Morgunblaðið - 05.10.2006, Side 57

Morgunblaðið - 05.10.2006, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 57 eeeee LIB - topp5.is eeee HJ, MBL eeee Tommi - Kvikmyndir.is / KRINGLAN HARSH TIMES kl. 8 - 10:30 B.i. 16.ára. BÖRN kl. 6 - 8 - 10:15 B.i.12.ára. ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl tali kl. 6 LEYFÐ UNITED 93 kl. 10:15 B.i.14.ára. BJÓLFSKVIÐA kl. 5:50 B.i.14.ára. AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 LEYFÐ / AKUREYRI BEERFEST FORSÝNING kl. 6 - 8 - 10 B.I. 12 NACHO LIBRE kl. 8 - 10 B.i. 7 ÓBYGGÐIRNAR Ísl tal. kl. 6 Leyfð / KEFLAVÍK NACHO LIBRE kl. 8 - 10:10 B.i. 7 STEP UP kl. 8 - 10 B.i. 7 MEÐ HINUM EINA SANNA JACK BLACK OG FRÁ LEIKSTJÓRA “NAPOLEON DYNAMITE” KEMUR FRUMLEGASTI GRÍNSMELLURINN Í ÁR. eee E.B.G. Topp5.is E.T. kvikmyndir.is THE ALIBI Hann var meistari á sínu sviði þar til hann hitti jafnoka sinn. BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON eee ÓLAFUR H. TORFASON RÁS2 eeee HEIÐA MBL FRAMLAG ÍSLENDINGA TIL ÓSKARSVERÐLAUNA! FRÁ EINHVERJUM MEST SPENNANDI LEIKHÓP SEM ÍSLENDINGAR EIGA Í DAG, VESTURPORT, KEMUR HREINT ÚT SAGT MÖGNUÐ KVIKMYND BÖRN! eeee VJV eeee Roger Ebert eee L.I.B. Topp5.is eee S.V. Mbl. BJÓLFSKVIÐAeeeH.J. - MBL eeeeblaðið Reykjavík International Film Festival Sept 28 Okt 8 2006 Lífsins Harmljóð Tjarnarbíó18:00 filmfest.is Elegy of Life Heiðursgestur kvikmyndahátíðar, Aleksandr Sokurov,kynnir glænýja heimildarmynd sína um söngkonunaVishnevksaya og sellóleikarann Rostropovich. Tjarnarbíó 14:00 | Grbavica 16:00 | Lím 18:00 | Lífsins harmljóð 20:30 | FjallaEyvindur Benni Hemm Hemm 22:15 | B-mynda veisla Páls Óskars Iðnó 14:00 | Dæmdur heim 16:00 | Stúlkan er mín 18:00 | Daganna á milli 20:00 | Florence afhjúpuð 22:00 | Af engum Háskólabíó 18:00 | Draumurinn 18:00 | Með dauðann á hendi 18:00 | Púðurtunnan 20:00 | Zidane 20:00 | Tími drukknu hest... 20:10 | Ég er 20:20 | Hálft tungl 22:00 | Framhaldslífið ljúfa 22:20 | Fjórar mínútur 22:30 | Keane Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki er víst að afþreying teljist til lífs- bjargar, en fyrst svo mikið er af skringi- legheitum í heiminum, væri synd að njóta þeirra ekki. Allt sem er skrýtið, nýtt og forvitnilegt togar þig til sín. Naut (20. apríl - 20. maí)  Samband sem einkennist af ráðríki getur bæði framkallað tilfinningu um mikilvægi og ótrúlegar hömlur. Af hverju er annar aðilinn haldinn stjórnlausum ótta um það að þú sleppir? Kannski er góð ástæða fyr- ir þeim ótta. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Vísindamenn hafa reiknað út að maður geti brennt 150 hitaeiningum á klukku- tíma með því að berja hausnum við vegg- inn. Það er sama hversu gremjulegt allt verður, vitsmunalegur tvíburi eins og þú sleppir svona æfingum og fer bara út að hlaupa. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það er nokkur áskorun að nota höfuðið í vinnunni ef hugurinn hringsnýst af skap- andi ímyndunum. Þú gætir allt eins látið undan sköpunargyðjunni, en ef þú ert í vinnunni skaltu láta líta út fyrir að þú sért að gera eitthvað. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það sem maður getur ekki gert með lík- amlegu afli, getur maður látið gerast með því að beina hugsunum sínum. Allt það besta sem gerist í dag, gerist einmitt þannig – eins og til dæmis að reyna að fá ástvini til þess að vera eilítið ástríkari. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Innri leiðsögn hjálpar dúfum til þess að finna búrið sitt aftur og flökkuhundum að hitta húsbónda sinn. Meyjan er með slíkt kerfi innra með sér og það hjálpar henni að finna þægilegt og öruggt athvarf í kvöld. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Notaðu dagbókina þína, þú veist þessa sem einhver keypti handa þér fyrir óra- löngu. Hún er besti vettvangurinn fyrir allar þær góðu upplýsingar og visku sem flýtur um í heilanum á þér í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hreinn ásetningur býr innra með sporð- drekanum frá morgni til kvölds. Miðlaðu smávegis upplýsingum til einhvers af komandi kynslóð á meðan þú ert í þessu uppljómaða hugarástandi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það ýtir undir hógværð að fylgjast með flinkum atvinnumanni við iðju sína, en láttu það samt ekki ræna þig eldmóð- inum. Þú gætir orðið alveg eins flinkur með smávegis æfingu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þótt steingeitinni líði yfirleitt eins og hinni fullkomnu raunsæismanneskju er dagurinn í dag svo sannarlega töfrum gæddur. Seinna áttu eftir að líta tilbaka og spyrja „gerðist þetta virkilega?“ Sam- skipti við vog og sporðdreka verða þér til happs. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Tengingin milli líkama, hugar og anda er margbrotin. Afstaða stjarnanna minnir þig á, að þú borðar til þess að njóta lífsins betur, í stað þess að lifa til þess að borða betur. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ættir að vita það nú þegar, að þú hefur hæfileikann til þess að ná langt í vinnunni. En er það allrar þessarar áreynslu virði? Svona spurningar eru bara til marks um gamlan ótta. Ráddu niðurlögum hans. Tilfinningaleg spenna magnast þegar fullt tungl í hrúti nálgast. Ef hnútur byrjar að myndast í mag- anum er það heilanum eig- inlegt að byrja að grafast fyrir um ástæður. Það má alveg eins skella skuldinni á að eitthvað stórkostlegt sé í vændum, rétt eins og hræðilegt. Okk- ar er valið. stjörnuspá Holiday Mathis AUSTUR-evrópsk kvikmyndagerð hefur fyrir löngu sannað gildi sitt og sá heimur sem þar er jafnan skap- aður er í senn dimmur, gamansamur og hæðinn. Í 12.08 austur af Búk- arest er öll þessi einkenni að finna og gott betur. Það áhugaverðasta við þessa rúmensku mynd, sem vann til verðlauna á Cannes, er að hún hafn- ar næstum því öllum hefðbundnum lögmálum sagnagerðar. Í henni er einnig að finna skemmtilegar per- sónur, fína leikara, áhugaverðan söguramma og sérstaka stemningu. Það sem hana skortir hins vegar er fullunnið handrit og vönduð vinnu- brögð. Hljóðnemar sem lafa niður í rammann geta í einfaldleika sínum aukið á þá stemningu sem reynt er að skapa en í tilviki 12.08 austur af Búkarest virkar það heldur kauðs- legt. Leikstjórinn hefur verið með mjög fínan efnivið í höndunum en svo er sem honum hafi ekki tekist að nýta sér hann til fulls. Líkast til hef- ur handritið upphaflega verið skrif- að fyrir stuttmynd og sem slík hefði 12.08 austur af Búkarest verið frá- bær. En sem kvikmynd í fullri lengd virkar hún eilítið ófullkomin. Byltingarbörnin vaxa úr grasi KVIKMYNDIR RIFF 2006 – Tjarnarbíó Leikstjórn: Corneliu Porumbou. 89 mín. Rúmenía, 2006. 12.08 austur af Búkarest –  Höskuldur Ólafsson HÖFUNDUR þessarar einstæðu heimildarmyndar, Litháinn Matelis, á litla dóttur sem greindist með hvít- blæði og gekk í gegnum skelfilega tíma á sjúkrahúsi þar sem líf hennar hékk á bláþræði. Í hennar tilfelli höfðu lífið og læknavísindin betur. Ferlið var kvikmyndagerð- armanninum þungbær reynsla. Þeg- ar dóttir hans var orðin heil heilsu, fór hann með tökuvélina á krabba- meinsdeild spítalans. Áður en flogið er aftur til jarðar er mætur afrakst- ur margra mánaða tökuferlis þar sem hann fylgdist með og filmaði líf litlu sjúklinganna og foreldra þeirra. Matelis hefur tekist að gera kraftaverk því myndin hans er, þrátt fyrir alvarleika viðfangsefnisins, óð- ur til lífsins. Hún kennir okkur fá- nýti þess að kvarta undan smámun- um þegar við fylgjumst með hetjulegri baráttu barna sem eru tæpast byrjuð að lifa lífinu, við óvæginn sjúkdóm, erfiðar lyfja- meðferðir, aukaverkanir, dauðann. Skyndilega er þeim varpað inn í drunga spítalans úr áhyggjuleysi bernskunnar, þau snoðuð og háttuð ofan í sjúkrarúm. Fyrr en varir upp- lýsist fyrir börnunum hrikalegur sannleikurinn og á þeim augnablik- um rís myndin hæst. Æðruleysi þeirra er aðdáunarvert, aðlög- unarhæfnin að geta tekist á við jafn ömurlegar aðstæður, fyllir mann lotningu fyrir hversdagshetjunum sem eru að berjast alls staðar í kringum okkur. Ungar, þjáð- ar hetjur KVIKMYNDIR RIFF 2006: Tjarnarbíó Heimildarmynd. Leikstjóri: Arunas Matelis. Aðalviðmælendur: Andrius, Edgaras, Rytis, og foreldrar þeirra. 55 mín. Litháen/Þýskaland. 2005. Áður en flogið er aftur til jarðar/ Pries Parskrendant i Zeme  Sæbjörn Valdimarsson Fréttir á SMS HEIÐARLEIKI einkennir mynd um sérstakt samband nágranna sem búa á sitt hvorri hæðinni í nið- urníddu fjölbýlishúsi í sjúskuðu út- hverfi í Danmörku. Báðir vita hvað gerist með hinum, því veggirnir eru þunnir og skrápurinn sömuleiðis. Grannarnir eru Charlotte (Dyr- holm), nýfráskilin, þrjátíuogeitt- hvað, heillandi kona í góðri vinnu og gefin fyrir kynlíf, sem var einn banabita sambúðarinnar sem hún flýr. Veronica (Dencik), er gjörólík persóna, í rauninni heitir hún Ulrik – sem vill verða Ulrika. Trans- gender, eða kona í karlmannslík- ama, og bíður leiðréttingarað- gerðar. Með þeim skapast vin- áttusamband sem þróast á ólík- legasta hátt. Tilfinningamálin eru flókin hjá persónunum í Sápa, reyndar svo óvenjuleg og dramatísk að minnir á sápuóperurnar í sjónvarpinu og er eftirlætisefni Veronicu. Hún er van- rækt af föður sínum en móðirin reynir að sýna lit. Charlotte er ekki eins hörð og hún lætur, báðar per- sónurnar þjást af tilfinngahömlum og sjálfsfyrirlitningu. Athyglisverð, frábærlega leikin, Dyrholm hefur hrífandi útgeislun og Dencik er stórkostlegur í erfiðu hlutverki. Gæðamynd sem vekur áhorfandann til umhugsunar um misjöfn mann- anna kjör. Þunnir veggir Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNDIR RIFF 2006: Háskólabíó Leikstjóri: Pernille Fischer Christensen. Aðalleikarar: Trine Dyrholm, David Den- cik, Frank Thiel. 95 mín. Danmörk 2006. Sápa – En soap  AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.