Morgunblaðið - 05.10.2006, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 05.10.2006, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á UNDANFÖRNUM misserum hafa fréttir og greinar um báglegt ástand í geðheilbrigðismálum barna og unglinga reglulega birst í fjöl- miðlum. Hvað hæst ber umfjöllun um úrræðaskort almennt annars vegar og langa bið eftir þjónustu Barna- og unglingageð- deildar LSH hins veg- ar. Harla fátítt er að fjallað sé um fyrirliggj- andi úrræði og þjón- ustu á sviðinu. Jón Kristjánsson, þá- verandi heilbrigð- isráðherra, réði til sín verkefnisstjóra í feb. 2004, Kristján Magn- ússon sálfræðing, til að „sinna sérstaklega geð- málum barna og ungmenna“ (úr fréttatilkynningu 5.2.’04), og var hon- um m.a. falið að „gera tillögur um þjónustu við börn og ungmenni með geðraskanir á landsvísu … [og] .. skýra og skilgreina verkaskiptingu og ábyrgð þeirra sem veita þjónustu á þessu sviði.“ Ráðuneytið stóð síðan fyrir sérstakri ráðstefnu, ,,Hegð- unarvandi og geðraskanir barna og unglinga – Forvarnir, meðferð og samþætting þjónustu“, 3. 4. febrúar 2005 og var skýrsla Kristjáns form- lega kynnt þar. Grunnhugmyndin í tillögunum byggir á þrískiptu þjónustukerfi í grunnþjónustu (1. stigs þjónusta), ýt- arþjónustu (2. stig) og sérþjónustu (3. stig). Þessi skipting er ekki uppfinn- ing skýrsluhöfundar, heldur er hún í samræmi við fyrirkomulag heilbrigð- isþjónustu víðast hvar. Auk úttektar Kristjáns fékk heil- brigðisráðherra tvo sænska sérfræð- inga, dr. Anders Milton og dr. David Eberhard, til úttektar á geðvernd- arþjónustunni við börn og unglinga. Það eru almenn sannindi að skuli bygging standa traust, þarf undir- staðan að vera í lagi. Það er eins með heilbrigðiskerfið, grunnþjónustan þarf að vera traust svo sérþjónusta standi undir nafni og nái að nýta sína sérfræði og sérþekkingu sem öll efni standa til. Í tillögum ofangreindarar skýrslu er enda lagt til m.a. að „heilsugæslustöðvar sinni börnum og unglingum með geðraskanir í aukn- um mæli bæði hvað varðar greiningu og íhlutun.“ Þessi tillaga er einnig í samræmi við hlutverk heilsugæslustöðva, en í 46. grein reglugerðar nr. 412/1992 fyrir heilsugæslustöðvar segir m.a. að veita skuli þjónustu á sviði heilsu- verndar, geðverndar og félagsráðgjafar. Í 57. grein sömu reglugerðar segir: „Starfsfólk við heilsugæslustöðvar starfar að verndun geð- heilsu íbúa heilsugæslu- svæðins. Áhersla skal lögð á fyrirbyggjandi að- gerðir … Stuðla skal að því að fólk leiti aðstoðar á byrjunarstigi vanda- mála og veitt verði bæði einstaklingsbundin meðferð og fjöl- skyldumeðferð ....“ Stefnumarkandi átak hefur til þessa ekki verið gert til að hrinda þessu í framkvæmd í heilsugæslunni. Það er hins vegar óyggjandi að mati undirritaðs að yrði það gert mundi það styrkja grunnþjónustuna veru- lega hvað geðvernd barna varðar. Sú skoðun byggist á reynslu starfs með- ferðarteymis v. geðraskana barna við Heilsugæslustöðina í Grafarvogi. Það teymi sem Jón Kristjánsson þáver- andi Heilbrigðismálaráðherra tók ákvörðun um að koma á fót tók til starfa 1.12.2004. Það samanstendur af iðjuþjálfa, félagsráðgjafa og sálfræð- ingi, ásamt heimilislækni viðkomandi skjólstæðings. Grafarvogshverfið er barnflesta heilsugæslusvæði landsins, sem vænt- anlega er ein meginástæða þess að meðferðarteyminu var valinn staður þar og því eðlilegur vettvangur til að byrja á. Fyrsta heila starfsár meðferð- arteymisins var 2005. Þrátt fyrir að um nýja þjónusta væri að ræða, barst teyminu nýtt erindi að jafnaði annan hvorn vinnudag á því ári. Meðalaldur barnanna sem vísað var til teymisins var 7 ár og 4 mán. og kynjaskipting var jöfn. Þegar nánasta fjölskylda er talin með, snerti þjónusta teymisins rúmlega 400 manns, sem er u.þ.b. 2,5 % af íbúafjölda hverfisins. Í öllu starfi teymisins hefur verið lögð áhersla á fyrirbyggjandi starf, snemmtæka íhlutun og þverfaglega nálgun með heildarhagsmuni og líðan barnsins og fjölskyldu þess að leiðarljósi. Í árs- skýrslu meðferðarteymisins fyrir 2005 kemur fram það álit samstarfs- aðilanna inni á Heilsugæslustöðinni m.a. að „þessi nærþjónusta hafi gjör- breytt aðkomu heilsugæslustöðv- arinnar að geð- og sálfélagslegum vandamálum barna og fjölskyldna þeirra“ og „öll aðkoma að ungbörn- um, mæðrum og verðandi mæðrum er allt önnur en áður þegar um er að ræða geðræn og félagsleg vandamál barna og fjölskyldna þeirra .... „ Á skrifandi stundu gerist það að núv. heilbrigðisráðherra, Siv Frið- leifsdóttir, tilkynnir aðgerðir í þágu barna með geðraskanir, og í frétt í Morgunblaðinu 22.9.2006 er haft eftir ráðherranum að „í fyrsta lagi verði grunnþjónsta heilsugæslunnar við börn með hegðunar- og geðraskanir efld.“ Án þess að gera á nokkurn hátt lítið úr öðrum aðgerðaþáttum, er þetta lykilatriði í því að heildarmark- mið aðgerðanna náist. Reynslan af starfi Meðferðarteymisins við Heilsu- gæslustöðina í Grafarvogi undir- strikar það, og er þess að vænta, að við þá reynslu verði stuðst þegar að kemur að hagnýtri útfærslu á að- gerðaáætlun heilbrigðisráðherra. Þeir sænsku sérfræðingar sem ráð- herra fékk til ráðgjafar mæla enda með því að við áframhaldandi upp- byggingu verði stuðst þau starfslíkön sem hafa þróast við Heilsugæslustöð- ina í Grafarvogi og Reykjanesbæ. Um geðvernd barna í nær- þjónustu heilsugæslunnar Már V. Magnússon fjallar um geðheilbrigðismál barna » Grafarvogshverfið erbarnflesta heilsu- gæslusvæði landsins, sem væntanlega er ein meginástæða þess að meðferðarteyminu var valinn staður þar og því eðlilegur vettvangur til að byrja á. Már V. Magnússon Höfundur er sálfræðingur við Heilsugæslustöðina í Grafarvogi. OFT er talað um gildi þess að eiga góðar fyrirmyndir í lífinu, eins og sást á nýloknum forvarnardegi, og hversu miklu það getur skipt ein- staklinga. Yfirleitt er átt við fyr- irmyndir í íþróttum, viðskiptum, og öðrum veraldlegum hlutum, sem eru okkur hinum til hugljómunar og vekja hjá okkur löngun til að gera slíkt hið sama. Hinsvegar er allt of sjaldan minnst á fyrirmyndir í geðheilsu. Kannski vegna þess að góð geðheilsa er talin sjálfsögð, þangað til hún er ekki til staðar hvort sem það er til lengri eða skemmri tíma. Og þá er oft erfitt að horfa til fyrirmyndanna, því þær eru ósýnilegar. Enginn auglýsir það að hann búi við góða eða frábæra geð- heilsu. Íslendingum finnst það hreint og beint út í hött að auglýsa slíka hluti, enda erum við víkingar og lát- um ekkert bitna á okkur, eða hvað? Reyndin er hins vegar sú að góðar fyrirmyndir í þessu efni, sem og öðr- um er víðsvegar að finna. Kannski kunnum við bara ekki að leita að þeim! Að greinast með geðsjúkdóm er afar erfið lífsreynsla. Það er að segja þangað til við áttum okkur á því að það er líf eftir geð- veiki! Og við sjáum að það er hægt að ná bata, og það er hægt að lifa góðu lífi, bæði með og án geðsjúkdóma. Geð- heilsa er allra mál, ekki bara okkar geðsjúkling- anna. Það er mikilvægt að sýna aðstandendum, börnum, vinum og vandamönnum að geð- heilsu er hægt að rækta á jákvæðan hátt, og byggja upp rétt eins og aðra heilsu. Ég er svo lánsöm að vera geðveik. Lánsöm segi ég, vegna þess að ég hef þurft að hafa fyr- ir því að læra að geð- heilsa er ekki sjálfsögð. Og vinir mínir og vandamenn, börnin mín og foreldrar vita það að geðsjúkdómur er ekki dauðadómur. Nú leitar fólk til mín með alls kyns hluti sem tengjast geð- heilsu, vegna þess að ég hef sýnt sjálfri mér og öðrum að geðheilsu þarf að sinna, rétt eins og annarri heilsu. Börnin mín búa við þau forréttindi að vita að geðsjúklingar eru ekki verra fólk en annað. Þau koma aldr- ei til með að telja geð- sjúka annars eða þriðja flokks fólk. Þess vegna tel ég sjálfa mig lánsama að vera geð- veik. Góð heilsa er gulls ígildi, og góð geðheilsa er meðtalin í því! Sýnum hvort öðru og þeim sem umgang- ast okkur, að það er líf eftir geðveiki! Nú um helgina verð- ur alþjóðlegi geðheil- brigðisdagurinn hald- inn hátíðlegur með dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur, og geð- gangan verður farin þriðjudagskvöldið 10. október nk. Sýnum samstöðu og tök- um þátt, og sýnum að geðheilsa er mál okkar allra! Alltof mikið af sýn- um! Að vera fyrirmynd annarra í geðheilsu Berglind Nanna Ólínudóttir skrifar í tilefni af alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum Höfundur er leiðsögumaður og geðsjúklingur. » Sýnum hvortöðru og þeim sem um- gangast okkur, að það er líf eftir geðveiki! Berglind Nanna Ólínudóttir ÉG VIL ekki elta ólar við Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og læt þetta verða mín síðustu orð að sinni: 1. Hún þarf að gera sér ljóst að ég hvorki vil né get sagt frá því sem fram kom í tveggja manna tali eða í smáatriðum inni á fundum kjörnefndarinnar. En hún má þó vita að ég nefndi það við marga samfylking- armenn að ég væri tilbúin til að styðja hvort heldur sem væri Lúðvík Geirsson eða Svanfríði Jónasdóttur. Þetta veit Steinunn Valdís þótt hún segi annað í Morgunblaðinu í gær. 2. Hvernig veit hún að enginn samfylkingarmaður hafi stutt Halldór Halldórsson? Ef þrír Samfylkingarmenn hafa verið í stuðningsliði Halldórs má halda því fram að Samfylkingin hafi tryggt honum sætið eins og hver annar. Ég tala nú ekki um ef fleiri samfylkingarmenn en þrír hafa stutt Halldór. Og þar með er blaðaskrifum um þetta mál lokið af minni hálfu. Svandís Svavarsdóttir Að lokum um formannskjör Höfundur er borgarfulltrúi. FULLTRÚAR Samfylkingar í Mosfellsbæ hafa farið mikinn að undanförnu við að reyna að koma höggi á fyrrum félaga sína í Vinstri grænum vegna umhverfismála og fyrirhugaðs tengi- vegar í Helgafells- hverfi. Hér er um mikla tækifær- ismennsku að ræða sem er afar ótrúverð- ug pólitík. Tengivegur frá Vesturlandsvegi með- fram Varmá í Helga- fellshverfi hefur verið á aðalskipulagi Mos- fellsbæjar allt frá því að það var gert í fyrsta skipti, eða frá árinu 1983. Í þrígang hefur þetta að- alskipulag verið end- urskoðað síðan, síðast árið 2002, með teng- ingu Helgafellshverfis á þessum stað. Ákvörðun allra flokka Allir flokkar hafa komið að þessari stefnumörkun í gegn- um tíðina en ljóst er að hlutur Samfylkingarinnar er síst minni en annarra í því sambandi. Það vill nefnilega svo til að þáver- andi G-listi sem leiddur var af Jón- asi Sigurðssyni, oddvita Samfylk- ingarinnar, var í meirihlutasamstarfi með Fram- sóknarflokknum þegar endur- skoðun aðalskipulagsins átti sér stað síðast. Í þessu aðalskipulagi var tengivegurinn festur í sessi frá Vesturlandsvegi meðfram Varmá og í Helgafellshverfi og tengiveg- inum austan Álafosskvosar breytt í safngötu. Oddvitinn hefur að und- anförnu firrt sig ábyrgð af þessari stefnumörkun og lagt til að þessi tenging verði tekin til endurskoð- unar. Í því sambandi hefur hann sagt á bæjarstjórnarfundi og í fjöl- miðlum að aðalskipulag Mosfells- bæjar 2002–2024 sé fyrst og fremst byggt á umferðarfræðilegum for- sendum. Það vekur furðu að oddvit- inn hafi ekki meiri innsýn í hvað að- alskipulag sveitarfélags gengur út á og þau verk sem hann og sam- starfsmenn hans létu vinna þegar umrætt aðalskipulag var unnið í meirihlutatíð hans í bæjarstjórn. Í inngangi að greinargerð með að- alskipulaginu segir orðrétt: „Að baki endurskoðuninni liggur ítarleg undirbúningsvinna um land- notkun, umferðarkerfi og aðra skipulagsþætti, nýleg stefna í at- vinnu- og ferðamálum, skólastefna Mosfellsbæjar og samþykkt um- hverfisáætlun Mosfellsbæjar, Stað- ardagskrá 21, svo eitt- hvað sé nefnt“. Þarna sést svart á hvítu hvað var lagt til grundvallar við gerð aðalskipulagsins á sín- um tíma, nema beinlín- is sé verið að slá ryki í augun á bæjarbúum með því að segja þeim ósatt. Málflutningur sem þessi er afskaplega ótrúverðugur svo ekki sé meira sagt. Umhverfisskipulag Varmársvæðisins Valdimar Leó Frið- riksson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur að undanförnu fjallað um þennan tengiveg í Helgafells- hverfi og verið með ásakanir um svikin kosningaloforð og að ekki sé borin virðing fyrir umhverfinu með lagningu þessa vegar. Í því sambandi er rétt að rifja það upp með Valdimari að þetta vegstæði er ein- mitt valið m.a. vegna umhverf- issjónarmiða af honum og hans flokksmönnum. Á árunum 1996–7 var unnið umhverfisskipulag fyrir Varmársvæðið. Að þeirri vinnu komu fjölmargir aðilar s.s íbúar, hagsmunasamtök, náttúrvernd- arsamtök, umhverfissamtök, stjórn- málamenn, embættismenn og alls- kyns sérfræðingar. Í umhverfisskipulaginu var lagt til að tengingin framhjá Álafosskvosinni austanverðri með brú yfir ána við fossinn yrði lögð af. Samkvæmt því yrði eina tengingin inn í hverfið frá Vesturlandsvegi meðfram Varm- ánni og Brekkulandinu. Því er það vegna umhverfissjón- armiða sem tengiveginum er valinn staður meðfram Varmánni og í Helgafellshverfið. Það er dapurlegt þegar stjórn- málamenn og flokkar falla í þá gryfju að vilja ekki kannast við fyrri verk sín og haga málflutningi sínum og gjörðum eins og vindurinn blæs hverju sinni. Það er því miður raunin hvað varðar Samfylkinguna nú um stundir. Tækifærispólitík Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ Haraldur Sverrisson fjallar um umhverfisskipulag í Mosfellsbæ Haraldur Sverrisson » Allir flokkarhafa komið að þessari stefnumörkun í gegnum tíðina en ljóst er að hlutur Samfylk- ingarinnar er síst minni en annarra í því sambandi. Höfundur er formaður bæjarráðs og skipulags- og byggingarnefndar Mosfellsbæjar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.