Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 295. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is      VÍÐFÖRULL KJÓLL SÆVAR INGI VAR SKÍRÐUR Í KJÓL SEM FYRST VAR NOTAÐUR ÁRIÐ 1886 >> 18 FLUGAN FÓLK VAR Á FERÐ OG FLUGI UM HELGINA SUÐAÐI UM SVÆÐIÐ >> 36 DAVID Miliband, umhverfisráð- herra Bretlands, staðfesti í gær, að ríkisstjórnin hefði til athugunar að setja á svokallaða „græna skatta“ til að berjast gegn mengun og alvar- legum loftslagsbreytingum af henn- ar völdum. Kemur þetta fram í bréfi, sem blaðið Mail on Sunday komst yfir og birti í gær. Í því hvetur Miliband til aðgerða „gegn bílanotkun og bíla- eign“ og til verulegrar hækkunar á veggjöldum. Kom þetta fram á fréttavef BBC, breska ríkisútvarps- ins, í gær. Lagt er til, að settur verði sérstak- ur kílómetraskattur á ökumenn; að flugfargjöld, einkum hjá lágfar- gjaldaflugfélögum, verði skattlögð og einnig tækjabúnaður alls konar, sem þykir fara illa með orku. The Mail on Sunday sagði, að samkvæmt því, sem fram kæmi í bréfinu, mætti gera ráð fyrir, að skattur á fjöl- skyldu með stóra bíla gæti hækkað þeirra vegna um meira en 1.000 pund, 128.000 ísl. kr. „Grænir skattar“ á bíla Breska stjórnin ræðir nýja skatta í baráttunni gegn mengun Sofíu. AP, AFP. | Georgy Parvanov, forseti Búlg- aríu, vann stórsigur í síð- ari umferð forsetakosn- inganna í landinu í gær. Í þeim atti hann kappi við Volen Siderov, öfgafull- an þjóðernissinna. Þegar um 40% at- kvæða höfðu verið talin, hafði Parvanov fengið 73,5% þeirra en Siderov 26,5%. Var kosn- ingaþátttaka ekki mikil eða um 41%. Siderov játaði ósigur sinn í gærkvöld en Parvanov, sem er 49 ára að aldri, sagnfræð- ingur að mennt og fyrrverandi leiðtogi Sósí- alistaflokksins, er fyrsti búlgarski forset- inn, sem nær endurkjöri síðan kommúnisminn féll 1989. Parvanov nýtur mikilla vinsælda í landi sínu og einkum vegna baráttu hans fyrir að- ild að Evrópusambandinu, ESB, og NATO. Höfðu margir á orði, að kosningarnar í gær hefðu í raun verið eins konar þjóðarat- kvæðagreiðsla um ESB-aðild en Siderov var henni andvígur. Stjórnmálskýrendur segja, að endurkjör Parvanovs sé til marks um aukinn stöðug- leika í Búlgaríu og bendi til, að fyrsta um- breytingaskeiðinu frá því kommúnisminn féll sé nú lokið. Parvanov var endur- kjörinn Eins konar þjóðarat- kvæði um ESB-aðild Georgy Parvanov Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is MARÍA Ellingsen, stjórnarmaður í samtökunum Framtíðarlandið, seg- ir að samtökin muni bjóða fram til Alþingis í vor, losi stjórnvöld sig ekki úr hjólförum stóriðjustefnunn- ar. „Við erum búin að gefa það út að við ætlum að vera þrýstiafl og upp- lýsingaveita og munum sinna því hlutverki af krafti í vetur. Hins veg- ar verðum við með puttann á púls- inum og ef í ljós kemur að flokk- arnir eru úr tengslum við þær raddir sem hljóma í samfélaginu, þá förum við fram,“ segir María. Auk vinnuhóps um framboð til Alþingis munu sjö hópar starfa innan vé- banda samtak- anna í vetur og sinna m.a. rit- stjórn, pólitísk- um þrýstingi, auglýsingaher- ferðum og ýms- um samfélags- málum fyrir hönd samtak- anna. „Völdin eru ekki aðalfókusinn, heldur mál- efnið, framtíð Íslands er í húfi og að okkar mati stöndum við á krossgöt- um. Ef við förum skrefi lengra í eina átt, missum við af óteljandi tækifærum,“ segir María. Haustþing Framtíðarlandsins fór fram í gær og að sögn Maríu var helsta niðurstaða þess sú að stór- iðjan væri búin með kvótann og það að segjast ætla að nýta landið og njóta þess væri einfaldlega ekki nógu góð stefna. „Við stilltum fram- tíðarmöguleikum okkar hlið við hlið og skoðuðum hverjir af þeim pöss- uðu saman og hverjir væru á skjön. Enginn af framtíðarmöguleikum okkar, sem m.a. eru fólgnir í heilsu- tengdri ferðaþjónustu og ósnortinni náttúru, skemmir fyrir hinum – nema stóriðjan, hún ógnar þessum atvinnuvegum auk þess sem hún skemmir fyrir þeim útflutningsfyr- irtækjum sem byggja á ímynd landsins,“ segir María. „Framtíð Íslands í húfi“ Samtökin Framtíðarlandið íhuga að bjóða fram til Alþingis í vor Í HNOTSKURN »Vinnuhópur starfarinnan Framtíðarlands- ins við undirbúning fram- boðs til alþingiskosninga. »María Ellingsen stjórn-armaður segir að ef stjórnmálaflokkar bregðist ekki við þeim skilaboðum sem samtökin hafa komið á framfæri, muni þau bjóða fram til Alþingis. »Húsfyllir var á haust-þingi samtakanna sem fram fór í gær.  Álver | 10 María Ellingsen KÍNVERJAR eru staðráðnir í að standa vel að Sumarólympíuleikunum, sem haldnir verða í Peking 2008, og auglýstu í því skyni eftir sjálf- safnaðist í gær saman á Múrnum mikla skammt frá Peking en þar var efnt til sérstakrar athafn- ar undir kjörorðinu „Brosandi Peking“. boðaliðum til að vinna að undirbúningi þeirra. Stóð ekki á viðbrögðunum því að tugþúsundir manna gáfu sig fram. Nokkur hópur þeirra Reuters „Brosandi Peking“ á Múrnum mikla Brasilíu. AFP. | Þegar talin höfðu verið um 80% atkvæða í síðari umferð forsetakosn- inganna í Brasilíu í gær var ljóst, að Luiz Inacio Lula da Silva, núverandi forseti, hafði unnið stórsigur. Samkvæmt þessu fékk Lula rétt rúmlega 60% atkvæða en keppinautur hans, Geraldo Alkmin, fyrrverandi ríkisstjóri í Sao Paulo, tæp 40%. Er frá þessu var skýrt brutust út mikil fagnaðarlæti hjá stuðningsmönnum Lula en hann nýtur mikillar hylli hjá fátæku fólki. Koma úrslitin nokkuð á óvart því að Lula náði ekki 50%-markinu í fyrri umferð. Lula sigraði í Brasilíu ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.