Morgunblaðið - 16.10.2006, Page 21

Morgunblaðið - 16.10.2006, Page 21
gæludýr MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 21 Hann Jakob er danskur og er skiln-aðarbarn. Margrét dóttir mín tókhann að sér þegar hún bjó úti íDanmörku ásamt kærastanum sín- um og þegar þau fluttu heim til Íslands þá gátu þau ekki hugsað sér annað en að flytja hann með sér", segir Edda Hrönn.. „Það var mikið og flókið mál. Jakob þurfti að vera í hálft ár í sóttkví í Danmörku vegna þess að hann komst ekki að hér úti í Hrísey. Loksins þegar hann kom til Íslands þá þurfti hann líka að vera lengi í sóttkví hér en þegar hann að lokum náði til heimahafnar þá skildu eigendur hans og kött- urinn varð eftir hjá okkur.“ Þessar tafir og flutningurinn kostaði sitt og stundum hefur heimilisfaðirinn haft það á orði að sennilega sé Jakob dýrasti köttur á Íslandi. Slítur hárlokka úr fólkinu Kært er með Jakobi og heimasætunni Re- nötu og hann skríður ævinlega uppí til hennar þegar hún er sofnuð á kvöldin og hringar sig um höfuð hennar og sefur þar værum svefni. En stundum hefur hann fengið nægan næt- ursvefn þó nokkuð fyrr en aðrir heim- ilismeðlimir. „Hann er yfirleitt kominn á stjá klukkan sex á morgnana og þá nennir hann ekkert að vera vakandi einsamall og vekur okk- ur með mjálmi eða skrölti og hættir ekki fyrr en einhver fer framúr.“ Renata segir Jakob sérlega hrifinn af síða hárinu hennar og hann vekur hana stundum með því að sleikja á henni hárið sem að lokum flækist í tungunni á honum og þá togar hann fast á móti. „Hann hefur nag- að af okkur heilu hárlokkana með þessum hætti,“ segir Edda og bætir við að sjálfum finnst honum gott að láta greiða sér og Renata sér um þann þátt og þá eru þau miklir mátar. „En hann er ekki alveg eins sáttur við Renötu þegar hún og vinkonur hennar eru að leika sér með hann og gera á honum hinar ýmsu til- raunir, eins og að setja hann í bað og loka hann inni í skáp. Yfirleitt er hann mjög geðgóður og þolinmóður en fær þó stundum nóg af meðferð- inni og sýnir þá klærnar. Einu sinni varð hann svo reiður að hann stökk á hana og beit hana í höfuðið.“ Opnar glugga og hurðir Jakob elskar harðfisk og er auk þess sólginn í hákarl og kannski er það þess vegna sem hann býr yfir miklum krafti. „Jakob er svolítið göldr- óttur því hann opnar glugga og hurðir sem eru harðlokaðar. Ég held svei mér þá að hann gangi í gegnum veggi, því hann er stundum staddur þar sem hann á alls ekki að geta verið.“ Jakob heitir eftir hundi sem bjó á bæ þeim sem fyrrum eigandi hans dvaldi á sumarlangt í bernsku. „Og það merkilega er að sá hundur var frægur fyrir að geta opnað hurðir, þannig að hæfileikinn fylgir nafninu eða hundurinn kettinum. En kötturinn fór ekki að opna hurðir fyrr en eftir að hann kom til Íslands.“ Nagaði rafmagnssnúrur Jakob er félagslyndur og hann á góðan vin í nágrenninu. „Hingað kemur stundum loðinn stór drjóli og spyr eftir honum og þeir fara saman út að leika sér.“ Jakob getur verið uppátektarsamur og eitt af því sem hann gerði mikið af þegar hann var yngri, var að naga í sundur rafmagnssnúrur. „Ég sá stundum þegar hann fékk straum, en hann lét það ekki stoppa sig og hélt bara áfram að naga. Þetta var bölvuð árátta og hér voru öll rafmagnstæki orðin óvirk vegna þessa. Þegar ég sagði upphátt einn daginn að við yrðum að losa okkur við köttinn út af þessu rafmagns- snúrunagi, þá steinhætti hann þessu. Þetta er ágætis sönnun þess að kettir vita lengra en nef þeirra nær.“ Köttur sem gengur í gegnum veggi „Þessi köttur á sig nú aðallega sjálfur, en hann tilheyrir heimilinu okkar engu að síður. Hann varð eiginlega óvart heimilisköttur hér,“ segir Edda Hrönn Atladóttir um köttinn Jakob sem er stærri en flestir aðrir kettir og þó nokkuð göldróttur. Morgunblaðið/Eyþór Vinir Heimasætan Renata og kötturinn Jakob eru miklir mátar. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.