Morgunblaðið - 16.10.2006, Page 2
2 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heldur liðunum liðugum!
Í Lið-Aktín Extra eru 666 mg af Glúkósamíni sem tryggir
líkamanum upptöku á a.m.k. 500 mg.
Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni
Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík
Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn
K
R
A
FT
A
V
ER
K
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 30/34
Staksteinar 8 Brids 35
Veður 8 Menning 36/40
Úr verinu 12 Leikhús 38
Viðskipti 13 Myndasögur 40
Erlent 14/15 Dægradvöl 41
Menning 16 Staður og stund 42
Vesturland 17 Bíó 42/43
Daglegt líf 18/23 Víkverji 44
Forystugrein 24 Velvakandi 44
Umræðan 26/30 Stjörnuspá 45
Bréf 30 Ljósvakar 46
* * *
Innlent
Verið er að kynna bændum
þann möguleika að stofna rekstr-
arfélag um mjólkuriðnað sem
samanstanda mun af MS, KS og
Norðurmjólk ef af verður.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er búið að kynna
flestum bændum á Suðurlandi
hugmyndir að stofnun slíks
rekstrarfélags og kynning norðan
heiða stendur nú yfir. » 48
Það sem af er þessu ári hafa
fleiri konur komið í Kvenna-
athvarfið en allt árið í fyrra, en
komum í athvarfið hefur fjölgað
síðustu árin. Í ár eru komur í at-
hvarfið þegar orðnar 580 en í
fyrra voru þær 557 og 531 árið
2004. 90% þeirra kvenna sem
koma í athvarfið nefna andlegt of-
beldi sem eina af ástæðum kom-
unnar en það getur m.a. falið í sér
að eiginmaður einangri konuna,
stýri peningamálum hennar, hóti
henni og niðurlægi. » 48
Hin mikla þátttaka útlendinga
í vinnu við stóriðjuframkvæmdir á
Austurlandi kemur á óvart, að
mati Kjartans Ólafssonar lektors
við Háskólann á Akureyri sem
rannsakar ásamt fleirum sam-
félagsáhrif virkjunar- og stór-
iðjuframkvæmda eystra. Hann tel-
ur ekki að stórir hópar fólks bíði í
ofvæni eftir því að fá að flytja
austur og segir ekki sjáanlegan
hvata til að rífa sig upp og flytja
þegar mikill uppgangur er í sam-
félaginu. » 1
Erlent
Norður-Kóreumenn hafa mót-
mælt ályktun sem öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti á
laugardag og kveður á um refsiað-
gerðir gegn kommúnistastjórninni
í Pyongyang vegna deilunnar um
kjarnorkutilraunir hennar. Álykt-
unin var samþykkt einróma og
leiðtogar flestra ríkja heims hafa
fagnað henni. Ágreiningur er þó
um hvernig framfylgja eigi ákvæð-
um ályktunarinnar. » 14
Forseti Ísraels, Moshe Katsav,
á yfir höfði sér ákærur fyrir
nauðganir, kynferðislega áreitni,
svik og embættisglöp. Lögreglan
lagði til í gær að forsetinn yrði
ákærður og búist er við að rík-
issaksóknari Ísraels taki ákvörðun
í málinu á næstu dögum. » 1
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákæru í stóra fíkniefnamálinu
sem varðar smygl á 25 kg af fíkni-
efnum til landsins í apríl sl. Fíkni-
efnin fundust í innfluttum bíl við
Reykjavíkurhöfn við hefðbundið
eftirlit tollvarða og sæta fjórir
menn ákæru vegna málsins.
Þess er beðið að málið verði
þingfest fyrir héraðsdómi en þar
verður ákærðu gefinn kostur á að
tjá sig um ákæruatriðin. Þrír
mannanna sátu í gæsluvarðhaldi
um fimm mánaða skeið og kærðu
gæsluvarðhaldsúrskurði sína til
Hæstaréttar sem staðfesti úr-
skurði héraðsdóms jafnóðum, eða
allt þar til rétturinn taldi nóg kom-
ið í byrjun september og sleppti
mönnunum þar sem ekki var komin
fram ákæra í málinu. Þarna er um
að ræða þrjá Íslendinga en fjórði
sakborningurinn er Hollendingur
og situr hann enn í gæsluvarðhaldi
þar sem hann hefur unað úrskurð-
um héraðsdóms.
Ákært
vegna 25
kg af fíkni-
efnum
MARKARFLJÓTIÐ hafði breytt
sér talsvert og lá alveg upp að
bakkanum þannig að það var
kannski glannaskapur að fara út í,
en svona er nú lífið,“ segir Rafn
Guðmundsson sem lenti í vand-
ræðum á jeppa sínum í ánni á
laugardag. Jeppinn fór stjórnlaust
niður með ánni og valt að lokum
en þremenningunum var bjargað
af liðsmönnum Flugbjörg-
unarsveitarinnar á Hellu og Björg-
unarsveitarinnar Dagrenningar á
Hvolsvelli. Rafn hrósar björg-
unarmönnum sínum.
„Við héngum upp undir klukku-
tíma á bílnum og það fór bara vel
um okkur.“ Rafn telur að bíllinn
hafi borist 100 metra niður með
ánni áður en hann stöðvaðist á
eyri. Þegar bíllinn valt tókst
mönnunum að opna dyr og skríða
upp á bílinn.
Mennirnir voru á óbreyttum
Pajero-jeppa og voru ásamt fé-
lögum sínum í jeppalest á leið yfir
ána þegar óhappið varð.
Ljósmynd/Nína Karen
„Kannski glannaskapur“
ALÞÝÐUSAMBANDIÐ og Neyt-
endasamtökin eru sammála um að
það muni skila sér í aukinni hag-
kvæmni og lægra matvælaverði til
neytenda ef flutt verður inn nýtt kúa-
kyn hingað til lands.
„Alþýðusambandið hefur að sjálf-
sögðu ekkert við það að athuga að
flutt verði inn nýtt kúakyn, heldur
þvert á móti,“ segir Gylfi Arnbjörns-
son, framkvæmdastjóri ASÍ. „Meðan
svokölluð sjömannanefnd starfaði á
árunum 1990 til 1995 var raunveru-
legt samstarf milli aðila vinnumark-
aðarins og bænda um skipulags-
breytingar í landbúnaði. Í þessari
nefnd var samkomulag um að flytja
inn nýtt kjúklingakyn og nýtt svína-
kyn og hafa þær ákvarðanir verið öll-
um til gagns, enda var með þeim
hætti verið að nýta þau kyn sem skil-
uðu bestu hagkvæmninni og fram-
leiðninni,“ segir Gylfi og segir það
landbúnaðinum fyrir bestu, þegar til
lengri tíma sé litið, að reynt sé með
öllum ráðum að auka bæði hag-
kvæmni og framleiðni, hvort sem er í
framleiðslu á kjúklingum, svínakjöti
eða mjólk.
Mun ekki hafa mikil áhrif
„Það er ljóst að það mun auka nyt
kúnna og íslenskur mjólkuriðnaður
yrði samkeppnishæfari, því með auk-
inni nyt verður framleiðslan ódýrari
og iðnaðurinn samkeppnishæfari,“
segir Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna. „Ég minni
á að allt að 40% lækkun tolla, sem eru
svo háir fyrir, mun ekki hafa nein
gríðarleg áhrif á mjólkuriðnaðinn
þar sem tollarnir verða eftir sem áð-
ur mjög háir. Ég á því mjög erfitt
með að skilja þessa taugaveiklun í
mjólkurbændum,“ segir Jóhannes.
Fylgjandi nýju kúakyni
Jóhannes
Gunnarsson
Gylfi
Arnbjörnsson
ÁRNI Páll Árnason, sem á árunum
1992–1994 var aðstoðarmaður Jóns
Baldvins Hannibalssonar er hann
var utanríkisráðherra og tekur nú
þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi, segist hafa
fengið aðvörun varðandi það að sími
hans væri hleraður á vormánuðum
1995.
„Ég tók það strax alvarlega, enda
ég í þannig stöðu. Ég var starfsmað-
ur á varnarmálaskrifstofunni og var
að fara til Atlantshafsbandalagsins,“
sagði Árni Páll.
Talaði ógætilega í síma
Hann sagði að nokkrum dögum
síðar hefði hann talað ógætilega um
þetta í síma, þ.e. hann hefði sagt
undan og ofan af því að einhverjir
kynnu að vera að fylgjast með eða
eitthvað í þá áttina. „Þá er aftur haft
samband við mig daginn eftir og
ítrekað við mig að ég skuli taka þess-
ari aðvörun alvarlega, því það sé ver-
ið að fylgjast með
mér. Eftir það
tók ég þessu mjög
alvarlega og
gætti mín mjög
vel,“ sagði hann
einnig.
Árni Páll sagð-
ist aðspurður
ekki vilja vera
með getgátur um
það hverjir þarna
hefðu átt hlut að máli, en þarna hefði
verið um innlenda aðila að ræða og
hann hefði frekar gert ráð fyrir að
um opinbera aðila væri að ræða.
Hann sagðist ekki vita hvenær
þessum hlerunum hefði verið hætt,
en hann hefði nokkrum mánuðum
síðar farið til starfa hjá Atlantshafs-
bandalaginu.
Árni Páll sagðist ekki geta upplýst
það hver hefði aðvarað hann í þess-
um efnum. Hann væri bundinn trún-
aði varðandi það.
Aðvaraður
um símahlerun
Árni Páll Árnason fékk í tvígang að-
varanir um að sími hans væri hleraður
Árni Páll
Árnason