Morgunblaðið - 05.10.2006, Síða 51

Morgunblaðið - 05.10.2006, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 51 menning FUGL, félag um gagnrýna list, hafði um nokkurt skeið bækistöðvar sínar í verslun Indriða við Skólavörðustíg þar sem settar voru upp margar ágætar sýningar. Nú hefur Indriði lokað verslun sinni og félagið er því húsnæðislaust. FUGL hefur því brugðið á það ráð að setja af stað nýja sýningarröð, sem nefnist Reykjavík Project Space og mætti kannski útleggja sem Fram- kvæmdarýmið Reykjavík. Sýning- arstaður félagsins er borgin eins og hún leggur sig og verður forvitnilegt að sjá hvar listamenn munu bera niður með list sína. Það er Áslaug Thorlacius sem er fyrst til að sýna innan framkvæmd- arinnar og hún velur íbúðarhúsið að Görðum við Ægisíðu, þar býr kunn- ingjafólk hennar en hún bjó þar einnig sjálf um tíma. Á undanförnum árum hefur Áslaug unnið með sígilt myndefni í list sinni, fjölskyldu og heimili en einnig velt fyrir sér mörk- um fagurlista og listmuna, vinnu- stofu og heimilis. Hér er hún á svip- uðum slóðum. Hún sýnir fjórar smámyndir frá heimilinu, málaðar með temperu. Það má tengja þessi verk t.d. málaranum Jan Knap sem hefur málað helgi daglegs lífs líkt og helgimyndir fyrri tíma. Helgi heim- ilisins er líka í fyrirrúmi á þessum litlu myndum Áslaugar sem einnig minna á verk Skagamálaranna en Áslaug tengir sig samtímanum ræki- lega með því að hafa eina myndina af tannburstahillunni – slíkt myndefni hefði Anna Anker aldrei málað. Ás- laug snýr líka upp á hefð blóma- mynda og sýnir tvær slíkar utan á húsinu. Áslaug sýnir líka skúlptúra að Görðum en í eldhúsi hefur uppi á skápum verið raðað mörgum krukk- um þar sem mörkin milli heimilis og vinnustofu renna saman á litríkan hátt. Hún sýnir einnig skúlptúra í gluggakistum, samanbrotna bómull- arboli barna í stöflum. Hér veltir hún fyrir sér mörkum listarinnar á kíminn máta og verkið nýtur sín vel í samhengi við önnur verk á sýning- unni. Þetta listaverk var til leigu í Artóteki Borgarbókasafns og varð tilefni til heitra umræðna á Barna- landi.is, en útprent af umræðunni er áhugavert hliðarinnlegg við sýn- inguna. Sýning Áslaugar vekur margar spurningar, t.a.m. um stöðu listamanna og helgidóm vinnustof- unnar, áru listaverka og helgidóm heimilisins. Þegar Duchamp sýndi pissuskálina á listasafninu fyrir tæpri öld breyttist myndlistin óaft- urkallanlega, hann sýndi fram á mikilvægi samhengisins, það var samhengi listasafnsins sem gaf pis- suskálinni annað gildi. Áslaug sýnir hér „fundinn hlut innan veggja heimilisins“, sem dansar hér á mörk- um heimilis og opinbers sýning- arrýmis og skapar þannig ákveðna spennu í verkinu. Hún vísar líka til möguleika sköpunarinnar í hvers- deginum og fær áhorfandann til að velta bolunum fyrir sér – litir og form verða hluti af þvottastaflanum. Sýning í heimahúsi vekur til um- hugsunar um vinnuaðferðir lista- manna í dag, sem margir vinna ein- göngu fyrir söfn og sýningarsali en síður verk sem gætu endað á heim- ilum fólks, þó á sama tíma og lögð er áhersla á að ná til almennings. Þessi litla sýning Áslaugar er bæði eft- irminnileg og skemmtileg og um- ræðan á netinu er líka tilefni til um- ræðu í sjálfu sér, um stöðu samtímalista og áhuga almennings á myndlist, hann er meiri en af er látið og allir hafa sína skoðun sem betur fer. Spáð í þvottinn Skúlptúr? Tilefni heitra umræðna á barnaland.is. MYNDLIST FUGL, Reykjavík Project Space Til 8. okt. Opið á fim. 17–19 og sun. 14–16. Áslaug Thorlacius sýnir að Görðum við Ægisíðu Ragna Sigurðardóttir LIST látbragðsleikarans er ein- faldleikinn uppmálaður og hálf gleðin sem er fólgin í að fylgja honum eftir felst í lotningunni yf- ir tækninni sem þessi einfaldleiki útheimtir. Kannski einna líkast lýsingum tónlistarmanna á hvern- ig spila á Mozart. Tónlistin er ein- föld, en spilamennskan óþyrmi- lega erfið og enginn má heyra að svo sé. Mímuleikarinn getur ekki sagt flókna hluti, hans er ekki hin smágerða heimspekilega nálgun við tilvistarvandann. Hann getur hins vegar varpað því ljósi á hversdagslegustu hluti að við sjáum á þeim nýjar og óvæntar hliðar. Og stundum er list hans eingöngu leikur að líkamanum. Ekkert að því þegar fimi þess sem framkvæmir verðskuldar at- hygli ein og sér. Slíkur maður er Ireneusz Krosny greinilega. Þess vegna er sýning hans hreinræktuð og ómenguð ánægja frá upphafi til enda. Allt sem hann vill að sé fyndið er fyndið, jafnvel þótt við- fangsefnin séu þvæld (óttinn við tannlækna, hrokafullir hljómsveit- arstjórar, kvöldverðarboð hjá yf- irmanninum) og efnistökin hefð- bundin. Það skiptir engu máli þegar listamaðurinn nálgast verk sitt af jafnmikilli hlýju og hér, með jafnhæfilegri blöndu af smekkvísi og hrekkvísi. Allt gengur upp. Ireneusz Krosny myndar strax áreynslu- laust samband við áhorfendur sem helst alla sýninguna. Hann byrjar með stórglæsilegum for- mála þar sem hann hnyklar tæknivöðvana þannig að enginn þarf að velkjast í vafa um að hann getur allt sem hann kærir sig um innan marka listgreinar sinnar. Þá er ekkert annað eftir en að njóta. Hvert atriðið rekur annað án nokkurrar tilraunar til að ljá þeim djúpa merkingu, merkilegt samhengi eða listræna alvöru. Hér ríkir sköpunargleðin ein, ásamt þeirri sælutilfinningu sem því fylgir að sjá meistara gera það sem hann gerir best. Var eitthvað öðru betra? Í augnablikinu hlæ ég mest að minningunum um þjáningar und- irtyllunnar í matarboði hjá yf- irmanninum með óætum mat, sellóspilandi barni og mannýgum hundi. Og umbreytingunum í upp- hafi þar sem einn ósýnilegi leik- munurinn breyttist í annan í flæði hreyfinganna. Að ógleymdum gró- teskum tilþrifunum við uppskurð- inn og dásamlega nákvæmri lýs- ingu á framgangi lyftingamanna. Fyrst og fremst ber nátt- úrulega að þakka þá sjaldgæfu nautn sem felst í því að hlæja sig máttlausan yfir einhverju sem enginn velkist í vafa um að sé eins hreinræktuð og ómenguð list og hægt er að gera sér í hug- arlund utan tónlistarherbergisins. Alvörugefinn og áreynslulaus leikur – í öllum skilningi þess orðs. Áreynslulaus virtúós LEIKLIST Ireneusz Krosny Flytjandi: Ireneusz Krosny Sýning á vegum pólskrar menning- arhátíðar á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins 30. september 2006. EINSMANNS LÁTBRAGÐ Þorgeir Tryggvason ÞAÐ MÁ segja að unnendur frjáls- djassins hafi beðið komu Hans Benninks til Íslands í nær aldarfjórðung, en þá afboðaði hann sig á einu frjálsdjasshá- tíðina sem haldin hefur verið hérlendis – stóð Grammið fyr- ir þeim viðburði. Að vísu mættu fáir þeirra í Víkingasal enda hafði farist fyrir að mestu að kynna komu meist- arans. Bennink er lifandi goð- sögn í djassinum og það er stórkostlegt að ungur íslensk- ur bassaleikari, Valdimar Kolbeinn, skuli hafa náð að leika með honum, Deliusi og sellistanum Tristan Hons- inger á tónleikaferð um Bandaríkin og Kanada og fá síðan Han og Tobias hingað að leika með sér og Davíð Þór. Þessir tónleikar voru frábær skemmtun frá upphafi til enda. Upp- hafsverkið, Wink eftir Tobias, hófst á klassískum frjálsdjasstryllingi saxófónleikarans en um miðbikið var hægt á og langir tónar a la Coltrane ríktu. Valdi Kolli notaði bogann af mikilli leikni og Davíð kýldi píanóið meðan Han trommaði af slíkum krafti að furða var að hvorki trommusett né kjuðar gáfu sig. Ekki var krafturinn minni er hann var með burstana og um tíma var hann með annan fótinn uppi á snerlinum. Í Lullo’s Page eftir Tristan Hons- inger blés Tobias í klarinett og Valdi brá meira að segja fyrir sig slapp- basstöktum og í lagi Tobiasar, The Heron, minntu þeir félagar stundum á Adams/Pullen-kvartettinn, ekki síst að því leyti að geta haldið sveifl- unni gangandi í gargandi fram- úrstefnu. Að vísu er Han, sem lék m.a. með Dexter Gordon og Sonny Rollins í Evrópu og á síðustu hljóð- ritun Eriks Dolphys, þekktur fyrir að svínga heitar en fjandinn sjálfur eins og í frægum dúettum með gít- aristanum Derek Bailey sem var all- fjarri nokkurri sveiflu. Falleg ballaða eftir Valda Kolla var á dagskránni, Úlfastelpa, sem ég minnist að hafa heyrt hann leika með Eiríki Orra og svo lék kvart- ettinn 12 Bars eftir píanómeistarann Herbie Nichols þar sem Tobias blés í klarinettið með New Orleans-tón og Davíð brá fyrir sig skálmi á pí- anóið. Aukalagið var frjáls spuni og Davíð Þór settist við hammondorgel Þóris Baldurssonar og Tobias blés I Let A Song Go Out Of My Heart eft- ir Ellington um stund. Það er ekki hægt að vera annað en hreykinn yfir því að eiga stráka sem geta leikið jafn skemmtilega með frjálsdjassmeisturum á borð við Han og Tobias. Tryllt en sjaldan stillt DJASS Jazzhátíð Reykjavíkur: Vík- ingasalur Tobias Delius tenórsaxófón og klarinett, Davíð Þór Jónsson píanó, Valdimar Kol- beinn Sigurjónsson bassa og Han Benn- ink trommur. 28. september kl. 22:00. DBK Vernharður Linnet Hollendingurinn trommandi „Han tromm- aði af slíkum krafti að furða var að hvorki trommusett né kjuðar gáfu sig.“ SIGGI Hall verður gestakokkur á bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox News í hádeginu í dag og er bú- ist við því að hann verði í beinni útsendingu um 12.50 að íslensk- um tíma. Siggi ætlar að kenna Bandaríkjamönnum á íslenskt hráefni sem nú fæst ytra og reiða fram rétt sem hann kallar skyr- amisú. Það þarf ekki að efast um að þar er komin alíslensk útgáfa af ítalska góðgætinu tiramisú, og verður fróðlegt að sjá hvernig skyndibitaþjóðin tekur íslenska hnossgætinu. Á næstu dögum verður Siggi Hall í Whole Foods Markets- verslununum þar sem hann kynn- ir íslensk matvæli allt frá lamb- inu góða til Síríussúkkulaðis og sýnir gestum og gangandi hvern- ig það verður best meðhöndlað í matreiðslu. Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsso Geðþekkur Tekst Sigga Hall að heilla Kanann með íslensku skyri? Siggi Hall býr til skyr- amisú í beinni útsendingu á Fox News í dag ÞokkapésansBobbys Brown bíður nú ekkert annað en óvæginn vöndur réttvísinnar, með tilheyrandi tugt- hússvist, eftir að hann hunsaði lög og rétt og mætti ekki í yfirheyrslur vegna vangoldins meðlags. Börnin tvö þau arna á hann þó ekki með þokkadísinni Whitney Houston sem lagði glæstan söngferil á hilluna til að deila lífi með Bobby í solli og sukki, heldur með Kim nokk- urri Ward. Það er því enn allt í óefni hjá Bobby Brown, en Ward hefur upplýst að meðlagið vangoldna nemi nú andvirði 770 þúsund króna, sem ku vera tveggja mánaða framfærsla með hvoru barni. Bobby Brown er því eftirlýstur og verður handtekinn hvar sem til hans næst.    Fólk folk@mbl.is Fréttir afdauða Osama bin Laden eru stórlega ýkt- ar, eða svo gætu gestir Íslensku óperunnar í það minnsta vitnað um. Þar á bæ er nú verið að sýna Mozartóperuna Brottnámið úr kvennabúrinu, sem gerist meðal múslima, og greinir frá tilraun bresks aðalsmanns til að endurheimta unnustu sína úr kvennabúri soldánsins. Fréttir af uppþoti í kringum Mozartóperu í Þýsku óperunni í Berlín hafa tröll- riðið erlendu pressunni síðustu daga, en hljótt hefur farið um ferðir Ósama í Mozartóperunni á Íslandi. Honum brá fyrir á svölum Gamla bíós þar sem hann skartaði sínu hefðbundna höfuðfati og vélbyssu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.