Morgunblaðið - 21.11.2006, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Innlent
Tillögu Þyrpingar hf. um 22 þús-
und fermetra landfyllingu norðan við
Eiðsgranda á Seltjarnarnesi hefur
verið hafnað af skipulags- og mann-
virkjanefnd Seltjarnarnesbæjar.
» Baksíða
Geir H. Haarde forsætisráðherra
fagnar áhuga norska stjórnvalda á að
auka samstarf sitt við Íslendinga í ör-
yggis- og varnarmálum. Telur hann
að einnig sé áhugi hjá Bretum og
Kanadamönnum á að fylgjast með
þróun mála hér og jafnvel taka þátt í
samstarfi. » Forsíða
Líkur eru á því að Indland opni
sendiráð hér á landi þegar á næsta
ári. Þetta kom fram í samtali Sól-
veigar Pétursdóttur, forseta Alþing-
is, við utanríkisráðherra Indlands, en
Sólveg er þessa dagana stödd í opin-
berri heimsókn á Indlandi ásamt
sendinefnd frá Alþingi. » 11
Viðskipti
Rekstur Olíufélagsins Esso, Bíla-
nausts og dótturfélaga verður sam-
einaður snemma á næsta ári. Hið
sameinaða félag verður tíunda
stærsta fyrirtæki landsins með um
30 milljarða veltu á ári. Starfsmenn
fyrirtækjanna eru um 700 talsins.
Markmiðið með sameiningunni er að
auka sóknarþungann á bílamarkað-
inum. » 13
Erlent
Réttarhöldin yfir Saddam Huss-
ein vegna glæpa gegn mannkyni
voru gölluð í grundvallaratriðum
samkvæmt nýrri skýrslu Mannrétt-
indavaktarinnar (Human Rights
Watch). Lögmenn Saddams Huss-
eins fögnuðu niðurstöðunni og hvöttu
mannréttindasamtök til að binda
enda á „skrípaleikinn“. » 15
Átján ára piltur í Þýskalandi réð-
ist til inngöngu í barnaskóla í gær-
morgun vopnaður byssum og með
sprengiefni bundið um sig miðjan.
Hann særði ellefu manns áður en
hann fannst sjálfur látinn. » 14
Íranar hafa boðið forsetum Íraks
og Sýrlands til viðræðna í Teheran
við forseta Írans til að ræða hvernig
binda megi enda á blóðsúthelling-
arnar í Írak. » Forsíða
Borðaði ég kvöldmat í gær?
Frásagnargáfa og húmor
eins og Íslendingar vilja
hafa hann
„Þetta er þaulhugsaður
texti, hverfist um skýra
fléttu hverrar sögu án
útúrdúra. Og um allt
leikur elskuleg hæðni
sem veldur hlátri hjá
grandalausum lesanda
sem veit varla hvers er
von.“
Páll Baldvin Baldvinsson,
Fréttablaðinu 13. nóvember
Nýtt íslenskt skáld
Óskar Magnússon
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
UMTALSVERT tjón varð á íbúðar-
húsum á gamla varnarsvæðinu á
Keflavíkurflugvelli þegar vatn rann
um tuttugu íbúðarblokkir á svæðinu
um nýliðna helgi. Vatnslagnir virð-
ast hafa sprungið í frosthörkunum
sem ríkt hafa að undanförnu með
þeim afleiðingum að tjón hefur orðið
sem gæti numið tugum ef ekki
hundruðum milljóna króna.
Að sögn Björns Inga Knútssonar
flugvallarstjóra uppgötvaðist tjónið
á sunnudag þegar brunaboðakerfi á
svæðinu fór í gang en Flugmála-
stjórn á Keflavíkurflugvelli vaktar
alla brunaboða innan vallarsvæðis-
ins. „Þegar menn mættu á staðinn
blasti við þeim ófögur sjón,“ segir
Björn og tekur fram að skemmdirn-
ar séu mismiklar milli húsa. Í fram-
haldinu voru, að sögn Björns, kall-
aðir út vinnuflokkar sem í gær og
fyrradag fóru á milli húsa til að
skoða þau og skrúfa fyrir vatnsinn-
tök inn í íbúðarblokkirnar.
Að sögn Björns má gera ráð fyrir
að vatnstjón hafi orðið á um fjórð-
ungi þess húsnæðis sem á vellinum
er. Að mati Björns er hér um tilfinn-
anlegt tjón að ræða því mikið af því
húsnæði sem orðið hafi fyrir vatns-
skemmdum hafi verið húsnæði sem
var í toppstandi. Segir hann næsta
skref að meta skemmdirnar og fara í
nauðsynlegt hreinsunarstarf til þess
að hindra enn frekara tjón.
Óljóst hver ber kostnaðinn
Aðspurður hvað valdið hafi tjóninu
segir Björn ljóst að húsin hafi verið
með lágmarkskyndingu síðan herinn
yfirgaf landið. Segir hann tjónið
fyrst og fremst mega rekja til frost-
hörkunnar og þess að engin hreyfing
var á vatninu í húsunum. Spurður
hvort koma hefði mátt í veg fyrir
tjónið svarar Björn því játandi og
bendir á að þurft hefði að loka fyrir
kaldavatnsinntakið.
Að sögn Björns er ekki ljóst hver
muni bera kostnað af skemmdunum
en Þróunarfélag Keflavíkurflugvall-
ar hefur ekki enn tekið við fasteign-
unum og ekki hafa verið gerðir nein-
ir þjónustusamningar um viðhald.
Ekki liggur heldur ljóst fyrir hvort
húsnæðið hafi verið tryggt.
Umtalsvert tjón þegar
vatnslagnir sprungu
Vatnstjón varð í 20 íbúðarblokkum á gamla varnarsvæðinu
Í HNOTSKURN
»Umtalsvert vatnstjón varðí 20 íbúðarblokkum á
gamla varnarsvæðinu á Kefla-
víkurflugvelli.
»Líklega hefði mátt koma íveg fyrir tjónið með því að
loka fyrir kaldavatnsinntakið.
»Ekki er á þessu stigi ljósthver muni bera kostnaðinn
af skemmdunum en sumar
þeirra íbúða sem skemmdust
voru í toppstandi.
GEIR H. Haarde
forsætisráðherra
hélt í gær til New
York í Bandaríkj-
unum þar sem
hann mun í dag,
þriðjudag, taka
þátt í Íslandsdegi
í Kauphöllinni í
New York (New
York Stock Ex-
change).
Ávarp og fundur
Forsætisráðherra mun flytja ávarp
og eiga fund með fulltrúum Kauphall-
arinnar og aðilum úr íslensku og
bandarísku viðskiptalífi. Þá mun Geir
hringja út viðskiptin þegar þeim lýk-
ur í Kauphöllinni síðdegis.
Geir H. Haarde
Geir hringir
út viðskiptin
í New York
Í NORÐANVEÐRINU, sem geisaði við Húnaflóa fyrir
helgi, rak hval í landi Útibleiksstaða vestan Miðfjarðar.
Þetta er allstór hrefna, 7,8 metra löng. Björn Þ. Sigurðs-
son á Hvammstanga fann hvalinn sem hafði borist upp í
fjöru, trúlega dauður en óskemmdur að sjá. Er hann nú
forðabúr fyrir hrafna og tófur sem ganga í hræið.
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Hvalreki við Miðfjörð í Húnaþingi
MIKILL krapi hefur myndast í Jök-
ulsá á Fjöllum skammt frá árósnum
og hefur áin stíflast með þeim afleið-
ingum að flætt hefur yfir stórt svæði.
Starfsmenn frá Húsavík unnu að því
í gærkvöldi að halda við
Vestursandsvegi, sem liggur frá
Lindarbrekku en áin var farin að
naga í veginn en hafði þó ekki náð að
rífa hann í sundur. Vegurinn liggur
að fjórum bæjum en enginn þeirra er
þó í byggð og mönnum því ekki
hætta búin. Talsvert er þó um hesta
á svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Húsavík var talið mikil-
vægt að halda veginum við, enda
væri með því móti hægt að halda aft-
ur af rennsli árinnar.
Sveinn Þórarinsson, bóndi í
Krossdal, sagði í gærkvöldi að áin
hefði rifið sig í gegnum varnargarð
og að mikið rennsli væri út í Skjálfta-
vatn. Hann kvað rennsli vera úr
vatninu út í Litluá, sem er veiðiá.
Færi vegurinn í sundur flæddi það
mikið út í ána að klak sjóbirtings í
ánni væri í hættu.
Þá sagði Sveinn að vatn hefði
runnið upp að þjóðveginum en í gær-
kvöldi hafði vatnshæðin þó ekki náð
hæð vegarins. Sveinn kvaðst telja að
yfirborð Skjálftavatns hefði hækkað
um metra í gær. Þá hefði krapinn
stíflað kvíslir árinnar og fyllt farvegi
á svæðinu. Hann sagði að mikill
krapi væri í ánni. Að sögn lögregl-
unnar á Húsavík myndast reglulega
krapi í ánni þótt hann virðist vera
með mesta móti í ár.
Jökulsá flæðir
yfir stórt svæði
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Staksteinar 8 Viðhorf 28
Veður 8 Umræðan 28/30
Úr verinu 11 Minningar 31/37
Viðskipti 13 Skák 37
Erlent 14/15 Brids 37
Menning 16/17, 40/44 Myndasögur 44
Akureyri 18 Dagbók 45/49
Austurland 18 Víkverji 48
Suðurnes 19 Velvakandi 48
Landið 19 Staður og stund 46
Daglegt líf 20/25 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
kynningarblaðið Kraftur og mannlíf í
Þingeyjarsýslu.