Morgunblaðið - 30.10.2006, Side 6
6 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TAMMY Simone Axelsson hafði mikla yfirburði
í bæjarstjórakosningu í „Íslendingabænum“
Gimli í Kanada fyrir helgi og auk fráfarandi
bæjarstjóra var bæjarstjórn undanfarið kjör-
tímabil hafnað.
„Ég átti von á sigri en ekki svona miklum yf-
irburðum,“ sagði Tammy við Morgunblaðið eft-
ir að endanlegar tölur lágu fyrir.
Kjörsókn var yfir 60% og fékk Tammy 2.711
atkvæði eða um 62% atkvæða, Kevin Chudd
fékk 1.268 atkvæði (um 29%) og Daphne Mark-
usson 330 atkvæði (um 9%).
Fyrir fjórum árum sameinaðist Gimli þétt-
býliskjarnanum í kring og þá var Kevin Chudd,
þáverandi sveitarstjóri, kjörinn bæjarstjóri,
hafði betur í kosningu við Bill Barlow, sem
hafði verið bæjarstjóri Gimli í þrjú kjörtímabil.
Að þessu sinni gáfu 14 manns kost á sér í fjög-
urra manna bæjarstjórn auk bæjarstjóra og
náði Bill Barlow kjöri, fékk 1.297 atkvæði. Bri-
an McKenzie fékk 1.438 atkvæði, Ross Bailey
1.895 atkvæði og Glen Brooks 2.185 atkvæði og
mynda þeir næstu bæjarstjórn ásamt Tammy.
„Góð kosningaþátttaka er sérstakt ánægju-
efni,“ segir Tammy.
Hún bætir við að lengi hafi legið í loftinu að
breytinga væri þörf og þar sem hún hefði fund-
ið fyrir miklum meðbyr hefði hún tilkynnt
framboð sitt í júní, fyrst allra. Framundan væri
að skipuleggja starfið og forgangsraða verk-
efnum með skammtíma- og langtímamarkmið í
huga.
Tammy Axelsson hefur verið ræðismaður Ís-
lands í Gimli í rúmlega þrjú ár, tók við af Neil
Bardal í júní 2003.
Hún er framkvæmdastjóri Safns íslenskrar
menningararfleifðrar í Nýja Íslandi, The New
Iceland Heritage Museum. Eiginmaður hennar
er Jón Grétar Axelsson frá Selfossi og eiga þau
tvö börn, Daníel Jón og Fionu Lillian.
Tammy Axelsson nýr bæjar-
stjóri í Gimli í Manitoba
14 manns gáfu kost á sér í fjögurra manna bæjarstjórn auk bæjarstjóra
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Sigurvegari Tammy Axelsson hefur verið áber-
andi í Gimli að undanförnu og kosningaherferð
hennar vakti mikla athygli. Um liðna helgi talaði
hún m.a. við gesti og gangandi við minnisvarð-
ann um íslensku landnemana sem komu til Nýja
Íslands 21. október 1875.
Samgönguráð-
herra hefur skip-
að Pétur K.
Maack í embætti
flugmálastjóra
frá 1. janúar
2007.
Í tilkynningu
frá samgöngu-
ráðuneytinu
kemur fram að
Pétur hefur í
tæpan áratug starfað sem fram-
kvæmdastjóri flugöryggissviðs
Flugmálastjórnar Íslands. Hann
er rekstrarverkfræðingur með
meistarapróf í vélaverkfræði frá
Danmarks tekniske Höjskole og
doktorspróf í rekstrarverkfræði
frá sama skóla.
Reynsla í alþjóðlegu samstarfi
Í tilkynningunni er einnig nefnt
að reynsla Péturs spannar nánast
öll svið flugmála, meðal annars
vottunar- og viðhaldsmál, flug-
rekstur, þjálfun flugliða, rekstur
flugvalla, flugverndarmál og al-
þjóðaflugmál. Þá býr hann einnig
yfir reynslu í alþjóðlegu samstarfi
bæði hvað varðar rannsóknir og
kennslu á háskólastigi sem og í
flugheiminum. Um árabil var hann
dósent við verkfræðideild Háskóla
Íslands og seinna prófessor við
sömu deild.
Skipaður
flugmála-
stjóri
Pétur K. Maack
STÓRUM malarflutningabíl, svo-
kallaðari búkollu, var stolið í ná-
grenni IKEA í Garðabæ í fyrrinótt
og fannst hún yfirgefin fyrir austan
Heiðmörk um miðjan dag í gær.
Að sögn lögreglunnar í Hafn-
arfirði tilkynnti vegfarandi um að
búkolla sæti föst á kafi í drullu við
línuveg við Grunnuvötn, austan við
Heiðmörk. Þar hafði bílnum verið
ekið fyrir utan veg og töluverð
spjöll unnin á gróðri.
Það var ekki fyrr en með tilkynn-
ingu vegfarandans sem það upp-
gvötaðist að bílnum hefði verið stol-
ið, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu. Bíllinn er nýr og hann er
sjálfskiptur.
Lögreglan í Hafnarfirði biður
vitni eða aðra sem hafa upplýsingar
um málið um að hafa samband.
Búkollu
stolið
HVALVEIÐISKIPIÐ Hvalur 9
veiddi fimmtu langreyðina, sem
veiðst hefur frá því hvalveiðar hóf-
ust að nýju, um klukkan eitt í gær-
dag. Dýrið, sem er tarfur, veiddist
á svipuðum stað vestur af Snæfells-
nesi og síðasta dýr.
Þetta er fyrsti tarfurinn sem
veiðist að þessu sinni. Samkvæmt
upplýsingum Kristjáns Loftssonar,
forstjóra Hvals hf, er dýrið um 62
fet að lengd, að mati áhafnarinnar
en langreyðartarfar eru minni en
kýrnar. Gert er ráð fyrir að tarf-
inum verði landað um hádegi á
morgun.
Fimmta
langreyð-
urin veidd
LANDSBANKINN opnaði í gær sýningu á verkum
þriggja af fremstu listamönnum Færeyja í aðalbank-
anum í Austurstræti.
Landsbankinn sýnir í Færeyjabankanum verk eftir
þá Jóhannes Kjarval, Eggert Pétursson og Kristján
Davíðsson en fær í staðinn til sýninga verk í eigu
Færeyjabankans eftir Ingálv af Reyni, Sámal Joensen-
Mikines og Zacharias Heinesen. Sá síðastnefndi er sá
eini sem er lifandi af færeysku listamönnunum og
mætti hann á opnunina. Á myndinni má sjá listamann-
inn Braga Ásgeirsson taka ljósmynd af Heinesen fyrir
framan eitt verka þess síðarnefnda.
Mynd tekin af myndlistarmanni
Ljósmynd/Hilmar Þór
♦♦♦
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
SKÝRAR reglur og markmið
skortir hér á landi um ávísun sýkla-
lyfja, sér í lagi hjá börnum. Þetta er
mat Vilhjálms Ara Arasonar, doktors
í heimilislæknisfræði.
Vilhjálmur hefur síðastliðin 10 ár
rannsakað notkun sýklalyfja og sýk-
ingar sem ónæmar eru fyrir mörgum
helstu sýklalyfjum. Niðurstöður hans
benda til að ofnotkun sýklalyfja hér á
landi hafi gert það að verkum að al-
varlegar sýklalyfjaþolnar sýkingar
hafa náð að festa rætur hér á landi.
Hlutfallslega nota Íslendingar Norð-
urlandaþjóða mest af sýklalyfjum og
segir Vilhjálmur að í framtíðinni gæti
svipað ástand skapast hér á landi og í
Bandaríkjunum þar sem sýklar væru
orðnir það ónæmir að læknar ávísuðu
lyfjaskömmtum sem jöðruðu við að
valda eituráhrif-
um í sjúklingum.
Þegar einstak-
lingur tekur
sýklalyf er sýklaf-
lóra líkamans
brotin niður og
aðstæður skapast
fyrir ónæma
sýkla til að koma
sér fyrir. Ástæða
sé því til að
læknar ávísi sýklalyfjum einungis
þegar nauðsyn beri til en margt
bendi til að slíkt sé ekki alltaf hátt-
urinn hér á landi „Við höfum t.d.
reynt að finna ástæður fyrir því af
hverju hér er mun meira um eyrna-
bólgu en annars staðar, og þá sér í
lagi börn sem fá rör því þau börn hafa
verið með töluverðan vanda. Hugs-
anlega erum við að búa til fleiri
eyrnabólgur með því að meðhöndla
þær alltaf með sýklalyfjum,“ segir
Vilhjálmur.
Annað sem rannsóknir Vilhjálms
hafa beinst að er útbreiðsla ákveðins
stofns svokallaðra ónæmra pneumó-
kokka sem upphaflega kom hingað til
lands frá Spáni í kringum árið 1989.
Á fyrri hluta síðasta áratugar voru
um 60 börn lögð inn á spítala vegna
slíkra sýkinga til að þau næðu að
sigrast á sýkingunni.
Börn of oft sett á sýklalyf
Vilhjálmur bendir á að merkilegt
þyki að stofninn hafi tekið sér ból-
festu hér á landi en líklegast sé að
mikil notkun sýklalyfja sé orsökin.
Rannsókn hans sýndi að tíðni sýk-
inga frá stofninum hefur minnkað
mjög þar sem sýklalyfjum er ávísað í
minna mæli en sums staðar þar sem
lyfjunum sé gjarnan ávísað komi enn
upp tilfelli.
„Þetta ætti að vera okkur víti til
varnaðar því það eru fjölmargir fjöló-
næmir sýkingastofnar sem banka á
dyrnar hjá okkur núna. Mér hefur
fundist lítið gert í þessu af hálfu
stjórnvalda og mér finnst vanta skýr-
ari leiðbeiningar og skýr markmið,“
segir Vilhjálmur. Börn eru sá hópur
sjúklinga sem oftast eru gefin sýkla-
lyf vegna veikinda og segir Vilhjálm-
ur mikilvægt að gætt sé varúðar í
þeim efnum. Læknar og foreldrar
verði að sýna meiri ábyrgð vegna
veikinda barna og of oft séu börn sett
á sýklalyf vegna sýkinga sem líkam-
inn sjálfur gæti fyllilega ráðið við.
„Við eigum mörg góð sýklalyf og við
viljum að þau geti virkað þegar virki-
lega er þörf á þeim. Þeim mun oftar
sem barn er sett á sýklalyf, þeim mun
líklegra er að það beri með sér fjöló-
næman sýkil sem getur valdið vand-
ræðum síðar meir.“
Notum of mikið af sýklalyfjum
Í HNOTSKURN
» Í hvert sinn sem ein-staklingur tekur inn
sýklalyf er hin eðlilega sýk-
laflóra líkamans drepin niður
og rými skapast fyrir ónæma
sýkla sem geta valdið sýk-
ingum í framtíðinni.
» Vilhjálmur Ari Arasontelur mikilvægt að læknar
sýni hófsemd í ávísun sýkla-
lyfja og þá sér í lagi til barna
sem hlutfallslega neyti þeirra
mest.
» Hann telur að fræðaþurfi foreldra um hvers
vegna sýklalyf séu skyndi-
lausnir sem geti gert ógagn
til lengri tíma.
Vilhjálmur Ari
Arason
Doktor í heimilislæknisfræði kallar eftir stefnumótun stjórnvalda og fræðslu til foreldra
MAÐUR drukknaði í sundlaug Sel-
foss á fimmtudagskvöld í síðustu
viku. Ekki er á þessari stundu ljóst
hverjar orsakir slyssins voru en
málið er í rannsókn hjá lögreglunni
á Selfossi, sem varðist allra frétta
af málinu að öðru leyti.
Drukknaði
í Sundlaug Selfoss
♦♦♦