Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF www.openhand.is Með OpenHand hefur þú fullan að- gang að tölvupósti og getur auk þess skoðað og uppfært önnur skjöl með farsímanum þínum. Ekki þarf sérframleitt tæki, heldur virkar OpenHand á snjallsímum helstu framleiðenda. Fáðu nánari upplýsingar um Open- Hand á www.openhand.is. „Ég þarf ekki lengur að taka ferðatölvuna með mér, hef allt í símanum; tölvu- póstinn, dagbókina, tengiliði og fleira.“ Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi „Lausnin er einföld, eitt tæki fyrir allar þarfir.“ Hafsteinn Ingibergsson, Danól ÖRUGGARA • ÓDÝRARA • SVEIGJANLEGRA TÖLVUPÓSTUR DAGBÓK OG FLEIRA Í FARSÍMANN ÞINN P IP A R • S ÍA • 60 56 5 Skrifstofan þín á ferðinni ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● EIMSKIP mun um næstu mán- aðamót skipta um heimahöfn í Kan- ada og fara frá Shelburne til Halifax. Þarna á milli er um fimm klukku- stunda akstur á bíl. Hanna Katrín Friðriksson, fram- kvæmdastjóri innri og ytri samskipta hjá Eimskip, segir að því fylgi mikið hagræði fyrir félagið að flytjast þarna á milli. Höfnin í Halfax sé betur tengd við lestarkerfið í Kanada en Shelburne. Auk þess sigli mörg af þeim skipafélögum sem Eimskip sé í samstarfi við til Halifax. Í frétt á fréttavef kanadíska blaðs- ins ChronicleHerald er haft eftir Do- ug Rouse, forstjóra félagsins Hal- term sem stýrir þeim hluta hafnarinnar í Halifax þar sem skip Eimskips munu leggja að, að hann sé afar ánægður með að fá félagið í viðskipti. Þá liggi fyrir að umsvif fé- lagsins í Kanada muni aukast um- talsvert. Frá því var greint fyrr í þess- um mánuði að Avion Group hefði fyrir hönd dótturfélags sín, Eimskip Atlas Canada, náð samkomulagi við kan- adíska frystigámafélagið Atlas Cold Storage um yfirtökutilboð í allt hlutafé félagsins. Atlas er annað stærsta kæligeymslufyrirtæki Norð- ur-Ameríku og er með 53 frysti- og kæligeymslur vestra. Eimskip skiptir um höfn í Kanada BRESKI kaup- sýslumaðurinn Philip Green fær ekki greiddan arð frá tísku- vörukeðjunni Ar- cadia, sem hann á 92% hlut í, vegna rekstrar- ársins sem lauk í lok ágúst síðast- liðinn. Ástæðan er sú að hagnaður keðjunnar var um fimmtungi minni en árið áður. Í október í fyrra var greint frá því að Green fengi bróðurpartinn af þeim 1,3 milljörðum punda sem greiddar voru í arð vegna rekstr- arársins sem lauk í lok ágúst 2005, eða um 1,2 milljarða punda. Bresk- ir fjölmiðlar greindu þá frá því að arðgreiðslurnar yrðu að stærstum hluta fjármagnaðar með lántökum en þær voru umtalsvert hærri en hagnaður keðjunnar á rekstrárinu. Arcadia rekur m.a. verslunar- keðjurnar Top Shop, Dorothy Perkins og Etam og MissSelfridge. Hagnaður fyrir skatta á nýliðnu rekstrarári nam um 202 milljónum punda samanborið við 253 milljónir árið áður. Þrátt fyrir minni hagnað segir Green í samtali við BBC- fréttastofuna að hann sé ánægður með afkomuna. Segir hann að upp- gjör keðjunnar sýni að reksturinn sé traustur þegar litið sé til þess hve samkeppnin í tískugeiranum sé hörð. Keðjan sem Baugur missti af Philip Green keypti Arcadia á árinu 2002 fyrir 850 milljónir punda og keypti hann þá 20% hlut Baugs Group í keðjunni. Baugur hafði í upphafi ársins 2002 reynt yfirtöku á Arcadia en tókst það ekki. Green og Baugur sömdu hins vegar um það í ágúst sama ár að skipta Arcadia með sér og hófu að bjóða í fyrirtækið. Daginn sem formlegt tilboð var lagt fram í Ar- cadia, 28. ágúst 2002, gerði rík- islögreglustjóri húsleit í höfuð- stöðvum Baugs hér á landi vegna meints fjárdráttar stjórnenda fé- lagsins. Tveimur dögum síðar lýsti stjórn Arcadia því yfir að ekki kæmi til greina að samið yrði um kaup Baugs á keðjunni. Málinu lauk með því að Baugur seldi Green hlut sinn í Arcadia og hann tók yfir fyrirtækið. Green fær ekki arð- greiðslu frá Arcadia í ár Phillip Green AUKINN útflutningur í septem- bermánuði hefur leitt til þess að hratt degur úr vöruskiptahalla við útlönd. Vöruskiptin við útlönd í september voru óhagstæð um 7,6 milljarða króna, sem er að mestu í samræmi við bráðabirgðatölur Hag- stofunnar frá því í byrjun þessa mánaðar. Vöruskiptin í sama mán- uði í fyrra voru óhagstæð um 12,0 milljarða á föstu gengi. Í september í ár voru fluttar út vörur fyrir 22,3 milljarða króna og inn fyrir 29,9 milljarða. Jókst um þriðjung Útflutningur jókst um rúmlega þriðjung á milli ágúst og september á þessu ári. Þar munaði mest um aukinn útflutning á sjávarafurðum og iðnaðarvörum, að áli undan- skildu. Innflutningur dróst saman á milli ágúst og september, ef undan er skilinn innflutningur á eldsneyti og smurolíum. Það dregur úr innflutn- ingi á fjárfestingarvörum og rekstr- ar- og hrávörum sem og neysluvör- um. Bílainnflutningur jókst hins vegar lítillega milli mánaða. Fyrstu níu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 173,2 milljarða króna en inn fyrir 275,4 milljarða. Halli var á vöruskiptunum við út- lönd sem nam 102,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 75,2 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hag- stofunni. Í Morgunkorni Greiningar Glitnis segir að útlit sé fyrir að áfram muni draga jafnt og þétt úr vöruskipta- halla með auknum álútflutningi og frekari samdrætti í innflutningi á fjárfestingarvörum. Frekari við- snúningur muni svo verða á næsta ári þegar stóriðjuframkvæmdum á Austurlandi lýkur og álver í Reyð- arfirði tekur til starfa, auk þess sem búast megi við samdrætti í innflutningi á þeim flokkum neyslu- vara sem hvað næmastir séu fyrir hagsveiflunni. Dregur hratt úr vöruskiptahalla Aukning í útflutningi á sjávarafurðum og iðnaðarvörum Minnkandi halli Draga mun úr vöruskiptahallanum á næstu mánuðum. Morgunblaðið/RAX EKSTRA BLADET segir í fyrstu grein sinni af fleiri boðuðum um ís- lenska kaupsýslumenn og íslenskt viðskiptalíf að Kaupþing banki hafi komið sér upp flóknu alþjóðlegu og leynilegu kerfi sem að hluta sé notað til að færa stórar fjárhæðir fram og til baka án þess að mikið beri á og að hluta til tryggja að bankinn og við- skiptavinir hans greiði ekki skatta. Sigurður Einarsson, stjórnarfor- maður Kaupþings banka, segir frétt- ir Ekstra Bladet ekki vera réttar og umfjöllun blaðsins í raun fáránlega. Kaupþing sé að vísu orðið ýmsu vant í erlendum fjölmiðlum en skrif Ekstra Bladet taki öllu öðru fram. Ekstra Bladet heldur því m.a. fram að Íslendingar taki út fé í fyr- irtækjum sem þeir eigi í Danmörku og komi þeim til Lúxemborgar og þaðan áfram án þess að greiða skatt í Danmörku. Sigurður bendir á að Kaupþing hafi aldrei tekið neitt í arð úr FIH í Danmörku sem þó hafi hagnast vel, bæði í fyrra og í ár. Þá séu þessar ásakanir út í hött þar sem enginn munur sé á því hvort menn greiði arð frá dönskum fyrirtækjum til t.d. Svíþjóðar, Lúxemborgar eða þá Íslands. Ekstra Bladet hefur raunar eftir Lars Bo Langsted, prófessor í fyr- irtækjarétti og sérfræðingi í efna- hagsbrotum, að ýmsar skýringar geti verið á flóknu fyrirtækjaneti „Íslendinga“. Ein skýringin geti ver- ið, að verið sé að reyna að ná fram sem mestu skattahagræði án þess að aðferðirnar séu ólöglegar. Skrif Ekstra Bladet fáránleg STJÓRNVÖLD í Suður-Afríku hafa ákveðið að verja sem svarar til um tveggja milljarða Banda- ríkjadollara, jafnvirði um 135 milljarða íslenskra króna, vegna undirbúnings heimsmeist- arakeppninnar í knattspyrnu sem haldin verður í landinu árið 2010. Fjármálaráðherra Suður-Afríku, Trevor Manuel, tilkynnti þetta á þingi landsins fyrir skemmstu. Frá þessu er greint í frétt á fréttavef BBC-fréttastofunanr. Manuel greindi frá því að á næstu þremur árum verði um 1,1 milljarði dollara varið til bygg- ingar á fimm nýjum fótboltavöll- um og til að endurbæta velli sem fyrir eru. Þetta svarar til um 75 milljarða íslenskra króna. Þá sagði hann að gert sé ráð fyrir að um 800 milljónir dollara, um 55 milljarðar króna, fari í að end- urbæta samgöngukerfið í landinu og ýmislegt annað sem því teng- ist. Einnig er gert ráð fyrir því að stjórnvöld í Suður-Afríku leggi fé af mörkum til baráttunnar gegn glæpum í landinu, að því er fram kemur í frétt BBC. Í því sambandi er áætlað að ráða um 8.000 nýja lögreglumenn til starfa og um 2.000 óbreytta borgara til að vera í sérstöku varaliði á meðan heims- meistarakeppnin mun standa yfir. Um 75 milljarðar í fót- boltavelli í Suður-Afríku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.