Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞAÐ var sagt við mig þegar ég var að vaxa úr grasi að ef ég myndi ekki ákveða hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór, þá myndi ég bara verða eitthvað fyrir slysni,“ sagði María Ell- ingsen, einn forsprakka Framtíðarlandsins við setningu haustþings félagsins á Hótel Nordica í gær. Á þinginu flutti fjöldi fólks, rithöfundar, heimspekingar, læknar, hagfræðingar og fleiri, erindi og kynntu fyrir fundargestum framtíð- arsýn sína og þau sóknarfæri sem falin eru í menntun, menningu og vísindum. „Úlfarnir eru ekki við dyrnar“ Í setningarræðunni sagði María nauðsynlegt að Íslendingar hefðu ekki bara hagvöxt að leið- arljósi við ákvarðanatöku, heldur yrðu ákvarð- anirnar að ríma við sjálfsmynd Íslendinga, gildi þeirra og ímynd landsins. „Úlfarnir eru ekki við dyrnar. Við erum rík þjóð sem hefur efni á að skoða teikniborðið í næði, velja og hafna og taka ákvarðanir sem skila okkur verðmætum til framtíðar,“ sagði María. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason flutti fyrsta erindi þingsins og gerði stóriðjustefnu stjórnvalda að umtalsefni. Hann sagði það skjóta skökku við að um leið og iðnaðarráð- herra hefði tilkynnt að stóriðjustefnunni væri lokið væri ýmislegt í bígerð sem miðaði að stækkun og fjölgun álvera víðs vegar um land- ið, m.a. í Straumsvík, Helguvík og á Húsavík. „Stóriðjustefnunni er lokið, en það á bara að fimmfalda álframleiðslu og allavega þrefalda orkuframleiðslu á Íslandi. Virkjunarhraðinn er mjög mikill og heil atvinnugrein er í raun háð því að virkjanir séu sífellt í byggingu; verktak- ar, verkfræðistofur, orkufyrirtæki, sveitar- félög og fleiri þrýsta á,“ kvað Andri og sagði að ef fram héldi sem horfði yrði Ísland fullvirkjað árið 2020. Sagði Andri að ef hugmyndir manna um að virkja á Íslandi því sem nemur 30 tera- wattstundum á ári yrðu að veruleika væri orku- notkun Íslendinga á við þriggja milljóna manna þjóð. „En stóriðjustefnunni er lokið og ég óska ykkur til hamingju,“ sagði Andri að lokum og uppskar mikið lófatak. „Þorum að vera glannalega bjartsýn“ Sigríður Þorgeirsdóttir, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, hélt því næst erindi um mikilvægi menntunar í nútímasamfélagi. Sagði hún að Íslendingar yrðu að leggja aukna áherslu á menntun þar sem samkeppnishæfni þjóða ylti á menntun og störf í þekkingariðnaði væru margfalt arðbærari en störf í þungaiðn- aði. „Þess vegna þurfa fleiri að renna stoðum undir þessa menntun. Það þarf fjölbreytilegri fjármögnun þessa hornsteins atvinnulífsins sem menntun er. Ríkið þarf að koma að, efla þarf samkeppnissjóði stórlega og fyrirtæki þurfa í auknum mæli að koma að fjármögnun rannsókna, vísinda og háskóla,“ sagði Sigríður. Benti hún á þá staðreynd að Ísland væri í þriðja neðsta sæti hvað þekkingariðnað í OECD-lönd- um varðar og sagði það hugsanlega að rekja til þeirrar staðreyndar að Íslendingar ættu nátt- úruauðlindir sem hægt væri að ganga á, þjóðum sem engum auðlindum hefðu til að dreifa hefði yfirleitt engið betur að virkja hugvitið. Sigríður sagði að ekki ætti einungis að ræða um menntun á Íslandi í alþjóðlegu samhengi, heldur bæri jafnframt að líta til landsbyggðar- innar þar sem menntun væri eina byggðastefn- an að viti. „Hætta er á því að þekkingarfram- leiðsla og há laun afmarkist við Reykjavíkursvæðið og þekkingarúrvinnsla og lág laun eigi eftir að verða á landsbyggðinni. Það þarf átak á landsbyggðinni til að laða að brot- flutt menntafólk, fólk sem fer í nám kemur ekki til baka vegna þess að það vantar störf fyrir það,“ sagði Sigríður. Í lok erindisins rifjaði Sigríður upp aðdrag- anda að byggingu Háskóla Íslands, sem var byggður á miklum krepputímum fyrir 65 árum og byggingin þá verið miklu glannalegri fjár- festing heldur en nokkur virkjun. Þorum að vera glannalega bjartsýn. Við vorum sárfátæk þegar við byggðum þennan skóla, en við erum forrík þegar við ákveðum að rústa hálendinu. Við höf- um ekki efni á að gera annað en að setja allt okk- ar í menntun í víðasta skilningi,“ sagði Sigríður að lokum. Sóknarfærin liggja víða Fjölmargir aðrir tóku til máls og reifuðu hug- myndir sínar um hvernig skapa mætti verðmæti á Íslandi án þess að ganga á náttúruauðlindir landsins. Ragnar Freyr Ingvarsson læknir fjallaði um læknalandið Ísland, þar sem erlendir ríkisborgarar flykktust til landsins til þess að gangast undir flóknar aðgerðir hjá vel menntuð- um læknum og að þeim loknum gætu þeir dvalið hér á landi og notið aðhlynningar og endurhæf- ingar í einstöku umhverfi. Guðmundur Páll Ólafsson rithöfundur tók einnig til máls og viðraði hugmyndir sínar um víðtæka vernd náttúruauðæfanna gegn ágangi mannsins og sagði mikilvægt að reisa girðingu um þau verðmæti sem falin eru í hálendi Íslands. „Það er bara til eitt Ísland og við erum að glata því. Þess vegna verðum við að nema land á ný.“ Morgunblaðið/RAX Fjölmennt Húsfyllir var í ráðstefnusal Hótels Nordica í gær en þar voru félagsmenn samtakanna Framtíðarlandsins komnir saman til að ræða framtíð lands og þjóðar í víðu samhengi. Álver ekki forsenda árangurs Fullt var út úr dyrum á haustþingi Framtíðarlandsins, félags áhugafólks um framtíð Íslands Morgunblaðið/RAX Svart á hvítu Andri Snær Magnason fjallaði um stóriðjulandið Ísland í máli og myndum. Í HNOTSKURN »Samtökin Framtíðarlandið vorustofnuð 17. júní sl. og þeim er ætlað að vera þverpólitískur mótsstaður með víðtækri þátttöku frumkvöðla, fræði- manna, viðskiptafólks, listamanna og einstaklinga af öllum sviðum atvinnulífs- ins »Hátt í 2.500 manns eru skráðir í sam-tökin og um 400 þeirra mættu á haustþing samtakanna sem fram fór í gær. »Á þinginu var m.a. fjallað um áformstjórnvalda varðandi stóriðju og hvort mögulegt væri að tryggja framtíð komandi kynslóða án þess að ríkið gripi til slíkra framkvæmda. Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.