Morgunblaðið - 30.10.2006, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 30.10.2006, Qupperneq 23
börn MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 23 HAMINGJA barnanna stendur efst á óskalista foreldra sam- kvæmt nýrri norskri rannsókn. Öryggi og samvera eru mik- ilvægir þættir eigi sú ósk að ganga eftir. Aftenposten greinir frá nýrri bók þeirra Christina Oscarsson og Jorunn Hansson þar sem kast- ljósinu er beint að börnum og hamingju. Könnun þeirra meðal 200 foreldra ungra barna leiddi í ljós að foreldrar óska einskis heitar en að börn þeirra verði hamingjusöm. Höfundarnir leggja áherslu á að það megi þó ekki verða til þess að börnunum finnist þau verða að vera hamingjusöm öll- um stundum því þá sé hætta á að þau gleymi að vera þau sjálf. „Við fullorðnu berum ábyrgð á að hjálpa börnunum til að verða öruggir og hugsandi ein- staklingar sem eru í jafnvægi þannig að þeir þoli bæði meðbyr og mótbyr,“ segir Oscarsson sem er sammála meðhöfundi sínum um að eitt það mikilvægasta sem foreldrar geti gefið börnum sín- um sé öryggi og tími. Verum duglegri við kæruleysið Uppeldisfræðingurinn Áshild Ek Bråtane og þriggja barna móðir er þessu hjartanlega sam- mála. „Við þurfum að verða dug- legri við að vera kærulaus. Besta ráðið sem ég get gefið foreldrum er að líta fram hjá skítnum á heimilinu, slökkva á gemsanum og gera eitthvað skemmtilegt með börnunum.“ Oscarsson og Hansson hitta í starfi sínu marga foreldra sem ganga um með stöðugt sam- viskubit yfir börnunum. Hansen bendir á að dýr sumarfrí og ver- aldlegir hlutir komi ekki í stað- inn fyrir nærveru foreldranna. Hún segir umræðuna um gæða- tíma kjánalega því magn og gæði tíma séu tvær hliðar á sama máli. „Gæðin krefjast tíma, nærveru og daglegra upplifana saman. Við- getum auðveldlega lent í því að börnin okkar þori ekki að tala við okkur um áhyggjur sínar og vandamál þegar við erum lítið á staðnum.“ Æðsta takmark að verða hamingjusamur Nútímaforeldrar eru þó ekki þeir einu sem setja hamingjuna á oddinn. Grikkir og Rómverjar til forna voru mjög uppteknir af hamingjunni og til að mynda staðhæfði Aristóteles að æðsta takmark manneskjunnar væri að verða hamingjusöm. Hamingjan sett á oddinn Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Forgangsröð Dýr sumarleyfi og veraldlegir hlutir koma ekki í staðinn fyrir nærveru foreldranna dags daglega. Besta ráðið sem ég get gefið for- eldrum er að líta fram hjá skítnum á heimilinu, slökkva á gemsanum og gera eitthvað skemmtilegt vaxtaauki! 10%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.