Morgunblaðið - 05.10.2006, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 43
passar okkur. Við munum allavega
ekki gleyma því veganesti sem við
fáum frá þér, orku þinni, gleði
þinni, góðvild og áræði. Við ætlum
að vera góð. Við vitum að þú hefur
það gott í himnaríki. Við biðjum að
heilsa afa Baldri og ömmu Amalíu
þegar þú hittir þau.
Þú verður alltaf með okkur.
Kristín Amalía, Eva
Guðbjörg, Baldur Emil
og Eiríkur Birkir.
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta,
geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Hávamálum)
Nú er elskuleg stóra systir okkar
horfin sýnum en mynd hennar er
greypt í hjartað og verður þar allt-
af.
Stóra systir var stór í mörgum
skilningi þess orðs. Hún hafði stórt
hjarta, stórkostlega kímnigáfu og
opnaði heimili sitt og faðminn ávallt
fyrir allri stórfjölskyldunni.
Við systkinin minnumst þess með
hlýhug hversu gaman var alltaf að
heimsækja hana og fjölskyldu
hennar frá Akureyri til Reykjavík-
ur. Þar sannaðist að þar sem er
hjartahlýja er nóg rými. Það var
bara stiklað yfir allar svefndýnurn-
ar á gólfinu og hún eldaði ofan í all-
an hópinn með sinni einstöku snilld,
enda hafði hún numið kokkalistina
hjá frænku okkar Ágústu Thors í
Bandaríkjunum og þótti okkur mik-
ið til koma. Oft var nú fjör, kátína
og gleði.
Þegar foreldrar okkar voru farn-
ir yfir móðuna miklu var hún orðin
höfuð ættarinnar eins og við minnt-
um hana iðulega á hin síðari ár, en
nú erum við sem höfuðlaus her.
Hún fylgdist með okkur og okkar
fjölskyldum grannt hvar sem við
vorum stödd og laðaði að sér barna-
hópinn með sínum einstaka létt-
leika og áhuga.
Gullý hélt kímnigáfunni gegnum
öll veikindi sín, svo lengi sem hún
hafði þrek til að tjá sig, eiginlega til
hinsta dags. Hún sló á létta strengi
og létti okkur hinum lífið á sama
tíma sem hennar smám saman fjar-
aði út. Ótrúlegt! Blessuð sé minn-
ing hennar.
Látlaus orð barnsins lýsa henni
best, hún var góð og skemmtileg og
þannig munum við ylja okkur við
minninguna um leið og við sam-
hryggjumst Sveini, mági okkar,
börnum, barnabörnum og barna-
barnabörnum
Með einlægri þökk fyrir sam-
fylgdina.
Ása Malmquist,
Einar Malmquist,
Gunnar Malmquist,
Úlfar Malmquist,
Kalla Malmquist.
Hún Gullý frænka er farin eftir
langa og stranga baráttu, en hún
hafði verið meira eða minna veik í
tæplega sex ár.
Þrátt fyrir veikindi hennar var
alltaf grunnt á kímninni, og aldrei
var það inni í myndinni að hún væri
á förum. Það voru bara hinir sem
fóru.
Allt frá því að ég var strákputti á
Siglufirði, sem fór í langferð á
hverju vori í heimsókn til ömmu,
afa og annarra ættingja á Akureyri,
þá fannst mér alltaf þessi glæsi-
lega, hávaxna frænka mín mest
spennandi. Hún var heimsmann-
eskja, sem ég leit upp til, en var
jafnframt jafningi okkar strákanna,
sem vorum nokkrum árum yngri.
Á þessum árum var það ekki
sjálfgefið að ungt fólk færi til út-
landa, en Gullý hlotnaðist það að
fara til Bandaríkjanna og starfa hjá
sendiráði Íslands í Washington
D.C. Enda þótt þessi íslenzka mær
væri glæsileg, vel gefin og
skemmtileg með afbrigðum, þá
tókst innfæddum ekki að krækja í
hana, og giftist Gullý góðvini mín-
um, Sveini Ólafssyni, sem þá var
starfsmaður Loftleiða h.f., en þau
eignuðust fjögur mannvænleg börn,
Ólaf, Maríu Sif, Svein og Sigríði
Nönnu.
Forlögin höguðu því þannig að
þegar við Erla fluttum frá Akureyri
eftir fimm ára búsetu þar, settumst
við að í Kópavogi, í um tveggja mín-
útna göngufæri frá Gullý og Sveini,
þannig að við erum búin að vera í
nábýli í 32 ár samfellt, og allan
þennan tíma hefir verið mikill sam-
gangur á milli fjöskyldnanna.
Oft höfðum við heyrt mæður okk-
ar og aðra ættingja tala um fólkið
okkar, sem flutti til Brasilíu, en það
var ekki fyrr en á síðari árum að við
fórum að huga meira að þessum
málum.
Það var vitað að ættingjar okkar
frá Sunnudal í Vopnafirði höfðu
fluzt til Brasilíu 1873, og við nánari
athugun þá virðist sem samband
við þá hafi slitnað 1912.
Var mikið grúskað, spurt og
spjallað, og árangurinn varð sá að í
árslok 1997 náðum við sambandi við
afkomendur þessa fólks, sem flest
býr í Curitiba á Paraná fylki, og
kom hópur ættingja okkar til Ís-
lands 1998.
Urðu hér fagnaðarfundir, og fór-
um við með fólkið um landið, en há-
punktur heimsóknarinnar var auð-
vitað heimsókn í Vopnafjörð.
Haustið 2000 fórum við svo tólf
ættingjar frá Íslandi til Brasilíu og
hittum þar mikinn fjölda ættingja
okkar, sem allir nota ættarnafnið
Söndahl, og einnig hittum við Bard-
dals úr Bárðardal, Reykdals úr
Reykjadal og fleira fólk af íslenzk-
um ættum. Hápunktur þessarar
ferðar okkar var þegar vígt var
„Praca de Islandia“, Íslandstorg, í
Curitiba.
Þar mættu 100 – 150 manns af ís-
lenzkum ættum, og þegar þjóðfánar
Íslands og Brasilíu ásamt fána
Curitiba voru dregnir að húni og
þjóðsöngvar landanna leiknir af 40
manna lúðrasveit, var ekki laust við
að mörgum vöknaði um augu.
Þetta er ógleymanlegt.
Skömmu eftir heimkomuna veikt-
ist Gullý og náði hún aldrei góðri
heilsu aftur.
Nú er Gullý öll, og við, sem erum
henni skyld, svo og vinir og kunn-
ingjar sitjum eftir og hlýjum okkur
við minningarnar um einstaka
manneskju.
Við Erla og dætur okkar sendum
Sveini og öllum afmkomendum
þeirra hjóna okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Sveinn Gústavsson.
Nokkru áður en við systurnar
hittum Gullý fyrst höfðum við þeg-
ar notið hjálpsemi hennar. Þegar
hvorki gekk né rak að ná sambandi
við sjóðheitar símalínur Rásar tvö
sagði Ólafur okkur að hringja bara í
Gullý og hún gæti gefið okkur sam-
band því hún vann á Símanum. Á
tímum gráu skífusímanna þótti
okkur mikil forréttindi að þekkja
konu í innsta hring og svo var hún
líka með svo frábæra og auðþekkj-
anlega rödd, dálítið svona ráma og
dularfulla.
Þegar við fórum með móður okk-
ar heitinni og Ólafi í bæjarferðir
dvöldum við jafnan á heimili Gull-
ýjar og Sveins í Kópavogi. Þar var
okkur mæðgunum tekið opnum
örmum og alltaf þótt manni jafn
notalegt að koma til þeirra hjóna.
Með móður okkar og Gullý tókst
góður vinskapur og móðir okkar
mat hana mikils, enda var Gullý
einstaklega alúðleg og skemmtileg
kona. Þegar önnur okkar systranna
lá á sjúkrahúsi um nokkurra mán-
aða skeið leit Gullý við í viku hverri
og voru heimsóknir hennar himna-
sending á löngum legudögum
sjúkrahússins. Hugulsemi hennar
var í þessu jafnt og svo mörgu öðru
einstök.
Með tíð og tíma lögðust heim-
sóknirnar í Kópavog af að mestu en
Gullý hittum við áfram hjá Óla. Iðu-
lega spurði hún frétta; hvort allt
gengi vel, hvernig synir okkar döfn-
uðu og var umhugað um alla. Þótt
Gullý hafi glímt við erfið veikindi
síðustu árin var hún ávallt eins og
hún átti að sér, hlýleg og skemmti-
leg. Kurrandi hlátur hennar og
hnyttin tilsvör voru einnig á sínum
stað og rétt eins og við vissum frá
fyrstu kynnum voru forréttindi að
fá að kynnast þessari konu og fyrir
það erum við þakklátar.
Við minnumst Gullýjar með ást
og þakklæti í huga og innilegar
samúðarkveðjur sendum við fjöl-
skyldunni allri.
Judith Amalía
og Solveig.
✝ Friðrik Jörg-ensen fæddist í
Vestmannaeyjum
24. janúar 1922.
Hann lést á Sjúkra-
hóteli LSH í
Reykjavík 21. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Ottó Jörg-
ensen símstjóri á
Siglufirði og Pálína
Kr. Vigfúsdóttir
Scheving úr Vest-
mannaeyjum. Frið-
rik fór ungur í
miðjunni, en gerðist svo sjálf-
stæður atvinnurekandi. Hann
rak fleiri en eitt fyrirtæki í inn-
og útflutningi og hafði mikið
umleikis um hríð. Fyrir hálfum
öðrum áratug dró hann segl at-
vinnulífsins saman og var ekki
virkur þátttakandi í því eftir
það.
Friðrik var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Þórunn Sólveig
Þorsteinsdóttir. Hún lést 1985.
Tveimur árum síðar gengu þau í
hjónaband, hann og Þórdís Hall-
dóra Jónsdóttir. Þau skildu 1991.
Einkadóttir þeirra er Ólöf Heiða
Friðriksdóttir, sem er við í nám í
Snyrtiakademíunni í Kópavogi.
Útför Friðriks var gerð frá
Fossvogskapellu 29. september.
fóstur til hjónanna
Eyjólfs Halldórs-
sonar og Torfhildar
Guðnadóttur, sem
bjuggu að Steinum
undir Austur-
Eyjafjöllum. Þar
ólst hann upp, en
komst svo til náms
hér í Reykjavík,
lauk prófi frá Verzl-
unarskóla Íslands og
helgaði líf sitt allt
verzlunarstörfum.
Hann var um árabil
gjaldkeri í Stáls-
Að látnum góðum vini og örlátum
félaga er mér ljúft að minnast Frið-
riks Jörgensen sem manns er mætti
misvindi á lífsleiðinni með sjaldgæfu
andlegu þreki. Kynni okkar hófust
við störf fyrir Lkl. Baldur árin 1978-
1979 en Friðrik var þá formaður
klúbbsins. Upp úr því hófum við
samvinnu við endurreisn húss
klúbbsins í Baldurshaga við Hvít-
árvatn ásamt uppgræðslu lands þar.
Frá samverustundum í grasaferðum
klúbbfélaga minnumst við Friðriks
sem hins veitula gestgjafa þar til
skugga bar á í fjármálum hans.
Samvinna okkar í grasanefnd stóð í
15 ár, eða á meðan okkur entist
þrek.
Frá dimmum og kyrrum haust-
kvöldum í Baldurshaga á ég góðar
minningar þar sem við tveir einir
nutum kyrrðar á fjöllum. Þá fyrst
kynntist ég manni sem hafði lifað
tímana tvenna og lærði að meta
þann sálarstyrk sem þurfti til að
standa uppréttur þó á móti blési.
Genginn er ágætur félagi sem um
árabil var formaður líknarnefndar í
okkar klúbbi og þar naut sín næmi
hans á þörf lítilmagnans fyrir hjálp.
Minning Friðriks Jörgensen mun
lifa með okkur félögunum og við
deilum söknuði með ungri dóttur
hans, fyrrverandi eiginkonu og
tengdamóður.
Haraldur Þórðarson.
Friðrik Jörgensen
FRÉTTIR
Í TILEFNI af 20 ára afmæli Lagna-
félags Íslands verður haldin lagna-
sýning í Vetragarðinum Smáralind,
dagana 6. til 8. október. Þema sýn-
ingarinnar – Lagnakerfi í nútíð og
framtíð.
Með þessari sýningu er ætlun fé-
lagsins að gefa almenningi kost á
að fá sem víðtækastar upplýsingar
um allt er viðkemur lagnakerfi
framtíðarinnar og endurlögnum í
eldri hús og hvaða þjónusta er
nauðsynleg við nýlagnakerfi eftir
að þau hafa verið lögð og gangsett,
einnig hvaða lagnaefni eru val-
kostir þeirra sem eru að hefja hús-
byggingar.
Hátíðin verður sett föstudaginn
6. okt. kl.16.00. Ávörp flytja: Björn
Karlsson brunamálastjóri, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri, Jón Sigurðsson iðn-
aðarráðherra, Jónína Bjartmarz
umhverfisráðherra, Guðmundur
Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur, og Kristján Ottósson
framkvæmdastjóri.
Afmælissýning
Lagnafélags
Íslands
BODY Shop á Íslandi fagnar 15
ára afmæli um þessar mundir og í
tilefni af því fá viðskiptavinir 25%
afslátt af allri vöru í verslunum
The Body Shop dagana 5.–8. októ-
ber.
Body Shop á Íslandi opnaði
fyrstu snyrtivöruverslun sína í
Kringlunni árið 1991; í kjölfarið
fylgdu verslun á Laugavegi, sem
nú hefur hætt starfsemi, verslun á
Akureyri og önnur í Smáralind.
Saga verslanakeðjunnar hófst
reyndar fyrir 30 árum eða 1976
þegar Anita Roddick hóf rekstur
fyrstu búðarinnar í Brighton á
Englandi. Fyrirtækinu óx fljótt
fiskur um hrygg en um þessar
mundir má finna um 2.100 versl-
anir í samtals 55 þjóðlöndum.
Body Shop á
Íslandi fagnar
15 ára afmæli
BRIMBORG frumsýnir um helgina
nýjan og endurhannaðan Ford
Transit. Liðnir eru ríflega fjórir
áratugir síðan þessi tegund sendi-
bíla kom fyrst á markaðinn hér á
landi.
Útlit hins nýja bíls er alveg nýtt
og er hann mun betur búinn en áð-
ur, segir í frétt frá fyrirtækinu.
„Hinn nýi Ford Transit er betur
hljóðeinangraður en áður og er
hann með nýrri vél sem hefur mun
betra tog en áður í bílum af þessari
gerð en jafnframt er vélin hljóðlát-
ari, auk þess sem hún mengar
minna.
Allir eru velkomnir í sýningarsal
Brimborgar til þess að skoðan nýj-
an Ford Transit sendibíl. Frumsýn-
ingin stendur til 20. október,“ segir
í frétt frá fyrirtækinu.
Brimborg frum-
sýnir nýjan
Ford Transit
FERÐAKLÚBBURINN 4x4 hvetur
til samstöðu gegn náttúruspjöllum,
en óskar þess að ferðamenn sem
fylgja vegslóðum landsins fái að
fara óáreittir um landið okkar.
Í fréttatilkynningu frá Ferða-
klúbbnum 4x4 segir: „Allt frá stofn-
un Ferðaklúbbsins 4x4 hefur eitt af
meginmarkmiðum hans verið að
vinna gegn náttúruskemmdum af
völdum utanvegaaksturs. Á síðustu
árum hefur umferð um hálendi Ís-
lands aukist verulega.
Það er fagnaðarefni að samhliða
aukinni ferðamennsku hafa fleiri
aðilar látið sig varða baráttu gegn
utanvegaakstri og jafnframt eru
merki þess að löggæsluyfirvöld leit-
ist við að framfylgja náttúruvernd-
arlögum í ríkari mæli en verið hef-
ur fram til þessa. Meðal annars
hefur komið til eftirlit úr lofti, en
með þeim hætti ætti að vera hægt
að koma í veg fyrir skemmdir á við-
kvæmri náttúru og gróðurfari á há-
lendinu.
Að sama skapi eru það veruleg
vonbrigði að nokkur brögð virðast
vera að því að aðgerðir löggæslu-
aðila í þessum málum séu van-
hugsuð og lítt til þess fallin að auka
samstöðu í baráttu ferðafólks gegn
náttúruskemmdum. Dæmi virðast
vera um að ferðamenn séu kærðir á
hæpnum forsendum fyrir ut-
anvegaakstur við akstur á gömlum
slóðum sem notaðar hafa verið af
ferðafólki og ferðaþjónustuaðilum í
fjölda ára og áratugi.
Slík framganga löggæslu-
yfirvalda gerir ekkert annað en að
spilla fyrir allri þeirri vinnu sem
fjölmargir aðilar hafa lagt fram til
að koma í veg fyrir náttúruspjöll af
völdum utanvegaaksturs. Þeim
fjármunum, sem lagðir eru í
ómarkvissar aðgerðir sem þessar,
væri mun betur varið í að stöðva þá
aðila sem leggja stund á raunveru-
legan utanvegaakstur þar sem
landspjöll eru unnin.“
Ferðamenn sem
fylgja vegslóðum
fái að fara óáreittir
RÁÐSTEFNA um hreyfiþroska og
hreyfinám barna verður haldin 13.
og 14. október í Íþróttaakademí-
unni í Reykjanesbæ.
Hreyfiþroska- og hreyfivanda-
mál barna á Íslandi hefur lítið verið
rannsakað í samanburði við ná-
grannalöndin en erlendar rann-
sóknir sýna að um 10% barna eigi
við einhvers konar hreyfi-
þroskavandamál að stríða, segir í
fréttatilkynningu. Aðalfyrirlesarar
á ráðstefnunni verða Hermundur
Sigmundsson, Ph.D. prófessor í sál-
fræði við Háskólann á Akureyri, og
Arve Vorland Pedersen sem er með
meistaragráðu á sviði Human
Movement Science.
Ráðstefna um
hreyfiþroska og
hreyfinám barna
LJÓSIÐ, endurhæfingar- og stuðn-
ingsmiðstöð fyrir krabbameins-
greinda og aðstandendur þeirra, er
komið í samvinnu við Kramhúsið
Ljósið mun standa fyrir skemmti-
legum dansi í safnaðarheimili Nes-
kirkju í samvinnu við Kramhúsið.
Kennarar frá Kramhúsinu koma til
með að stjórna dansi, hreyfingu og
líkamsbeitingu og verður nám-
skeiðið á mánudögum kl. 17:30 –
18:30 fram í desember. Fyrsti tím-
inn var mánudaginn 2. okt.
Færustu kennarar Kramhússins
koma með hressilega blöndu af
dansi, leikfimi, og orkugefandi æf-
ingum sem styrkja og liðka líkama
og sál, segir í fréttatilkynningu.
Dansinn er góð viðbót við þá end-
urhæfingu sem nú er til staðar í
Ljósinu fyrir krabbameinsgreinda
og aðstandendur þeirra.
Sjá www.ljosid.org Nánari upp-
lýsingar og skráning fer fram í
Ljósinu í síma 5613770.
Ljósið í samvinnu
við Kramhúsið
SÁÁ heldur árlegan hátíðar- og bar-
áttufund sinn í Háskólabíói þriðju-
daginn 10. október kl. 20.00. Húsið
verður opnað kl. 19.00. Í anddyri
Háskólabíós mun verða kynning á
félagasamtökum sem helga starf
sitt málefnun áfengis- og vímuefna-
sjúklinga.- Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir SÁÁ, flytur ávarp og for-
ystufólk stjórnmálaflokkanna flytur
erindi um stefnu og sýn stjórn-
málaflokkanna í forvarna- og með-
ferðarmálum.
Bubbi Morthens, Baggalútur,
Karlakórinn Fóstbræður, Erpur
og Rottweilerhundarnir, Eyþór
Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttir
flytja tónlistaatriði. Fundarstjóri
verður Davíð Þór Jónsson.
Hátíðar- og bar-
áttufundur SÁÁ