnaðarmanninn áður en þú gerir samning við hann.  óskaðu eftir skriflegu til- boði þar sem fram kemur hvað á að gera, hvað það á að kosta og hvenær verk- inu á að vera lokið.  ekki stunda nótulaus við- skipti. Holl ráð Við erum að reyna að sinna smærri neyðarþjónustu fyrir heimili og fyr- irtæki. En í stærri verkum sendum við matsmann á undan okkur sem fer yfir verkið með verkkaupa og gerir skriflega kostnaðaráætlun, sem byggist á ákveðnum tíma- vinnutaxta,“ segir Viðar. Sá taxti leggur sig á 3.790 kr. án virð- isaukaskatts og 4.718 kr. með 24,5% virðisaukaskatti. Á vefsíðunni www.handlaginn.is er hægt að fylla út verkbeiðnir um ákveðin verk. Á vefsetrinu www.meistarinn.is, sem er á vegum Samtaka iðnaðar- ins, eru um þrjú hundruð löggiltir VANTAR málara, smiði, múrara, flísara, pípara eða rafvirkja? Hvar skal bera niður og hvert er eðlilegt tímakaup? Gjaldskrá iðnaðarmanna er frjáls og byggist á framboði og eftirspurn hverju sinni, að sögn Viðars Krist- jánssonar, verkefnastjóra hjá hand- laginn.is, sem var stofnað af einka- aðilum fyrir um fimm árum síðan en er nú alfarið í eigu Öryggis- miðstöðvar Íslands. Hjá handlag- inn.is starfa átján fagmenn auk skrifstofufólks. „Það er mikil að- sókn í pípara og flísara og allt að mánaðar bið eins og staðan er í dag. meistarar á skrá og allar gerðir af iðnmeisturum. Auk þess má fá upplýsingar um fagmenn með því að hafa samband við viðkomandi meistarafélög. Leiki einhver vafi á því að „iðn- aðarmaðurinn“ sé með réttindi, má alltaf krefja hann um skírteini, sem sýnir að viðkomandi er lærður iðn- aðarmaður eða með meistararétt- indi. Hægt er að leita sér upplýs- inga í viðkomandi meistarafélögum og hægt er að spyrja hvort þeir geti sýnt fram á einhverja reynslu, að sögn Eyjólfs Bjarnasonar hjá Sam- tökum iðnaðarins. „Gjaldskrá iðn- aðarmanna er undir hverjum og einum fagmanni komin og fer mikið eftir því hvernig fyrirtækin eru byggð upp með tilliti til fasts kostn- aðar og breytilegs kostnaðar. Ólög- legt er, samkvæmt samkeppn- islögum, að gefa út samræmda taxta. Samkeppnin er með öllu frjáls,“ segir Eyjólfur og bætir við að alltaf sé nokkuð um að kvartanir vegna iðnaðarmanna berist inn á borð Samtaka iðnaðarins. Samkeppnin er alveg frjáls TENGLAR ..................................................... www.handlaginn.is www.meistarinn.is TENGLAR ..................................................... Á heimasíðu Neytendasamtakanna, www.ns.is undir liðnum „eyðublöð“, er að finna eyðublað, sem gott er að nota í viðskiptum við iðnaðarmenn. Mikilvægt er að hafa skriflegan pappír í hönd- unum frá iðnaðar- manninum þar sem til- greint er allt sem gera á og hvað það skuli kosta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.