Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Haltu bara áfram að flensa, Stjáni, þetta er einhver fæðingargalli. Þetta er víst eina blóðið sem honum verður óglatt af. VEÐUR Einn hógværasti en jafnframteinn vandaðasti listamaður þjóðarinnar er Halldór Haraldsson, píanóleikari. Það var skemmtilegt að hlusta á hann lýsa því í samtali við Jónas Sen í sjónvarpinu í gær- kvöldi hvers vegna hann fór að læra á píanó.     Foreldrar hansvoru með- limir Tónlistar- félags Reykjavík- ur og hann fór með þeim á tón- leika félagsins. Það er alveg ljóst að Tónlistar- félagið á þessum árum hefur haft mikil áhrif á að efla tónlistaráhuga fólks.     Halldór bjó á Víðimelnum í ná-grenni við Pál Ísólfsson og skammt frá bjó Ragnar í Smára. Í sama húsi og Halldór bjó Ólafur Þorgrímsson, lögfræðingur, sem jafnframt var formaður Tónlistar- félagsins.     Það er nánast ótrúlegt hvers kon-ar heimsnöfn Tónlistarfélagið fékk til þess að koma hingað og halda tónleika. Einn af þeim var einn fremsti píanóleikari heims á sinni tíð, Rúdolf Serkin, en milli hans og Ragnars í Smára var per- sónuleg vinátta.     Þeir heimsfrægu tónlistarmenn,sem hingað komu, voru boðnir á heimili Ólafs Þorgrímssonar.     Í þessu umhverfi og andrúmsloftiólst Halldór Haraldsson upp. Þetta umhverfi hafði þau áhrif á Halldór, að hann hóf tónlistarnám hjá Katrínu Dalhoff, píanókennara, sem margir nemendur hennar eiga góðar minningar um.     Samtal Jónasar Sen gaf sjón-varpsáhorfendum nýja sýn á þennan hægláta listamann en skýrði jafnframt þá þrautseigju og staðfestu, sem einkennt hefur feril hans. STAKSTEINAR Halldór Haraldsson Hógvær listamaður SIGMUND                      !  "#   $ %&  ' (                    )'  *  +, -  % . /    * ,                         01     0  2   3 1, 1  ) ,  4  0  $ 5 '67 8 3 #  '               !  ! " #         $!!  9  )#:; %%               !"  #  $      % %&  '   "(     ")    )  ## : )   & "' ( %  %' %    # ) <1  <  <1  <  <1  & (  %* !+%,  -  = ,         <  & (%"% %   % %'  !% %') ! . /  .    &  "% % $!! % %   % %'  !%%    .%/%% %%0%%"# %#   % %   ! 5  1  1   (%"0%2% +% % "  %  0%  %- ' . 3 %% %2%%%#  % ! %   ! 4$%"% 55  %#"%6  # %* ! 2&34 >3 >)<4?@A )B-.A<4?@A +4C/B (-A . 02 . 2.  .   .  2.   . .   . 0 0 0 0 02 0 0 0 0 0 0 0 0 0            FÉLAG forstöðumanna ríkisstofn- ana og Stofnun stjórnsýslufræða við Háskóla Íslands standa fyrir morgunmálþingi á Grand hóteli í Reykjavík á morgun kl. 8.15–10.15. Þar á að ræða kosti og galla þess að færa opinbera starfsemi yfir í hlutafélagaform en vaxandi áhugi virðist á því að færa opinbera þjónustu í form svonefndra opin- berra hlutafélaga (ohf). Í tilkynn- ingu HÍ er bent á nýleg dæmi um Flugstoðir ohf. og Matís ohf. og að fyrir Alþingi liggi frumvarp um sams konar formbreytingu á Ríkisútvarpinu. Þá séu uppi hug- myndir um hlutafélagavæðingu fleiri stofnana. Erindi flytja Arnar Þór Másson, sérfræðingur í fjár- málaráðuneytinu og aðjúnkt við stjórnmálafræðiskor HÍ, Páll Magnússon útvarpsstjóri og Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri RF og verðandi forstjóri Matís ohf., en málþingsstjóri verður Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri. Í inngangserindi fjallar Arnar um nokkur grundvallaratriði í þessu sambandi en Páll og Sjöfn stýra stórum stofnunum en annarri hef- ur verið breytt í opinbert hluta- félag og um hina liggja fyrir til- lögur um slíkt. Málþingið er opið öllu áhugafólki um opinberan rekstur en skráning þátttakenda er á veffanginu: http://www.stjorn- syslustofnun.hi.is/page/hlutafelog eða með tölvupósti: stjornsyslaog- stjornmal@hi.is Opinber þjónusta í hlutafélagsform Arnar Þór Másson Páll Magnússon HLYNUR Halls- son hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstri- hreyfingarinnar græns – fram- boðs í Norðaust- urkjördæmi fyrir Alþingiskosning- arnar vorið 2007. Í tilkynningu frá Hlyni segir að á síðustu árum hafi hann tekið virkan þátt í starfi Vinstri grænna. Hann sé viss um að stefna VG um jöfnuð, kvenfrelsi, umhverf- isvernd og sjálfstæða utanríkis- stefnu eigi stóraukið fylgi meðal fólks. „Við þurfum að hverfa frá einkavinavæðingu Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og snúa við þeirri öfugþróun sem leitt hefur til aukins ójafnaðar í þjóðfélaginu sem hefur stóraukist í ríkisstjórnartíð þessara flokka,“ segir í tilkynningunni. Hlyn- ur hefur verið varamaður Stein- gríms J. Sigfússonar og Þuríðar Backman á Alþingi á þessu kjörtíma- bili og tekið sæti á Alþingi þrisvar sinnum. „Á þeim tíma hef ég meðal annars lagt fram þingsályktunartil- lögu um gerð Vaðlaheiðaganga, lagt áherslu á stóraukin framlög til Há- skólans á Akureyri og til mennta- mála almennt, lengingu flugvallarins á Akureyri og beint millilandaflug frá Egilsstöðum og Akureyri og bætta aðstöðu ferðaþjónustunnar á Norður- og Austurlandi.“ Hlynur í forval VG Hlynur Hallsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.