Morgunblaðið - 05.10.2006, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DEITMYNDIN
Í ÁR
FRÁ HÖFUNDI „TRAINING DAY“ OG
„THE FAST AND THE FURIOUS“
HÁSKÓLABÍÓ 5. OKT.
HAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolabio.is
HARSH TIMES kl. 6 - 8 - 10:30 B.i. 16.ára.
HARSH TIMES VIP kl. 8 - 10:30
NACHO LIBRE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
THE WILD m/ensku tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
THE ALIBI kl. 10:30 B.i.16.ára.
STEP UP kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára.
BÖRN kl. 4 - 8:30 B.i.12.ára.
BÖRN VIP kl. 6
MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ
OVER THE HEDGE m/Ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ
THE PROPOSITION kl. 8 B.i. 16.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 Tilboð 400.kr kl. 10 B.i. 12.ára.
/ ÁLFABAKKI
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
Takið þátt í
spennandi
ferðalagi
þar sem
villidýrin
fara á
kostum.
Ekki missa af
fyndnustu
Walt Disney
teiknimynd
haustins.
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ
ANNAÐ TÆKIFÆRI
ÞARFTU AÐ TAKA
FYRSTA SPORIÐ.
GLÆNÝ TEGUND AF
FERÐAMÖNNUM
eeee
TOMMI/KVIKMYNDIR.IS
eeeee
H.J. MBL
ELDFIM OG TÖFF
HÖRKUMYND
MEÐ CHRISTIAN
BALE „AMERICAN
PSYCHO“, „BATMAN
BEGINS“ OG
EVA LONGORIA
„DESPERATE
HOUSEWIVES“
FRAMLEIDD AF TOM HANKS.
„the ant bully“
GLÆNÝ TEGUND AF
FERÐAMÖNNUMÓBYGGÐIRNAR„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali !
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
MEÐ DAUÐANN Á HENDI 18:00
PÚÐURTUNNAN 18:00
DRAUMURINN 18:00
ZIDANE, 21.ALDAR PORTRETTMYND 20:00
TÍMI DRUKKNU HESTANNA 20:00
ÉG ER 20:10
HÁLFT TUNGL 20:20
FRAMHALDSLÍFIÐ LJÚFA 22:00
KEANE 22:00
FJÓRAR MÍNÚTUR 22:20
NÁNARI UPPLÝSINGAR UM HÁTÍÐINA MÁ FINNA Á WWW.RIFF.IS
kvikmyndir.is
Víkverji er mjögglaður yfir því að
Bandaríkjaher skuli
loksins vera farinn af
landi brott. Hann hef-
ur aldrei verið hrifinn
af því að hafa erlend-
an her í „herlausu“ og
friðsælu landi og
fannst vera Banda-
ríkjahers alltaf eins og
hafa einhvern andandi
yfir öxlina á sér.
Varnarsvæðið er svo
skilið eftir handa okk-
ur eins og tómur
pappakassi pakkaður
inn í fallegan gjafa-
pappír búinn til úr
orðum.
x x x
Víkverji er ekki sáttur viðbyggingu Kárahnjúkavirkj-
unar en þegar vatni var hleypt á
Hálslón settist samt örlítill léttir
að í brjósti hans. Fyrir léttinum
voru tvær ástæður; Önnur ástæð-
an er sú að Víkverji vonar að
þessi endalausa tuðumræða sem
hefur verið um virkjunina und-
anfarin ár minnki, því hún er leið-
inleg. Hin ástæðan er sú að nú
þegar virkjunin er komin svona
langt af stað vonar Víkverji að
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
hinir öflugu nátt-
úruverndarsinnar
fari að beina sjónum
sínum af þessari einu
virkjun fyrir austan
og að tilvonandi
virkjunum ann-
arsstaðar á landinu.
Það náðist ekki að
stoppa Kára-
hnjúkavirkjun en
með samhentu átaki
ættu landsmenn að
geta komið í veg fyr-
ir frekari virkj-
anaframkvæmdir og
önnur náttúruspjöll á
landinu, því eitt er
víst að margar virkj-
anir eru á teikniborðinu.
Auk þess sem Víkverja leist
engan veginn á hugmynd Ómars
Ragnarssonar um draugaþorp á
hálendinu fyrir ferðamenn, að
mati Víkverja á að klára Kára-
hnjúkavirkjun þar sem hún er
komin þetta langt í byggingu.
x x x
Sláturtíð er hafin og Víkverjiætlar að fylla frystirinn af
blóðmör og lifrarpylsu og öðrum
íslenskum gæðamat til að eiga
þegar kuldaboli fer að bíta í kinn
og hungrið að sverfa að.
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Og þótt þér elskið þá, sem yður elska,
hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar elska þá
líka, sem þá elska. (Lk. 6, 32.)
Í dag er fimmtudagur
5. október, 278. dagur
ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Draumalandið
UM leið og ég færi Andra
Snæ Magnasyni, rithöfundi,
alúðarþakkir fyrir afreks-
verk hans með bókinni
Draumalandið skora ég á alla
Íslendinga sem ekki nú þeg-
ar hafa lesið bókina að lesa
hana.
Við Tryggva Gíslason,
fyrrum skólameistara, vil ég
segja þetta: Megi almættið
fyrirgefa þér að fylgja stefnu
„gróðurhúsamengunar“ ,
stefnu sem ber dauðann í sér.
Sorglegt að Íslendingur skuli
bendla franska rithöfundinn
og heimspekinginn Voltaire
við nútíma eyðingu lífs á jörðinni.
Minningin um Francoes Marie Arou-
et-Voltaire á betra skilið frá okkur
Íslendingum.
Svo ég vitna í Draumalandið:
„Helsta ógnin við virkjunarstefnuna
hefur reynst vera þjóðin sjálf. Hún
gæti öðlast skilning, þekkingu og
sjálfstraust.“
Ég segi með Andra Snæ: „Kannski
er tímabært að færa stjórnarráðið til
upprunalegs horfs: Setja rimla í
gluggana og slagbrand fyrir dyrnar.“
Vestarr Lúðvíksson.
Heilög sköpun guðs
Í öllu upphlaupinu út af Kára-
hnjúkavirkjun dettur manni í hug
hvort ekki allt það fallega land sem
farið hefur undir íbúðabyggð og vegi
sé ekki líka heilög sköpun guðs. En
þar sem við erum nú einu sinni þeirr-
ar gerðar að þurfa fast land undir
fætur og hús til að búa í verður ekki
hjá því komist að hróflað sé við nátt-
úrunni. Ef til vill hefðum við átt að
banna allar virkjanir, og þar með öll
rafmagnstæki og láta okkur bara
nægja gömlu lýsistýruna. Kannski
hefði sú orðið raunin ef öfgahópar
hefðu mátt ráða.
Guðrún Magnúsdóttir.
Tölvunámskeið
fyrir byrjendur
KONA sem ég þekki ætlaði á tölvu-
námskeið fyrir byrjendur, en það eru
ekki allir fullorðnir sem kunna á tölv-
ur. Tveir skólar buðu upp á byrjend-
anámskeið, Mímir símenntun og
Tölvuskólinn í Faxafeni.
En svo varð að aflýsa námskeiðinu
því það fengust ekki nægilega margir
á námskeiðið. Það sóttu 5 um í sitt-
hvorum skólanum en það þurfti 10 til
að hægt væri að halda námskeiðið.
Ekki virtist hægt að sameina þessa
hópa hjá öðrum skólanum.
Þarna hafa nokkrir orðið af nám-
skeiði sem þeir ætluðu sér á og kom
það sér illa fyrir marga. Vildi vekja
athygli á þessu.
A.A.
Nagladekkin
NÚ kemur að því að fólk þarf að
hugsa um hvort það á að aka á nagla-
dekkjum í vetur með tilliti til megn-
unar og gatnaslits.
Hvaða vit er í því að aka á nagla-
dekkjum allan veturinn þegar
kannski 2–3 dagar eru hálkudagar
yfir allan veturinn?
Vegfarandi.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
75 ára afmæli.Hafsteinn
Sigurbjörnsson,
pípulagningameist-
ari, Akranesi er 75
ára í dag 5. október.
Hann mun fagna
tímamótunum með
fjölskyldu sinni á
heimili sínu, Höfðagrund 14, Akranesi.
50 ára afmæli.Rúnar Þór
Bjarnason, bóndi á
Reykjum á Skeið-
um, verður 50 ára
laugardaginn 7. okt
nk. Af því tilefni
verða hann og fjöl-
skylda hans með op-
ið hús í Brautarholti frá kl. 20–24 á af-
mælisdaginn og vonast til að vinir og
vandamenn komi og gleðjist með þeim
í tilefni dagsins.
60 ára afmæli.Hrafn B.
Hauksson, Löngu-
hlíð 9, Reykjavík
verður sextugur 9.
október nk. Af því
tilefni tekur hann á
móti ættingjum og
vinum í húsi hesta-
mannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ,
laugardaginn 7. október kl. 19.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup, ættarmót og
fleira, lesendum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-1100 eða sent á
netfangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
IÐNREKANDINN Franz Brenni-
nger (Bierbichler), má muna tím-
ana tvenna, verksmiðjan, sem
pabbi hans gat með bellibrögðum
gangsett að nýju eftir stríð, er á
kúpunni. Franz sættir sig ekki við
raunveruleikann, hrokafullur, van-
þakklátur, karlremba og rasisti
sem lítillækkar börnin sín og held-
ur framhjá Mucki konu sinni
(Schygulla). Börnin vilja allt fyrir
hann gera, en Franz sér gróðavon
er honum berst bréf frá hröppum í
Kenýa, sem bjóða honum væna
fúlgu ef hann vill millifæra pen-
inga, en það kostar tugi þúsunda
evra.
Bragðið er vel þekkt, karlinn
skrifar samt undir en veit sam-
stundis hvert stefnir og heldur til
Kenýa til að reyna að hafa uppi á
peningunum. Það sópar af Bierbic-
hler sem er kraftmikill á uppsveifl-
unum og áhorfandinn fær samúð
með karlskömminni, honum er ekki
alls varnað. Ánægjulegt að sjá
Schygulla, sem er minnisstæð úr
myndum Wajda á 8. áratugnum og
kúrdiska túlkinum Leylu og er
Franz til aðstoðar, vel borgið í
höndum Kekilli og kemur með
fleiri tóna í verkið.
Hugmyndin að myndinni er sótt í
„Winterreise“ eftir Schubert, það
lukkast illa því þunglyndið verður
aldrei trúverðugt í höndunum á
Bierbichler og karlar eins og hann
láta ekki gabba sig svona auðveld-
lega þó illa gangi.
Winterreise er veisla fyrir augað
og lengst af forvitnileg lýsing á
óforbetranlegum sérgæðingi, en
dettur niður eftir að komið er til
Nairobi og lokakaflinn gæti verið
eftir bræðurna Grimm.
Óyndis-
úrræði
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
RIFF: 2006: Tjarnarbíó
Leikstjóri: Hans Steinbichler. Aðalleik-
arar: Josef Bierbichler, Sibel Kekilli,
Hanna Schygulla, Philipp Hochmair. 96
mín. Þýskaland 2006.
Vetrarferð – Winterreise Vetrarferðin Hugmyndin er sótt í Schubert.