Morgunblaðið - 16.10.2006, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 16.10.2006, Qupperneq 32
32 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BORGHILDUR ÁSGEIRSDÓTTIR, áður til heimilis í Blikahólum 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. október kl. 13.00. Reynir Ásgeirsson, Björg Rósa Thomassen, Baldur Gunnarsson, Gunnhildur Gunnarsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Ástkær frændi minn, AÐALSTEINN EIRÍKSSON bóndi frá Villinganesi í Skagafirði, sem lést á Sjúkrahúsi Sauðárkróks mánudaginn 2. október, verður jarðsunginn frá Goðdalakirkju þriðjudaginn 17. október kl. 14.00. Fyrir hönd vina og vandamanna, Sigurjón Valgarðsson. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SIGRÍÐUR KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Ólafsfirði, sem lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 5. október, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. október kl. 15.00. Ásdís Elfa Jónsdóttir, Smári Hermannsson, Brynjar Þórðarson, Unnur Jónasdóttir, Jóna Ingibjörg Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KETILL EYJÓLFSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvi- kudaginn 18. október kl. 13.00. Guðrún Eyberg Ketilsdóttir, Sæmundur Árnason, Sigurður Steinar Ketilsson, Sólveig Baldursdóttir, Helga Eyberg Ketilsdóttir, Torfi Kristinsson. ✝ Þorbjörg Frið-rikka Jónsdóttir fæddist á Fagranesi á Langanesi 13. september 1921. Hún lést á líkn- ardeild LSH á Landakoti 7. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Þorsteinsson, bóndi á Fagranesi á Langanesi, en síðar á Syðri-Grund í Svarfaðardal, f. 29. ágúst 1889, og Sigrún Sigurð- ardóttir húsfreyja, f. 12. júní 1891. Systkini Þorbjargar eru Sigurður Friðrik, f. 12. október 1914, d. 3. janúar 2003, Þorsteinn, f. 20. júní 1916, d. 2. júní 1993, Kristinn Karl, f. 22. febrúar 1918, d. 7. sept- ember 2005, Anna Jónína, f. 20. janúar 1920, d. 5. apríl 2006, Sig- ríður Dagmar, f. 6. desember 1922, d. 5. maí 1983, og Júlía, f. 29. maí 1924. Þorbjörg giftist Jens Kristni Sigurðssyni frá Flatey á Skjálf- anda, f. 24. desember 1919, d. 13. maí 1996. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: 1) Sigrún Jónína, 1993, sonur Skúla Geirs og Erlu Karlsdóttur er Óðinn Karl, f. 30. mars 1999. c) Jens Þór, f. 28. apríl 1976, sambýliskona Alfa Lára Guðmundsdóttir, f. 26. maí 1978. 3) Anna Friðrikka, f. 15. janúar 1948, eiginmaður Páll Jensson, f. 3. október 1947, börn þeirra eru: a) Hildur, f. 10. október 1973, b) Hlynur Páll, f. 6. febrúar 1977, sambýliskona Kristborg Þórs- dóttir, f. 7. október 1977, dóttir þeirra Urður, f. 6. júlí 2006. 4) Helga, f. 8. september 1950, eig- inmaður Rúnar Gunnarsson, f. 9. maí 1950, dætur þeirra eru: a) Arna, f. 20. júní 1977, sambýlis- maður Karvel Þorsteinsson, f. 16. ágúst 1977, synir þeirra eru Arnar Smári, f. 16. febrúar 2005, og Haukur Freyr, f. 12. apríl 2006. 5) Karl, f. 30. mars 1958, eiginkona Guðrún Ingibjörg Sturlaugsdóttir, f. 3. mars 1958, sonur þeirra Haf- þór, f. 19. nóvember 1995. 6) Guð- rún Elísabet, f. 25. september 1960, eiginmaður Baldur Freyr Kristinsson, f. 11. ágúst 1952, börn þeirra eru: a) Hjalti Már, f. 9. febr- úar 1980, sambýliskona Anna Ýr Böðvarsdóttir, f. 15. febrúar. 1979. b) Aron, f. 20. nóvember 1983, sambýliskona Berglind Rafnsdótt- ir, f. 11. ágúst 1987. c) Birkir Frey, f. 22. nóvember 1990. d) Birgitta Rún, f. 18. maí 1995. Útför Þorbjargar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. f. 13. september 1941, eiginmaður Hilmar Logi Guð- jónsson, f. 22. júní 1937, dætur þeirra eru: a) Þorbjörg Helga, f. 8. ágúst 1961, sambýlismaður Viðar Ágústsson, f. 9. nóvember 1950, son- ur hennar og Jan Mörreauneter Atli Logi, f. 25. júlí 1987. b) Hafdís, f. 23. októ- ber 1962, gift Bjarna Jónssyni, f. 12. júlí 1963, börn þeirra eru Hilmar Daði, f. 10. september 1991, og Sigrún Dís, f. 12. maí 1997. 2) Jens Sigurðsson, f. 4. júlí 1944, eig- inkona Kristín Sigurgeirsdóttir, f. 21. júlí 1947, börn þeirra eru: a) Regína, f. 18. nóvember 1968, gift Philippe Marc Keller, f. 31. janúar 1963, synir þeirra eru Ivan Þór, f. 12. júní 2004, og Jens Marc, f. 17. september 2006. b) Skúli Geir, f. 11. september 1971, sambýliskona Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 28. des- ember 1973, dóttir þeirra er Krist- ín Björg, f. 7. september 2006, dóttir Skúla Geirs og Önnu Jörg- ensdóttur er Aldís Hlín, f. 25. mars Mamma mín elskuleg lokaði fal- legu bláu augunum sínum í síðasta sinn laugardaginn 7. október síð- astliðinn. Eins og gefur að skilja er maður sorgmæddur en þó í bland feginn að hún þjáist ekki meir. Mamma var kjarnakona með sterkt hjarta sem hún hafði þjálfað vel með sundi og heilbrigðu líferni, en hún varð þó að lúta í lægra haldi fyrir þessum skelfilega sjúkdómi krabbameini. Hjartað var ekki tilbúið að gefast upp fyrr en eftir harða baráttu. Mín mesta og besta fyrirmynd í lífinu er sem sagt farin til áður farinna ástvina sem eflaust taka vel á móti henni því hún átti ekki illt til í sál sinni. Ég gæti skrifað endalaust til að lýsa kostum hennar bara ef andinn væri yfir mér en ég er einfaldlega orðlaus af söknuði og er bara að reyna að átta mig á því hvernig ég á að halda áfram án þess að hafa hana mér við hlið, það verður erfitt. En allt það góða sem hún skilur eftir í minningunni fyrir okkur Balda og börnin okkar stendur þó eftir og er ómetanlegt svo sem það að alltaf var hún tilbúin að koma til okkar og gæta bús og barna ef á þurfti að halda, hugga, hvetja og leiðbeina. Svo var hún líka bara svo óskap- lega skemmtileg og kát. Engum þurfti að leiðast þegar hún var ein- hvers staðar nálægt með spila- stokkinn. Hún skilur eftir sig skarð sem tekur einhverja stund að fylla hjá mér og mínum. Ég lýk þessari kveðju á kveðjuorðum mömmu til mín í bréfunum hennar sem ylja mér núna: „Guð geymi þig.“ Til allra sem sakna hennar líka sendi ég mínar allra bestu kveðjur. Guðrún Elísabet. Sólin var byrjuð að klifra upp á léttskýjaðan himininn og skein svo fallega í gegnum rauðgyllt skýin sem kúrðu á bak við kirkjuturninn á Landakotskirkju. Það var á þess- um fallega haustmorgni sem Þor- björg tengdamóðir mín horfði frið- sæl til himins og lauk aftur augunum í hinsta sinn. Friður og söknuður ríkti inni á Landakoti þar sem afkomendur Þorbjargar höfðu safnast saman til að kveðja hana. Það var gott að horfa upp í him- ininn á svona fallegum degi og leita huggunar í því að nú væri hún í landi ljóss og kærleika. Amma Þor- björg var komin til Guðs og engl- anna. Leiðir okkar Þorbjargar tengdamóður minnar lágu fyrst saman fyrir þrjátíu árum. Þegar ég og Kalli komum svo hingað suður til náms bjuggum við hjá henni um hríð. Þá varð mér ljóst að þar fór kjarkmikil kona sem fyrir löngu hafði sett sér það markmið að börn- in hennar ættu öll að fá tækifæri til þess að mennta sig. Til þess að svo mætti verða vann hún oft langan vinnudag og oftar en ekki vann hún á fleiri en einum stað í einu. Hún var ákveðin kona sem hafði lífs- gildin sín á hreinu. Lífsgildi sem mér varð ljóst eftir því sem ég kynntist henni betur að hún hafði ræktað með sér strax í barnæsku norður í Svarfaðardal. Hún setti manngildin ofar veraldlegum auði. Það var alltaf gaman að heyra gleðina í rödd hennar þegar hún var að segja mér frá æskuárum sín- um og þá sérstaklega samvistum þeirra feðgina. Pabbi hennar var mikill söngmaður og það var hún líka. Alltaf þegar fjölskyldan kom saman í þorrablótum á Rifi hjá Gunnu og Balda eða í útilegum um verslunarmannahelgi var mikið sungið og þá varð auðvitað að syngja lagið hennar ömmu Þor- bjargar sem hefur þessa síðustu daga oft ratað fram á varir mér: Inn milli fjallanna hér á ég heima, hér liggja smaladrengsins léttu spor. Hraun þessi leikföng í hellunum geyma, hríslan mín blaktir enn í klettaskor. Við þýðan þrastaklið og þungan vatnanið æskan mín leið þar sem inndælt vor. (Guðm. Magnússon) Ég hef einhvern veginn alltaf tengt þetta lag við æskustöðvar hennar, hún söng það alltaf með svo mikilli tilfinningu og hlýju í rödd- inni að mér datt aldrei annað í hug en að minningar úr æsku hennar svifu fyrir hugskotsjónum hennar á meðan á söngnum stóð. Á kveðju- stund sem þessari fljúga í gegnum huga okkar allar þær góðu minn- ingar sem við eigum um samvistir okkar, fyrir þær viljum við þakka. Við kveðjum hana með virðingu og þökk fyrir allt það sem hún var okkur og gaf á leið okkar til aukins þroska. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér, sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgr. Pét.) Guð geymi kæra tengdamóður og ömmu. Guðrún og Hafþór. Elsku besta amma mín. Nú hefur þú lagt aftur af stað í langferð eins og þú svo oft gerðir. Var hvert ferðalag hjá þér frábært ævintýri sem þú naust út í ystu æsar. Þetta ferðalag sem þú nú tekur þátt í verðum við öll að fara í og við vitum það. Samt er svo erfitt að þurfa að sjá á eftir þér og geta ekki farið með þér á vit nýrra ævintýra því betri ferðafélaga er ekki hægt að hugsa sér. Þær dýrmætu stundir sem við áttum á þessari göngu í gegnum lífið munu alltaf dvelja í hjarta mér. Þú varst sameining- artákn fjölskyldunnar og munt vera það áfram, því við vitum að þú kem- ur með okkur í allar ferðir sem við eigum eftir að fara. Elsku besta og fallegasta amma mín, ég skal muna að hafa Guð að leiðarljósi í stafni og ganga í átt til þín með kærleik í hjarta eins og þú sagðir mér og öllum sem urðu þeirrar gæfu njótandi að fá að kynnast þér og ég veit fyrir víst að þegar ég kemst að leiðarlokum munt þú standa með hinum engl- unum og taka á móti mér. Minn- ingin um þig mun lifa að eilífu og takk fyrir öll góðu og uppbyggilegu frækornin sem þú sáðir í huga mér. Hvíl í friði, elsku fallega amma mín. Ástar- og saknaðarkveðjur. Þín dótturdóttir Þorbjörg Helga. Elsku amma mín, takk fyrir að hafa verið til. Takk fyrir að hafa farið með mér í sund og kennt mér að synda, leikið við mig, meira að segja þá fórst þú með mér í stóru rennibrautina í Laugardalanum þegar þú varst 80 ára gömul. Þú varst ótrúleg amma. Endalaust nenntirðu að spila við mig og varst svona skemmtileg og góð. Meðal annars þá má ég ekki gleyma því að þegar ég svaf hjá þér. Þá læddist ég alltaf í kexskápinn og náði mér í kex, það var alltaf eitthvað gott þar. Ég eldaði líka alltaf hafragraut, hann hepnaðist nú ekki alltaf, en svo kenndir þú mér aðferðina, að hætta aldrei að hræra í pottinum og nú í dag er ég sko snillingur í að elda hafragraut, allt þér að þakka, amma mín. Þú söngst fyrir mig og last sögur og kenndir mér bænir til að fara með ef mig dreymdi illa. Ég mun alltaf elska þig og mun aldrei gleyma þér. Guð geymi þig, elsku amma mín. Þín Birgitta Rún. Elsku amma, margar ómetanleg- ar stundir sækja á hug minn í minningunni um þig. Hríslan okkar blaktir ábyggilega enn við kletta- skor. Þakka þér fyrir samveruna. Ég mun ávallt sækja hald og traust í heilræðin og heillaráðin sem þú áttir svo mörg og sem hjálpa á þessari erfiðu stundu, eins og sálm- urinn fallegi sem við fórum svo oft með saman: Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert ungur, og æðrast ei, þó straumur lífs sé þungur, en set þér snemma háleitt mark og mið, haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni og stýrðu síðan beint í Jesú nafni. (M. Joch) Ég sakna þín af öllu hjarta. Þín Hildur. Elsku amma. Takk fyrir þær góðu stundir sem við áttum saman. Þorbjörg Friðrikka Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.