Morgunblaðið - 05.10.2006, Síða 48

Morgunblaðið - 05.10.2006, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÞEIR Baggalúts- menn virðast hvergi vera á förum af toppi Tónlist- ans. Plata þeirra Aparnir í Eden hef- ur nú verið á lista í níu vikur en þó- nokkuð þarf upp á til að þeir nái fyrstu afurðinni Pabbi þarf að vinna sem kom út í fyrra og hefur setið á Tónlistanum í heilar 34 vikur. Baggalútur er ein þeirra fjölmörgu sveita sem koma til með að spila á Iceland Airwaves hátíðinni síðar í mánuðinum en þar mun sveitin troða upp í Listasafni Reykjavíkur (Hafnarhúsinu) laug- ardaginn 20. október. Má gera ráð fyrir að sveitin tjaldi öllu til fyrir tónleikana. Aparnir fara hvergi! STRÁKARNIR í Trabant hafa verið fyrirferðarmiklir undanfarið í slúð- urfréttadálkum blaðanna. Sá orð- rómur komst nefni- lega á kreik að Ragnar Kjart- ansson söngvari hefði sagt skilið við félaga sína í Trabant og það aðeins stuttu eftir að Doddi trommari ákvað að venda sínu kvæði í kross og taka fjölskyldustarfið fram yfir hljómsveitina. Nú virðist sem um ómerkilega kjaftasögu hafi verið að ræða og var haft eftir Ragnari í einu blaðanna að hann væri alls ekk- ert á förum – enda sveitin í fljúgandi gír og með spennandi plötusamning í farteskinu. Trabant í góðum gír! NÝJASTA hljómplata Tómasar R. Einarssonar kontrabassaleikara kall- ast Romm tomm tomm og hún kemur ný inn á Tónlistann þessa vikuna. Platan var hljóðrituð í Reykjavík og Havana á Kúbu, fyrr á þessu ári. Á plötunni ægir saman ís- lenskri og kúbanskri tón- list og fékk Tómas til liðs við sig bæði íslenska og kúbanska hljóðfæra- leikara. Þá má þess geta að á plötunni er að finna kraftmikinn óð til eina kunna íslenska karnivalsins, Jörfagleðinnar, sem haldin var lengi á heimaslóðum Tómasar í Dalasýslu en yfirvöld bönnuðu árið 1707. Romm tomm tomm er þriðja breiðskífa Tóm- asar R. og Havanabandsins en áður hafa kom- ið út plöturnar Kúbanska og Havana. Jörfagleðin endurvakin! BOB Dylan er á gam- alkunnum slóðum á nýju plötunni Modern Times. Margir hafa sagt að plat- an sé rökrétt framhald af síðustu tveimur plötum meistarans, Time out of Mind (1997) og Love and Theft (2001) en aðrir halda því fram að með Modern Times sé Dylan að leita aftur til sjöunda áratugarins og til þess tíma þegar hann gaf út Highway 61 Revisited. Fyrsta lagið er í það minnsta í svipuðum stíl þó að textinn hafi mjög „móderna“ tilvísun: „I was thinkin’ ’bout Alicia Keys/Couldn’t keep from cryin’/She was born in Hell’s Kitchen and I was livin’ down the line.“ Módernískur Dylan!                                                             !" # # # #$ %&#' ( )'* #+,-&#.# / #'#0  #1 .  &#  #2  (&   #,!&# .3* &#-)#4#/ &#$#5/  4&##!"#4#56(                             9: *""+ ;$ <$'   ,7 ,48# 9 #!/8   :/  $; #, , #$4< :/  :/  !"/ #=#5 4 !4 + 4#- 9 #>34 -  ,44/# 4#4# .  -  ?- 2 4 1< 4 #   =#,  ,4<; @@ A ' 7#AB '  #C D8E 1 #=" , 88 ,7 ! 8 ,* - #04 943#F 3 943#F 3 ,* #2" 4 G(  #.#5 -4 #!/   6BD4 4  $4H;# ># 4 #-#>  ,4#3#>  #.   # / / I  #)  * =4//#4//#4// $ (( - #4 #D ##3 3#, 4 # <4 ,< #24 #?#=4 , ''  #1 #244  #-4 !#3 0# "' ,J ,7 K# //#/; #.# / #8  #D8E * ! D*#/. $88#H #'# 5/44 A#A" G/( <3  G/ <#0L#2  #23M =#4 #  L#D#4 #943 N #4#*            A/  14B,-A 14B,-A 1 #!" 1 I   #" 1  ,)" 1 5-+ 1/   >  1/   F4#- < O  =,#2"/(* 14 #!" 1 D8E 1/   1 A/  #!" 1/   O  O  O  I   #"    FYRSTU áheyrnarprufurnar fyrir sjónvarpsþáttinn X-Factor fóru fram á Akureyri á dögunum. Raðir höfðu myndast fyrir framan Hótel KEA áður en tekið var við skrán- ingum. Þátturinn, sem sýndur verður á Stöð 2 í vetur, hefur það að mark- miði að finna hæfileikaríka ein- staklinga eða hópa sem skara fram- úr á sviði tónlistar, hvað varðar söng, sviðsframkomu, hljóðfæra- leik eða tónsmíðar. Seinni lota áheyrnaprufanna fer fram í Reykjavík 14. október á Nor- dica hótelinu. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Biðröð Fjöldi fólks beið spenntur eftir að láta ljós sitt skína í áheyrn- arprufum fyrir sjónvarpsþáttinn X-Factor. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Dómnefndin Þau Páll Óskar, Ellý og Einar Bárðar eru tilbúin að segja álit sitt á keppendum, sama hvort það verði í formi hróss eða ekki. Fjöldi í áheyrnarprufu til að verða sigurvegari með slagorð- inu: „Sá sem ekki er fyrstur, er síð- astur.“ Með þetta slagorð að leið- arljósi verður Ricky Bobby fremsti kappakstursmaður Bandaríkjanna og að sama skapi gjörsamlega óþol- andi sjálfumglaður persónuleiki, þótt hann sé besta skinn inn við beinið, en ekki er hægt að segja að hann stígi í vitið þótt hann kunni að stíga á bensíngjöfina. Það er ekki fyrr en franski formúlukappinn Jean Girard (Sacha Baron Cohen) skorar á Ricky Bobby að róðurinn þyngist og fyrr en varir verður Ricky Bobby meðal hinna síðustu. Með því að stefna saman fulltrúum „alvöru am- erískra karlmanna“ í Ricky Bobby og vini hans Cal, og svo Girard sem verður að teljast fullkomlega ókarl- mannlegur samkvæmt viðteknum FYRIR tveimur árum skrifaði gam- anleikarinn Will Ferrell handritið að gamanmyndinni Fréttaþulurinn (Anchor Man: The Legend of Ron Burgundy), í samvinnu við leikstjór- ann Adam McKay, þar sem skopast var að vinsældum fréttaþula í bandarísku sjónvarpi á áttunda ára- tugnum. Talladega-nætur: Ballaðan um Ricky Bobby er annað verkefni þeirra Ferrells og McKays í þessum anda, en með þessari mynd má segja að þeim hafi tekist að hrista fram úr erminni eina fyndnustu Hollywood- gamanmynd ársins. Meginsöguþráður Talladega- nótta felur í sér kostulega paródíu á íþróttamyndina, karlmennsku- og kappakstursdýrkun og uppáhalds viðfangsefni bandarískrar kvik- myndagerðar: þ.e. dæmisöguna um ameríska drauminn. Þar segir frá lífi venjulegs amerísks Suðurríkjapilts sem ungur temur sér hugarfar sig- urvegarans. Ricky Bobby (Will Fer- rell) fæddist bókstaflega á fleygiferð í baksætinu á kappasktursbíl föður síns, og hefur æ síðan verið upptek- inn af hraða. Sú þráhyggja rennur að mörgu leyti saman við hina flóknu fyrirmynd sem faðir hans verður honum, en sá er hin mesta föð- urómynd og lætur sér nægja að heimsækja son sinn þegar sá er orð- inn hálfstálpaður og hvetur hann þá kynjahlutverkum, er hnykkt enn- frekar á góðlátlegri paródíunni á „sannamerískan“ lífsstíl sem er einn af gegnumgangandi þráðum mynd- arinnar. Talladega-nætur er ekki aðeins snjöll og vel skrifuð fáránleikakó- medía, heldur skartar hún þremur af bestu gamanleikurum samtímans úr þeim geiranum, þeim Will Ferrell, John C. Reilly, og Sacha Baron Co- hen (einnig þekktur sem Ali G.), sem hrein unun er að fylgjast með vinna saman. Ólíkt mörgum öðrum gam- anmyndum sem ganga út á vitleys- ingsgang og ýkjur, er Talladega- nætur fagmannlega gerð, en kapp- akstursatriðin myndu sóma sér vel í hvaða íþrótta- eða hasarstórmynd sem er. Ballaða um vitleysing Talladega-nætur Myndin er að mati gagnrýnanda ein fyndnasta gam- anmynd ársins. Sasha Baron Cohen og Will Farrell bregða á leik. KVIKMYNDIR Regnboginn, Smárabíó, Laug- arásbíó og Borgarbíó Akureyri Leikstjórn: Adam McKay. Aðalhlutverk: Will Ferrell, John C. Reilly, Sacha Baron Cohen, Gary Cole og Leslie Bibb. Banda- ríkin, 104 mín. Talladega-nætur: Ballaðan um Ricky Bobby (Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby)  Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.