Morgunblaðið - 30.10.2006, Síða 19
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 19
Chicago. AP. | Ný rannsókn bendir
til þess að grænmeti stuðli að því
að heilinn haldist lengur ungur og
hægi á andlegri hrörnun sem
stundum er rakin til öldrunar.
Þegar andlega skerpan var mæld
leiddi rannsóknin í ljós að aldrað
fólk, sem borðaði mikið af græn-
meti á hverjum degi, virtist fimm
árum yngra andlega þegar sex ára
rannsókninni lauk en þeir sem
borðuðu ekkert eða lítið af græn-
meti.
Nær 2.000 konur og karlar tóku
þátt í rannsókninni sem var gerð í
Chicago og nágrenni. Niðurstaða
hennar sannar ekki að grænmeti
dragi úr andlegri hrörnun en renn-
ir frekari stoðum undir vísbend-
ingar um að svo sé.
Grænmetistegundir á borð við
spínat og grænkál virðast sérlega
hollar fyrir heilann. Vísindamenn
telja að skýringin geti verið sú að
þessar tegundir eru ríkar af E-
vítamíni, andoxunarefni sem talið
er hamla á móti efnum sem lík-
aminn framleiðir og geta skaðað
frumur.
Í grænmeti er yfirleitt meira af
E-vítamíni en í ávöxtum, sem virð-
ast ekki draga úr andlegri hrörnun
ef marka má niðurstöður rannsókn-
arinnar. Grænmeti er oft borðað
með hollri fitu á borð við salatolíu
sem hjálpar líkamanum að taka
upp E-vítamín og önnur andox-
unarefni.
Fita úr hollri olíu getur haldið
kólesterólinu niðri og æðunum
hreinum, en hvort tveggja stuðlar
að heilbrigðum heila.
Grænmeti
getur hægt á
andlegri hrörnun
Morgunblaðið/Ómar
Merkilegt Aldrað fólk, sem borðaði mikið af grænmeti á hverjum degi,
virtist fimm árum yngra andlega en þeir sem borðuðu lítið af grænmeti.
KONUR sem drekka kóladrykki
að staðaldri gætu með því verið að
auka hættu á beinþynningu, en
samkvæmt niðurstöðu nýlegrar
breskrar rannsóknar eru þær kon-
ur sem neyta kóladrykkja með
minni beinþéttni en aðrar. Svo
segir á fréttavef BBC og kom
einnig í ljós að þetta átti aðeins
við um konur en ekki karla sem
drekka kóladrykki. Ekki fannst
tenging á milli neyslu kvenna á
öðrum kolsýrðum drykkjum og
beinþynningar.
Fyrst var haldið að áhrif neyslu
kóladrykkja á beinþéttni kvenna
væru þau að þá drykkju þær
minna af mjólk, en í ljós kom að
þessar konur drukku ekki minna
af mjólk en aðrar konur. Samt
sem áður var almenn kalkneysla
minni hjá þeim konum sem
drukku hvað mest af kóladrykkj-
um.
Sökudólgurinn í tengslum kóla-
drykkju við beinþynningu, gæti
verið fosfórsýra sem er í kóla-
drykkjum, en þó hefur það ekki
verið að fullu sannað. Þegar
neysla kóladrykkja er endurtekin
daglega í langan tíma veldur fos-
fórsýran sýrumyndandi breyt-
ingum í blóðinu. Kenningin geng-
ur út á það að þá færist kalk frá
beinunum til blóðsins, til að jafna
sýrustöðuna í blóðinu, en þessi
kenning er þó umdeild. En það er
vitað að fosfórsýra hefur áhrif á
heilbrigði beina, og því er full
ástæða til að benda þeim konum
sem hafa áhyggjur af beinþynn-
ingu á að stilla kóladrykkju sinni í
hóf. En besta forvörnin gegn bein-
þynningu seinna á ævinni felst í
því að ungar stúlkur og konur
borði holla fæðu og stundi reglu-
lega hreyfingu.
Kóladrykkir
eru slæmir
fyrir bein
kvenna
Morgunblaðið/Sverrir