Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 39
úr vesturheimi
Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni
Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík
Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn
K
R
A
FT
A
V
ER
K
MULTÍ VÍT inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni. Dagleg neysla byggir upp
og stuðlar að hreysti og góðri heilsu.
Manitobafylki var sem lítið frí-
merki, um 33.000 ferkílómetrar,
þegar fyrstu Íslendingarnir komu
þangað 1875. Fyrir norðan var
norðvestursvæðið (North-West
Territories) sem nú tilheyrir að
stærstum hluta Alberta, Saskatc-
hewan og Manitoba. Íslensk sendi-
nefnd valdi land fyrir Íslendinga
við vesturströnd Winnipegvatns,
frá mörkum Manitoba og norð-
vestursvæðisins nálægt núverandi
Winnipeg Beach norður fyrir nú-
verandi Íslendingafljót. Strand-
lengjan var um 60 km löng og
svæðið ásamt Heclu-eyju var
nefnt Nýja Ísland. Fyrsti íslenski
hópurinn kom til Winnipeg 11.
október 1875 og rúmri viku síðar
eða 21. október tóku Íslendingar
land á Willow Point á Víðinesi,
rétt sunnan við þar sem nú er
Gimli.
Íslensku landnemarnir kusu sér
fljótlega fimm manna stjórn til að
sinna málum íbúanna. 1877 var
Nýja Íslandi skipt í fjögur svæði,
Víðinesbyggð, Árnesbyggð, Fljóts-
byggð og Mikleyjarbyggð, og var
kjörin fimm manna sveitarstjórn í
hverju þeirra, auk þess sem sér-
stök stjórn hafði yfirumsjón með
öllu svæðinu. 1881 varð Nýja Ís-
land hluti af Manitoba og um sex
árum síðar voru stjórnarhættir í
Nýja Íslandi lagaðir að fyr-
irkomulaginu eins og það var ann-
ars staðar í Manitoba. Einstöku
stjórnarfyrirkomulagi í Kanada
var lokið.
Í tilefni 100 ára afmælis ís-
lensks landnáms á Víðinesi var
efnt til göngu frá Gimli að Willow
Point 21. október 1975. Síðan hef-
ur gangan verið árlegur viðburður
og hefur oft verið fjölmennt í
hana. Svo var í ár enda ákveðin
tímamót. Annars vegar 125 ár frá
því Nýja Ísland sameinaðist Mani-
toba og auk þess stóð undirbún-
ingur sveitarstjórnarkosninga sem
hæst.
Um kvöldið lék Sinfón-
íuhljómsveit Winnipeg fyrir fullu
húsi í Fraserwood og viðamikil
dagskrá var í Riverton daginn eft-
ir. Þar var meðal annars minnst
Íslendinga og frumbyggja sem lét-
ust í bólusóttinni á svæðinu vet-
urinn 1876 til 1877.
Atli Ásmundsson, aðalræð-
ismaður Íslands í Winnipeg, hefur
fyrir hönd íslensku ríkisstjórn-
arinnar unnið ötullega að auknum
samskiptum milli Íslands og Mani-
toba og lagði lið Safni íslenskrar
menningararfleifðar í Nýja Ís-
landi, The New Iceland Heritage
Museum, vegna hátíðardagskrár-
innar um liðna helgi. Þar bar hæst
skemmtun Ragnheiðar Gröndal í
Riverton.
125 ár frá sameiningu Nýja
Íslands og Manitoba
Um þessar mundir eru
125 ár síðan Nýja Ís-
land sameinaðist form-
lega Manitobafylki í
Kanada og af því tilefni
var viðamikil menning-
ardagskrá í Nýja Ís-
landi um liðna helgi.
Steinþór Guðbjartsson
fylgdist með viðburð-
um.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Fjölmenni Gangan frá Gimli suður í Víðines tekur um 40 mínútur og á meðal göngugarpa að þessu sinni voru
Helga Skúladóttir skiptinemi frá Háskólanum á Bifröst, Austfirðingurinn Helgi Skúlason frá Gimli, Selfyssing-
urinn Grétar Axelsson frá Gimli, Peter Bjornson menntamálaráðherra Manitoba, og Brent Johnson frá Gimli.
Gleði Atli Ásmundsson og Þrúður Helgadóttir glaðbeitt með dóttursyn-
inum Þór Elíassyni eftir gönguna frá Gimli að Willow Point.
RAGNHEIÐUR
Gröndal, söng-
kona, gerði góða
ferð til Manitoba
á dögunum,
vakti mikla at-
hygli og tilheyr-
endur klöppuðu
henni lof í lófa
fyrir sönginn og
píanóleikinn.
„Ég er mjög
ánægð með við-
tökurnar,“ sagði
Ragnheiður við
Morgunblaðið eftir loka-
tónleikana í Riverton.
Fyrir tónleikana í Riverton
kom Ragnheiður fram á veit-
ingastaðnum Inn at the Forks við
ármót Rauðár og Assinniboineár í
Winnipeg þrjú kvöld í röð. Gestir
kunnu vel að meta tilþrifin og
fjölmiðlar gerðu henni góð skil.
Ragnheiður fyllti síðan samkomu-
húsið í Riverton og lék og söng í
rúman klukkutíma við mikinn
fögnuð viðstaddra. „Ég er svo
ánægð, þetta var svo gaman,“
sagði hún eftir tónleikana. Þessi
tæplega 22 ára söngkona bætti
við að hún hlakkaði til að koma
aftur til Manitoba, en hún stund-
ar nú nám við New School of
Jazz and Contemporary Music í
New York.
Morgunblaðið/Steinþór
Þakkir Gestir í Riverton kunnu vel
að meta framlag Ragnhildar og fyr-
ir hönd þeirra færði Carrigan John-
son henni gjöf að skilnaði.
„Mjög
ánægð með
viðtökurnar“
Sigur Ragnheiður
Gröndal, söng-
kona, gerði góða
ferð til Manitoba.