Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja-vík kemur sterkur út úr próf-kjöri sínu, sem lauk á laug- ardag. Þátttaka í prófkjörinu var mikil. Yfir 10.000 manns kusu, sem er yfir helmingur þeirra sem voru á kjörskrá, þannig að niðurstaðan er bindandi hvað efstu sæti framboðs- listanna í Reykjavíkurkjördæmun- um varðar. Geir H. Haarde, formaður Sjálf- stæðisflokksins, fær gríðarlega góða kosningu, um 89% atkvæða í 1. sæt- ið, sem vafalítið styrkir stöðu hans, bæði innan flokksins og út á við í embætti forsætisráðherra. Einn helzti kostur prófkjörsað- ferðarinnar við að velja á framboðs- lista er að þannig eru meiri líkur á endurnýjun en ef uppstillingarað- ferð væri beitt. Þannig náði nýtt fólk athyglisverðum árangri í prófkjör- inu. Engu að síður féll enginn þing- maður flokksins, sem sóttist eftir endurkjöri, úr öruggu þingsæti að ætla má. Að því leyti er þetta líka já- kvæð niðurstaða fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Hins vegar hafa prófkjörin sjaldn- ast skilað því að hlutfall kynjanna sé því sem næst jafnt á framboðslista. Prófkjör sjálfstæðismanna fyrir síð- ustu borgarstjórnarkosningar var reyndar undantekning í þeim efnum, en í þetta sinn tókst ekki að end- urtaka leikinn. Hlutur kvenna í þessu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er reyndar mun betri en í prófkjörinu, sem fram fór fyrir fjórum árum. En þótt í tólf efstu sætunum séu fimm konur, eru fjórar þeirra á neðri helmingi listans, þar af þrjár í 10–12. sæti. Það er umhugsunarefni hvernig hægt er að gera prófkjörin aðgengi- legri fyrir konur. Takmarkanir á þeim fjármunum, sem varið er til prófkjörsbaráttunnar, hljóta að koma til greina. Rök hafa verið færð fyrir því að m.a. vegna minni tengsla kvenna en karla við viðskiptalífið hafi þær síðri aðgang að fjármunum til að fjármagna prófkjörsbaráttu. Efstu sæti framboðslista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavíkurkjör- dæmunum verða skipuð fólki á tals- vert breiðu aldursbili. Ungt fólk fékk mikinn framgang í þessu próf- kjöri. Segja má að í prófkjörinu hafi komið í ljós ný kynslóð, sem býr sig undir að taka við forystunni í flokkn- um einhvern tímann á næsta áratug. Gera má ráð fyrir að fulltrúar sömu kynslóðar nái góðum árangri í próf- kjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi. Þetta er öflug sveit, sem mun taka við þessum stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar. Á HVAÐA LEIÐ? Sú var tíðin, að hægt var að líta upptil Bandaríkjanna. Þar var barizt fyrir hinum fegurstu hugsjónum. Þar var frelsið sett á oddinn. Þar voru mannréttindi í heiðri höfð, þótt við og við hefðu augljóslega komið upp tímabil í bandarískri sögu, þar sem þau voru virt að vettugi. Hápunkturinn í hugsjónabaráttu Bandaríkjamanna á síðustu rúmlega hálfri öld hefur vafalaust verið ann- ars vegar framganga Bandaríkja- manna til þess að bjarga Evrópu und- an kúgun nazismans og kommúnismans og hins vegar valda- tíð John F. Kennedys, sem einkennd- ist af háleitum hugsjónum, þótt Ken- nedy sjálfur væri vissulega ekki heilagur maður. Friðarsveitirnar, sem skipaðar voru ungu fólki og Kennedy sendi um heim allan til þess að hjálpa fátæku fólki voru hugsjóna- barátta. Hin stórkostlega ræða Kennedys í Berlín, þegar hann ávarpaði hálfa milljón manna í borginni og sagði að sérhver frjáls maður væri borgari Berlínar – Ich bin ein Berliner – skapaði eldmóð í brjóstum ungmenna um allan heim. Hvað hefur komið fyrir þetta ríki, sem átti sér svo háleitar hugsjónir og glæsta leiðtoga? Í Morgunblaðinu í gær er sagt frá ummælum Cheneys, varaforseta Bandaríkjanna, sem jafnframt er annar mesti valdamaður í Bandaríkj- unum, en það á sjaldnast við um þá sem gegna embætti varaforseta, um pyntingar. Varaforsetinn var spurð- ur í útvarpsviðtali fyrir nokkrum dögum, hvort hann væri því sam- þykkur að dýfa höfði manns ofan í vatn ef með þeim hætti væri hægt að neyða þann hinn sama til að veita upplýsingar. Svar hans var þetta: „Það er ekkert tiltökumál fyrir mig. Við erum auðvitað bundnir al- þjóðasamningum en sannleikurinn er sá, að það er unnt að beita ýmsum kraftmiklum yfirheyrsluaðferðum og það eigum við að geta gert.“ Þetta er einn helzti leiðtogi Banda- ríkjanna sem svona talar. Hvenær villtist þessi þjóð af réttri leið? Hve- nær hætti hún að vera tákn fyrir há- leitar hugsjónir en fór í þess að vinna með sama hætti og andstæðingar hennar hafa gert og forystumenn hennar hafa fordæmt? Hvenær breyttust Bandaríkin í andhverfu sína? Það er bara eitt afl til í Bandaríkj- unum, sem getur breytt þessari veg- ferð. Það er fólkið sjálft. Kjósendur í Bandaríkjunum geta sett þá frá völd- um, sem hafa leitt þessa miklu þjóð í ógöngur og sett aðra í þeirra stað, sem treystandi er til að halda á lofti baráttu fyrir mannréttindum og frelsi um allan heim. Bandaríkja- menn þurfa að endurskoða frá grunni samskipti sín við aðrar þjóðir. Schröder, fyrrverandi kanslari Þýzkalands, segir að Bush líti svo á að hann þiggi vald sitt frá Guði. Það eru varasamir stjórnmálamenn, sem eru með Guð á vörunum dag hvern. Enn er það svo að stjórnmálamenn, sem kjörnir eru í lýðræðislegum kosningum sækja vald sitt til fólks- ins. Nú er kominn tími til fyrir hinn almenna borgara í Bandaríkjunum að beina ríkinu inn á réttar brautir. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is RÚMLEGA helmingur eða 50,88% þeirra sem eru á kjörskrá Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík greiddu atkvæði í prófkjöri flokks- ins á föstudag og laugardag. Kosn- ingin er því bindandi að því leyti að kjörnefnd er skylt að gera tillögu til fundar fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík um að listinn verði skipaður í samræmi við nið- urstöður prófkjörsins, enda hafi frambjóðendur hlotið meira en 50% fylgi í eitthvert sæti listans. Þetta á við um ellefu efstu menn á listanum. Góð kosning formanns Geir H. Haarde, formaður Sjálf- stæðisflokksins, hlaut afar góða kosningu í 1. sæti í prófkjöri flokks- ins í Reykjavík en hann hlaut 88,8% af gildum atkvæðum í það sæti, sem hann sóttist einn eftir. Til saman- burðar má geta þess að í prófkjör- inu árið 2002 hlaut Davíð Oddsson 84,24% atkvæða í 1. sætið og Geir hlaut 82,94% í 2. sætið. hafnaði í þriðja sæti í próf með 4.506 atkvæði. Gríðargóður árangur tveg liða, þeirra Guðfinnu Bjarn rektors Háskólans í Reykja Illuga Gunnarssonar hagfr vekur athygli. Guðfinna var 4. sæti með 4.256 atkvæði og Guðlaugur Þór Þórðarson sem kom nýr inn á þing árið 2003 hlaut afgerandi kosningu í 2. sætið um helgina, hlaut 5.071 atkvæði en hans helsti keppinautur, Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og þingmaður Reykvíkinga til 15 ára fékk 3.858 atkvæði í það sæti. Björn Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík Niðurstaðan binda rúmlega helmingu     &    * & ##+, +    ,   - -  ./ .   0   .  1     ./  2  /   3  3  . 2,   2      4/ 3  56   7#  8 #   ! ' + & ( ) *   "          !"#$ -    .                       9! "               9 "  9 "            "        9   0" #$" GRAZYNA María Ok- uniewska hjúkr- unarfræðingur lenti í 12. sæti í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Reykjavík og sagðist hún vera afar ánægð með þá niðurstöðu. Hún sagðist hafa rekið prófkjörs- baráttuna með öðrum hætti en marg- ir aðrir, hefði engan haft í vinnu og ekki opnað sérstaka skrifstofu. Í stað- inn hefði hún farið á fundi og á vinnu- staði og skrifað greinar í dagblöð. Það hefði verið sama hvert hún hefði far- ið, allir hefðu tekið henni mjög vel og þátttakan í prófkjörinu hefði verið mjög ánæguleg. Grazyna María Okuniewska Ánægð með niðurstöðuna PÉTUR H. Blön- dal alþing- ismaður sagði að listinn sem hefði komið fram í prófkjörinu væri sterkur en því væri á hinn bóg- inn ekki að neita að hann hefði orð- ið fyrir ákveðnum vonbrigðum með að hafa lent í 6. sæti en hann stefndi á það þriðja. Í prófkjörinu fyrir al- þingiskosningarnar 2002 lenti Pétur í 4. sæti. Pétur sagði að þessi úrslit hefðu komið sér nokkuð á óvart og honum hefði fundist sem menn hefðu betur kunnað að meta fundina sem hann stóð fyrir og málefnalega umræðu. „En þetta er vilji kjósenda, sjálf- stæðismanna í Reykjavík, og auðvit- að hlítir maður því,“ sagði hann. Spurður um hugsanlegar skýringar á því að hann komst ekki ofar á listann benti Pétur á að mikið hefði verið um úthringingar en sjálfur hefði hann ekki beitt þeirri aðferð. Aðspurður um hlut kvenna á listan- um sagði Pétur að ræst hefði úr hon- um og miðað við fjölda kvenna sem buðu sig fram væri niðurstaðan þokkaleg þó að auðvitað vildi hann sjá meira jafnræði á listanum. Pétur H. Blöndal Ákveðin vonbrigði ÞEGAR fyrstu tölur í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík voru lesnar upp rétt eft- ir klukkan 18 á laug- ardagskvöld, varð Guðfinna S. Bjarnadóttir í fyrstu undrandi en síðan vék sú tilfinning fyr- ir þakklæti í garð stuðnings- manna, sagði Guðfinna í sam- tali við Morgunblaðið. Guðfinna lenti í 4. sæti í próf- kjörinu, því fyrsta sem hún tekur þátt í. Guðfinna tók sér launalaust leyfi frá störfum sínum sem rektor Háskólans í Reykjavík 1. október og hefur síðan unn- ið að framboði sínu. Hún sagðist hafa fundið mikla og góða strauma í garð fram- boðsins en vegna reynsluleys- is á þessu sviði hefði hún átt erfitt með að gera sér grein fyrir hvar hún stæði í raun. Gegnir ekki þingmennsku og starfi rektors samtímis Aðspurð um listann í heild sagði Guðfinna að hann væri afar sterkur. Hún hefði þó viljað sjá fleiri konur á listan- um en á hinn bóginn mætti benda á að mun færri konur en karlar hefðu gefið kost á sér. 19 manns hefðu verið í framboði, þar af tólf karlar og sjö konur. Þá hefðu það verið mikil tíðindi að Guðlaugur Þór Þórðarson hefði náð af- gerandi kosningu í for- ystusæti í öðru kjördæminu. Það væri mjög spennandi fyr- ir hana og Illuga Gunnarsson að koma ný inn í svo sterk sæti. Guðfinna tekur aftur við starfi rektors í dag og sagði hún að ákvörðun um næstu skref varðandi störf hennar fyrir skólann væri í höndum háskólaráðs. Það væri alveg ljóst að hún myndi ekki gegna þingmennsku og starfi rekt- ors á sama tíma. Guðfinna S. Bjarnadóttir Átti erfitt með að meta stöðuna fyrirfram SIGRÍÐU hildur And er ánægð m sætið þó hú hefði rauna stefnt á 5.– í prófkjöri stæðisflokk Reykjavík. benti á að f hefðu stefnt á sæti ofar á lista en þeir síðan náðu. „Fyrir ung manneskju eins og mig sem er bjóða sig fram í fyrsta sinn, er innan þeirra marka sem ég ge fyrir. Og þetta er öruggt þing Aðspurð hvort úrslitin í slagn 2. sætið hefðu komið henni á ó sagði hún að mjög erfitt hefði að meta stöðuna í aðdraganda kjörsins. Þá hefði Björn fengi góða kosningu í 3. sæti. Sigríður benti á að kæmist Alþingi, sem allar líkur væru á það í fyrsta skipti í 50 ár sem k úr ungliðahreyfingunni í Reyk tæki þar sæti. Þá hefðu menn fá talsmann hinnar klassísku s stæðisstefnu á listann. Sigríður Á. Andersen Innan marka sem gert var ráð fyrir GEIR H. H stæðisflokk inn var í pr sterkan og telur ekki a verið harða „Ég tel a sterkur list og við munu urstrangleg Reykjavíkurkjördæmunum. H ég mjög ánægður með þessi úr við Morgunblaðið, en hann hlau í 1. sæti og tæplega 96% í heild Geir sagði að á listanum vær reynslu í stjórnmálum og nýju dóttir og Illugi Gunnarsson hef kosningu og þeir sem kæmu ný góða kosningu. Hið sama mætt „Ég tel að þetta sé mjög góð by baráttu sem mun standa næstu Aðspurður sagðist hann ekk að prófkjörsbaráttan hefði veri frábrugðin nú en áður. „Það he svona prófkjörum, til dæmis fy Geir H. Haarde, formaðu Góð byrju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.