Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Atvinnuauglýsingar  Í Heiðarbrún Hveragerði Vinsamlegast hafið samband í síma 893 4694 eftir klukkan 14.00. Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Sjóðfélagafundur Fundur sjóðfélaga í Hlutfallsdeild Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn fimmtudaginn 2. nóvember nk. kl. 17.30. Fundurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum, Bíósal. Á dagskrá verður tillaga um heimild stjórnar sjóðsins til að ganga til samkomulags við aðildarfyrirtæki deildarinnar vegna þess vanda sem hún stendur frammi fyrir. Ath.: Fundur þessi er eingöngu fyrir sjóð- félaga í Hlutfallsdeild. Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna. Húsnæði í boði Íbúðir á Bergstaðastræti 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir til leigu frá 1. nóv- ember. Áhugasamir hafi samband á netfangið: ingibjorgtom@hotmail.com Húsnæði óskast Skrifstofuhúsnæði í miðbænum óskast Óskum eftir til kaups eða leigu 200-400 skrif- stofuhúsnæði í miðbænum. Til greina kemur heilt íbúðarhús vel staðsett á svæðinu sem hægt væri að breyta í skrifstofur. Nánari upplýsingar veitir: Fasteignamarkaðurinn ehf., Óðinsgötu 4. s. 570 4500. Tilkynningar BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090 Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgar- svæðisins 2001-2024 Þétting íbúðarbyggðar í Reykjavík Borgarráð Reykjavíkur auglýsir, skv. 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br., tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborg- arsvæðisins 2001-2024. Gerð er tillaga um að heildaríbúðafjöldi árið 2024 á byggðasvæðum nr. 2-4 (Nesið norðan Miklubrautar og vestan Kringlumýrabrautar), verði aukinn úr 12.000 íbúð- um í 12.700, á byggðasvæði nr. 6 (Kringlan, Bústaðahverfi-Fossvogshverfi) úr 4.450 íbúðum í 4.750 og á byggðasvæðum nr. 7-9 (Nesið norðan Miklubrautar og austan Kringlumýrarbrautar) úr 6.800 íbúðum í 7.300. Hér er um að ræða 5,8% aukningu á fjölda íbúða á svæðum nr. 2-4, 6,7% aukningu á svæði nr. 6 og 4,3% aukningu á svæð- um nr. 7-9. Borgaryfirvöld Reykjavíkur bæta það tjón sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir við breytinguna. Tillagan hefur verið send sveitstjórnum á höfuð- borgarsvæðinu til kynningar. Tillagan verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfis- ráðherra um lokaafgreiðslu. Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna geta snúið sér til skrifstofu skipulags- og byggingar- sviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 3. Reykjavík, 30. október 2006 Sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Ýmislegt Merk starfslok? Víst voru starfslok Kjartans Gunnarssonar, frkstj. Sjálfstæðisflokksins, í miðju prófkjöri 2006, óvænt. Var þar með lokið einni víðtæk- ustu söfnun persónuupplýsinga í lýðræðisríkj- um, sem gömlu flokkarnir, A, B, D og G, stunduðu um skeið? Voru það ekki hlerarar þeirra á vinnustöðum, í fjölskylduboðum og klúbbum sem flokkuðu þorra kjósenda inn á flokksskrár, þannig að „kommatittir“ flutu með? Í Fréttablaðinu 24.10.06 segir, að nýr frkstj., Andri Óttarsson, hafi skoðað flokksskrá eins frambjóðanda og staðreynt að hún var sú sama og annarra frambjóðenda. Varla hefur þátttaka ein í prófkjöri dugað til að fá gömlu skrárnar í hendur? Má óska sjálfstæðisfólki og öðrum til hamingju? Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti. Félagslíf  HEKLA 6006103019 IV/V  GIMLI 6006103019 I H&V I.O.O.F. 19 18710308 M.A.* I.O.O.F. 10  18710308  O* ✝ Matthías Jóns-son fæddist á Lækjarbotnum í Landsveit 21. sept- ember 1918. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 20. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jón Árna- son, f. 20.7. 1881, d. 27.12. 1968, og Steinunn Lofts- dóttir, f. 16.10. 1879, d. 20.4. 1958, bændur á Lækj- arbotnum. Börn Jóns og fyrri konu hans, Jónínu Margrétar Sig- urðardóttur eru: Ásta, f. 13.10. 1903, d. 8.6. 1993, Sigþrúður, f. 21.2. 1908, og Jón, f. 20. ágúst 1912, d. 1. nóvember 2001. Jónína Margrét andaðist 20. ágúst 1912. Seinni kona Jóns var Steinunn arsdóttir, f. 7. júlí 1948. Börn þeirra eru: Matthías Örn, f. 18. febrúar 1970, eiginkona hans er Svafa Grönfeldt, f. 29. mars 1965, þau eiga tvö börn, Bjarki Hrafn, f. 13. apríl 1975, eiginkona hans er Bryndís Guðmundsdóttir, f. 22. apríl 1974, þau eiga tvo syni, Ingi- björg Dröfn, f. 7. júlí 1979, eig- inmaður hennar er Gunnar Haf- steinsson, f. 23. júní 1976, þau eiga einn son. 2) Steinunn Jóna Matt- híasdóttir, f. 13. júní 1956. 3) Ísak Jakob Matthíasson, f. 25. júní 1963, eiginkona hans er Hulda Gunnarsdóttir, f. 13. júlí 1962. Börn þeirra: Matthías Orri, f. 16. desember 1991, Steinar, f. 16. september 1995, og Inga, f. 22. ágúst 2002. Matthías ólst upp á Lækj- arbotnum en flutti svo til Reykja- víkur þar sem hann bjó til æviloka. Matthías var atvinnubílstjóri, ók leigubíl í 40 ár. Útför Matthíasar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Loftsdóttir. Börn þeirra: Árni Kollin, f. 13.10. 1915, d. 21.2. 1964, Loftur Jóhann, f. 14.12. 1916, d. 9.4. 1983, Þórunn, f. 28.10. 1919, d. 1. júní 2003, Brynjólfur, f. 26.10. 1922, og Geir- mundur f. 20.1. 1924, d. 21.10. 1979. Hinn 29. desember 1956 gekk Matthías að eiga Ingu Ísaks- dóttur, f. 19.7. 1925, frá Ási í Ásahreppi. Foreldrar hennar voru Ísak Jakob Eiríksson, f. 8. mars 1898, d. 1. maí 1977, og Kristín Sigurðardóttir, f. 25. desember 1905, d. 6. mars 2002. Börn Matthíasar og Ingu eru: 1) Friðrik Axel Þorsteinsson (stjúpsonur), f. 23. nóvember 1947, eiginkona hans er Helga Þ. Ein- Matthías tengdafaðir minn fædd- ist í torfbæ að Lækjarbotnum í Landsveit þegar frostaveturinn mikli var að baki og var hann sjötta barnið í röðinni af níu systkinum. Matti, eins og hann var ávallt kall- aður, var af þeirri kynslóð Íslend- inga sem upplifði hvað mestar breytingar á íslensku þjóðfélagi fyrr og síðar. Árið sem hann fædd- ist var mikið átakaár þar sem Ís- lendingar tókust á við náttúruöflin: helkulda að vetrinum, Kötlugos og inflúensufaraldur eða spænsku veikina. Jafnframt náðu þó Íslend- ingar áfangasigri í baráttu fyrir sjálfstæði þetta sama ár, þegar þjóðin fékk fullveldi frá Dönum. Mestar urðu þó þjóðfélagsbreyting- arnar með hernáminu í seinni heimsstyrjöldinni og vart hægt að gera sér í hugarlund hvers það krafðist af einstaklingunum sem landið byggðu. Matti hóf snemma að hjálpa til við almenn bústörf á Lækjarbotn- um og þótti hann laghentur, var ágætur smiður. Hann var líka skó- smiður, því hann bjó til gúmmískó á sveitunga sína sem þóttu einkar snotrir og endingargóðir. Á ung- lingsárunum fór hann að vinna við vegagerð og fékk þá áhuga á bílum og ákvað að kaupa sér bíl. Hann lagði launin sín inn á bók og eftir sex ár hafði hann safnað nógu miklu til að geta keypt sinn fyrsta bíl. Hann fór til Reykjavíkur í bíla- umboðið Heklu til að sækja bílinn sem var International vöruflutn- ingabíll. Hann hafði einsett sér að koma bílnum heim fyrir jól, en bíll- inn kom ósamsettur til landsins. Matti bauðst til að aðstoða við sam- setningu bílsins og viti menn, það tókst, heim komst hann á bílnum á aðfangadag og var þetta án efa mikill áfangi í lífi unga mannsins enda framtíðin ráðin. Hann gerðist atvinnubílstjóri, fyrst við vegagerð á Suðurlandi en varð síðar leigubíl- stjóri. Matti flutti til Reykjavíkur árið 1955, með unnustu sinni og síðar eiginkonu, Ingu Ísaksdóttur frá Ási í Ásahreppi. Hann fór að aka leigu- bíl hjá BSR, þannig sameinaði hann vinnu og áhugamál og ól önn fyrir fjölskyldunni. Matti vann öllum stundum, frá morgni og langt fram á kvöld og um helgar fram á nótt. Þegar yngsta barnið kom í heiminn var haft samband við hann í gegn- um talstöðina og honum tilkynnt að fæddur væri sonur. Matti þakkaði viðkomandi fyrir og þá gall úr tal- stöðinni. „Þetta er nú ekki mér að þakka!“ Matti var hlédrægur og ekki maður margra orða en þótt hann sýndi ekki miklar tilfinningar þá vissi fjölskyldan öll og fann hve um- hugað honum var um sitt fólk. Leigubílaaksturinn varði í 40 ár og í myndasafninu má sjá ótal myndir af honum þar sem hann stendur stoltur við hlið leigubílsins, en þeir voru þó nokkrir á þessum fjörutíu árum. Ávallt voru bílarnir stífbónaðir og flottir og báru vitni um mann sem kunni að fara vel með það sem hann átti. Þegar heilsu fór að hraka og minnið að þverra fluttist Matti á Sóltún þar sem hann naut einstakr- ar umönnunar. Eftir farsæla og langa ævi er nú komið að leið- arlokum. Genginn er góður maður. Ég kveð tengdaföður minn með hlýju í hjarta. Haf þökk fyrir allt og allt. Hulda. Matthías Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.