Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Norðaustan og austan 3-8 m/s. Skýjað um landið norðanvert en vætusamt á því sunn- anverðu. » 8 Heitast Kaldast 8°C 3°C Morgunverðarfundur þriðjudaginn 10. október á Grand Hótel frá 8:30 til 10:00 Endurgreiðsla vegna rannsókna- og þróunarstarfs - ávinningur fyrir alla SI hafa fengið Ragnhild Rønneberg, framkvæmdastjóra SkatteFUNN í Noregi, til að kynna kerfið og reynslu þeirra af því - en hátt í sex þúsund rannsókna- og þróunarverkefni norskra fyrirtækja njóta nú góðs af því. Tekið er við skráningu á fundinn á skraning@si.is eða í síma 591 0100. Sjá nánar á www.si.is Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ALÞINGI samþykkti með hraði í gærkvöld lagafrumvarp um að nefnd forsætisráðherra, sem annast á skoðun gagna sem snerta öryggis- mál Íslands, innra og ytra öryggi, á árunum 1945 til 1991, fengi frjálsan aðgang að öllum gögnum í vörslu stjórnvalda sem snerta þessi öryggismál. Í frumvarpinu er jafnframt kveðið á um þagnarskyldu nefndarinnar um viðkvæmar einkalífsupplýsingar sem og um upplýsingar sem varða virka öryggis- og varnarhagsmuni Ís- lands. Sólveig Pétursdóttir, forseti þingsins, var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, en með- flutningsmenn voru þingflokksformenn allra flokka. Nefndin, sem með frumvarpinu fær frjálsan aðgang að umræddum gögnum, var skipuð hinn 22. júní sl. Alþingi hafði í sama mán- uði samþykkt tillögu um skipan nefndarinnar, í kjölfar upplýsinga sem fram komu í erindi Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings, um heimildir stjórnvalda til símhlerana á tímum kalda stríðsins. Formaður nefndarinnar er Páll Hreinsson lögmaður og hefur nefndin þegar hafið störf. Að sögn Sólveigar taldi Páll rétt að nefndin fengi þennan frjálsa aðgang til að hún gæti sinnt störfum sínum. Var hann því boðaður á fund for- seta þingsins og þingflokksformanna. Eftir ít- arlegar umræður hafi þar náðst samkomulag um að afgreiða frumvarp, í þessa veru, sem fyrst. Samþykkt samhljóða eftir stutta umræðu Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í gær og var samþykkt, með afbrigðum frá þingsköpum, að taka það strax á dagskrá og afgreiða það sama kvöld. Þingflokksformenn fögnuðu frumvarpinu í stuttum umræðum um það á sjöunda tímanum í gærkvöld. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðu það nauðsynlegt að hraða störfum nefnd- arinnar og var frumvarpið síðan samþykkt með 36 samhljóða atkvæðum. Fær aðgang að gögnum í vörslu stjórnvalda Þagnarskylda um viðkvæmar einkalífsupplýsingar og virka öryggishagsmuni VEIÐAR á íslenzku sumargotssíldinni eru nú hafnar. Samkvæmt upplýs- ingum Fiskistofu höfðu 846 tonn borizt á land um miðjan dag í gær en leyfi- legur heildarafli er 138.000 tonn. Fyrsta síldin barst til Fáskrúðsfjarðar í gærmorgun er Hoffell SU-80 kom með 30 tonn af síld en skipið hélt til veiða kvöldið áður. Síldin er blönduð með norsk-íslensku síldinni. Er hún flökuð, bituð og söltuð fyrir Kanada. Morgunblaðið/Albert Kemp Fyrsta síldin í haust Í UMHVERFISRÁÐUNEYTINU er nú til athugunar að setja reglu- gerð um merkingu erfðabreyttra matvæla. Jónína Bjartmarz um- hverfisráðherra er þeirrar skoð- unar að Íslend- ingar eigi ekki að bíða eftir að regl- urnar verði hluti af EES-samn- ingnum heldur setja reglur líkt og Noregur hefur gert. „Við höfum lagastoð í matvælalög- um sem kveður á um að heimilt sé að setja reglur um merkingar og auk- efni í matvælum svo að reglugerð myndi nægja,“ segir Jónína. Hrísgrjón frá Bandaríkjunum eru um þessar mundir undir sérstöku eftirliti landa víða um heim, eins og í Noregi, Danmörku, Bretlandi, Jap- an og Rússlandi þar sem óleyfilegt og órannsakað erfðabreytt prótín LL601 hefur fundist í grjónunum. Umhverfisstofnun hefur ekki talið ástæðu til aðgerða en hér á landi eru ekki nein lög sem ná yfir um mark- aðssetningu erfðabreyttra matvæla eða merkingu þeirra. Erfða- breytt matvæli merkt  Varasöm | 24 Jónína Bjartmarz JÓN Sigurðsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins, lýsti því yfir í gær- kvöldi að hann myndi bjóða sig fram í Reykjavík, og hann myndi sækjast eftir að leiða listann í Reykjavíkurkjör- dæmi norður. Yfirlýsing Jóns kom á fundi sem forysta flokksins boðaði til á Grand hóteli í gærkvöldi, en fundurinn var annar fundurinn í fundaherferð víða um land. Á fundinum lýsti Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra því yfir að hún myndi sækjast eftir að leiða listann í Reykjavíkurkjördæmi suður. Ekki er búið að ákveða hvaða að- ferð verður beitt til að raða upp á lista framsóknarmanna í Reykjavík en það verður ákveðið á næstunni. Jón fram í Reykjavík Jón Sigurðsson ICELANDIC Europe er nú orðið eitt stærsta fyrirtæki í framleiðslu og sölu á sjávarafurðum í Evrópu. Veltan er um það bil milljarður evra, 90 milljarðar íslenzkra króna á ári, og hefur aukizt mikið síðustu miss- erin. Eftir sameiningu við þýzku fyr- irtækin Pickenpack og Hussmann & Hahn, sem voru í eigu Samherja, er Icelandic Europe stærsti framleið- andi brauðaðra fiskafurða í Evrópu með um 100.000 tonn af afurðum á ári. Finnbogi Baldvinsson, forstjóri Icelandic Europe, segir að stefnt sé að því að tvöfalda umsvif félagsins á næstu árum. „Ef við náum að nýta afkastagetu sem fyrir hendi er í verksmiðjum okkar, held ég að við getum verið í mjög góðum rekstri. Við stefnum að því að tvöfalda vinnsluna í verk- smiðju okkar í Frakklandi, Gelmer, sem við keyptum í sumar, en hún hefur verið vannýtt. Með því að færa vinnslu á brauðuðum afurðum í tvær verksmiðjur nást mikil samlegðar- áhrif, sem eiga eftir að skila sér. Þótt það sé ekki aukning á markaðnum fyrir frystar fiskafurðir í heild, sjáum við verulegan vöxt í fram- leiðslu okkar ár eftir ár. Þar má nefna til gamans að framleiðsla okk- ar á fiskstautum vex ár eftir ár, allt upp í tveggja tölustafa vöxt. Eftirspurn eftir fiski eykst stöð- ugt og það sýnir sig að þar sem kaupmáttur eykst, fylgir aukin fisk- neyzla í kjölfarið. Fiskur er orðinn tiltölulega dýr matur. Við sem selj- um fisk þurfum því að geta boðið upp á fleiri lausnir fyrir neytendur. Það er spennandi áskorun, en við eigum í mikilli samkeppni við aðra matvöru. Ef farið er í gegnum markaðinn kaupa flestir fisk, en þeir gera það of sjaldan. Við sjáum að 95% til 96% af fólki kaupir fisk. Í því felst mikið tækifæri, því að það er auðveldara að fá fólk til að kaupa fisk oftar en fá fólk til að byrja að kaupa fisk,“ segir Finnbogi Baldvinsson Selja allt að 100.000 tonn af brauðuðum fiski  Ætla að | B12 Morgunblaðið/Hjörtur Í HNOTSKURN » Um 80% af afurðum Ice-landic Europe er smásala í neytendapakkningum fyrir stór- markaði og mest undir þeirra eigin merkjum. » Afurðirnar eru seldar umalla Evrópu en 65% þeirra innan Þýskalands. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.