Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 25 SIGURÐUR Kári Kristjánsson, al- þingismaður, hafnaði í 8. sæti sem er talsvert lakari árangur en hann stefndi að en hann sóttist eftir 4. sætinu. Í próf- kjörinu fyrir fjór- um árum náði hann 7. sæti. Sigurður Kári sagði því ekki að leyna að útkoman væri ákveðin von- brigði enda hefði hann ekki náð sín- um markmiðum. Aðspurður hvað hefði farið úr- skeiðis sagði hann að það væri ekki um að ræða einhverja eina ástæðu í þessu sambandi. Hann sagist raunar mjög ánægður með sína kosninga- baráttu. „Svona spilaðist þetta bara. Það komu nokkrir nýir inn í þetta prófkjör sem náðu góðum árangri. Ég held að það hafi kannski líka verið pressa á að kjósa konur í sæti of- arlega. Kannski hafa einhverjir liðið fyrir það,“ sagði hann. Hugsanlega mætti einnig draga þann lærdóm af þessu prófkjöri að nauðsynlegt væri að reka öfluga úthringisveit en það hefði hann ekki gert. „Maður þarf kannski að huga að því fyrir næstu lotu,“ sagði hann. Listinn í heild sinni væri sterkur og nefndi Sigurður sérstaklega að Guðfinna Bjarnadóttir, Illugi Gunn- arsson og Sigríður Á. Andersen myndu gefa honum nýtt og ferskt yf- irbragð. Sigurður Kári Kristjánsson Nýir menn og pressa á að kjósa konur ÁSTA Möller al- þingismaður sagði listann sterkan og Sjálfstæðisflokk- urinn væri svo sannarlega full- sæmdur af því að bjóða hann fram við næstu kosn- ingar. Hún hefði þó viljað að konur næðu betri árangri í prófkjörinu. Ásta bauð sig fram í 3. sæti en hafnaði í því sjöunda. Í prófkjörinu sem haldið var 2002 lenti hún í 9. sæti. Ásta sagði eftirtektarvert hversu nýliðarnir Guðfinna Bjarnadóttir og Illugi Gunnarsson náðu góðum ár- angri en þetta sýndi að sjálfstæð- ismenn í Reykjavík vildu reglulega endurnýjun á framboðslistum. Það hefði einnig orðið til þess að margt reyndara fólk lenti neðar á listanum en það stefndi að. Töluverður slagur var um 2. sætið og sagði Ásta að sumir hefðu haft áhyggjur af því að sá sem lyti í lægra haldi gæti fallið niður listann. Það hefði sem betur fer ekki gerst og það væri mjög ánægjulegt að bæði Guð- laugur Þór Þórðarson og Björn Bjarnason væru í forystusætum. Ásta leyndi því ekki að hún hefði viljað lenda ofar á listanum en sagði að á hinn bóginn mætti líta til þess að hún færði sig upp um tvö sæti frá prófkjörinu árið 2002. Ásta sagðist hafa viljað hlut kvenna meiri á listanum þó að staða þeirra væri mun sterkari en fyrir fjórum árum, enda hefði hún ekki getað verið öllu lakari en þá. „Ég sá það fyrir mér að það yrðu að minnsta kosti fjórar konur á meðal tíu efstu en við venjulegar aðstæður er flokk- urinn öruggur um að ná tíu þing- mönnum í Reykjavík,“ sagði hún. Spurð um ástæður fyrir þessu sagði Ásta að flokkurinn væri m.a. að súpa seyðið af slöku gengi kvenna í próf- kjörinu árið 2002 en þá voru tvær konur meðal tíu efstu. Það hefði m.a. valdið því að í prófkjörinu nú hefði hún verið eina konan með þing- reynslu, á móti sex karlkyns alþing- ismönnum. „Það tekur tíma að laga slys eins og varð þá,“ sagði Ásta. Ásta Möller Hefði viljað fleiri konur meðal tíu efstu „ÉG er af- skaplega ánægð- ur með þann stuðning sem ég fékk og raunar hrærður. Ég er þakklátur mínu stuðningsfólki og sjálfstæðisfólki fyrir að veita mér þetta brautargengi og ég mun leggja mig allan fram til að standa undir því trausti sem mér var veitt. Ég fékk 50% fylgi í 2. sætið og 82% í heildina sem er vægast sagt ánægjulegt,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, sem var kjörinn í 2. sæti listans. Í prófkjör- inu 2002 hafnaði Guðlaugur Þór í 6. sæti en hann kom þá nýr inn á lista. Guðlaugur Þór sagði jafnframt að það væri Sjálfstæðisflokkurinn sem væri sigurvegari prófkjörsins og að listinn sem hefði komið fram væri afar sterkur. Björn Bjarnason hefði fengið góða og afgerandi kosningu í 3. sætið og þetta væru skýr skilaboð um að hann ætti áfram að vera í for- ystusveit flokksins. Konur hefðu fengið góða kosningu, árangur Guð- finnu væri einfaldlega frábær en einnig hefðu Ásta Möller, Sigríður Á. Andersen, Dögg Pálsdóttir og Grazyna María Okuniewska fengið góða kosningu. Árangur Illuga Gunnarssonar væri eftirtekt- arverður og þingmenn flokksins hefðu allir fengið örugga kosningu. Listinn væri góð blanda, hvort sem væri litið til aldurs eða kyns. Aðspurður hvort hann gæti nefnt einhverja sérstaka ástæðu fyrir því að honum tókst að vinna 2. sætið, sagði Guðlaugur Þór að hann hefði alltaf fundið fyrir miklum stuðningi frá sjálfstæðismönnum og stuðning- urinn hefði einnig verið mikill núna. Að framboði hans hefðu margir unn- ið sem hefðu unnið með honum áður en einnig hefði fólk unnið að fram- boðinu sem hann hefði aldrei kynnst áður. Guðlaugur Þór þakkaði Birni Bjarnasyni og Pétri H. Blöndal fyrir drengilega kosningabaráttu. „Hún var stutt og snörp og vissulega hörð á köflum en því erum við vanir í Sjálfstæðisflokknum,“ sagði hann. Flokksmenn hefðu ávallt borið gæfu til þess að snúa bökum saman eftir prófkjör og snúa sér að slagnum sem skipti máli; alþingiskosning- unum. Guðlaugur Þór Þórðarson „Stutt og snörp og vissulega hörð á köflum“ DÖGG Pálsdóttir hæstarétt- arlögmaður sagð- ist hafa verið undir það búin að hún gæti lent í 10. sæti eða þar um bil og hún væri því ágætlega sátt við 11. sætið í prófkjörinu. Dögg benti á að níu manns hefðu stefnt að sætunum fyrir ofan hana á listanum. „Það stefnir allt í það að 11. sætið geti orðið baráttusæti þannig að ég held ég geti verið ágæt- lega sátt við það. Auðvitað stefndi ég hærra en ég var líka raunsæ.“ Dögg bætti við að hún væri ekki sátt við hlut kvenna á listanum. Það væri ekki gott að einungis tvær kon- ur væru í efstu níu sætunum, sem væru þingsæti nú. „En þetta er vilji flokksmanna og við það verður auð- vitað unað, þótt maður sé ekki sáttur við hann.“ Dögg benti á að þegar hún gaf kost á sér í 4. sætið hafði engin kona gefið kost á sér ofarlega á listann nema Ásta Möller í 3. sætið. Með framboði sínu hefði hún viljað tryggja að völ væri á konum í efstu sætum. Hún hefði hlotið tæplega 60% atkvæða og gæti ekki verið ann- að en ánægð með það. Dögg Pálsdóttir Stefndi hærra en var raunsæ „HVAÐ sjálfan mig varðar þá hækka ég mig frá síðasta próf- kjöri og bæti við mig í at- kvæðafjölda og prósentum. Ég stefndi auðvitað hærra og hefði viljað fara ofar á listann. Engu að síður finnst mér úrslitin hvað mig varðar vera viðunandi,“ sagði Birgir Ármannsson alþingismaður. Birgir bauð sig fram í 3.–5. sæti en lenti í 9. sæti. Í prófkjörinu árið 2002 varð hann í 10. sæti. Birgir sagði að alltaf væru sveifl- ur í pólitíkinni og í þessu tilviki hefði verið töluverð sveifla með Guðfinnu Bjarnadóttur og Illuga Gunnarssyni sem væru vel kynnt á öðrum vettvangi. „Það var greini- legt að kjósendur í prófkjörinu voru tilbúnir að gefa þeim tækifæri og fyrir okkur sem fyrir erum, er í sjálfu sér fagnaðarefni að fá þau til liðs við okkur með þessum hætti,“ sagði hann. Birgir Ármannsson Sveifla með tveimur nýjum frambjóðendum varð í 7. sæti með 6.057 atkvæði og Sigurður Kári Kristjánsson varð í 8. sæti með 6.735 atkvæði. Í níunda sæti varð Birgir Ármannsson með 7.106 atkvæði, Sigríður Ásthildur Andersen var kjörin í 10. sæti með 6.328 atkvæðum. Í 11. sæti varð Dögg Pálsdóttir með 5.991 atkvæði og í 12. sæti varð Grazyna María Ok- uniewska með 3.514 atkvæði. Þegar kjörfundi lauk klukkan 18 á laugardag voru 21.317 manns á kjör- skrá. Atkvæði greiddu 10.846. Gild atkvæði voru 10.182 og auðir og ógildir seðlar voru 564. Dregið um kjördæmi Prófkjörsreglur Sjálfstæðis- flokksins mæla fyrir um að þeir tveir einstaklingar sem lenda í efstu tveimur sætunum, leiði sitt hvort kjördæmið, þ.e. Reykjavíkurkjör- dæmi norður og Reykjavíkurkjör- dæmi suður. Þeir sem lenda í þriðja og fjórða sæti skipa annað sæti hvors lista og svo koll af kolli. Dregið er um hvorn framboðslistann sá sem hlotið hefur fyrsta sætið skal leiða og ræð- ur það röðun annarra frambjóðenda. það fimmta með 4.526 atkvæðum. Illugi telst raunar ekki nýliði í póli- tík, þó hann hafi ekki áður tekið þátt í prófkjöri, en hann var aðstoð- armaður Davíðs Oddssonar á árun- um 2000–2004. Pétur H. Blöndal varð í 6. sæti með 5.175 atkvæði, Ásta Möller fkjörinu ggja ný- adóttur avík og ræðings kjörin í g Illugi í andi þar sem ur tók þátt   (      " ##$ % &!$""'(   !"$  )      &#                9* "                    9) "                 9( "              9& "                      9+ "                  9' " ILLUGI Gunnarsson, hagfræðingur og fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs Odds- sonar, náði 5. sætinu í próf- kjörinu sem hlýtur að telj- ast afar góður árangur í ljósi þess að hann hefur ekki áður tekið þátt í prófkjöri. Þó hann hafi stefnt á 5. sætið er Illugi að vonum ánægður með árangurinn. „Ég er auðvitað afskaplega þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt í þessu prófkjöri og jafnframt er ég óskaplega þakklátur öllum mínum góðu stuðningsmönnum sem lögðu á sig mikla vinnu,“ sagði hann. Listinn væri sterkur og sjálf- stæðismenn myndu nú snúa bök- um saman og einbeita sér að kosn- ingunum næsta vor. Sjálfstæðisflokkurinn myndi setja markið hátt fyrir næstu þingkosn- ingar og þá myndi konum fjölga í þingflokknum. Aðalatriðið væri að flokkurinn hlyti góða kosningu. Illugi Gunnarsson Þakklátur fyrir traust BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra telur sig hafa unn- ið góðan varn- arsigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, eftir harða sókn gegn sér innan og utan flokksins. Hann sitji áfram í þriðja sæti listans en það sæti hafi hann skipað frá því hann hóf beina þátttöku í stjórn- málum árið 1990. Björn ritaði pistil á vef sinn, www.bjorn.is, í gær þar sem m.a. kom fram að eftir að hann tilkynnti op- inberlega að hann myndi sækjast eftir öðru sætinu, hefðu birst fréttir um að Guðlaugur Þór Þórðarson ætlaði einnig að sækjast eftir öðru sætinu. „Ég stofnaði til fundar okkar Guð- laugs Þórs um málið og sagðist hann þá ekki hafa gert upp hug sinn en hart væri að sér lagt að sækjast eftir þessu sæti. Ég sagði honum þá skoðun mína, að átök, sem þar með yrðu, gætu orðið flokknum hættuleg, eink- um væri líklegt, að andstæðingar flokksins myndu leitast við að færa sér þau í nyt til að ýta undir flokka- drætti. Gekk þessi spá mín um andstæð- inga flokksins eftir og varð atlaga þeirra meðal annars til þess, að við Geir H. Haarde héldum sameig- inlegan fund um öryggismál í Valhöll laugardaginn 21. október. Þá hafði það líka gerst nokkrum dögum áður, að stjórn Sambands ungra sjálfstæð- ismanna hafði sent frá sér dæmalausa ályktun, sem túlkuð var eins og árás á mig á viðkvæmasta stigi próf- kjörsbaráttu,“ segir í pistli Björns. Ályktun á viðkvæmum tíma Í skriflegu svari við spurningum Morgunblaðsins sagði Björn að hann teldi að prófkjörsbaráttan hefði að ýmsu leyti verið harðari en venja er til. Spurningu um hvort innanflokks- menn hefðu sótt að honum með ósanngjörnum hætti, svaraði Björn með eftirfarandi hætti: „Ályktun stjórnar SUS um störf mín sem dóms- málaráðherra á viðkvæmum tíma- punkti í prófkjörsbaráttunni vakti undrun og athygli langt út fyrir raðir flokksins.“ Í pistli sínum segir Björn enn- fremur að hin harða barátta um annað sætið hafi vafalaust orðið til þess að þriðji frambjóðandinn í það sæti, Pét- ur H. Blöndal, hafnaði í sjötta sæti, honum til lítillar gleði. Hann ræðir einnig um hin svoköll- uðu hleranamál en af einhverjum ástæðum, sem hann ekki skilji, hafi spjótunum verið beint gegn honum í því máli, þótt ekkert þeirra sé eða hafi verið á döfinni á þeim tíma sem hann hefur gegnt stöðu dómsmálaráðherra. Björn segir í pistli sínum að fyrir þá sem muna þann tíma þegar sótt var að Geir Hallgrímssyni, sé það ekki gleðiefni ef álitsgjafar í fjölmiðlum séu þeirra skoðunar að innan flokks- ins séu starfandi hópar sem beiti sömu, eða svipuðum aðferðum og beitt var gegn Geir. „Sé staðan orðin sú, hefur flokksstarfið ekki verið að þróast til réttrar áttar og þá eru menn teknir til við að hlutast til um innra starf flokksins með því hugarfari að beita flokksfélögum á borð við hverfa- félög til átaka við samherja en ekki til þess að vinna að framgangi sameig- inlegra mála og sjálfstæðisstefn- unnar. Formennska í hverfafélagi er í eðli sínu ekki ólík formennsku í Verði, fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna, og enginn gerir þá kröfu til þess, sem gegnir þeirri formennsku, að hann taki opinberlega afstöðu með eða á móti einhverjum frambjóðanda í próf- kjöri – annað er uppi á teningnum, þegar litið er til formanna hverf- afélaga. Sé litið á slík félög sem tæki í átökum innan flokks, eru þau að snú- ast í andhverfu sína, því að þau eru tæki til að stuðla að samheldni og samstöðu með heildarhagsmuni flokksins að leiðarljósi,“ segir í pistl- inum. Björn Bjarnason Varnarsigur eftir harða sókn utan flokks og innan R Ást- dersen með 10. ún ar –7. sæti Sjálf- ksins í . Hún flestir anum ga r að r þetta erði ráð gsæti.“ um um óvart verið a próf- ið mjög hún á á, væri kona kjavík viljað sjálf- a Haarde, formaður Sjálf- ksins, segir listann sem val- ófkjöri sjálfstæðismanna sigurstranglegan. Hann að kosningabaráttan hafi ari en venja er til. að út úr þessu komi mjög ti fyrir Sjálfstæðisflokkinn um tefla fram sig- gum listum í báðum Hvað sjálfan mig varðar er rslit,“ sagði Geir í samtali ut 88,8% greiddra atkvæða dina. ri góð blanda af fólki með fólki. Guðfinna S. Bjarna- fðu hlotið mjög glæsilega ýir inn hefðu einnig hlotið ti segja um þingmennina. yrjun á okkar kosninga- u sex mánuði,“ sagði Geir. ki hafa tilfinningu fyrir því ið harðari eða á annan hátt efur oft verið tekist hart á í yrir borgarstjórnarkosn- ingarnar í fyrra og iðulega. En aðalatriðið er að svona bar- átta sé drengileg og allir aðilar uni þeim úrslitum sem út úr þessu koma,“ sagði Geir. Hann vissi ekki annað en að baráttan hefði í aðalatriðum verið drengileg. Af úrslitum í prófkjörinu vekur mesta athygli að Björn Bjarnason náði ekki 2. sæti. Geir sagði að það væri ekkert launungarmál að hann hefði beitt sér í þágu Björns. „En þarna voru þrír menn að keppa um þetta sæti og það kom- ast auðvitað ekki allir í sætið sem eftir því óska. Ég hef enga sérstaka skýringu á því að öðru leyti,“ sagði hann. Björn hefur sagt að sótt hafi verið að honum utan og innan flokks. Spurður um þetta sagði Geir að hann hefði þegar rætt um utanflokksmálið á fundi. „En innanflokks- málið er nú bara kosningabarátta í prófkjöri, að því er ég tel. Ég sé nú bara það þannig,“ sagði Geir. Í þessu tilviki hefði Guðlaugur Þór Þórðarson náð mjög góðum árangri og ástæða væri til að óska honum til hamingju með það. Hann væri vel að þessum úrslitum kominn. Aðspurður hvað honum þætti um kynjaskiptinguna á listanum benti Geir á að í tólf efstu sætum listans væru fimm konur. Það skipti ekki höfuðmáli í hvaða sætum menn lentu á listanum, kæmust þeir inn á þing. Flokk- urinn hefði fengið níu þingsæti í Reykjavík í síðustu kosn- ingum og það væri lágmark að bæta við einum þingmanni í hvoru kjördæmi. Baráttusætin væru 11. og 12. sæti. ur Sjálfstæðisflokksins un á kosningabaráttunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.