Morgunblaðið - 30.10.2006, Síða 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 303. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
NA-átt, víða
10–15 m/sek. en
15–23 m/sek. á
SA-landi. Dálítil
él norðaustantil, annars
úrkomulítið. » 8
Heitast Kaldast
7°C 0°C
GUÐBJARTUR Hann-
esson, skólastjóri á
Akranesi, sigraði í próf-
kjöri Samfylkingarinn-
ar í Norðvesturkjör-
dæmi sem fram fór í
gær og fyrradag. Karl
V. Matthíasson varð í
öðru sæti, Anna Kristín
Gunnarsdóttir í því
þriðja og Sigurður Pét-
ursson í því fjórða en
aðeins var kosið um fjögur efstu sætin á
listanum. Alls greiddu 1668 atkvæði en
kosið var á sextán kjörstöðum.
Guðbjartur sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að hann væri afar
ánægður með niðurstöðuna enda hefðu
fimm aðrir sóst eftir fyrsta sætinu. Hann
sagði að listinn væri sterkur og að hann
teldi möguleika flokksins góða fyrir þing-
kosningarnar í vor.
Í reglum prófkjörsins var kveðið á um
að auglýsingar væru bannaðar og að sögn
Geirs Guðjónssonar, formanns kjördæmis-
ráðs, nam heildarkostnaður við prófkjörið
um 1,3 milljónum króna. Geir sagði að
þetta kynni að hafa komið niður á kjör-
sókn en á móti kæmi að frambjóðendurnir
væru ekki háðir þeim sem gæfu fé. | 11
Guðbjartur leiðir lista
Samfylkingar í
Norðvesturkjördæmi
Guðbjartur
Hannesson
TILRAUN var gerð til nauðgunar á veit-
ingastað í Reykjavík aðfaranótt sunnu-
dagsins. Um var að ræða hóp útlendinga
sem gerði sig líklegan til nauðgunar inni á
veitingastaðnum. Til mannanna sást og af-
stýra tókst nauðguninni og var lögreglan
strax kölluð á staðinn.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru
„nokkrir menn“ handteknir, sem tengdust
málinu, hvort sem var að miklu eða litlu
leyti og voru þeir fluttir í fangageymslur.
Þeir voru yfirheyrðir af rannsóknarlög-
reglunni í gær en ekki liggur fyrir hvort
eða hversu margir kunna að verða ákærð-
ir í tengslum við málið.
Tilraun til nauðgunar
á skemmtistað
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
BJÖRN Bjarnason, dómsmálaráð-
herra, telur sig hafa unnið varnar-
sigur eftir harða sókn að sér utan
flokks og innan. Hann segir að
prófkjör séu ekki besta leiðin til að
þétta raðir flokksmanna og átök í
kringum þau geti leitt til viðvar-
andi sundrungar.
Björn beið lægri hlut fyrir
Guðlaugi Þór Þórðarsyni í barátt-
unni um 2. sætið á lista Sjálfstæð-
isflokksins í prófkjöri flokksins í
Reykjavík sem lauk á laugardag.
Guðlaugur Þór hlaut afgerandi
kosningu í 2. sætið, fékk 5.071 at-
kvæði en Björn Bjarnason hlaut
3.858 atkvæði í annað sætið.
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, fékk afar góða
kosningu í 1. sæti en hann hlaut
88,8% gildra atkvæða í það sæti og
er það einhver besta útkoma sem
formaður í flokknum hefur fengið í
prófkjöri.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Guðlaugur Þór að Björn hefði hlot-
ið afar góða kosningu í 3. sætið sem
væru skýr skilaboð um að hann
ætti að vera áfram í forystusveit
flokksins. Hann sagði kosninga-
baráttuna hafa verið stutta og
snarpa og vissulega harða á köfl-
um. Hann þakkaði keppinautum
sínum fyrir drengilega kosninga-
baráttu.
Í pistli á vef sínum í gær sagði
Björn, að prófkjör væru ekki besta
leiðin til að þétta raðir flokks-
manna og hvetja þá til samstöðu,
því í eðli þeirra fælist krafa um
átök. Slík átök gætu leitt til viðvar-
andi sundrungar og reyndi þá mjög
á forystumenn og hæfileika þeirra
til að draga úr viðsjám og leiða hóp-
inn á ný til samstöðu og samheldni.
Hann sagði að útkoma sín væri
góður varnarsigur. „Eftir margra
ára árásir andstæðinga og geysi-
harða atlögu innan flokks, þar sem
hvorki var sparað fé né fyrirhöfn,
fékk ég mjög örugga kosningu í
þriðja sæti og raunar mikinn stuðn-
ing í annað sætið.“
Átök í prófkjöri geta leitt
til viðvarandi sundrungar
Formaður hlaut góða kosningu og
nýliðar skutust upp í 4. og 5. sæti
/
& &
(
0 1 1
2 2
3 0
4 5
2 4
) 6& '
7
8
9
$
" 0 : :
0
2 6; 1 2
<& <&
4= -
0 > 5 ?@ '
7
8
9
$
" A
## #
Miðopna | Niðurstaðan
SÝNINGUNNI Handverk og hönnun í Ráðhúsi
Reykjavíkur lauk í gær og skoðaði mikill fjöldi
gesta sýninguna á lokadeginum. Um var að
ræða stóra sölusýningu og markað með ís-
lensku handverki og listiðnaði þar sem gat að
líta fjölbreytta íslenska hönnun, handverk og
listiðnað. Það var Handverk og hönnun sem
stóð fyrir og skipulagði þennan viðburð en
verkefnið hefur verið rekið með fjárhags-
legum stuðningi frá forsætisráðuneyti, félags-
málaráðuneyti, iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neyti og Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Sérstök valnefnd valdi sextíu þátttakendur og
það voru listamennirnir sjálfir sem kynntu og
seldu vörur sínar, t.a.m. muni úr leðri og roði,
skartgripi, glermuni, nytjahluti úr leir, hús-
gögn, fjölbreyttar textílvörur, hluti úr hornum
og beinum og fjölbreytta trémuni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Fjölmenni á handverkssýningu í Ráðhúsinu
VILHJÁLMUR Ari Arason, dokt-
or í heimilislækningum, telur að
stjórnvöld hafi ekki gert nóg til að
draga úr óþarfri notkun sýklalyfja
hér á landi. Í doktorsritgerð sinni
skoðaði Vilhjálmur hvaða áhrif
mismunandi venjur lækna við
ávísun sýklalyfja hafa á útbreiðslu
sýkinga sem sýklalyf vinna illa á.
Unnið hefur verið að því á ýmsum
stöðum á landinu, t.d. Egilsstöð-
um, að draga úr notkun sýklalyfja
að oft geti verið óskynsamlegt að
grípa til slíkra lausna, sem sýkla-
lyfin geti oft verið, því annars
stefni í óefni hér á landi. Miklar
líkur séu á að lyfjaónæmir sýklar
skjóti rótum í börnum sem oft noti
sýklalyf en einnig verði að hafa í
huga að börn sem séu á sýklalyfj-
um geti verið hættulegir smitber-
ar. „Í Svíþjóð er það t.d. venjan að
börn fari ekki á leikskóla á sama
tíma og þau eru á sýklalyfjum.“ | 6
Egilsstaða, þar sem ástandið var
mjög svipað fyrir 10 árum,“ segir
Vilhjálmur.
Mikilvægt sé að sýklalyfjum sé
ekki beitt gegn sýkingum sem lík-
aminn ráði sjálfur við því þá skap-
ist svigrúm fyrir ónæma sýkla til
að magnast upp. Börn nota hlut-
fallslega meira af sýklalyfjum en
fullorðnir því oft er talið að beita
þurfi lyfjum sem víst sé að virki.
Fræða þurfi lækna og foreldra um
og benda niðurstöður Vilhjálms til
þess að á þeim svæðum hafi dregið
úr sýkingum af völdum lyfja-
ónæmra sýkinga og t.d. hafi
eyrnabólgutilfellum fækkað veru-
lega. Á öðrum stöðum eins og
Vestmannaeyjum sé enn verið að
gefa mikið af sýklalyfjum og þar
komi upp mikið af eyrnabólgutil-
fellum. „Þannig að það hefur orðið
mikill aðskilnaður milli svæða,
eins og á milli Vestmannaeyja og
Minnka þarf notkun sýklalyfja
SUMARIÐ í ár hefði í gamla daga verið
kallað óþurrkasumar, að sögn Ólafs R.
Dýrmundssonar, ráðunautar hjá Bænda-
samtökum Íslands. Það var töluvert erfitt
heyskaparsumar, en ótíðin var á Suður-
landi, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og
jafnvel á stærri svæðum. Ólafur segir að
baggatækni, þar sem heyi er pakkað í plast
áður en það er fullþurrt, hafi bjargað
miklu og að hún hafi aukið mjög öryggi við
heyskap. „Það hefði orðið mjög slæmt
ástand ef við hefðum verið með tæknina
sem var fyrir svona 20 árum. Baggatæknin
hefur gjörbreytt stöðunni,“ segir Ólafur.
Í heildina var grasspretta ágæt í sumar
en Ólafur segir menn hafa kvartað nokkuð
yfir lélegum slætti. Haustið hefur síðan
verið alveg einstakt alveg fram undir
þetta, að sögn Ólafs. Menn hafi víða slegið
góða há á túnum og jafnvel dæmi um að
menn hafi slegið þrisvar.
Hefði verið kallað
óþurrkasumar
Morgunblaðið/ÞÖK