Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur gve@ismennt.is ÁSA Hlín Svavarsdóttir leikkona söðlaði um í lífinu, flutti úr 101 Reykjavík þar sem hún hafði búið frá tvítugsaldri, og upp í Borgarnes fyrr á þessu ári. Þar starfar hún hjá Landnámssetrinu en er auk þess að leikstýra áhugamannaleikhópi hjá Ungmennafélaginu Íslendingi. Þeg- ar fréttaritari heimsótti Ásu Hlín var hún rétt ófarin í félagsheimilið Brún þar sem leikhópurinn æfir, en gaf sér tíma fyrir stutt blaðaviðtal. Hún segir margt hafa orðið þess valdandi að hún flutti í Borgarfjörð- inn, einhvern veginn lá leiðin hingað. ,,Ég á sumarbústað í landi Ytri- Skeljabrekku, og hafði starfað nokk- ur sumur sem matráðskona á fjár- búinu Hesti, þannig að ég þekkti vel til. Ég var ,,frílans starfandi leik- kona og leikstjóri í bænum og þegar dró úr vinnu á sumrin var fínt að fara í sveitina og taka krakkana með mér.“ Jákvæð breyting að flytja hingað Ása Hlín talaði við Kjartan og Sirrý sem þá voru að opna Land- námssetrið og falaðist eftir vinnu, sem var auðfengin. Á svipuðum tíma keypti hún hús við sjóinn í Borg- arnesi og flutti ásamt börnunum sín- um, þeim Jóni Gunnari 10 ára og Unu Maríu 6 ára, en elsti sonurinn Jóhann Kristófer 14 ára, vildi halda áfram í Austurbæjarskólnum, varð eftir hjá pabba sínum og kemur um helgar og í fríum. ,,Ég var orðin þreytt á að vera í bænum, ég var bú- in að vera ein með þrjú börn í langan tíma. Mér fannst stressið mikið, lítill tími og upplifði að ég væri að múrast inni í einhverju lífi sem ég kærði mig ekki um. Það var því mjög jákvæð breyting að flytja hingað.“ Ása vinnur við móttöku í Land- námssetrinu en grípur í önnur störf eftir því sem þarf. ,,Maður þarf að vera öllum hnútum kunnugur segir Ása Hlín, ,,ég bóka á sýningar og fer líka í veitingasalinn, og svo stendur til að opna þar bráðum búð með ýmsu íslensku handverki. Nú er hún að setja upp leikritið „Maður í mislitum sokkum“ eftir Arnmund Backman, með ung- mennafélaginu Íslendingi. ,,Það gengur mjög vel og við ætlum að frumsýna um næstu helgi. Ég byrj- aði á að hafa leikslistarnámskeið í september og svo fórum við að æfa leikritið. Allir voru sammála um þetta val, því þetta er mjög skemmtilegt leikrit, alveg eins og gamanleikur á að vera og höfðar vel til nútímans.“ Ása Hlín segir mjög gaman að starfa með ,,amatörum.“ ,,Já, ég vann t.d. að leikgerð Þum- alínu á Sólheimasýningu sem var mjög skemmtilegt, enda þýðir orðið amatör sá sem gerir eitthvað af ást. Það er það sem er svo frábært þegar útgangspunkturinn er gleði og sköp- un, þegar listin fer að göfga andann. Enda ber ég mikla virðingu fyrir fólki sem er að koma á leiklistaræf- ingu í lok vinnudags og gefur sig í listina að fullu.“ Er að læra Waldorf- uppeldisfræði En Ása Hlín á sér fleiri áhugamál en listina, því hún hefur verið að læra Waldorf-uppeldisfræði. ,,Fyrir rúmum tveimur árum var fólk sem tók sig saman og hafði samband við kennaraháskóla í Danmörku. Sigrún Harðardóttir mannspekiráðgjafi sem hefur haft með námið þar að gera, kom þessu á fót hér og ég hef tekið þátt í því eina helgi í mánuði, tvö virk kvöld í mánuði og eina 60 stunda námsviku að sumri. Við fáuum kennara m.a. frá Englandi og Noregi og aðstaðan er í Sólstöfum í Hraunbergi og í Lækjarbotnum. Ég lýk þessu í vor og fæ diplóm en þetta samsvarar fullu námi í eitt ár.“ Ása Hlín segir að mjög mikil eftirspurn sé eftir að koma börnum á Waldorf- leikskóla. ,,Þessi stefna Rúdolfs Steiner byggist á því að umhverfið er náttúrulegt, leikföngin náttúru- leg, unnið með ull og tré, vatnslitir og vaxlitir eru úr lífrænum efnum, maturinn lífrænn; ekki kjöt og fiskur heldur grænmetisfæði. Unnið er heildstætt, þ.e. ein stefna í gangi og viss stefna um hvernig maður leið- réttir börnin, kemur fram við þau, og beinir þeim í leikinn. Segja má að lykilatriði í Waldorf-hugmyndafræð- inni sé að líkja eftir, bæði hvað leik- inn varðar og hvernig við umgöng- umst hvert annað. Það er t.d. ekki lesið fyrir börnin, heldur les kenn- arinn ævintýri og gerir það að sínu. Hann segir svo barninu frá og með því er hann að gefa af sjálfum sér, barnið fær ekki bara söguna heldur líka þennan anda. Barnið hefur áhuga á að líkja eftir þeirri gjöf sem það hefur fengið, þannig að þetta örvar bæði málþroska og frásagn- argleði barnsins.“ Ása Hlín segir frábært við þessa hugmyndafræði að hún knýi okkur til að taka ábyrgð, við höfum ekki tíma í dag, ætlum alltaf að redda okkur fyrir horn seinna,viljum kaupa lausnir í for- vörnum. ,,Við neitum oft á tíðum að taka ábyrgð á okkur sjálfum, lifa heilbrigðu lífi og vera góðar fyrir- myndir.“ Hvað framtíðina varðar segist Ása ekki viss um hvort hún fari til kennslu en hún hefur haldið nám- skeið og kennt leiklist í mennta- skólum. ,,Nú er ég komin með meira bakland og heildarsýn á allan pakk- ann, hvernig leiklist getur hjálpað okkur viðð allt, en er ekki bara ein- angrað fyrirbæri dægradvalar.“ Leiklist getur hjálpað við allt Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Líður vel Ása Hlín Svavarsdóttir ásamt tíkinni Perlu, en þeim líður afskaplega vel nálægt sjónum. Í HNOTSKURN »Ása Hlín Svavarsdóttirflutti á þessu ári úr 101 Reykjavík í Borgarnes. » Þar starfar hún hjá Land-námssetrinu en er auk þess að leikstýra áhuga- mannaleikhópi hjá Ung- mennafélaginu Íslendingi. » Nú er hún að setja uppleikritið ,,Maður í mislitum sokkum“ eftir Arnmund Back- man. » Þá hefur hún lagt stund áWaldorf-uppeldisfræði. Þórshöfn | Mikil stakkaskipti hafa orðið í verslunarmálum á Þórshöfn síðan verslunarkeðjan Samkaup opnaði hér matvöruverslun fyrir rúmum mánuði, eftir gjaldþrot verslunarinnar Lónsins. Óhætt er að segja að forsvars- menn Samkaupa hafi staðið við heit sín um endurnýjun á húsnæðinu því unnið hefur verið fram á nætur við uppsetningu á nýjum búnaði og miklar endurbætur gerðar á versl- unarrýminu, jafnt innan dyra sem utan. Það hefur því sannarlega birt yfir á Þórshöfn og ánægja er meðal íbúanna með að hafa fengið ágæta matvöruverslun með öflugan bak- hjarl á svæðið. Ásýnd verslunar- innar hefur gjörbreyst, ekki síður utandyra, þar sem líflega skreyttir veggir komu í stað grámyglunnar sem fyrir var. Þessi myndarlega Samkaup- Strax verslun hélt síðan upp á verk- lokin með því að bjóða upp á fjöl- breytt tilboð þar sem matvara af ýmsu tagi var á boðstólum á hag- stæðu verði. Forsvarsmenn versl- unarinnar létu ekki þar við sitja heldur sýndu þeir hug sinn til bæja- rfélagsins í verki með því að hugsa til yngstu íbúanna og styrktu for- eldrafélag Leikskólans Barnabóls um 250.000 krónur, einnig styrktu þeir nemendafélag 9. og 10. bekkjar grunnskólans. Samkaup gleymdu ekki bænd- unum og bjóða upp á fordrykk á uppskeruhátíð þeirra, Smalabit- anum, en þar er jafnan margt um manninn. Íbúar á Þórshöfn og nágrenni eru að vonum ánægðir með þessi um- skipti í verslunarmálunum og hafa tekið nýrri verslun fagnandi. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Nýjung Kristín Heiða Yngvadóttir verslunarstjóri í nýju búðinni. Mikil ánægja er á Þórshöfn með verslunina. Stakkaskipti í verslunarmálum á Þórshöfn Mývatnssveit | Baðfélag Mývatns- sveitar fagnaði í gær 60 þúsundasta gestinum á árinu, sem var Ólafur H. Jónsson formaður Landeigenda- félags Reykjahlíðar. Stefán Gunn- arsson framkvæmdastjóri Jarðbað- anna afhenti Ólafi af þessu tilefni ársmiða í böðin fyrir hjón ásamt gjafaöskju með snyrtivörulínu fyrir- tækisins. Að sögn Stefáns er þessi aðsókn framar öllum áætlunum og mikið fagnaðarefni. Hann segir útlend- inga vera um 52% gesta. Á síðasta ári var búningsaðstaða aukin með útiklefum og nú í vikunni verður ráðist í breytingar á lóninu sem miða að því að ráða betur við hita í því þegar vindur blæs. Þess vegna verður aðeins gufubaðið opið næstu viku. Annars eru böðin opin alla daga frá hádegi og til kl. 22. Til- koma baðanna hefur haft mjög já- kvæð áhrif á ferðamannastrauminn í Mývatnssveit. Þegar Ólafur H. Jónsson er spurður að því hvort ekki sé erfitt fyrir Reykhlíðinginn að fara í Vogaland til að baða sig segir hann það ekki vera. Hann býr í Reykjavík en stundar sundlaug á Seltjarnarnesi. Það er ekkert mál, segir Ólafur. 60 þúsund gestir hafa sótt Jarðböðin í ár Morgunblaðið/BFH Frítt inn Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna, afhenti Ólafi H. Jónssyni ársmiða í Jarðböðin þar sem hann var gestur nr. 60.000. LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.