Morgunblaðið - 05.10.2006, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ELLEN, VIÐ GETUM FARIÐ ÚT AÐ
BORÐA SAMAN NÚNA
MANSTU ÞEGAR ÞÚ SAGÐIR MÉR
AÐ ÞÚ FÆRIR BARA ÚT MEÐ MÖNNUM
SEM GERA HÆTTULEGA HLUTI
Í GÆR ÞÁ HLJÓP ÉG UM
ÍBÚÐINA MEÐ SKÆRI
HANN JÓN
HLÆR FRAMAN Í
HÆTTURNAR
MÉR
FINNST
ÞETTA ALLT
BARA SVO
SKRÍTIÐ...
FYRST KAUPIR PABBI
RAKARASTOFU, SÍÐAN
GIFTIR HANN SIG, SÍÐAN
FÆÐIST ÉG OG NÚNA ER
SOLLA FÆDD...
FJÖLSKYLDAN
OKKAR ER AÐ
STÆKKA...
ÉG SÉ FYRIR MÉR NÝJA
SKILTIÐ Á RAKARASTOFUNNI
HANS PABBA NÚNA...
KLIPPING- 2000 kr.
VIÐ ERUM TÍGRISDÝR. VIÐ
ERUM ÚTI Í NÁTTÚRUNNI.
HVERNIG
EIGUM VIÐ AÐ
LIFA AF?
SEGJUM SEM SVO AÐ ÉG
SÉ UPPI Í TRÉ OG NÆM
SKYNFÆRI MÍN
TÆKJU EFTIR
BRÁÐ, HVAÐ ÆTTI
ÉG AÐ GERA?
ÞAÐ VELTUR ALLT Á
ÞVÍ HVERNIG BRÁÐ
ÞETTA ER
VELDU
BARA
EITTHVAÐ
EF ÞETTA
VÆRI POKI AF
NÚÐLUM ÞÁ
ÞYRFTUM VIÐ
AÐ FARA HEIM
OG SETJA VATN
Í POTT OG...
SJÁÐU SONUR
SÆLL, ÞARNA ER
HINN MIKLI HRÓLFUR
HRÆÐILEGI
ÞAÐ ERU
TIL ÝMSAR
SÖGUR UM
HANN
Í OKKAR BRANSA ER HANN
ÞEKKTUR SEM VILLIMAÐUR
VILLIMANNANNA
ÞÚ GERIR
ÞÉR GREIN
FYRIR ÞVÍ AÐ
ÞAU ERU
EKKI EKTA
NÝI TOPPURINN ER MJÖG
FLOTTUR Á ÞÉR MÉRFINNST
ÞAÐ
EKKI
AF HVERJU, ER ÞAÐ
LITURINN EÐA ER ÞAÐ SNIÐIÐ?
HANN LÆTUR
MIG LÍTA ÚT FYRIR
AÐ VERA FEIT
EFTIR AÐ NASHYRNINGURINN
SLAPP ÚR FANGELSI FÓR HANN AÐ
LEIKA ILLMENNIÐ Í MYNDINNI
SVO AÐ FÓLK
SEM SÆI HANN
HÉLDI
AÐ HANN
VÆRI BARA
LEIKARI
ÞANNIG GAT HANN FARIÐ
FRJÁLS FERÐA SINNA ÁN ÞESS
AÐ VERA HANDTEKINN
EN EKKI
LENGUR
Námskeiðið Íslenska – mál-pólitík. Hvaða hættasteðjar að íslenskritungu? Verður haldið á
vegum Endurmenntunar Háskóla Ís-
lands dagana 10., 12., 17. og 19. októ-
ber.
Ari Páll Kristinsson málfræðingur
og fyrrverandi forstöðumaður Ís-
lenskrar málstöðvar er leiðbeinandi á
námskeiðinu, sem nú er haldið í
fyrsta skipti: „Í upphafi árs varð mik-
il umræða um stöðu íslenskrar tungu
og höfðu margir áhyggur af framtíð
íslenskunnar. Sumir gengu svo langt
að spá því að málið yrði horfið eftir
eina öld og var m.a. haldið málþing
um þessi mál og fjallað ítarlega um
þróun tungunnar í Lesbók Morg-
unblaðsins auk þess að margir skipt-
ust á skoðunum í blaðagreinum, og á
útvarps- og sjónvarpsstöðvum,“ út-
skýrir Ari Páll. „Sitt sýndist hverjum
og skiptar skoðanir um bæði hvað
bæri að óttast, og sömuleiðis hversu
miklar áhyggjur ætti að hafa. Sjálfum
þótti mér skorta á að umræðan væri
nógu skýr. Hugtakanotkun var tölu-
vert á reiki og ekki óalgengt að menn
rugluðu saman eðlisólíkum fyr-
irbærum, aðalatriðum og auka-
atriðum, má segja að umræðan hafi
einkennst um of af því að menn voru
að tala í austur og vestur.“
Á námskeiðinu ætlar Ari Páll að
fara ítarlega yfir helstu þætti sem
kunna að hafa áhrif á þróun og stöðu
íslenskrar tungu til langframa: „Ég
mun fara yfir helstu hugtök sem þarf
til að greina við hvað er átt þegar tal-
að er um stöðu tungumáls á borð við
íslensku; hvaða forsendur þurfa að
vera fyrir hendi til að tungumál á
borð við íslensku geti þrifist og hverj-
ir eru styrkleikar og veikleikar ís-
lensks málsamfélags,“ segir Ari Páll.
„Við munum fjalla um hugtök á borð
við stöðu tungumáls, form tungumáls,
málstefnu, málpólitík og málrækt, og
fara yfir umræðu vetrarins í ljósi
slíkra hugtaka.“
Ari Páll segir námskeiðið ekki
strangfræðilegt, heldur sé því ætlað
að vera aðgengilegt öllu áhugafólki
um stöðu íslenskrar tungu. Kennsla
verður bæði í formi fyrirlestra og um-
ræðna en kennt verður frá 20.15 til
22.15 námskeiðsdagana fjóra.
Þó eðlilegt sé að mönnum sé um-
hugað um stöðu íslenskunnar á tím-
um hnattvæðingar segir Ari Páll
stöðu íslenskrar tungu sterka að
mörgu leyti: „Þó við séum ekki nema
um þrjúhundruðþúsund sem tölum
málið hefur íslenskan mjög sterka rit-
málshefð og saga hennar skráð í bók-
menntum sem sumar eru þúsund ára
gamlar. Einnig skiptir sköpum að ís-
lenskan er opinbert tungumál sjálf-
stæðs ríkis. Öðru máli myndi gegna
ef íslenskan væri tungumál fámenns
hóps innan stærra ríkis og ef ekki
væri t.d. kennt á íslensku og laga-
setning á íslensku,“ útskýrir Ari Páll.
„Ef, hins vegar, við myndum veita
öðru tungumáli sömu stöðu og því ís-
lenska í opinberu lífi, s.s. ef tilskip-
anir EB eru gildar óþýddar eða ef há-
skólakennsla fer að stórum hluta
fram á ensku erum við að fækka
nauðsynlegum notkunarsviðum og
þar með að veikja stoðir íslensk-
unnar.“
Menntun | Námskeið hefst 10. október um
framtíð og stöðu íslenskrar tungu
Í hvaða hættu
er íslenskan?
Ari Páll Krist-
insson fæddist í
Stóru-Sandvík í
Árnessýslu 1960.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum
á Laugarvatni
1979, B.A. gráðu
í íslensku og mál-
vísindum frá Háskóla Íslands 1982,
kennsluréttindum og Cand.Mag.
prófi í íslenskri málfræði 1987 frá
sama skóla. Hann hefur kennt í
framhaldsskólum og háskóla, var
málfarsráðunautur RÚV 1993 –
1996 og forstöðumaður íslenskrar
málstöðvar 1996 – 2006. Ari Páll er
kvæntur Sigrúnu Þorgeirsdóttur
ritstjóra og eiga þau fjögur börn.
PILAR Ordovas heitir konan sem á skuggann sem heldur á hljóðnemanum.
Pilar er yfirmaður nútímalistadeildar Christies-uppboðsfyrirtækisins í
London, en myndin var tekin er hún var að kynna málverk Andys Warhols
af Maó Tse Tung, fyrrverandi leiðtoga alþýðulýðveldisins Kína. Maó verð-
ur sleginn hæstbjóðanda í nóvember og búist er við að fyrir hann fáist and-
virði allt að 850 milljóna íslenskra króna.
Maó fær orð í eyra
Reuters