Morgunblaðið - 05.10.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 33
Compact
Luminator
Kastari Rally
3000
Dekkja-
viðgerðasett
Toppasett +
skrúfubilar 42 stk.
Valdar vörur á tilboði
HÉR ER ÖRLÍTIÐ SÝNISHORN
AF TILBOÐSVÖRUM
010 1F3009094171 010 1F8006800321
664 210 215 889 sku-5042B
24
84
/
TA
K
TÍ
K
4
.1
0.
’0
6
Fastir lyklar - 12 stk
8-19mm Málband 5m
Höggskrúfjárn
í sett box
Rafhlöður
836 H9P50DYY 889 sku-4010 063 70001798
535 9000
Gildir til 31. október eða á meðan birgðir endast
Bíldshöfða 9
Reykjavík
Akureyri - Egilsstöðum - Hafnarfirði - Höfn - Keflavík - Kópavogi - Reykjavík - Selfossi
Felguhreinsir
115 AWC750 530
1.594
1.490
4.524
6.590
8.788
99Verðfrápakkin
9.900
14.459
14.900
24.490
Ventlagorma-
þvinga
063 BE1450005
Frostlögsmælir
095 690200
490
1.198
2.490
7.948
1.490
2.890
Hjólatjakkur 2. tonn.
888 trt2t490
787
790
2.316
1.990
3.990
Vaskaskinn
430x330mm
174 3-1 174 3-3 460
1.176
250
657 Vaskaskinn
680x430mm
TILBOÐ
OKTÓBER
LANGUR FIMMTUDAGUR
22TIL KL
Í DAG
OPIÐ
NÝJUNG HJÁ
BÍLANAUSTI
AÐ BÍLDSHÖFÐA 9
Dóra Hjálmarsdóttir: Áhættu-
mati fyrir Kárahnjúkavirkjun
er ekki ábótavant.
Oddur Benediktsson:
Áhættumati fyrir Kárahnjúka-
virkjun er ábótavant
Páll Jóhann Einarsson skrifar
um trú og vísindi.
Gunnar Jóhannesson skrifar
um trú og vísindi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
MANNRÉTTINDI
samkynhneigðra hafa verið
mikið til umræðu und-
anfarin ár sem náði e.t.v.
hámarki þegar ný lög um
réttindi þeirra tóku gildi í
lok júní sl. Sem betur fer
finnst flestum baráttumál
samkynhneigðra vera það
sjálfsögð að í raun ætti ekki að þurfa
að berjast fyrir þeim. En sagan kenn-
ir okkur að enginn verður óbarinn
biskup. Böðvar Ingi Guðbjartsson
skrifar grein í Morgunblaðið mánu-
daginn 25. september undir fyr-
irsögninni „Eru það fordómar að
hafa skoðun?“ og vísar þar til um-
ræðu um samkynhneigð. Það gætir
djúpstæðs misskilnings hjá grein-
arhöfundi um ýmislegt sem við kem-
ur samkynhneigð, og ég mun skýra
út hér á eftir, en ég fagna áhuga hans
á mannréttindabaráttu á Íslandi. Ég
skrifa þennan greinarstúf vegna þess
að mér finnst ég skynja að hópur
fólks í þjóðfélaginu, þó lítill sé, hafi
svipaðar hugmyndir um samkyn-
hneigð og lýst er í grein Böðvars.
Þetta er frekar þögull hópur sem mér
finnst mikilvægt að fræða um ým-
islegt sem við kemur samkynhneigð
og drepið er á í grein Böðvars Inga.
Það gleður mig að heyra að Böðvar
Ingi hefur lagt sig í líma við að fylgj-
ast með umræðu um réttindi sam-
kynhneigðra og jafnframt að hann er
meðvitaður um stjórnarskrárbund-
inn rétt sinn til frjálsra skoðana.
Greinarhöfundur talar um skoðanir á
samkynhneigð. Ég leyfi mér að vitna
beint í skrif Böðvars: „Ég, sem gagn-
kynhneigður maður sem finnst sam-
kynhneigð ekki vera eðlilegur lífs-
stíll, er ekki með fordóma. Það er
bara mín skoðun og sannfæring“. Ég
ætla að láta liggja á milli hluta hvort í
þessu felist fordómar eða ekki, það
getur hver og einn dæmt fyrir sig.
Mikilvægara er að alvarlegs mis-
skilnings gætir í orðum Böðvars þar
sem hann talar um samkynhneigð
sem lífsstíl. Ég spyr: er kynhneigð
lífsstíll? Lífsstíll felur í sér val og
kynhneigð er ekki val og því ekki lífs-
stíll. Samkynhneigð er ekki lífsstíll,
ekkert frekar en gagnkynhneigð eða
tvíkynhneigð, nú eða náttúruleysi ef
út í það er farið. Ég, sem samkyn-
hneigður maður, kaus mér ekki lífs-
stílinn „samkynhneigð“, en t.d. kaus
ég að stunda útivist og það má hins
vegar kalla lífsstíl. Ég er einfaldlega
samkynhneigður, rétt eins og ég er
hvítur á hörund, móðir mín er kona,
og vinkona mín er þeldökk. Ekkert
okkar hafði neitt val í þessum efnum
og það er afar mikilvægt að gera sér
grein fyrir því.
Enn ber á þekkingarleysi hjá
Böðvari á því hvað samkynhneigð er
þegar hann talar um hvort sambúð-
arform eins og feðgar, mægður, syst-
ur, bræður o.s.frv. sem reka saman
heimili eigi ekki að njóta skattarétt-
inda á við samkynhneigða og gagn-
kynhneigða. Munurinn á sambúð-
arformi eins og feðgum annars vegar
og samkynhneigðum einstaklingum
hins vegar er jú það að í seinna tilvik-
inu er um elskendur að ræða, en ekki
í því fyrra.
Því miður er það svo, eins og Böðv-
ar Ingi bendir á, að áhrifamenn innan
trúarhópa á Íslandi og annarsstaðar í
heiminum hafa stað-
ið á bremsunni
gagnvart mannrétt-
indum samkyn-
hneigðra, eða bein-
línis barist
harkalega gegn
þeim. Ég gæti trúað
að álíka misskiln-
ings og þekking-
arskorts gæti í röð-
um þessa fólks um
eðli samkyn-
hneigðar eins og ég
fjalla um hér að
framan. Í mínum huga er það mót-
sagnakennt þegar t.d. sumir kristnir
trúarhópar fjalla um kærleika guðs í
einu orði og stunda heilaþvott í hinu
orðinu. Hér á ég við þann heilaþvott
sem vissulega fer fram við „afhomm-
un“ eða „aflessun“ innan trúarfélaga,
eins og þekkist t.d. víða í Bandaríkj-
unum, en þar bjó ég í tvö ár. Sem bet-
ur fer er málum ekki allsstaðar svona
farið en þar sem þetta viðgengst er á
ferðinni ótrúlegt skilningsleysi gagn-
vart tilfinningum og kenndum sam-
borgaranna og kærleikur fyrir
náunganum er lágt skrifaður. Ég
bendi á það að líklegast er heillavæn-
legast að láta bara guð (eða hvað við
trúum á) um að dæma okkur hvert
fyrir sig þegar þar að kemur, óháð
kynhneigð okkar. Trúarleiðtogar
ættu frekar að einbeita sér að raun-
verulegum meinum í samfélaginu.
Réttindamál samkynhneigðra eru
einfaldlega mannréttindamál. Ég
reyni að virða rétt fólks til að hafa
aðrar skoðanir og sannfæringu en ég
hef. Hins vegar snúast réttindamál
samkynhneigðra ekki um skoðanir
eða lífsstíl, heldur einfaldlega um
sjálfsögð mannréttindi sem eru í
auknum mæli viðurkennd um allan
heim. Flestir Íslendingar eru stoltir
af Alþingi fyrir framfarasinnaða og
fordæmisgefandi lagasetningu sl.
vor. Ég tel að samfara aukinni þekk-
ingu og skilningi á hvað samkyn-
hneigð er bætist fleiri í þennan stolta
hóp Íslendinga og hinum fækki sem
skipa hinn þögla hóp sem ég nefni
hér að framan. Ég svara að lokum
spurningu Böðvars um hvort það séu
fordómar að hafa skoðun, á þann veg
að segja: það eru ekki fordómar að
hafa skoðun, en í skoðun geta bæði
fordómar og fáfræði birst. Fáfræði
elur oft af sér fordóma, og þessir
tveir þættir fara yfirleitt saman. Ég
vil þakka Böðvari fyrir grein hans því
hún hjálpar okkur samkynhneigðum
að átta okkur á hvar og hvernig við
þurfum að fræða samferðarmenn
okkar. Þessi greinarstúfur er innlegg
í slíka umræðu.
Er kynhneigð lífsstíll?
Guðmundur Ingi Guð-
brandsson svarar
grein Böðvars Inga
Guðbjartssonar um
kynhneigð og lífsstíl
» Lífsstíll felur í sérval og kynhneigð er
ekki val og því ekki lífs-
stíll.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Höfundur er umhverfisstjórn-
unarfræðingur.