Morgunblaðið - 30.10.2006, Side 2
2 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
mánudagur 30. 10. 2006
fasteignir mbl.is
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar hjá lánafulltrúum Frjálsa
og á www.frjalsi.is, þar sem einnig er hægt
að reikna greiðslubyrði.
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
Lánstímialltað40ár
Stjórnstöðvar
fyrir hitakerfi
Kynjadýr voru sérstaklega vinsæl í útsaumi miðalda » 59
fasteignir
NÝJAR LÓÐIR Í GARÐABÆ
MIKILL EFTIRSPURN SEGIR ARNBJÖRN VILHJÁLMSSON
SKIPULAGSSTJÓRI BÆJARINS >> 34
Á verslunarsvæðinu Kauptúni er
risin glæsileg IKEA-verslun þar
sem mikið framboð er af hverskyns
heimilisvörum. » 38
Nýtt IKEA
– stærra og
betra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rókókó-
húsgögn eru dýr
Rókókó-stíllinn er eftirsóttur um
alla Evrópu segir Berglind Sigurð-
ardóttir. Kjarni stíltegundarinnar
var að þóknast munaði og lífs-
gæðum og skrauti. » 42
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 29
Staksteinar 8 Minningar 30/33
Veður 8 Leikhús 38
Vesturland 12 Dagbók 40/45
Viðskipti 13 Myndasögur 40
Erlent 15 Staður og stund 42
Menning 16, 36/39 Víkverji 44
Daglegt líf 18 Velvakandi 44
Forystugrein 24 Bíó 42/45
Umræðan 26/29 Ljósvakar 46
* * *
Innlent
Listar Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík eru sigurstranglegir eft-
ir prófkjör flokksins um helgina að
mati Geirs H. Haarde, formanns
flokksins. Helstu tíðindi prófkjörs-
ins eru að Guðlaugur Þór Þórð-
arson hlaut afgerandi kosningu í 2.
sæti listans. Hlaut hann 5.071 at-
kvæði í það sæti en Björn Bjarna-
son sem einnig sóttist eftir 2. sæt-
inu fékk 3.858 atkvæði.
» 24
Framtíðarlandið, samtök um
framtíðarmöguleika Íslands, héldu
haustþing í gær. María Ellingsen,
stjórnarmaður í samtökunum, seg-
ir að samtökin muni bjóða fram til
Alþingis í vor, losi stjórnvöld sig
ekki úr hjólförum stóriðjustefn-
unnar. » 10
Prófkjör Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi fór fram í
gær og hreppti Guðbjartur Hann-
esson 1. sætið með 477 atkvæði.
Alls kusu 1.668 manns í prófkjör-
inu og lágu lokatölur fyrir á ellefta
tímanum í gærkvöldi. Algjört bann
var við auglýsingum frambjóðenda
í prófkjörinu og var kostnaður
vegna þess því í lágmarki, 1,3
milljónir króna. » 11
Erlent
Breska stjórnin hefur nú til at-
hugunar að setja á svokallaða
„græna skatta“ í baráttunni við
mengun og alvarlegar loftslags-
breytingar af hennar völdum. Kom
þetta fram í Mail on Sunday í gær
en blaðið komst yfir bréf frá David
Miliband, umhverfisráðherra Bret-
lands. Þar talar hann um,að berj-
ast verði gegn bílnum og notkun
hans og vill einkum skattleggja
akstur og stóra bíla. » 1
Líklegt er, að um 100 manns
hafi farist er Boeing 737-þota fórst
í Nígeríu í gær. Ekki er ljóst hvað
slysinu olli en veður var slæmt.
Hrapaði vélin rétt eftir flugtak í
Abuja, höfuðborg landsins. Flug-
slys eru mjög tíð í Nígeríu og er
þetta þriðja slysið þar á 12 mán-
uðum. » 15
Allar kannanir í Bandaríkj-
unum benda til, að demókratar
hafi verulegt forskot á repúblikana
fyrir kosningarnar 7. nóvember.
Margt getur þó gerst á viku en nú
er ekki óhugsandi, að þeir nái
meirihluta í báðum deildum þings-
ins. » 15
Viðskipti
Vöruskiptahallinn við útlönd
hefur minnkað hratt undanfarið.
Aukinn útflutningur í september
ræður miklu um þetta en þá var
hallinn 7,6 milljarðar króna sam-
anborið við 12 milljarða á sama
tíma í fyrra. Talið er að draga
muni jafnt og þétt úr vöru-
skiptahalla með auknum álútflutn-
ingi og frekari samdrætti í inn-
flutningi á fjárfestingarvörum. »
13
Breski kaupsýslumaðurinn
Philip Green fær ekki greiddan arð
frá tískuvörukeðjunni Arcadia sem
hann á 92% hlut í, vegna nýliðins
rekstrarárs. Ástæðan er sú að
hagnaður keðjunnar var fimmtungi
minni en árið áður. Arcadia er
keðjan sem Baugur missti af í
kjölfar húsleitar ríkislögreglu-
stjóra. » 13
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
MAÐUR á fertugsaldri lést í gær-
morgun þegar eldur kom upp í rað-
húsi við Heiðarhraun í Grindavík en
tvær fimmtán ára stúlkur sem voru í
húsinu komust út. Tilkynning um
eldsvoðann barst á áttunda tímanum
í gærmorgun.
Eldsupptök eru ekki kunn en
grunur leikur á að kviknað hafi í út
frá rafmagni og hefur verið óskað
eftir sérfræðingi frá öryggissviði
Neytendastofu til að rannsaka vett-
vanginn.
Stúlkurnar sem voru á heimilinu
voru dóttir hins látna og vinkona
hennar og urðu þær varar við eldinn.
Stúlkan sem var gestkomandi á
heimilinu býr í nærliggjandi húsi og
hljóp hún þangað og gerði faðir
hennar þegar viðvart um eldsvoð-
ann.
Slökkvilið Grindavíkur og lögregla
fóru á staðinn og fundu reykkafarar
manninn skömmu síðar í stofunni.
Hann var meðvitundarlaus þegar
hann fannst og báru endurlífgunar-
tilraunir ekki árangur. Við komu á
slysadeild í Reykjavík var maðurinn
úrskurðaður látinn.
Talsvert mikill eldur braust út í
húsinu en hann náði þó ekki til nær-
liggjandi húsa.
Að sögn lögreglu í Keflavík er
málið nú í rannsókn og mun tækni-
deild lögreglunnar í Reykjavík að-
stoða við rannsóknina.
Ekki var unnt að hefja vettvangs-
rannsókn í gær þar sem grunur leik-
ur á að eldurinn hafi kviknað út frá
rafmagni en í slíkum tilfellum er
kallaður til sérfræðingur frá örygg-
issviði Neytendastofu. Stofnunin er
þó ekki með bakvaktakerfi og sér-
fræðingur því ekki til taks um helg-
ar. Lögregluvörður var við húsið í
gær en vettvangsrannsókn verður
framkvæmd í dag.
Maður á fertugsaldri
lést í eldsvoða
Tvær fimmtán ára stúlkur sem voru í húsinu komust út
Í HNOTSKURN
»Lögreglan í Keflavík ogslökkviliðið í Grindavík
voru kölluð út á áttunda tím-
anum í gærmorgun vegna elds-
voða.
»Reykkafarar sem komu ástaðinn fundu mann á fer-
tugsaldri meðvitundarlausan
inni í húsinu og var hann úr-
skurðaður látinn skömmu síðar.
»Eldsupptök eru ókunn engrunur leikur á að kviknað
hafi í út frá rafmagni og mun
sérfræðingur frá Neyt-
endastofu annast rannsókn á
vettvangi.
»Tæknideild lögreglunnar íReykjavík mun aðstoða
lögreglu við rannsóknina.
Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Eldsvoði Eldur kom upp í þessu húsi við Heiðarhraun í Grindavík á áttunda tímanum í gærmorgun. Maður á fer-
tugsaldri lést en dóttir hans og vinkona hennar sem voru í húsinu komust út af sjálfsdáðum og gerðu viðvart.
SÓLVEIG Pálsdóttir
frá Svínafelli í Öræfum
lést í fyrrakvöld á
hjúkrunarheimilinu
Skjólgarði á Höfn í
Hornafirði. Hún var
elst allra Íslendinga,
109 ára og 68 daga
gömul en hún varð
jafnframt elsti Íslend-
ingur sem sögur fara
af sem hefur alið aldur
sinn hérlendis. Guðrún
Björg Björnsdóttir
Árnason er sá Íslend-
ingur sem lifað hefur
lengst, í 109 ár og 310
daga, en hún lifði lunga ævi sinnar í
Vesturheimi.
Sólveig Pálsdóttir fæddist á
Keldunúpi í Skaftárhreppi 20. ágúst
1897. Árið 1923 hóf hún búskap á
Svínafelli ásamt eiginmanni sínum,
Gunnari Jónssyni. Rak hún býlið
ásamt honum og hafði sérstakan
áhuga á hestum. Sólveig þótti mikil
reiðmanneskja og
fannst mörgum í þá tíð
djarft að kona riði klof-
vega líkt og hún gerði.
Eftir andlát Gunnars
árið 1967 tók elsti sonur
þeirra Sólveigar við bú-
skapnum og starfaði
Sólveig á Svínafelli allt
þar til hún flutti á
hjúkrunarheimilið
Skjólgarð árið 1993, þá
96 ára gömul. Á síðustu
árunum sem húsmóðir
sá hún enn um barna-
pössun og pönnuköku-
bakstur fyrir heimilis-
fólk og gesti. Hún var mikið fyrir
prjóna- og saumaskap en þegar hún
náði 101 árs aldri neyddist hún til að
hætta þeirri iðju að sauma milliverk í
sængurföt og lét sér nægja að prjóna
peysur og sokka. Gunnar og Sólveig
eignuðust sjö börn og 16 barnabörn
og eru afkomendur þeirra nú orðnir
67 í fjórum ættliðum.
Andlát
Sólveig Pálsdóttir
VATNSLEKI kom upp á Smára-
torgi í gærmorgun og lak inn í þrjár
verslanir í húsinu. Samkvæmt upp-
lýsingum frá slökkviliði Reykjavíkur
stafaði lekinn af því að vatnslögn í
lofti gaf sig.
Tilkynnt var um lekann um tíu-
leytið í gærmorgun og sendi slökkvi-
liðið dælubíl á staðinn. Var hann um
tvær og hálfa klukkustund að dæla
upp vatni og ganga frá. Vatn lak inn í
útibú KB banka og veitingastaðina
Rikki Chan og Food Station.
Þá var slökkviliðið kallað að Kaffi-
barnum við Bergstaðastræti eftir
hádegi í gær vegna vatnsleka í kjall-
aranum.
Talsvert af vatni hafði safnast
saman en greiðlega gekk að dæla því
út. Ekki er vitað hverjar ástæður
lekans voru.
Þá var slökkviliðið kallað út um
hádegisbilið í gær vegna eldsvoða í
kjallaraíbúð við Hagamel. Eldurinn
reyndist stafa frá rafmagnstöflu.
Íbúum varð ekki meint af en
slökkviliðsmenn reykræstu íbúðina.
Vatnsleki á
Smáratorgi
EINN slasaðist alvarlega og tvennt
minniháttar eftir bílslys nærri
Kirkjubæjarklaustri í gærkvöldi.
Voru þau flutt með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar á slysadeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss í Reykjavík.
Aðdragandi slyssins var sá að verið
var að umferma fé af vagni dráttar-
vélar yfir á fjárflutningabíl á sjötta
tímanum í gærkvöldi á þjóðveginum
austan við Kirkjubæjarklaustur.
Ökumaður bílaleigubíls sem keyrði
eftir sömu akrein varð dráttarvélar-
innar ekki var fyrr en of seint, með
þeim afleiðingum að hann keyrði ut-
an í dráttarvélina og á ökumann
dráttarvélarinnar sem stóð fyrir utan
hana. Var bílaleigubíllinn á tæplega
80 km hraða á klst. og varð það öku-
manni dráttarvélarinnar til happs að
bílaleigubíllinn keyrði utan í eitt dekk
dráttarvélarinnar áður en hann skall
af fullum krafti á manninum.
Áreksturinn varð við Kálfafell í
Fljótshverfi, u.þ.b. 25 km austan við
Kirkjubæjarklaustur, og fóru lög-
reglu- og sjúkrabílar frá Vík í Mýrdal
á vettvang. Ökumaður dráttarvélar-
innar slasaðist alvarlega en farþegar
og ökumaður bílaleigubílsins voru í
beltum og sluppu án alvarlegra
meiðsla. Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út og sótti hina slösuðu.
Lenti þyrlan við Landspítalann í
Fossvogi rétt fyrir klukkan tíu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá vakthafandi
lækni var ökumaður dráttarvélarinn-
ar lagður inn á gjörgæsludeild.
Árekstur bíls og
dráttarvélar
Ökumaður dráttarvélarinnar
á gjörgæslu alvarlega slasaður