Morgunblaðið - 05.10.2006, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Guðbjörg Malm-quist (Gullý)
fæddist á Siglufirði
4. maí 1930. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 22. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Einar Jörgen
Malmquist Ein-
arsson, f. 1897, d.
1997, og María
Ágústa Ein-
arsdóttir, f. 1909, d.
1976. Systkini Guð-
bjargar eru Ása Maren, f. 1934,
Einar Friðrik, f. 1938, Kalla
Signý, f. 1943, Gunnar Guð-
þeirra er Ólafur Rúnar, dóttir
Indu er Gunnur Rós. Fósturdætur
hans frá fyrri sambúð með Ósk
Axelsdóttur (látin) eru Judith og
Solveig. 3) María Sif Sveinsdóttir,
f. 1954, maki Þórarinn Sigurðs-
son, synir þeirra eru Gunnar Þór,
maki Eva, barn þeirra Freyja,
Sveinn Bjarki, maki Kolbrún,
barn þeirra Kristín Sif, og Egill
Örn. 4) Sveinn Sveinsson, f. 1957,
maki Lára Ingvarsdóttir, börn
þeirra Berglind Ösp og Andri
Rafn. 5) Sigríður Nanna Sveins-
dóttir, f. 1959, maki Jakob Líndal,
börn þeirra eru Eiríkur Birkir,
Baldur Emil, Eva Guðbjörg og
Kristín Amalía.
Gullý starfaði í tæp fjörtíu ár á
Landsímanum samhliða húsmóð-
urhlutverkinu.
Útför Gullýjar fór fram í kyrr-
þey að hennar ósk.
laugur, f. 1947, og
Úlfar, f. 1949.
Árið 1952 giftist
Gullý Sveini Ólafs-
syni, f. 1928. For-
eldrar hans voru
Ólafur Rósinantsson
og Sigríður Berglín
Sigurðardóttir. Gullý
og Sveinn hófu bú-
skap á Akureyri
1952 og fluttust til
Reykjavíkur um
haustið sama ár.
Börn Gullýjar og
Sveins eru: 1)
Drengur fæddur og látinn 1949.
2) Ólafur Sveinsson, f. 1952, maki
Inda Sigrún Gunnarsdóttir, barn
Elsku tengdamamma. Þú ert nú
farin héðan. En þú munt lifa áfram
í minningunni. Þú varst gríðarlega
sterkur persónuleiki á þínum
heimavelli. Þú varst vökul yfir öllu
þínu umhverfi og gættir allra. Þess-
ir eiginleikar eru sterkari í minn-
ingunni en ljóst var í augnablikinu.
Mér eru minnug okkar fyrstu
kynni. Ég hafði kynnst Nönnu í
Kaupmannahöfn og hún var meira
en minna farin að búa með mér á
stúdentagarðinum. Þá birtist þú allt
í einu í heimsókn til að taka út ráð-
haginn og veita blessun þína. Við
bjuggum á sameiginlegum gangi
með tólf öðrum krökkum sem
deildu eldhúsi og setustofu með
okkur. Þetta fannst þér ekki til-
tökumál og tókst allan ganginn í
fóstur, lagaðir mat fyrir alla og
hélst uppi gleði og hlátri alla
helgina.
Að lokinni helgi áttir þú tylft
tengdasona og tengdadætra sem
kvöddu þig með trega. Þvílík inn-
koma inn í mitt líf. Krakkarnir töl-
uðu lengi um þig, og minnir það á
það sem segir í Hávamálum:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama:
en orðstír deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
Blessuð sé minning þín.
Jakob.
Ómögulegt er að lýsa því þegar
einhver svo nákominn manni sem
amma Gullý var mér fellur frá.
Þegar ég var yngri fannst mér eins
og hún hefði alltaf verið til. Enda
hefur hún ávallt verið til staðar, al-
veg frá því ég kom í heiminn og allt
þar til ég kvaddi hana rétt fyrir
hennar síðasta andartak. Í gegnum
tíðina hefur heimili ömmu og afa í
Birkigrund verið athvarf fjölskyldu
minnar og systkina mömmu. Þar
man ég fyrst eftir jólunum, þar var
yfirleitt borðað á sunnudögum og
þar dvöldumst við á sumrin árin
sem við bjuggum í Kaupmanna-
höfn. Amma var kraftmikil og ósér-
hlífin kona. Nokkrum sinnum fylgdi
hún okkur Sveini bróður frá Íslandi
til Danmerkur. Þá fórum við með
morgunfluginu út en amma flaug
heim með vélinni í hádeginu og
mætti í vinnu síðdegis. Haustið
2000 fórum við Sveinn bróðir með
ömmu og afa ásamt öðrum ættingj-
um til Brasilíu þar sem við áttum
stefnumót við fjarskyld ættmenni
okkar. Í þeirri ferð kynntist ég enn
betur farfuglinum og heimskonunni
sem amma var. Á síðustu árum höf-
um við Eva ásamt Freyju heimsótt
ömmu og afa, ýmist í Birkigrundina
eða á sjúkrastofnanir þar sem
amma hefur þurft að dvelja vegna
veikinda sinna. Freyju þótti alltaf
gaman að hitta langömmu sína og
afa og var byrjuð að myndast við að
segja „amma Gullý“ þegar hún dó.
Þótt amma hafi ekki orðið eldri
en sjötíu og sex ára er saga hennar
og annarra sömu kynslóðar á vissan
hátt saga nútímans á Íslandi.
Amma ólst upp á Siglufirði og Ak-
ureyri á millistríðsárunum á þeim
tíma sem síld mokveiddist fyrir
norðan land. Faðir ömmu, afi Malli,
var síldarkóngur sem reis hátt þeg-
ar ævintýrið stóð sem hæst en hlaut
skell þegar síldin fór á önnur mið.
Tæplega tvítug ferðaðist amma
til Bandaríkjanna þar sem hún
starfaði á heimili sendiherra Ís-
lands í Washington í eitt ár. Þegar
ég spurði ömmu um dvölina í Wash-
ington í kjölfar útkomu bókar um
Thorsarana síðastliðinn vetur gat
hún meðal annars sagt mér að hún
hefði nokkrum sinnum svarað í sím-
ann á heimili sendiherrahjónanna
þegar vonbiðillinn John F. Ken-
nedy hringdi til að spyrja eftir dótt-
ur þeirra. Þegar hún kom aftur
heim til Íslands fór hún að búa með
afa á Akureyri. Þau fluttust síðar til
Reykjavíkur þar sem helst var að
hafa atvinnu. Á þessum tíma var
þröngt um húsnæði í borginni og
því leigðu þau fyrst um sinn hjá
eldri manni gegn því að amma eld-
aði fyrir hann mat. Þau bjuggu síð-
an í Hlíðunum þar til þau fluttust í
Kópavoginn.
Amma starfaði lengstum hjá
Landssíma Íslands við Austurvöll
þar sem hún tengdi fólk saman fyr-
ir tíma sjálfvirkra símstöðva. Þegar
amma rifjaði upp liðna tíma sann-
færðist ég um að hún hefði alltaf
verið til.
Síðustu ár ömmu lituðust af veik-
indum sem urðu sífellt alvarlegri.
Amma Gullý lagði allt undir í bar-
áttunni, hún ætlaði að hafa betur.
Ég trúði því að það tækist.
Á fallegum haustmorgni föstu-
daginn 22. september var hins veg-
ar ljóst að hún hefði játað sig sigr-
aða. Amma skildi við eins og henni
var eiginlegt, áreynslulaust og án
nokkurrar viðhafnar.
Bless, amma.
Gunnar Þór.
Elsku amma. Þú ert farin héðan.
Það er skrýtið. Þú hefur alltaf
verið hérna hjá okkur, annaðhvort
nýfarin eða rétt að koma, og ef
ekki, þá vorum við á leiðinni til þín.
Þið afi voruð alltaf til staðar fyrir
okkur og tókuð okkur alltaf opnum
örmum.
Við söknum þín. Líf okkar verður
nú öðruvísi. Og þó þetta sé sárt, þá
er þetta samt gangur lífsins. Við
vitum að þú vakir yfir okkur og
Guðbjörg Malmquist
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Minningargreinar
!
"# $ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
HALLDÓRS ÁGÚSTSSONAR,
Lindasíðu 2,
Akureyri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á dvalarheimilinu
Hlíð og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fyrir
góða umönnun.
Brigitte Ágústsson, Friðrik Halldórsson, Pétur Halldórsson,
Eygló Halldórsdóttir, Kári Halldórsson og fjölskyldur.
Útfararþjónusta
Davíðs ehf.
Vaktsími 896 6988
Davíð Ósvaldsson
útfararstjóri
Óli Pétur Friðþjófsson
framkvæmdastjóri
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Kæra frændfólk og vinir. Þökkum af alhug samúð
og hlýju er þið sýnduð okkur við fráfall
EINARS SIGURJÓNSSONAR
hárskerameistara,
Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 3. hæð
Sólvangs fyrir frábæra umönnun og einstaklega
notalegt og þægilegt viðmót um árabil. Guð blessi ykkur öll.
Bryndís Elsa Sigurðardóttir,
Steinþór Einarsson, Sylvie Primel,
Guðný Elísabet Einarsdóttir, Einar Eyjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum hlýhug og vináttu vegna andláts og út-
farar elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa,
EINARS JÓHANNSSONAR
vélstjóra,
hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum,
(áður til heimilis í Krummahólum).
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Vífils-
staða.
Birna Einarsdóttir, Hermann Ingólfsson,
Jóhann Einarsson, Herdís Jakobsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, dóttur, syst-
ur, ömmu og langömmu,
HALLDÓRU GUÐRÚNAR BJÖRNSDÓTTUR,
Tunguheiði 12.
Páll Kristjánsson,
Aðalbjörg Pálsdóttir, Steindór Jón Pétursson,
Björn Pálsson, Berglind Lúðvíksdóttir,
Sigurlaug Pálsdóttir, Guðni Þór Þorvaldsson,
Anna Lilja Pálsdóttir, Ívar Guðmundsson,
Soffía Björnsdóttir,
Grímur S. Björnsson, Björg Jósepsdóttir,
Þorsteinn Kr. Björnsson, Guðfinna Ásdís Arnardóttir,
Björn Á. Björnsson, Elísabet Erlendsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.