Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 31
veikst svo skyndilega um nóttina og lítil von um bata. Hún andaðist þenn- an sama dag á Hrafnistu í Hafnar- firði, þá 79 ára að aldri. Við vitum aldrei hver er næstur og minnir það okkur óþyrmilega á að rækta vel samband við vini og kunn- ingja því stundum er það of seint. Við kynntumst fyrst þegar ég sem ung stúlka kom til Reykjavíkur. Strax myndaðist mikil vinátta sem hélst til síðasta dags. Ég man þegar ég sá Siggu fyrst. Hún var stórglæsileg kona með sólgyllt hár og bjarta húð. Já, hún Sigga skar sig úr hvar sem hún kom. Hún var kát kona að eðl- isfari og hafði mikinn húmor Hún naut sín aldrei betur en með ungu hressu fólki svo ekki sé talað um ef söngurinn var annars vegar Oft var kátt í sumarbústaðnum með Siggu og Óla við söng og gítarspil. Sigga átti því láni að fagna að giftast öndveg- ismanni, Ólafi Karvelssyni . Þau voru mjög samheldin og gerðu svo margt skemmtilegt saman, t.d. allar utan- landsferðirnar sem þau nutu til hins ýtrasta. Þegar ég kynntist Siggu áttu þau heima í Rauðagerði þar sem þau höfðu búið sér glæsilegt heimili þar sem allt var eftir vissum nótum og huggulegt í alla staði, enda var Sigga smekkleg, hvort sem átti að velja inn- anstokksmuni eða fatnað. Seinna fluttu þau á Kleppsveginn og þar eins og áður allt jafn smekklegt og snyrti- legt hjá þeim hjónum. Það var viss regla að heimsækja eins oft og hægt var, enda höfðingjar heim að sækja. Sigga bjó líka til þær bestu kökur sem ég hef smakkað og var í alla staði myndarleg við matargerð. Um saumaskapinn vildi hún sem minnst ræða en gerði stólpagrín að sjálfri sér ef talað var um prjónaskap eða saumaskap, sagði að það væri ekki sín lína eins og hún orðaði það. Fyrr á árum starfaði Sigga í Kven- félaginu Öldunni og var gerður heið- ursfélagi þar fyrir nokkrum árum. Hún vann um tíma í versluninni „Hjá Báru“ og naut hún sín mjög vel við þau störf enda viðskiptalega sinnuð kona. Sigga var mjög góður brigdespilari og fyrr á árum voru alltaf bridge- kvöld annað slagið heima hjá Siggu. Hún hafði ómældan áhuga á stjórn- málum, vann mikið að því, sérstak- lega fyrir kosningar, og hafði af þessu mikla ánægju. Fyrir hönd barna sinna, þeirra Dóru og Bjössa, og barnabarnanna, þeirra Erlu og Óla Sig, hafði hún mik- inn metnað. Hún vildi veg þeirra sem mestan og að líf þeirra gæti verið hamingjuríkt. Ég vil með þessum orðum kveðja mína góðu vinkonu og þakka af alhug öll árin sem við höfum átt saman. Þau hafa verið mér ómetanleg. Elsku Sigga mín. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Elsku Dórý, Óli, Erla og aðrir að- standendur. Megi góður guð styrkja ykkur. Ásrún Zóphóníasdóttir (Áa). Sigga, vinkona ömmu Gunnu, er nú látin eftir langvinn veikindi. Sigga og Óli voru alltaf sem hluti af fjölskyld- unni og gladdi það okkur alltaf að hitta þau við ýmis tækifæri. Efstar í huga eru minningar frá vetrinum sem Sigga passaði okkur systurnar meðan móðir okkar var í námi. Hún tók á móti okkur eftir skóla, gaf okkur að borða og hugsaði vel um okkur. Hún passaði upp á að allt væri snyrtilegt og fínt og lagði mikið upp úr því að við löguðum til eftir okkur. Þessi aðstoð Siggu var mömmu og pabba mikils virði og við kynntumst henni betur en ella, sem er okkur dýrmætt. Hún minntist ávallt þessa tíma er við hitt- um hana í seinni tíð. Sigga var einstaklega góð, hjálp- söm og hjartahlý kona sem vildi öllum vel og lét sér annt um sína nánustu. Þau hjónin sýndu sérstaka mann- gæsku er þau tóku að sér Bjössa, tveggja ára son Ellu ömmusystur okkar, er hún lést af slysförum. Sýnir það best hjartalag þeirra hjóna, og reyndust þau honum einstaklega vel. Þótt heilsan væri ekki alltaf góð lét hún það ekki aftra sér frá því að njóta lífsins, og ferðuðust þau Óli bæði inn- anlands og utan. Hennar missir var mikill þegar Óli féll frá og síðustu misserin hrakaði heilsu hennar. Í sumar lá Sigga á sömu deild og amma Gunna á Landspítalanum, en þær gátu aðeins vinkað hvor til annarrar vegna sýkingarhættu. Þótti okkur táknrænt að þær skyldu liggja þarna saman og kveðja þennan heim með aðeins þriggja mánaða millibili. Við minnumst góðrar konu. Megi Guð styrkja hennar nánustu á þess- um erfiðu tímum. Guðrún, Guðlaug og Elísabet Júlíusdætur. Í dag þegar minnst er látinnar vin- konu streyma fram minningar sem tengjast yngri árum okkar og alla tíð síðan. Sigríður Sigurðardóttir átti æsku- heimili á Lindargötu 42 í grennd við æskuheimili mitt á Vatnsstíg 9. Sam- gangur Siggu við dætur föðurbróður míns á Vatnsstíg 9A var kær, sérstak- lega voru Erla yngri dóttir hans og Sigga miklar vinkonur. Það kom að því að Ólafur Karvels- son og Sigga felldu hugi saman og fluttu í önnur hverfi. Síðar fluttu þau að Kleppsvegi 136, rétt hjá mínu heimili og þá hófst mikill vinskapur milli okkar. Ég var tíður gestur á heimili þeirra, en þar var mikil gest- risni og ætíð allir velkomnir þangað. Sigga var afar gjafmild manneskja og hlý. Fyrir nokkrum árum fluttu þau í Árskóga og var dvölin þar stutt fyrir Óla, en hann var orðinn mikið veikur. Lífið var ekki alltaf auðvelt hjá Siggu minni og eftir andlát Óla urðu mikil kaflaskipti hjá henni eins og gefur að skilja. En Sigga átti í gegnum tíðina og til hinstu stundar ákaflega góðar og tryggar vinkonur, sem reyndust henni einstaklega vel. Við eigum eftir að sakna Siggu, glaðværrar vinkonu okkar, en sárastur er söknuður nán- ustu ættingja hennar. Hvíli hún í friði. Sigrún Þórarinsdóttir. Þegar ég hugsa til baka um hana Sigríði Sigurðardóttur vinkonu mína, eða Siggu mágkonu eins og hún var ævinlega kölluð í minni fjölskyldu, sé ég fyrir mér góða konu með stórt hjarta. Fyrstu kynni okkar urðu þegar hún kom til Ísafjarðar á sjötta ára- tugnum þegar Ólafur Karvelsson maður hennar réðst sem skipstjóri á togarann Ísborgu. Það hafa eflaust verið viðbrigði fyrir borgarbarnið að fara út á land en þar var henni vel tek- ið. Tengdafólk hennar var úti í Hnífs- dal og á Ísafirði og því ekki langt fyrir hana að leita frænda og vina enda hún ólöt við að heimsækja ættingjana. Við Sigga áttum löng samtöl á stundum en hún hafði gaman af að spjalla og vildi ræða málin til hlítar og vita hvað var framundan. ,,Ég vil vita hvað börnin hennar Lóu minnar eru að gera,“ sagði hún. En Sigga og Óli voru ekki lengi á Ísafirði og lá leiðin þá aftur til Reykjavíkur þar sem við hittumst eft- ir að mín fjölskylda flutti þangað einnig. Hún var fastur punktur í öll- um fjölskylduboðum með sitt fólk. Sigga var mjög áhugasöm um fram- gang sjálfstæðisstefnunnar og Sjálf- stæðisflokksins og tók virkan þátt í kosningabaráttunni og vann fyrir flokkinn á kjörstað og á skrifstofunni margar kosningar. Það var alltaf gott að hitta hana Siggu og var bjart yfir henni í sumar þegar hún var að flytja í íbúðina sína á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún hafði beðið lengi eftir þessum degi og hlakkaði því mikið til veru sinnar á nýjum stað. Dvöl hennar á Hrafnistu varð þó styttri en til stóð. Þær eru góðar minningarnar sem fylgja henni Siggu. Ég og fjölskylda mín vottum aðstandendum hennar öllum okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning Sigríðar Sig- urðardóttur. Kristján Pálsson.  Fleiri minningargreinar um Sig- ríði Sigurðardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Helga Kristín Claessen, Gunnlaugur Claessen. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 31 ✝ Anton KristinnJósson fæddist í Bolungarvík 8. sept- ember 1924. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri hinn 23. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Margrét Guðmunds- dóttir húsmóðir, f. 7. febrúar 1891, d. 15. október 1951, og Jón Valdemar Bjarnason sjómað- ur, f. 29. september 1888, d. 20. apríl 1963. Anton var næstyngstur fimm bræðra sem allir eru látnir. Þeir voru: Guðmundur Björgvin, Magnús Kristján, Bjarni Kristján og Gunnbjörn. f. 14. júlí 1950, og eiga þau fjögur börn og sex barnabörn. 3) Ragn- heiður, f. 7. desember 1952, maki Eyþór Karlsson, f. 29. september 1950, og eiga þau þrjú börn og fjögur barnabörn. 4) Arndís, f. 8. september 1956, maki: Ólafur Ragnar Hilmarsson, f. 16. maí 1962, og eiga þau þrjá syni og fimm barnabörn. 5) Börkur, f. 5. október 1962, maki Janne Møller Antonsson, f. 12. október 1964, og eiga þau þrjú börn. Anton fluttist til Akureyrar 1948 og vann lengst af hjá Sam- bandsverksmiðjunum. Hann lét af störfum vegna aldurs og heilsu- brests árið 1991. Síðastliðin tvö ár bjó hann á dvalarheimilinu Hlíð. Útför Antons verður gerð frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hinn 9. september 1950 kvæntist Anton eftirlifandi eig- inkonu sinni Ragn- heiði Aðalgunni Kristinsdóttur, f. á Fossvöllum í Jökuls- árhlíð 23. apríl 1929. Hún er dóttir hjónanna Guðrúnar Jónínu Gunn- arsdóttur ljósmóður, f. 2. september 1899, d. 29. nóvember 1988, og Kristins Arngrímssonar kennara og bónda, f. 11. júlí 1900, d. 9. júlí 1972. Anton og Ragnheið- ur eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Reynir Heiðar, f. 17. febrúar 1948. 2) Jóna Kristín, f. 7. desem- ber 1950, maki Þorsteinn Rútsson, Há og hrikaleg slúta vestfirsku fjöllin fram í sjó. Í hrikalegum en hlýjum faðmi þeirra kúra litlu vina- legu þorpin, svo óskaplega smá gagn- vart stórfengleik náttúrunnar. Eitt þessara litlu sjávarþorpa er Bolung- arvík en þar fæddist pabbi í aðdrag- anda heimskreppunnar miklu árið 1924, næstyngstur fimm bræðra. Kjörin voru kröpp hjá fátækri sjó- mannafjölskyldunni og fór hann því ungur að heiman að vinna fyrir sér sem vaninn var í þann tíð. Sagði hann reyndar oft að það hefði verið sín mesta gæfa í lífinu að hafa farið svo ungur að heiman. Réðst hann í vist á bænum Fagrahvammi við Ísafjörð til Hjartar bónda þar og tókst mikil vin- átta með honum og Bernharð syni bónda sem hann kallaði fóstbróður. Mun hann þar hafa kynnst landbún- aðarstörfum og fallið þau vel. Vildu ýmsir styrkja hann til búnaðarnáms en hann taldi sig eigi geta það fyrir fá- tæktar sakir. Í kringum 1948 flutti hann til Akureyrar og leigði til að byrja með hjá þeim hjónum Hirti Gíslasyni og Lilju konu hans frá Bol- ungarvík. Kynntist hann þar eftirlif- andi eiginkonu sinni Ragnheiði og hófu þau búskap þar sem hét í Byrgi nálægt Sandgerðisbót. Bjuggu síðan á ýmsum stöðum uns þau keyptu býl- ið Vallholt í efra þorpinu sem kallað var, en þá var þar eiginlega alger sveit og fékk nú pabbi sinn gamla draum uppfylltan að sýsla við búskap. Þá vann hann í mörg ár á Sam- bandsverksmiðjunum og síðar í slát- urhúsinu og víðar. Bjó hann síðar á ýmsum stöðum á Akureyri, lengst af í Rauðumýrinni. Sem fyrr segir hafði pabbi mikið yndi af landbúnaðarstörfum og skepnum yfirleitt. Flest öll vor vildi hann fara í sauðburð til Jónu dóttur sinnar á Þverá í Öxnadal og einnig lét hann sig ekki vanta í réttirnar á haustin. Einnig hafði hann mjög gam- an af smíðum hvers konar og dvaldi hann löngum í smíðakofanum sínum í Rauðumýrinni sem hann reyndar smíðaði sjálfur. Einn síðasti smíðis- gripur hans er lítill skápur sem hann gaf sonardóttur sinni í Danmörku og var það ekki fyrsti hluturinn sem hann smíðaði handa börnum sínum og barnabörnum. Má þar nefna alla tré- bílana handa okkur strákunum. Pabbi var heiðarlegur maður fram í fingurgóma sem aldrei vildi skulda neinum neitt og var raunar meinilla við það að taka nokkurn tímann lán. Að þessu leyti hefur kannski í honum leynst dálítill Bjartur í Sumarhúsum. Hann var, einkum framan af, nokkuð hrjúfur og óheflaður en líkt og gerist með marga Vestfirðinga ólguðu undir tilfinningar sem helst má líkja við eld- fjall. Er aldurinn færðist yfir gerðist hann miklu blíðari og meyrari og fjöl- skyldu sinni unni hann heitt þó svo glíman við Parkinson gamla reyndist þung og hafi um síðir ekki getað end- að nema á einn veg. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg; en anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið. (Jónas Hallgr.) Það haustar. Bolurinn hefur sett upp hvítu húfuna sína fyrir veturinn og drúpir höfði í virðingarskyni við son þorpsins sem nú er farinn til að gæta kindanna í landinu þangað sem við öll förum. Reynir Heiðar, Jóna Kristín, Ragnheiður, Arndís og Börkur. Elsku afi, loksins fékkstu hvíldina. Eftir langa og stranga baráttu við Parkinson-sjúkdóminn. Þú varst allt- af svo duglegur og leist alltaf svo vel út. Þú varst svo unglegur, afi. En nú kveðjum við þig og söknuðurinn er mikill. Svo margar góðar minningar. Ég var búinn að kaupa jólagjöfina þína, afi. Ég sem kaupi aldrei svona snemma jólagjafir. Þetta var lítið myndaalbúm. Þú hafðir svo gaman af gömlum og nýjum myndum af okkur og þú raðaðir þeim svo skemmtilega upp í albúmin þín. Við mæðgurnar vorum í heimsókn hjá þér fyrir ekki löngu og skemmtum okkur við að skoða myndirnar með þér. Þá rifjuð- ust upp margar góðar minningar. Þú varst svo mikið fyrir okkur krakkana og öll eigum við eitthvað sem þú smíð- aðir handa okkur. Ég man dúkkur- úmið mitt og Sævar fékk bíl. Atli Rút- ur fékk líka bíl seinna. Stelpurnar mínar fengu allar dúkkurúm sem þú smíðaðir handa þeim og amma saum- aði falleg rúmföt í. Ein góð minning, afi, frá því að ég var stelpa heima á Þverá, var þrítugs- afmæli pabba í júlí 1980. Við vorum öll saman komin þarna fjölskyldan og þú, afi, fórst með okkur krakkana upp í bú og sauðst handa okkur pylsur. Þarna varst þú með okkur allt kvöld- ið. Þú, afi, að leika þér með okkur á meðan hinir fullorðnu voru heima í bæ. Ég man að þú hafðir gaman af að slást með okkur krökkunum svona í gamni. Áhugasamur varstu um bú- skapinn. Sérstaklega um kindurnar. Ég man að þú komst alltaf í sauðburð- inn heima á Þverá meðan þú hafðir heilsu til og alveg fram á síðasta dag varst þú að spyrja mig um göngur, heimtur og ásetning. Hafðu þakkir fyrir allt, afi minn. Guð geymi þig. Ragnheiður Margrét, Helgi Bjarni, Gunnþórunn Elísabet, Jónína Þórdís og Hulda Kristín. Í dag er til grafar borinn kær vinur okkar, Anton Kr. Jónsson, kvæntur föðursystur okkar. Heimsóknir okkar til Rögnu og Tona voru ógleymanleg- ar þar sem ávallt var tekið á móti okk- ur af miklum höfðingsskap. Okkur eru sérstaklega minnisstæðar komur okkar í Rauðumýri þar sem þau hjón- in unnu bæði að handverki sínu.Við höfðum gaman af því þegar Toni sýndi okkur þau verkefni sem hann vann að hverju sinni. Hann var sér- lega handlaginn, listrænn og ná- kvæmur í verkum sínum. Hann smíð- aði meðal annars líkön af húsum. Eitt af þeim fallegu verkum er líkan af æskuheimili Hreins föður okkar sem prýtt hefur garðinn í Ystabæ og glatt unga sem aldna. Toni var hlýr og glaðlegur í viðmóti, tók jafn vel á móti ungum sem öldnum. Að leiðarlokum kveðjum við hann og minnumst góðs vinar af miklum hlýhug og þakklæti. Við vottum fjölskyldu hans samúð okkar. Eva, Örn, Baldur, Jónína og Þór. Nú hefur mætur drengur lífi lokið, sem lagði býsna margt á gjörva hönd Af máttkri hendi leyst var líkamsokið, og leið hans bent að hærri, fegri strönd Þó harm, að sinni, hljóti þeir sem líða, sem hjartfólgnastir voru og stóðu næst; ei þyngjum för með sút og sárum kvíða Því sálin stefnir áfram, skeiðið glæst. Nú er hann Toni mágur minn allur og ég samgleðst honum að vera nú laus úr þessum grimmu fjötrum sem sífellt hertu tökin og gerðu honum líf- ið erfiðara og erfiðara. Það er alltaf erfitt að kveðja, sértaklega þá sem manni eru nánir og manni þykir vænt um. En þeir verða að missa sem eiga. Og þá reynir á að þakka fyrir það sem maður hefur átt. Fyrir tæpu ári síðan kvaddi ég hinstu kveðju elskulegan einkabróður minn og nú hann Tona mág minn. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þessa góðu drengi að í fjölskyld- unni og hafa fengið að taka þátt í þeirra lífi. Ég hitti Tona í júlí síðast- liðnum og var heppin. Ég hitti vel á hann, við gátum rifjað upp gamlar minningar og hlógum mikið, svo syst- ir mín hafði orð á að það væri langt síðan hún hefði séð okkur svona eðli- leg. Já það er gott að ylja sér við góð- ar minningar. Efst í huga mínum gjafmildi og hjálpsemi sem voru ríkir þættir í fari hans. Ég kveð elskulegan mág minn með hjartans þökk fyrir samfylgdina og bið góðan Guð að leiða hann á nýjum slóðum. En verk hans, – bæði mál og myndir, geyma um móður Jörð og náttúruna óð, um fegurð lands og fjalla-jötunheima, hvar furðu títt hann lagði nýja slóð. Nú opnast leiðir fræknum ferðamanni um fegri svið í víðum Alvaldsgeim; en störfin eru drjúg í Drottins ranni, – og drengskap kostar æ að sinna þeim. (Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi.) Anna Kristinsdóttir. Anton Kristinn Jónsson REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.