Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn GRETTIR, FINNST ÞÉR VARIRNAR Á MÉR FALLEGAR OG KYSSILEGAR? VEIT ÞAÐ EKKI FALLEGAR, NEI! EN ÞÆR ERU SAMT KYSSILEGAR... SAMT EKKI SVONA ÉG ER ÁSTFANGINN, ROSALEGA ERU STJÖRNURNAR FALLEGAR KYSSILEGAR HLUSTAÐU Á ÞETTA, KALLI... ÞAÐ STENDUR HÉR AÐ ÞAÐ SÉU TIL SEXHUNDRUÐ OG SJÖTÍUÞÚSUND TEGUNDIR AF SKORDÝRUM! VÁ! ÞÚ GETUR AÐ MINNSTA KOSTI HUGGAÐ ÞIG VIÐ ÞAÐ AÐ ÞÚ ERT EKKI EINN PABBI, NÝJUSTU KANNANIR SÝNA AÐ ÞÚ ERT AÐ TAPA FYLGI ÞÚ FÆRÐ FREKAR HÁA EINKUNN Í ALMENNRI STJÓRNUN EN ALLIR ÞESSIR SKANDALAR ERU AÐ DRAGA ÚR ALMENNU FYLGI HVAÐ Á ÉG AÐ HAFA GERT? AÐ NEYÐA FÓLK TIL SVEFNS OG HEIMALÆR- DÓMS ERU HÆST Á BLAÐI ÉG TRÚI ÞVÍ AÐ ÉG VERÐI HREINSAÐUR AF ÞESSUM ÁSÖKUNUM HVERNIG ÆTLI NÝI PABBINN EIGI EFTIR AÐ LÍTA ÚT? HEPPNI EDDI, ÞETTA ER FÉLAGI MINN, SKÍTUGI SKÚLI SÆLL SÆLL OG ÞETTA ER HUNDURINN HANS... SKÍTUGI HUNDUR VOFF! KETTIR ERU VANDAMÁLIÐ! EF ÞAÐ VÆRU ENGIR KETTIR ÞÁ VÆIR HEIMURINN FULLKOMINN! JÁ!! SLAPPAÐU AF, ÉG ER BARA AÐ HALDA ÞEIM GÓÐUM HVERNIG VAR SÍÐASTI SKÓLADAGURINN, KIDDA? HANN VAR FÍNN EN ÉG VARÐ SVOLÍTIÐ LEIÐ ÞAÐ ER ALLT Í LAGI, SUMARIÐ ER SKEMMTILEGT EN ÞAÐ ER ERFITT AÐ KVEÐJA ALLA ÉG VARÐ LEIÐ VEGNA ÞESS AÐ GUMMI ÁT KÖKUNA MÍNA! Ó ÞEGAR AÐ FÓLK SÉR ÞESSA FRÉTT ÞÁ HELDUR ÞAÐ AÐ ÉG ÆTLI AÐ LOSA MIG VIÐ PETER EKKI GERA ÞAÐ AUÐVITAÐ EKKI! ÞAÐ ER OF SNEMMT BÍDDU ÞANGAÐ TIL VIÐ FUMSÝNUM, ÞÁ SKALTU LOSA ÞIG VIÐ AUMINGJANN! SÍÐASTLIÐINN fimmtudag var gullsmíðasýningin GOLD 2006 opn- uð í átjánda sinn Berlín í Þýskalandi. Alla jafna sýna þar einungis gull- smiðir frá Berlín og Norður- Þýskalandi en í ár var Íslandi boðið að vera með sem gestalandi. Fyrir hönd Íslands sýndu þar gullsmið- irnir Dýrfinna Torfadóttir, Guð- björg Kr. Ingvarsdóttir, Helga Ósk Einarsdóttir og Inga Rúnarsdóttir Bachmann. Gullsmiðir Frá vinstri: Helga Ósk Einarsdóttir, Guðbjörg Kr. Ingvars- dóttir, Inga Rúnarsdóttir Bachmann, Ruth Bobrich viðskiptafulltrúi sendi- ráðsins og Dýrfinna Torfadóttir. Íslenskir gullsmiðir á sýningu í Berlín Faghópur leikskólakennarameð sérnám í listgreinumog Félag leikskólakenn-ara standa fyrir málþingi í Bratta, sal Kennaraháskóla Ís- lands, föstudaginn 10. nóvember frá 13 til 16. Linda Björk Ólafsdóttir leikskóla- kennari er einn af skipuleggjendum málþingsins sem hefur yfirskriftina Skapandi afl í leikskóla – draumur eða veruleiki?: „Hugmyndin að mál- þinginu spratt upp úr vaxandi áhyggjum meðlima faghópsins um minnkandi vægi listgreina í mennt- un leikskólakennara. Með mál- þinginu viljum við vekja athygli á mikilvægi listgreina í menntun barna í leikskóla en leikskólinn er æ oftar nefndur þegar talað er um hvenær hefja skuli formlegt nám,“ útskýrir Linda Björk. Læra á samfélagið „Aukinn þrýstingur er í þjóðfélag- inu á að formlegt nám hefjist sem fyrst, en mikilvægt er að börn á leik- skólaaldri fræðist gegnum leik. Það vill oft gleymast að nám barna felst fyrst og fremst í að þekkja sig og samfélagið,“ bætir Linda við. „Börn hugsa hlutlægt og hafa ekki tök á að tjá sig með sama hætti og fullorðnir. Börn læra gegnum skynjun og tján- ingu: þau þurfa að prófa sig áfram, reyna hlutina og skynja gegnum listsköpun og leik. Þess vegna er leikur og listnám mikilvægt náms- og þroskatæki þar sem börnin fást við og vinna úr þeim hlutum sem eru í kollinum á þeim: þau læra í gegn- um leikinn hvernig á að vera mamma, hvernig á að vera pabbi, læra að fást við tilfinningar eins og reiði og gleði, og læra ekki síst að skilja viðbrögð annarra og sam- skiptareglur samfélagsins. Þetta er mikilvægur grunnur sem skiptir sköpum fyrir alla framtíð barnsins.“ Á málstofunni 10. nóvember munu þrír leikskólakennarar fjalla um leik og listir í leikskólastarfi: „Soffía Þorsteinsdóttir leik- skólastjóri Sæborgar mun kynna myndbandið Flughestarnir í Sæ- borg sem unnið var í samvinnu Kvikmyndaskóla Íslands og leik- skólans, Kristín Ólafsdóttir fjallar um tónlist í leikskólum og sjálf mun ég segja frá verkefni sem tengir tónlist, leik og myndsköpun,“ segir Linda Björk. „Einnig taka til máls Ingibjörg Jóhannsdóttir skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík og Guðmundur Oddur Magnússon pró- fessor við LHÍ.“ Faghópur leikskólakennara með sérnám í listgreinum var settur á laggirnar árið 2000: „Kennara- háskóli Íslands hefur í tvígang út- skrifað nemendur úr framhaldsnámi í listgreinakennslu í leikskóla. Nem- endum í þessum útskriftarhópum þóttu listgreinar innan leikskólans eiga undir högg að sækja og stofn- uðu því faghópinn til að snúa vörn í sókn,“ útskýrir Linda Björk. Málþingið er öllum opið, en þó einkum ætlað leikskólakennurum. Áhugasamir eru beðnir um að skrá þátttöku á fl@ki.is. Börn | Málþing föstudaginn 10. nóvember í Bratta, Kennaraháskóla Íslands Mikilvægi leiks í leikskóla  Linda Björk Ólafsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1961. Hún stund- aði nám við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti, lauk leikskólakenn- aragráðu frá Fósturskóla Ís- lands 1983 og framhaldsnámi í list- greinum frá Kennaraháskóla Ís- lands 1996. Linda hóf störf sem leikskólakennari á Furugrund að námi loknu og tók við deildarstjórn þar 1988. Frá árinu 2000 hefur hún starfað sem deildarstjóri og fags- tjóri yfir listum í heilsuleikskól- anum Urðarhóli. Linda Björk var formaður Faghóps leikskólakenn- ara með sérnám í listgreinum frá stofnun til ársins 2003. Hún er gift Brynjari Björnssyni verslunar- manni og eiga þau þrjú börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.