Morgunblaðið - 16.10.2006, Qupperneq 26
26 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÉG GET ekki orða bundist eftir
að hafa lesið grein Alfreðs Þor-
steinssonar, fyrrum stjórnarfor-
manns Orkuveitu Reykjavíkur, í
Morgunblaðinu 11. okt., „Stolnar
fjaðrir?“ Þar ræðst hann að Guð-
laugi Þór Þórðarsyni, stjórnarfor-
manni og brigslar honum um
óverðskuldað sjálfshól um meinta
stefnubreytingu á
fyrirhugaðri frí-
stundabyggð við Úlf-
ljótsvatn. Vinstri
grænir hafi haft um
það frumkvæði með
tillöguflutningi á
borgarstjórnarfundi
6. júní og hann meðal
annars stutt. Þar sem
ég þekki málið mjög
vel, hef fylgst með
því frá byrjun og til-
heyri hópi fólks sem
lætur sig náttúru og
lífríki Úlfljótsvatns
varða, tel ég nauðsynlegt að
minna fyrrverandi stjórn-
arformann á hvernig mál þróuð-
ust. Aðrir sem fylgst hafa með
málinu þekkja hið rétta.
Á stjórnarfundi OR í lok maí
2005 var lögð fram tillaga til
ákvörðunar um hvort OR yrði með
í félagi um byggingu 600 sum-
arbústaða í landi Úlfljótsvatns,
þar sem nýtt hlutafélag í eigu OR
og Klasa hf. yrði stofnað um
reksturinn. Í krafti meirihluta
stjórnar, sem samanstóð af
fulltrúum Framsóknar, Samfylk-
ingar og Vinstri grænna, með Al-
freð Þorsteinsson sem stjórn-
arformann og hugmyndarsmið
tillögunnar, var hún samþykkt. Í
bókun sjálfstæðismanna á þessum
sama fundi lýsa þeir furðu sinni á
því að OR taki þátt í að byggja
upp frístundabyggð við Úlfljóts-
vatn og segja rekstur frí-
stundabyggðar ekki falla innan
starfssviðs OR. Vitnað er til Guð-
laugs Þórs í blaðaviðtali þar sem
hann segir sig andsnúinn fyr-
irhugaðri byggð.
Á vormánuðum 2006 voru til-
lögur OR/Klasa auglýstar til at-
hugasemda og er skemmst frá því
að segja að málið vakti mikla at-
hygli og umræðu, ekki aðeins
þeirra einstaklinga og samtaka
sem létu sig málið varða, heldur
einnig fjölmiðla og stjórnmála-
manna. Fjöldi athugasemda barst
sveitarstjórn Grímsness- og
Grafningshrepps.
Á stjórnarfundi OR 26. apríl sl.
lagði Guðlaugur Þór til að áform
OR/Klasa yrðu dregin til baka og
málið allt endur-
skoðað frá grunni. Í
fjölmiðlaviðtali var
m.a. haft eftir honum
að mikil verðmæti
væru fólgin í því fyrir
almenning að hafa að-
gang að opnu útivist-
arsvæði á borð við
Úlfljótsvatn, þó hægt
væri að græða pen-
inga á landinu. Á
stjórnarfundi OR 17.
maí, þegar tillaga
Guðlaugs var tekin
fyrir, höfðu Vinstri
grænir áttað sig á hvað þeir sam-
þykktu í stjórn OR ári áður og
studdu tillöguna. Tillögunni var
vísað frá í krafti meirihluta þar
sem ekki var talin ástæða til að
taka afstöðu fyrr en athugasemdir
við auglýst skipulag hefðu verið
yfirfarnar. Fram kom í grein í
Morgunblaðinu 18. maí að Svandís
Svavarsdóttir, Vinstri grænum,
teldi að áformin hefðu verið kynnt
á röngum forsendum í stjórn OR á
sínum tíma en þegar hið sanna
hefði komið í ljós hefði verið ein-
boðið að Vinstri grænir myndu
leggjast gegn áformunum og beita
sér fyrir því að tillögurnar yrðu
dregnar til baka.
Eftir sveitarstjórnarkosningar
27. maí var ljóst að þáverandi
meirihluti var fallinn og fyrir lá
fyrirheit Sjálfstæðisflokksins um
endurskoðun á þessu máli.
Á síðasta fundi fyrri borg-
arstjórnar 6. júní lagði Árni Þór
Sigurðsson, Vinstri grænum, fram
tillögu, samhljóða tillögu Guðlaugs
frá 26. apríl. Eftir umræður náðist
samstaða um orðalagsbreytingar
og var samþykkt að óska eftir
endurskoðun fyrirliggjandi
áforma og að málið yrði endur-
skoðað í heild sinni.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar
OR, með Guðlaug Þór í for-
mannssæti, var samþykkt ein-
róma að draga fyrri áætlanir um
600 lóðir til baka en selja þess í
stað 60 lóðir. Fram kom hjá
stjórnarformanni að markmiðið
með þessari ákvörðun væri að
viðhalda svæðinu sem nátt-
úruperlu og almennu útivist-
arsvæði og styðja vel við þá
starfsemi sem fyrir væri á svæð-
inu, þannig að sómi væri að.
Ég vil með þessari grein ekki
gera lítið úr þætti Vinstri grænna
í málinu, eftir að þeir áttuðu sig á
staðreyndum þess, en mér finnst
hins vegar nauðsynlegt að Guð-
laugur Þór fái það hrós sem hann
á skilið. Hann hefur frá upphafi
verið mótfallinn því og lagt sig
fram um að kynnast staðreyndum
þess og framkomnum at-
hugasemdum. Hann hefur og
fylgt því eftir af einurð og ein-
lægni, eins og segir í yfirlýsingu
frá hópi fólks sem lætur sig nátt-
úru og lífríki Úlfljótsvatns varða.
Alfreð Þorsteinsson var stjórn-
arformaður OR þegar hugmyndin
um sumarhúsastóriðju við Úlf-
ljótsvatn kom fram og var sam-
þykkt í stjórn. Hann varði þessa
ákvörðun í fjölmiðlum fram að
umræddum borgarstjórnarfundi
6. júní sl. Nú ber hann sér á
brjóst og segir, að m.a. hann hafi
stutt tillögu Vinstri grænna á
fundinum. Ef til vill ætti Alfreð
Þorsteinsson að skoða sínar eigin
fjaðrir.
Úlfljótsvatn – Af fjaðrafoki Alfreðs
Bergþóra Bergsdóttir gerir at-
hugasemd við Morgunblaðs-
grein Alfreðs Þorsteinssonar.
»Hann hefur og fylgtþví eftir af einurð og
einlægni, eins og segir í
yfirlýsingu frá hópi
fólks sem lætur sig nátt-
úru og lífríki Úlfljóts-
vatns varða.
Bergþóra Bergsdóttir
Höfundur er hagfræðingur og til-
heyrir hópi fólks sem lætur sig nátt-
úru og lífríki Úlfljótsvatns varða.
HINN 16. maí 2006, rúmri viku
fyrir síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingar, undirritaði og staðfesti þá-
verandi umhverfisráðherra nýtt að-
alskipulag fyrir
Seltjarnarnes, að við-
stöddum bæjarstjóra,
formanni skipulags-
og mannvirkjanefndar
bæjarfélagsins og
fleiri. Við það tæki-
færi sagði ráðherra
m.a. að ánægjulegt
hefði verið hvernig
íbúalýðræði var beitt
á markvissan hátt
þegar kosið var um
skipulagsmál á Sel-
tjarnarnesi sl. sumar
(2005). Kosningin hafi
orðið til þess að sátt skapaðist um
skipulagsmál bæjarfélagsins og
væri nýstaðfest aðalskipulag til
vitnis um það.
Framanritað kemur m.a. fram í
fréttum frá umhverfisráðuneytinu
18. maí 2006, sem finna má á vef
ráðuneytisins á stjr.is, ásamt mynd
af undirrituninni sem tekin er á fal-
legri strandlengju Seltjarnarness.
Það hefur eflaust ekki verið
ónýtt fyrir bæjarstjóra og fylgd-
arlið hans að fá svo fallega umsögn
rétt fimm mínútum fyrir kosningar
frá samflokksmanni í stjórn-
arráðinu.
Aðalskipulagið, 2006–2024, gerir
ekki ráð fyrir landfyllingum af
neinu tagi, sem er mjög skiljanlegt,
þar sem slík mannvirki eyðileggja
náttúru strandlengjunnar og bygg-
ingar til verslunarreksturs eða ann-
ars á þeim með tilheyrandi bíla-
stæðum og umferð eru ekki til
mikillar prýði.
Því varð ég fyrir ákveðnu áfalli
þegar ég las á forsíðu
bæjarfréttablaðs okk-
ar, NESfréttir, sem út
kom síðari hluta sept-
ember, fyrirsögnina:
Niðurstaðan varð
landfylling. Þar sagði
frá því að ákveðið
eignarhaldsfélag hefði
leitað hófanna við bæj-
aryfirvöld um að fá að
gera landfyllingu á
norðanverðu nesinu út
af Norðurströnd vest-
ur frá horni Suður-
strandar með það fyrir
augum að byggja verslunarmiðstöð
sem hýsa ætti m.a. Hagkaups- og
Bónusverslanir auk annarrar þjón-
ustu og 200 bílastæði. Skilja mátti
á fréttinni, sbr. fyrirsögnin, að
þetta væri allt ákveðið og kaup-
menn réðu ferðinni en ekki bæj-
arbúar. Nú þegar blekið er vart
þornað á staðfestingu ráðherra á
aðalskipulaginu er farið að ræða af
fullri alvöru í bæjarstjórn og hlut-
aðeigandi nefnd um landfyllingar.
Hvað ætli þessi landfylling verði
umfangsmikil? Það er ágætt að
taka til viðmiðunar þekkt mann-
virki: Hún yrði á stærð við þrjá
Laugardalsvelli að viðbættum 1000
fermetrum! Eru Seltirningar til-
búnir að kyngja þessum ósköpum
og samþykkja þetta fyrirhugaða
umhverfisslys? Ég og eiginkona
mín gengum til liðs við nokkra
ágæta nágranna okkar, sem höfðu
tekið sig saman til að aðhafast eitt-
hvað í þessu máli, m.a. hefur verið
gengið í hús og safnað undir-
skriftum til að mótmæla fyrirhug-
aðri landfyllingu. Viðbrögð fólks
hafa verið framar öllum vonum og
augljóst er að Seltirningar vilja
ekki láta vaða yfir sig í þessum
efnum.
Nú hafa framangreindir aðilar
látið útbúa upplýsingabækling með
yfirskriftinni: Umhverfisslys á Sel-
tjarnarnesi? og hefur honum verið
dreift á öll heimili í bænum.
Það er von okkar að bækling-
urinn veki fólk til umhugsunar og
skilji vilja okkar til að vernda og
viðhalda okkar dýrmætu og óvið-
jafnanlegu strandlengju.
Stöndum saman, Seltirningar, og
höfnum fyrirhuguðu umhverfisslysi
með því að taka þátt í undir-
skriftasöfnuninni.
Er landfylling niðurstaðan?
Sveinbjörn Hafliðason
skrifar um skipulagsmálefni
á Seltjarnarnesi
»Eru Seltirningar til-búnir að kyngja
þessum ósköpum og
samþykkja þetta fyr-
irhugaða umhverfis-
slys?
Sveinbjörn Hafliðason
Höfundur er Seltirningur
á eftirlaunum.
Á HVERJU ári,
hinn 16. október,
stendur Matvæla- og
landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna
(FAO) fyrir því, að Al-
þjóða matvæladag-
urinn er haldinn hátíð-
legur víða um heim, að
þessu sinni undir yf-
irskriftinni Fjárfest-
ingar í landbúnaði í
þágu fæðuöryggis.
Þessi dagur ætti að
vera matvælafram-
leiðsluþjóð eins og Ís-
lendingum hvatning,
til að leiða hugann að
því, að ekki hefur öll-
um þjóðum auðnast sú
gæfa að tryggja fæðu-
öryggi sitt. Alþjóða
matvæladagurinn er
reyndar öllum, sem
búa við velmegun,
jafnt einstaklingum
sem stjórnvöldum,
hvatning, til að styðja neyðar- og
þróunaraðstoð.
Þróunaraðstoð er í eðli sínu marg-
þætt og flókin og sýnist sitt hverjum
um það, hvernig að henni skuli stað-
ið, til að árangur náist. Ekki verður
það reifað hér, heldur vakin athygli
á því að áætlað er, að um 854 millj-
ónir manna í heiminum búi við hung-
ur, þar af 400 milljónir barna. Þetta
er þeim mun hryggilegra með það í
huga, að jörðin ætti vel að geta
brauðfætt alla íbúa sína.
Matvæladagsins er minnst með
margvíslegum hætti hjá stofnunum
Sameinuðu þjóðanna í Róm, sem
starfa í þágu fæðuöryggis. Mat-
vælaáætlunin (WFP) stendur fyrir
umfangsmestu matvælaneyð-
araðstoð í heiminum, og Matvæla-
og landbúnaðarstofnunin (FAO) er í
senn þróunar- og þekkingarmiðstöð
fyrir landbúnað og sjávarútveg.
Þessar stofnanir geta því aðeins tek-
ist á við verkefni sín, að aðildarríkin
séu þeim og starfi þeirra góður fjár-
hagslegur bakhjarl.
Við erum aflögufær
Íslendingar geta best minnst
þessa dags með því að hver aflögu-
fær styrki starf hjálparstofnana,
sem aðstoð veita í þróunarlönd-
unum. Sem utanríkisráðherra hef ég
gert þróunaraðstoð að forgangs-
verkefni, með sérstaka áherslu á
hlutverk kvenna á landbún-
aðarsvæðum í því að skapa sér og
sínum fæðuöryggi. Með því að stuðla
að auknu fæðuöryggi í heiminum
rennum við jafnframt stoðum undir
lýðræði, mannréttindi, góða stjórn-
arhætti og heilbrigð viðskipti á milli
þjóða. Afar mikilvægt er að aðstoða
þjóðir við að koma á góðum stjórn-
arháttum. Nýleg dæmi sýna, að
þjóðir, sem áður voru vel bjargálna
og jafnvel útflytjendur á matvöru,
urðu á stuttum tíma þiggjendur
matvælaaðstoðar frá alþjóðastofn-
unum vegna slæmra stjórnarhátta.
Nauðsyn á auknum fjárfest-
ingum í landbúnaði
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
unin (FAO) er nú besti þekking-
arbanki um fæðuástandið í heim-
inum. Á það jafnt við um landbúnað
sem sjávarútveg, enda hafa íslensk
stjórnvöld styrkt þátttöku sína í
starfi stofnunarinnar, meðal annars
með stofnun fastanefndar í Róm fyr-
ir rúmu ári. Vert er að gefa gaum að
skilaboðum FAO og yfirskrift á Al-
þjóða matvæladeginum: Fjárfest-
ingar í landbúnaði í þágu fæðu-
öryggis. Stofnunin telur, að aðeins
aukin fjárfesting í landbúnaði, auk
fjárfestingar í menntun og heilsu-
gæslu, geti minnkað hið mikla hung-
ur í heiminum. Um 70 hundraðs-
hlutar hungraðra í heiminum búa á
landbúnaðarsvæðum, þar sem fólk
nærist af eigin matvælaframleiðslu
eða framfleytir sér af vinnu við land-
búnað. Landbúnaður er umfangs-
mesti þátturinn í efnahag þróun-
arríkjanna, og styrking
og aukinn vöxtur í land-
búnaði er mikilvægur
þáttur í því að minnka
hungur í þessum lönd-
um.
Þróunarríkin verði
virkir þátttakendur
í viðskiptakerfinu
Fjárfestingar, til að
styrkja landbúnaðinn,
geta verið með marg-
víslegum hætti. Auk
hefðbundinnar fjárfest-
ingar í ræktun, upp-
skeru, vinnslu og með-
ferð, er þörf á
fjárfestingum í sam-
göngum, til að koma
vörunni á markað,
vatnsveitum, orkuver-
um, heilbrigðiseftirliti,
aukinni menntun í við-
skiptum, og fjárfest-
ingu í því að koma á
gæða- og upp-
runamerkingu, til að tryggja heil-
brigði og hollustu vörunnar. Eðlilegt
viðskiptaumhverfi er þessum þjóð-
um nauðsynlegt til að vera virkir
þátttakendur í hinu alþjóðlega við-
skiptakerfi. Á þetta ekki aðeins við
um viðskiptaumhverfið í viðkomandi
löndum. Þau verða einnig að geta
tekið eðlilegan þátt í milliríkjaversl-
un og hinu hnattræna viðskiptakerfi.
Heilbrigðis- og upprunavottun
æ mikilvægari
Mikill árangur hefur náðst í starfi
að heilbrigðis- og upprunavottun á
landbúnaðar- og sjávarafurðum.
FAO hefur gegnt lykilhlutverki í
þessu starfi, svo sem dæmin sýndu á
sjávarútvegsnefndarfundi FAO í
fyrra, þegar samkomulag náðist um
viðmiðunarreglur um umhverf-
ismerkingar sjávarafurða. Hafa ber
í huga, að landbúnaður og fiskveiðar
í þróunarríkjunum eru víðast hvar í
smáum stíl og erfitt um vik að fram-
fylgja flóknum reglum um heilbrigð-
iseftirlit og uppruna. Mikilvægt er
því að búa svo um hnútana, að þess-
ar kröfur verði ekki viðskiptahindr-
anir fyrir vörur þróunarríkjanna.
FAO vekur sérstaka athygli á
mikilvægi viðskipta með landbún-
aðarvörur. Stórmarkaðakeðjur á
Vesturlöndum gegna nú mun stærra
hlutverki í þessum viðskiptum en áð-
ur. Þrjátíu stærstu keðjurnar hafa
nú um þriðjung matvælaviðskipt-
anna í heiminum á sinni hendi. Þær
gefa tóninn um gæði og ástand vör-
unnar og hafa mikilla hagsmuna að
gæta í því að fjárfesta í því að
styrkja hið viðkvæma ferli frá fram-
leiðanda til neytanda. Mikilvægt er
að vel sé að þessu staðið og hags-
munir allra þátttakanda í ferlinu
teknir með í reikninginn.
Fyrir tíu árum, árið 1996, á leið-
togafundi FAO í Róm, einsettu 186
þjóðarleiðtogar og ríkisoddvitar
heims sér að minnka hungur í heim-
inum um helming fyrir árið 2015.
Þúsaldarmarkmiðin ítreka þetta
markmið. Þjóðarleiðtogarnir ein-
settu sér að stuðla að opinberum
fjárfestingum, sem og fjárfestingum
einkaaðila, í landbúnaði í þessu
skyni.
Í lok októbermánaðar verður í
Róm sérstakur umræðuvettvangur
málsmetandi fólks í tilefni af tíu ára
afmæli leiðtogafundarins 1996, þar
sem ætlunin er að vega og meta
stöðu mála og leita leiða til að ná
markmiðunum um að minnka hung-
ur í heiminum. Tíminn líður og árið
2015 verður komið fyrr en varir. Því
miður bendir flest til, að grípa þurfi
til róttækari aðgerða til að ná tak-
marki leiðtogafundarins. Látum Al-
þjóða matvæladaginn verða okkur
hvatningu til dáða.
Minnkum hungur um
helming fyrir 2015
Valgerður Sverrisdóttir skrifar
í tilefni af Alþjóða matvæladeg-
inum, sem er í dag.
Valgerður Sverrisdóttir
» ...áætlað er,að um 854
milljónir manna
í heiminum búi
við hungur, þar
af 400 milljónir
barna.
Höfundur er utanríkisráðherra.