Morgunblaðið - 30.10.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 11
FRÉTTIR
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
GUÐBJARTUR Hannesson, skóla-
stjóri á Akranesi, sigraði í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Norðvestur-
kjördæmi vegna þingkosninganna
næsta vor, sem haldið var um
helgina en hann hlaut 477 atkvæði í
fyrsta sæti listans.
Karl V. Mattíasson, prestur, varð í
öðru sæti, Anna Kristín Gunnars-
dóttir, þingmaður, varð í því þriðja
og Sigurður Pétursson, bæjarfulltrúi
varð í því fjórða.
Alls kusu 1668 manns í prófkjör-
inu en kosið var á 16 stöðum í kjör-
dæminu.
Kosið var bæði í gær og fyrradag
og lágu lokatölur fyrir á ellefta tím-
anum í gærkvöldi en kosningavakan
fór fram á Akranesi og las Eggert
Herbertsson, formaður kjörstjórnar
upp lokaniðurstöður. Fyrstu tölur
komu um sexleytið og urðu nokkrar
breytingar á röðun frambjóðenda
fram eftir kvöldi. Guðbjartur var í
fyrsta sætinu allt kvöldið en þegar
fyrstu og aðrar tölur voru lesnar upp
var Anna Kristín Gunnarsdóttir í
öðru sæti, Helga Vala Helgadóttir í
því þriðja og Sigurður í því fjóra.
Þegar þriðju tölur voru lesnar upp
var Karl hins vegar kominn í annað
sætið, Anna Kristín í það þriðja og
Sigurður í það fjórða og hélst sú röð-
un út kvöldið.
Reglur prófkjörsins kváðu á um
algert bann var sett við auglýsingum
frambjóðenda í fjölmiðlum og sá
kjördæmisráðs flokksins alfarið um
að kynna frambjóðendur og próf-
kjörið sjálft. Geir Guðjónsson, for-
maður kjördæmisráðs, segir að vel
hafi til tekist og kostnaður við próf-
kjörið hafi verið í lágmarki; alls hafi
framkvæmdin kostað um 1,3 millj-
ónir króna. „Það er á við prófkjör-
skostnað hjá sparsömum frambjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík,“ segir Geir.
Minni kjörsókn en ella
Aðspurður hvort hann telji þetta
fyrirkomulag hafa haft áhrif á kjör-
sókn segir hann að reglurnar hafi
skilað minni kjörsókn en ella.
„En á móti kemur að þetta fyr-
irkomulag er miklu lýðræðislegra
þegar upp er staðið. Frambjóðend-
urnir eru ekki háðir fólki sem gefur
þeim peninga og eru sínir eigin herr-
ar,“ segir Geir og bendir ennfremur
á að þessar reglur hafi til að mynda
leitt til þess að fólk í námi, sem er
með lítil fjárráð gat tekið þátt án
þess að slíkt bitni á árangri þeirra.
Ellefu gáfu kost á sér í prófkjör-
inu, þar af fimm í fyrsta sætið en auk
þeirra fjögurra efstu stefndi Sveinn
Kristinsson á fyrsta sæti. Niður-
staða prófkjörsins er bindandi en að
sögn Geirs gera reglurnar ráð fyrir
því að frambjóðendur af báðum
kynjum verði að vera meðal þriggja
efstu frambjóðendanna til að kosn-
ingin sé bindandi. Svo var núna, þar
sem kona lenti í þriðja sæti en karl-
menn skipa fyrsta, annað og fjórða
sæti listans.
Guðbjartur skipar fyrsta sætið
! " ##$
!
" #$"%
!&&
''
'(
&)*
Vegna banns við auglýsingum nam heildarkostnaður við prófkjörið um 1,3 milljónum króna
Í HNOTSKURN
»Aðeins var kosið um fjög-ur efstu sætin í prófkjör-
inu og röðun frambjóðenda í
neðri sæti er ekki kynnt.
»Heildarfjöldi atkvæða var1668, þar af voru auð og
ógild atkvæði 69 en gild at-
kvæði 1599.
»Alls eru um 1300 félagar íSamfylkingunni í kjör-
dæminu en óflokksbundnir
höfðu rétt til þátttöku ef þeir
undirrituðu stuðningsyfirlýs-
ingu við Samfylkinguna.
»Stillt var upp á lista Sam-fylkingarinnar fyrir fjór-
um árum og var þá Jóhann Ár-
sælsson í fyrsta sæti en hann
gaf ekki kosti á sér í ár.
»Anna Kristín Gunn-arsdóttir skipaði annað
sæti listans fyrir fjórum árum
og Gísli S. Einarsson, bæj-
arstjóri á Akranesi, það
þriðja.
» Samfylkingin á tvo þing-menn í Norðvest-
urkjördæmi.
Prófkjör Frambjóðendur sem gáfu kost á sér í prófkjöri Samfylking-
arinnar í NV-kjördæmi en á myndina vantar Björn Guðmundsson.
ANNA Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður, lenti í þriðja
sæti í prófkjörinu og segir hún að niðurstaðan sé von-
brigði fyrir sig, enda hafi hún sóst eftir 1.–2. sæti. „Þetta
eru ákveðin vonbrigði fyrir mig, það er ekki hægt að
neita því,“ segir hún. Aðspurð hvort hún ætli sér engu að
síður að taka sætinu segir hún að langt sé í kosningar og
hún hafi ekki tekið neina ákvörðun hvað það varðar.
Hún segir að staðið hafi verið sérstaklega vel að próf-
kjörinu og að möguleikar flokksins í vor séu góðir.
„Það var ánægjulegt að vinna í þessu og ég vona bara
að þetta komi vel út þegar upp er staðið,“ segir Anna en
bætir við að niðurstaðan varðandi kynjahlutföllin sé hins
vegar ekki jákvæð, enda þrír karlar í efstu fjórum sætunum.
Hún sagðist vera þakklát stuðningsmönnum sínum og öðrum sem að-
stoðuðu sig í baráttunni.
Anna Kristín
Gunnarsdóttir
„Ákveðin vonbrigði “
GUÐBJARTUR Hannesson skólastjóri sigraði í prófkjör-
inu og var að vonum kátur með niðurstöðuna.
„Ég er mjög ánægður enda voru það fimm sem sóttust
eftir fyrsta sætinu og allt úrvalsfólk þannig að ég get
ekki verið annað en sáttur,“ segir hann.
Guðbjartur er nú að sækjast eftir þingsæti í fyrsta
skipti. Hann sat í 12 ár í bæjarstjórn Akraness en hætti
afskiptum af bæjarmálunum árið 1998.
Aðspurður hvað hafi skilað þessum árangri sagði
hann erfitt að segja til um það.
„Sjálfsagt vegur Akranes þungt í þessu og að ég er vel
kynntur varðandi skólamál en það eru margar ástæður
og erfitt að átta sig á þessu.“ Hann segir hópinn sterkan og segist hann
hlakka mjög til að taka þátt í baráttunni í þingkosningunum í vor.
„Mjög ánægður“
Guðbjartur
Hannesson
KARL V. Matthíasson, prestur og fyrrverandi þing-
maður, hafnaði í öðru sæti listans og segist hann vera
glaður og þakklátur fyrir þann stuðning sem hann
hlaut.
Karl sat á þingi fyrir Samfylkinguna 2001-2003 og
hafði komið inn sem varamaður á þing af og til áður.
Aðspurður hverju hann þakki þennan árangur, segist
hann fyrst og fremst þakka þetta því að hann hafi lif-
að og starfað í kjördæminu í 30 ár.
„Ég hef verið hér með fólki við ýmsar aðstæður í
gleði og sorg sem kennari, prestur og sjómaður,“ segir
Karl. Hann telur að hið nýja fyrirkomulag prófkjörsins
að hafa engar auglýsingar og kostnað þar af leiðandi í lágmarki hafi
gefist afar vel. „Það var mjög gott hvernig við fórum í þetta. Ég efast
um að nokkuð prófkjör í landinu verði jafnódýrt og þetta prófkjör. Þetta
var mjög gott fyrir flokkinn.“
„Gott fyrir flokkinn“
Karl V.
Matthíasson
GLITNIR gekk nýlega frá samn-
ingi um að gerast aðalstyrktaraðili
Kaupmannahafnarmaraþonsins og
því munu hlauparar þreyta Glitn-
ismaraþon í þremur af fimm höf-
uðborgum Norðurlanda á næsta
ári.
Bankinn hefur um hríð verið að-
alstyrktaraðili Reykjavík-
urmaraþonsins og í sumar gerðist
hann aðalstyrktaraðili Oslóarm-
araþonsins. Bæði maraþonin eru
kennd við bankann, líkt og raunin
verður á í Kaupmannahöfn. Í Nor-
egi heitir hlaupið „Glitnir Oslo
Maraton“ og svo koll af kolli.
Sömu auglýsingamyndir og slag-
orðið „Allir sigra“ hefur verið not-
uð til að kynna öll hlaupin. Samn-
ingurinn við maraþonið í
Kaupmannahöfn er til eins árs en
með möguleika á framlengingu í
tvö ár til viðbótar og samningur
við Oslóarmaraþonið er til þriggja
ára.
Pétur Þorsteinn Óskarsson, for-
stöðumaður kynningarmála hjá
Glitni, sagði að bankinn vildi með
þessu styrkja mjög gott málefni en
jafnframt væri þetta gott tækifæri
til að vekja athygli á bankanum.
Líkt og í Reykjavíkurmaraþon-
inu hét Glitnir á starfsmenn sína
sem hlupu í Oslóarmaraþoninu og
tókst þeim að safna um fimm millj-
ónum íslenskra króna sem runnu
til góðgerðarmála, að sögn Péturs.
Sami háttur verður hafður á í
Kaupmannahöfn. Pétur benti á að
mörg fyrirtæki hefðu farið að for-
dæmi Glitnis og heitið á starfs-
menn sem hlupu í Reykjavík-
urmaraþoni og að vonast væri til
að hið sama myndi gerast í Osló
og Kaupmannahöfn.
Glitnir er með starfsstöðvar í
Reykjavík, Osló og Kaupmanna-
höfn en einnig í London, Lúx-
emborg og Halifax og því vaknar
sú spurning hvort bankinn ætli
líka að styrkja maraþon þar. Að-
spurður sagði Pétur að engar
ákvarðanir hefðu verið teknar um
að styrkja fleiri hlaup.
Morgunblaðið/Jim Smart
42,2 kílómetrar eftir Fjöldi þátttakenda í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ágúst fór fram úr öllum vonum.
Glitnir styrkir
maraþon í þremur
höfuðborgum