Morgunblaðið - 16.10.2006, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 16.10.2006, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 17 VESTURLAND Alþingismennirnir Birgir Ármannsson (D) og Helgi Hjörvar (S) takast á um heitu málin næsta vor á kappræðufundi á CaféVictor (efri hæð) nú í kvöld kl. 20.00. Stjórnandi verður EyrúnMagnúsdóttir. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur. VÍGLÍNAN næsta vor Umhvað verður kosið í alþingiskosningunum? Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur gve@ismennt.is Borgarnes | Sigríður Ævarsdóttir er hómópati manna og hesta og rekur stofuna Heilsubót í Borgarnesi. Hún ólst upp í Kópavogi en flutti vestur þegar hún var að eltast við manninn sinn, Benedikt Líndal. Þau búa á Staðarhúsum og eiga fjögur börn á aldrinum 2 til 22 ára. „Ég opnaði stofuna í mars, þegar yngsta barnið fékk pláss á leikskólanum, en áður hafði ég stundað þetta heima frá því ég kláraði nám- ið 2002. Mér fannst að ég þyrfti að fara með þetta nær fólkinu og verða sýnilegri. En hvers vegna fór hún að læra hómópatíu? „Mig langaði alltaf að læra eitthvað heilsu- tengt og velti fyrir mér sjúkraþjálfaranámi eftir stúdentspróf. Í staðinn fór ég að eiga börnin og hafði á þeim tíma ekki hugmynd um að hómópatía væri til. Við rákum ferðaþjón- ustu á Staðarhúsum, hestaferðir og slíkt, og þá kom til okkar mikið af útlendingum. Við áttum hest sem var með að því er virtist ólæknandi sýkingu, hann hafði fengið hefðbundna með- höndlun í eitt og hálft ár, sýklalyf og smyrsl, en ekkert virkaði. Þá var það manneskja frá Sviss sem fékk mér glas með litlum kúlum til að gefa hestinum. Ég tók við þessu og gaf hon- um, mest fyrir kurteisissakir, en hestinum batnaði.“ Eftir þetta segir Sigríður að áhugi sinn hafi verið vakinn og fór hún að læra hómópatíu fyrir hesta. Það var fjarnám frá þýskum skóla en þegar hún sá auglýst nám hérlendis í hómópatíu ákvað hún að drífa sig í það líka. „Það var eðlilegt framhald fyrir mig að læra þetta. Þetta er breskur skóli sem heitir „College of Practical Homeopathy“ og er með útibú hér. Námið tekur fjögur ár og ég varð al- veg frelsuð ef svo má segja. Það var virkilega skemmtilegt og vinnan við þetta er það einnig. Ég er algjörlega komin á rétta hillu. Meðhöndlar ójafnvægi Hómópatía er yfir 200 ára gömul aðferð og byggir á lögmálinu að lækna líkt með líku. Ef heilbrigðum einstaklingi er gefið ákveðið efni framkallar það einkenni og læknar sömu ein- kenni hjá sjúkum einstaklingi þegar það er gefið sem hómópatalyf. „Íslenska orðið yfir hómópatíu er smáskammtalækningar og er gamalt heiti alveg eins og grasalækningar, en við megum ekki kalla okkur lækna. Það mega bara þeir sem eru menntaðir í vestrænum læknisfræðum. Ég má heldur ekki auglýsa en verð að segja að ég get ekki verið annað en ánægð með viðtökurnar,“ segir Sigríður. Stof- an er opin alla virka daga kl. 9–15. En er hægt að lifa á því að vera hómópati? „Ég veit ekki hvort ég má segja að þetta sé dýrt áhugamál, því ég lifi ekki á þessu. Að- sóknin kemur svolítið í bylgjum, en þetta er lít- ið samfélag og þetta spyrst úr. Ég er með tæki sem tengt er við tölvuna, það er bæði orku- greining og orkumeðferðartæki. Með því er hægt að nema fíngerðar breytingar í líkams- starfseminni, orkustíflur og nema orkuflæðið og hvert líkaminn er að beina orkunni. Svo meðhöndla ég þetta ójafnvægi sem það finnur. Fólk kemur voða mikið til mín ef það er þreytt eða orkulaust.“ Í Heilsubót er ein spennandi nýjung, Óson- klefinn. „Já, þetta er ein aðferð af mörgum til að nota óson, þessi klefi er þægilegur í fram- kvæmd, eins og gamaldags gufubað. Fólk sest inn í klefann, höfuðið stendur upp úr. Inni í klefanum er hiti og gufa og svo er ósoni dælt inn. Það fer í gegn um húðina og hefur reynst gagnlegt fyrir ýmsa húðkvilla, sveppasýk- ingar, síþreytu, gigt, þetta er svona alhliða hreinsun. Óson hefur verið notað erlendis af læknum og dýralæknum en lítið hérlendis. Sigríður segist vera að taka klefann í gagnið og bendir á að notkun hans sé hættulaus með öllu, passa þurfi bara að anda þessu ekki að sér þar sem óson erti lungun. Vill fá uppbyggingar- miðstöð á Vesturland Sigríður segist hafa mikinn áhuga á heilsu barna. „Það virðast vera svo mörg vandamál tengd heilsufari barna, bæði andleg og lík- amleg og ekki síst atferlisleg. Ég hef verið með á mínum snærum einhverfan strák sem er fimm ára. Foreldrar hans eru að meðhöndla hann samkvæmt minni forskrift, ég ráðlegg alls kyns bætiefni, úthreinsanir á eiturefnum, athuga þarf með fæðuóþol og meðhöndlun með hómópataefnum. Það eru miklar framfarir hjá drengnum, hann er farinn að segja setningar og mynda tengsl við önnur börn. Ég er sann- færð um að það hægt að gera gríðarlega margt fyrir börn, athuga t.d. með fæðuofnæmi og fleira í þeim dúr sem hefur áhrif á heilsu.“ Hvað varðar framtíðarsýn hugsar Sigríður stórt og segir það vera sína von að fá uppbygg- ingarmiðstöð á Vesturlandi fyrir fólk með króníska sjúkdóma. „Ég tel að það sé hægt að meðhöndla svo margt sem erfiðlega gengur að meðhöndla núna, s.s. gigtarsjúkdóma, síþreytu og jafnvel krabbamein með annarri nálgun og meira uppbyggjandi aðferðum en nú er gert og ná betri árangri.“ Hómópatíumeðferð við erfiðum sjúkdómum Morgunblaðið/Guðrún Vala Önnur nálgun Sigríður Ævarsdóttir í Heilsubót í Borgarnesi meðhöndlar menn og hesta. ÖRYRKJABANDALAGIÐ hefur krafist þess að fjármálaráðherra, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis- ins og aðrir starfsmenn ráðuneytis- ins víki sæti við meðferð máls er lýt- ur að staðfestingu samþykkta Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda frá því fyrr á þessu ári. Í tilkynningu bandalagsins, dags. 10. okt. sl., er vísað til þess að ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins sé formaður stjórnar Söfnunarsjóðs lífeyrisrétt- inda og því vanhæfur við meðferð málsins hjá ráðuneytinu. Vegna umræddrar kröfu Öryrkja- bandalagsins vill fjármálaráðuneytið taka eftirfarandi fram: Fyrir liggur að starfsmenn ráðu- neytisins hafa fyrir hönd ráðherra staðfest breytingar á samþykktum nokkurra lífeyrissjóða, m.a. Söfnun- arsjóðs lífeyrisréttinda, en breyting- arnar lúta m.a. að ákvæðum um ör- orkulífeyrisgreiðslur. Um stað- festingar á breytingum samþykkta er fjallað í 28. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þar kem- ur fram að allar breytingar á sam- þykktum lífeyrissjóðs skuli tilkynna fjármálaráðherra og að þær öðlist ekki gildi fyrr en ráðherra hefur staðfest að þær fullnægi ákvæðum laganna og ákvæðum gildandi sam- þykkta fyrir viðkomandi lífeyrissjóð, að fenginni umsögn Fjármálaeftir- litsins. Staðfesting ráðuneytisins á breytingum samþykkta fer því eftir lögákveðnu ferli þar sem annað stjórnvald leggur efnislegt mat á breytingarnar hverju sinni. Samkvæmt framansögðu er ljóst að svigrúm fyrir ómálefnaleg sjón- armið við afgreiðslu mála er lúta að staðfestingum á breytingum á sam- þykktum lífeyrissjóða er ekki til staðar. Sú staða að ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins sé jafnframt stjórnarformaður þess lífeyrissjóðs sem biður um staðfestingu fjármála- ráðuneytisins á breytingum á sam- þykktum sjóðsins getur því ekki að neinu leyti haft áhrif á þau sjónar- mið er að baki slíkri staðfestingu liggja. Þá vill ráðuneytið benda á að ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis- ins ritaði ekki undir staðfestingu á breytingu á samþykktum Söfnunar- sjóðs lífeyrisréttinda. Aðrir starfs- menn ráðuneytisins gerðu það fyrir hönd ráðherra. Hið staðlaða orðalag ,,fyrir hönd ráðherra“ merkir að þeir sem skrifa undir viðkomandi bréf gera það í umboði ráðherra. 3. málsl. 5. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga kveður skýrt á um að verði undir- maður vanhæfur til meðferðar máls leiði það ekki til þess að næstu yf- irmenn hans verði vanhæfir til með- ferðar þess. Þar sem ráðherra er ekki vanhæfur til meðferðar þess máls er hér um ræðir geta undir- menn hans því eðli máls samkvæmt ekki verið vanhæfir til að afgreiða það fyrir hönd ráðherra. Burtséð frá ofangreindu verður ekki séð að í ljósi þeirra aðstæðna sem uppi eru í umræddu máli eigi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis- ins sérstakra og verulegra hags- muna að gæta í skilningi 5. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga. Ráðu- neytisstjóri er skipaður af fjármála- ráðherra sem stjórnarformaður sjóðsins á grundvelli laga nr. 155/ 1998, um Söfnunarsjóð lífeyrisrétt- inda. Hlutverk stjórnarmanna er lögákveðið, samanber ákvæði 4. gr. fyrrgreindra laga og ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu líf- eyrisréttinda og starfsemi lífeyris- sjóða. Með vísan til framangreindra raka hefur fjármálaráðherra hafnað kröfu Öryrkjabandalagsins um að fjármálaráðherra, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins og aðrir starfsmenn ráðuneytisins víki sæti við meðferð máls er lýtur að stað- festingu á breytingum á samþykkt- um Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Fjármálaráðherra víkur ekki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.