Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG ÆTLA mér í þessu grein- arkorni að nota líkingamál til að koma á framfæri skoðun minni og fjölmargra skoðanabræðra og -systra sem hafa haft alltof hægt um sig að undanförnu und- ir stórskotahríð hvala- verndunarsinna í formi gegndarlauss áróðurs undanfarinna daga, þar sem öllum með- ulum er blygð- unarlaust beitt. Hreindýr eru fal- legar skepnur sem tengjast í hugum margra jólum og jóla- sveinum. Gefum okkur nú að klikkaður millj- arðamæringur, með jólamaníu, ákveði í ein- hverju flippi að bjóðast til að styrkja alþjóðleg náttúruverndarsamtök um einhverjar milljónir dollara gegn því að samtökin setji af stað öfluga her- ferð gegn hreindýraveiðum. Þor- steinn J. tæki sér ferð á hendur í að- alstöðvarnar í London til að eiga s.s. hálftíma viðtal við talsmann samtak- anna og á meðan væru í bakgrunn- inn sýnd myndbrot frá dauðastríði tignarlegs hreindýrstarfs sem orðið hefði fyrir lungnaskoti þar sem blóð- ið frussaðist í allar áttir í fjörbrotum þessarar fallegu skepnu. Trúlega myndu þeir Þorsteinn, rétt eins og í viðtalinu hans við forsvarsmenn Græningja í hvalaspjallinu, komast að sömu niðurstöðu og áður, það er m.ö.o. að enn væri slatti af skyn- sömu fólki á Íslandi, þótt stjórnvöld og sauðsvartur almúginn væru svo skyni skroppin að vera hlynnt sjálf- bærri nýtingu hvala og þar með hvalveiðum. Gefum okkur nú að upp komi sú staða að af ótta við að óhreinka tand- urhreina ímynd þjóðarinnar, og spilla þar með fyrir okkar mjög svo ört vaxandi ferðaþjónustu, teldu stjórnvöld sér þann kost vænstan að banna hreindýraveiðar og til að vera örugg um velþóknun alþjóða- samfélagsins myndu yfirvöld banna sam- tímis veiðar á ref og mink. Líklegur kandí- dat sem umhverf- isráðherra á þessu tímaskeiði gæti t.d. verið Mörður Árnason. Gefum okkur enn- fremur að þetta ástand myndi vara í tuttugu ár. Hvernig væri þá ástandið? Hreindýrið, sem við skulum kalla fulltrúa langreyð- arinnar meðal landdýr- anna, rásaði um landið í risastórum, hungruðum hjörðum sem virkuðu líkt og engisprettufaraldur á náttúr- una. Refurinn, sem er ágætur stað- gengill hnúfubaksins, væri búinn að rústa allt jafnvægi milli dýrateg- unda í náttúru landsins og mink- urinn, sem gæti sómt sér vel sem fulltrúi hrefnunnar meðal landdýra, sæi um það sem upp á vantaði til að fullkomna það niðurbrot sem átt hefði sér stað í íslenskri náttúru. Þetta er sú staða sem auðveldlega má yfirfæra til baka til ástandsins í hafinu umhverfis landið þar sem ört vaxandi ójafnvægi í lífríki hafsins er staðreynd. Hjörleifur Guttormsson gerði lítið úr upplýsingum Hafrann- sóknastofnunar um það magn sem hvalir ætu á Íslandsmiðum, aðallega vegna þess að þær væru gamlar og þar af leiðandi óáreiðanlegar. Ég tek undir með Hjörleifi gagnvart því að upplýsingarnar eru gamlar og mætti gjarnan uppfæra þessar tölur til samræmis við það ástand sem við búum við um þessar mundir. Miðað við lýsingar félaga minna á sjónum þar sem þeir nota nú á tímum sömu viðmiðun á þéttleika hvala á mið- unum og LHG notar um þéttleika íss á siglingaleiðum, þá er næsta víst að ný athugun leiddi í ljós að magnið sem hvalir tækju til sín á ári væri verulega meira en þær sex milljónir tonna sem gögn stofnunarinnar gefa nú til kynna. Það er með hreinum ólíkindum hvernig ýmsir fjölmiðlar, ekki síst þeir opinberu, hafa und- anfarna daga ausið gegndarlausum hvalverndunaráróðri yfir þjóðina þar sem, með örfáum frávikum, er ekki gerð minnsta tilraun til þess að koma á framfæri áherslum og skoð- unum þess mikla meirihluta sem vill að við stuðlum með gerðum okkar að jafnvægi í lífríki hafsins með sjálf- bærri nýtingu þeirra sjávardýra sem lifa innan efnahagslögsögu okk- ar. Persónulega finnst mér tíma- bært að þeir stjórnmálamenn, sem innan skamms taka þátt í próf- kjörum sinna flokka, opinberi skoð- anir sínar á þessum málaflokki með sama hætti og Mörður, sem svo sannarlega hefur á sínum tíma verið skírður réttu nafni. Hvað ef hreindýr væru af hvalastofni? Árni Bjarnason skrifar um hvalveiðar » Það er með hreinumólíkindum hvernig ýmsir fjölmiðlar, ekki síst þeir opinberu, hafa undanfarna daga ausið gegndarlausum hval- verndunaráróðri yfir þjóðina Árni Bjarnason Höfundur er forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. TALSVERÐ umræða hefur skapast um breyttar áherslur eftir kosningarnar í vor, þegar Á- listinn steypti meirihluta sjálf- stæðismanna eftir áralanga valda- setu. Nú er öldin önnur, nýja bæj- arstjórnin tekur bæði faglega og rösklega á málum, beitir lýðræð- islegum vinnubrögð- um og kemur fram með nýjar og ferskar áherslur. Í síðustu viku var afgreidd til auglýsingar keppn- islýsing vegna arki- tektasamkeppi um miðsvæðið. Bæj- arfulltrúar D-listans fullyrða ranglega og gegn betri vitund, að Á-listinn hafi lofað íbúakosningu um skipulagið. Það er rangt, staðreyndin er að bæjarfulltrúum Á- listans var frá upp- hafi ljóst að þau drög að skipulagi mið- svæðisins sem D- listinn lét vinna, voru engan veginn í takt við þær hug- myndir sem fram höfðu komið á íbúaþingum og fengu því ekki hljómgrunn hjá íbúunum. Um jól- in kom fram áskorun frá yfir 700 einstaklingum sem studdu sam- tökin Betri byggð, áskorun um að kallað yrði eftir fleiri valkostum að þessu mikilvæga deiliskipulagi. Það gerði D-listinn ekki og op- inber viðbrögð þeirra voru í orði að fresta framkvæmd deiliskipu- lagsins fram yfir kosningar. Á borði var þessi dapurlega tillaga hins vegar fullunnin, sett á geisla- disk og í glansumbúðir, borin í hús af oddvita D-listans, bæj- arstjóranum sjálfum og send skipulagsyfirvöldum til auglýs- ingar mínútu fyrir kosningar. Því fólki, sem þannig bæði hunsaði og afskrifaði kröfuna um fleiri val- kosti, finnst nú skyndilega kominn tími til samráðs og sendir vikulega út skáldlegt fjölritað dreifibréf og reynir af vanmætti að hóa saman liði til að rukka um íbúakosningar. Öðruvísi mér áður brá. Faglegri og lýðræðislegri vinnubrögð Nýr meirihluti setur fag- mennsku í fyrsta sætið og hefur því fengið Arkitektafélag Íslands til samstarfs um framkvæmd arki- tektasamkeppninnar sem lofað var í kosningabaráttu Á-listans í vor. Við fylgjum þeim kröfum og reglum sem Arkitektafélagið setur sér. Reglurnar kveða á um að dómnefnd dæmi um þær tillögur sem fram koma í samkeppninni. Við höfum að sjálfsögðu komið allri þeirri góðu hugmyndavinnu á framfæri sem unnin hefur verið á íbúaþingum síðustu misseri og á nýafstöðnum fjölmennum íbúa- fundi sem var skipulagður af ráð- gjafafyrirtækinu ALTA. Það er ánægjulegt að tveir þeirra sem koma að vinnuferli samkeppninnar skuli vera meðal virtustu arkitekta hér á landi og að báðir eigi sér djúpar rætur á Álftanesinu. Nýr meirihluti velur þá leið að kalla eftir samstarfsaðilum til upp- byggingar á miðsvæðinu. Margir hafa sýnt áhuga og þegar hafa verið gerðir rammasamningar við nokkra aðila. Því miður er bæj- arstjórn bundin af slæmum ráð- stöfunum sem gerðar voru af D- lista rétt fyrir kosningar. Uppbygging íbúða fyrir aldraða Misskilnings gætir víða vegna rangfærslna bæjarfulltrúa D- listans varðandi fyrirhugaða upp- byggingu íbúða fyrir aldraða. Fyrra skipu- lag gerði ráð fyrir um 140 íbúðum. Þar var reiknað með 106 íbúð- um ætluðum öldruðu fólki og það húsnæði hugsað sem einskonar elliheimili. Nú er fyr- irhugað að gera ráð fyrir 50–70 íbúðum. Stór hluti þeirra mun henta fólki 55+, fólki á seinni hluta starfs- ævinnar eða nýlega komnu á eftirlaun. Um 20 íbúðir verða hannaðar m.t.t þarfa þeirra sem elstir eru og þurfa meiri þjón- ustu. Þá hefur verið reiknaður út kostn- aður við íbúðir miðað við 20 milljóna króna eign. Kostnaður við Eiraríbúðirnar sem áður voru fyr- irhugaðar, var útreiknaður um 155 þús. á mánuði. Hinsvegar er kostnaður t.d. við Búsetaíbúðir helmingi lægri eða um 70 þús. Þá er allur kostnaður og fjármagns- tekjur reiknaðar, svo og skattar og skerðingar. Þá hefur bæj- arstjórn lofað að auka og bæta heimaþjónustu við eldri borgara og er að skoða nýjungar í þeim efnum, s.s. tæknilega aðstoð við lagfæringar og breytingar á hús- næði eldri borgara. Betri bær Ferskur blær og lýðræðislegir straumar einkenna nýjan meiri- hluta. Fyrstu verk okkar voru að útvega lausar kennslustofur til að tryggja nægjanlegt kennslurými fyrir haustið og að undirbúa útboð á máltíðum fyrir skólabörnin. Mik- il ánægja ríkir nú um skólamáltíð- irnar, þátttaka barnanna hefur meira en þrefaldast frá síðasta ári. Í öllu sínu uppbyggingarkapp- hlaupi virðist fráfarandi meiri- hluta ekki hafa verið sú einfalda staðreynd ljós, að barnið vex en brókin ekki. Á meðan leitar stýri- hópur um framtíðaruppbyggingu skólans, í samvinnu við fjölda leikra sem lærðra, að húsnæð- islausnum sem duga til frambúðar. Foreldragreiðslur eru orðnar að veruleika, leikskólagjöld hafa ver- ið lækkuð og verið er að leita leiða til að tryggja stöðuleika í starfs- mannahaldi leikskólanna. Fjöl- skyldudagur með hátíðahöldum vegna stækkunar íþróttahússins er nýliðinn og nú þegar er farið að vinna að hugmyndum um nýja sundlaug og bætta íþróttaaðstöðu. Búið er að tryggja að golfvöllurinn fái að vera á sínum stað næstu 6 árin og verið er að skoða með að sveitarfélagið kaupi allt landið. Í dag geta allir sem áhuga hafa fylgst með bæjarstjórnarfundum sem nú eru á neti Álftaness, enda höfum við ekkert að fela. Ég skora á Álftnesinga að fylgjast vel með framvindu mála og vita hvað er satt og rétt. Til hamingju Álftanes Kristjan Sveinbjörnsson fjallar um málefni Álftaness Kristján Sveinbjörnsson » Ferskurblær og lýð- ræðislegir straumar ein- kenna nýjan meirihluta. Forseti bæjarstjórnar og þátttakandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Sagt var: Ég held að þetta hvorutveggja sé gott. RÉTT VÆRI: ...að þetta hvorttveggja sé gott. HINS VEGAR VÆRI RÉTT: Ég hef trú á hvorutveggja. Gætum tungunnar NÚ MÁ ætla að Davíð Oddsson halli sér kátur og glaður aftur í seðla- bankastjórastólnum og renni daglega hýru auga yfir helstu fjölmiðla lands- ins. Sér í lagi þegar svo er komið að það sem hann upp- nefndi „baugsmiðil“, sumsé Fréttablaðið, er farið að hæla Birni Bjarnasyni, höfundi hugtaksins „baugsmið- ill“, í hástert í leiðara. Spurning hvort Davíð sæi nú ástæðu til að fara í fjölmiðlastríð, nú þegar svo komið á Ís- landi að örfáir aðilar eiga fjölmiðla landsins og allir þeir helstu eru vilhallir Sjálfstæð- isflokknum? Enginn þarf að velkjast í vafa um hver á 365 miðla. Allir þekkja greinina „Kæri Jón“. Jón þessi á alla þá miðla og þrátt fyrir erjur við gömlu valdaklíku Sjálfstæðisflokksins eru nú allir miðl- ar Jóns undir handleiðslu Flokksins. Ari Edwald er forstjóri, Þorsteinn Pálsson, skrifar leiðarana og Björg- vin Guðmundsson finnur til ásamt Geir H. Haarde í stormum sinnar tíð- ar með Birni Bjarnasyni. Óprúttnir menn Ríkisútvarpið er ríkisstjórnarfjöl- miðill. Og hver stjórnar stjórninni nema Sjálfstæðisflokkurinn? Mér var kennt það sem fréttamanni á sjón- varpi að sjónvarpsfrétt skyldi eigi vera lengri að meðaltali en u.þ.b. ein og hálf mínúta. Í mesta lagi þrjár til fjórar þegar um stórfrétt var að ræða. Um daginn birti ríkissjón- varpið hins vegar tíu mínútna bút úr halelúja-ræðu Geirs H. Haarde, for- manns Flokksins, eins og um sögu- legan stórviðburð væri að ræða. Ræðu þar sem Geir talaði um meinta aðför og ofsóknir óprúttinna manna á hendur Birni vini sínum Bjarnasyni og Morg- unblaðinu. Og svo er það Mogginn. Þegar hann var einvaldur á markaði gaf hann öðr- um flokkum og sjón- armiðum sæmilegan sjens. En nú er hann aftur að verða málgagn Flokksins. Það er helst að Blaðið sýni merki hlutleysis og fari á stundum sínar eigin leiðir þótt það heyri til sömu auðmönnum og eiga Moggann. Uppúr stendur að Davíð Oddsson hafði lög að mæla þegar hann vildi koma í veg fyrir að örfáir auðmenn gætu eignast fjölmiðla landsins. Frumvarp hans var meingallað og sett fram af annarlegum ástæðum. Vegna óbeitar sinnar á „óprúttnum“ mönnum. Lög um eignarhald á fjöl- miðlum áttu og eiga sem aldrei fyrr rétt á sér. Þessu hélt ég statt og stöðugt fram í pistlum mínum í DV þegar málið tröllreið samfélaginu og var að end- ingu kaffært af forseta vorum. Í flest- um nágrannalöndum okkar gilda reglur sem leitast við að koma í veg fyrir að stórfyrirtækjasamsteypur, auglýsendur og stjórnmálaflokkur eignist helstu fjölmiðla og nýti þá til að tryggja og efla völd sín á kostnað keppinauta sem og almennings alls. Er Davíð sammála? Það er vonandi að það frumvarp sem nú er til umræðu á Alþingi miði að því að tryggja dreift eignarhald á fjölmiðlum, gagnsæi og ritstjórn- arlega ábyrgð með fagmennsku að leiðarljósi. Frumvarp sem komi í veg fyrir að fyrirtæki með markaðs- ráðandi stöðu geti nýtt sér fjölmiðla til að efla þá stöðu sína og beita þeim gegn smærri keppinautum á mark- aði. Frumvarp er komi í veg fyrir að einn flokkur geti beitt fjölmiðlum gegn andstæðingum sínum. Og helst þyrfti að bæta við klausu er bannaði Sjálfstæðisflokknum að ráða ölllum fjölmiðlum. En það er víst borin von. Fjölmiðlar eru fjórða valdið og því er bráðnauðsynlegt að hægt sé að treysta þeim til að fjalla um menn og málefni af hlutleysi og fagmennsku. Davíð Oddssyni er væntanlega skemmt þar sem hann situr í pen- ingamusterinu og les fjölmiðla þjóð- arinnar, sem nær öllum er ritstýrt af trúnaðarmönnum Sjálfstæðisflokks- ins. Ætli hann sé ekki fyrir löngu bú- inn að gleyma því hvers vegna hann fór hamförum við að knýja fram frumvarp til laga á Alþingi, sem átti að tryggja dreifða eignaraðild á fjöl- miðlum? Kannski hann hugsi sem svo: Nú skyldi ég hlæja væri ég ekki (pólitískt) dauður. Hverjir eiga fjöl- miðlana, Davíð? Glúmur Baldvinsson skrifar um fjölmiðla á Íslandi » Fjölmiðlar eru fjórðavaldið og því er bráðnauðsynlegt að hægt sé að treysta þeim til að fjalla um menn og málefni af hlutleysi og fagmennsku. Glúmur Baldvinsson Höfundur er alþjóðastjórnmálafræð- ingur og sækist eftir 5. til 8. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar vegna komandi Alþingiskosninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.