Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Hljómsveitin Queen á mest seldu plötuna í Bretlandi og skákar hún meira segja Bítlunum. Það er safnplata Queen, Greatest Hits, sem fer svona vel ofan í breskan almenning en alls hafa selst 5,4 milljónir eintaka af plötunni. Þetta kemur fram á lista yfir 100 mest seldu plötur Bretlands sem tekinn er saman af Official Charts Company, sem stendur að baki vikulegum sölutölum í Bret- landi. Queen hefur með þessari miklu plötusölu tryggt sér sinn sess í Heimsmetabók Guiness. Athygli vek- ur að Rolling Stones, Sting og Bob Dylan eru meðal listamanna sem ekki komast inn á listann yfir 100 mest seldu plötur Bretlands, en Rob- bie Williams á sex plötur á listanum. Oasis, Michael Jackson, Coldplay og Celine Dion eiga öll þrjár plötur á listanum. Í tíu efstu sætunum eru: 1. Queen: Greatest Hits. 5,4 milljónir. 2. The Beatles: Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band. 4,8 milljónir. 3. Oasis: (What’s the Story) Morning Glory? 4,3 milljónir. 4. Dire Straits: Brothers in Arms. 3,9 milljónir. 5. Abba: Abba Gold. 3,9 milljónir. 6. Pink Floyd: Dark Side of the Moon. 3,8 milljónir. 7. Queen: Greatest Hits II. 3,6 milljónir. 8. Michael Jackson: Thriller. 3,6 milljónir. 9. Michael Jackson: Bad. 3,5 milljónir. 10. Madonna: The Immaculate Collection. 3,4 milljónir. Drottn- ingin lifi Queen skákar Bítl- unum og Pink Floyd Queen Greatest Hits JÓLAGJÖFIN í ár er vissulega PlayStation 3 í Bandaríkjunum en óvæntu tíð- indin á jólagjafa- markaðnum er leikin hljóðbók byggð á met- sölubók allra tíma, Biblíunni. Hljóðbókin kall- ast 21 klst. Biblíureynslan og er byggð á þýðingu á Biblíunni á ensku nútímamáli. Það eru eingöngu bandarískir blökkumenn sem lesa upp textann. Denzel Washington er í hlutverki Salómons og Samuel L. Jackson í hlutverki Guðs. Óvæntu tíðindin eru þau að hljóðbókin situr í efsta sæti yfir mest seldu hljóðbæk- urnar í Bandaríkjunum. Þessu má þakka þeim mörgu velþekktu afrísk- amerísku listamönnum sem ljá hljóðbókinni raddir sínar, er haft eftir útgáfufyrirtækinu, Zondervan í Michigan. „Persónurnar, hljóðsetningin og tónlistin leggja sitt af mörkum til þess að hljóðbókin verður skemmti- legasta, áleitnasta og nútímalegasta aðferðin til að kynna sér og skilja Biblíuna,“ segir Paul Caminiti, að- stoðarforstjóri Zondervan. Wal-Mart hefur skýrt frá því að hljóðbókin hefur verið sú mest selda eða nálægt toppnum á þeim lista á vefsölusvæði keðjunnar í margar vikur. Á einum mánuði hafa selst um 80.000 eintök. Í hljóðbókinni er allt Nýja testamentið og hluti af Gamla testamentinu. Tónlistin er flutt af Sinfóníuhljómsveitinni í Prag og fylgir með á geisladisk eða MP3. Biblían í hljóðbók Samuel L. Jackson VERÐLAUNAHÁTÍÐIN Gullkindin verður haldin á Classik Rock í Ármúla fimmtu- daginn 23. nóvember og hefst kl. 20. Gullkindin eru kannski ekki eftirsóknarverðustu verðlaun- in en „sérvalin og leynileg dómnefnd, velur tilnefning- arnar hverju sinni og tilgreinir þá, þær og þau sem hún telur hafa staðið sig sérlega illa á árinu,“ að því er segir í fréttatilkynningu frá út- varpsstöðinni XFM 919 sem hefur veg og vanda að skipulagningunni. Kosning er hafin á vefsíðunni www.xfm.is. Verðlaun Gullkindin veitt þeim lökustu Gullkindin VIKULEGT Skáldaspírukvöld fer fram sem áður í Iðu-húsinu í kvöld kl. 20. Skáld kvöldsins verður Hermann Stefánsson, rithöfundur og tónlistarmaður. Hann mun m.a. lesa upp úr nýrri ljóðabók, Borg í þoku, sem Hávallaútgáfan gefur út. Með þessari bók kveður Her- mann sér hljóðs með gjör- ólíkum hætti, baksvið ljóðanna er borgin Santiago de Comp- ostela á Spáni og er bókin prýdd fjölda ljósmynda. Þá mun hann ásamt bróður sínum, Jóni Halli, rithöfundi, einnig kynna jóladisk sem von er á bráðum, en hann heitir Ofankoma af fjöllunum. Bókmenntir Skáldaspírukvöld í Iðu-húsinu Hermann Stefánsson KVIKMYNDASAFNIÐ sýnir í kvöld kl. 20 í Bæjarbíói í Hafnarfirði, mynd Sams Peck- inpah Cross of Iron frá árinu 1977. Sviðið er síðari heim- styrjöldin á rússnesku víg- stöðvunum. Flokkur þýskra hermanna lendir undir stjórn metorðasjúks liðsforingja sem á þá ósk eina að verða sæmdur Járnkrossinum. Sumir segja þetta bestu mynd Peckinpahs og besta mynd sem gerð hefur verið um verstu átök sögunnar. Leikarar eru: James Coburn, James Mason, David Warner og Maximillian Schell. www.kvikmyndasafn.is Kvikmyndir Járnkrossinn í Bæj- arbíói í Hafnarfirði Sam Peckinpah Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HVAÐ er í pakkanum verði frum- varp menntamálaráðherra um Rík- isútvarpið o.hf. (opinbert hluta- félag), að lögum? Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi 17. október sl. Ríkisútvarpið er í dag sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins og stærstur hluti tekna þess kemur af afnotagjöldum og af auglýsingum. Verði frumvarpið samþykkt, verð- ur innheimtu afnotagjalda hætt en félagið, sem það þá verður, fjár- magnað með sérstökum skatti, út- varpsgjaldi. Frumvarpið um RÚV er nú til umræðu á Alþingi. Í septemberlok var kynntur fimm ára samningur milli RÚV og menntamálaráðuneytisins sem taka mun gildi samhliða lögunum um breytt rekstrarfyrirkomulag stofn- unarinnar. Í samningum, sem tals- vert hefur verið til umræðu, er kveð- ið á um stóraukinn hlut íslensks efnis í dagskrá RÚV, einkum sjón- varpi. Hún hefur ekki vakið eins mikla eftirtekt klausan í samningnum, um að stefnt skuli að samkomulagi við rétthafa um víðtækari notkun á eldra safnaefni til að gera það að- gengilegra almenningi, og ekki held- ur ákvæðið um að RÚV geri áætlun fyrir lok næsta árs um að koma eldra efni, til dæmis á plötum, seg- ulböndum og filmum, á aðgengilegt form til geymslu og framtíðarnotk- unar. Þessi ákvæði eru þó mjög þýð- ingarmikil. Safn ríkisútvarpsins geymir ómet- anlegar menningarminjar í tali, tón- um og mynd. Ekkert viðlíka safn er til í landinu. Óvinnandi vegur væri að verðleggja safnið, ef taka ætti til- lit til annarra þátta en beinna efn- isþátta. Hvaða verðmiða er hægt að setja á upptökur frá merkustu sam- komum í sögu þjóðarinnar er varða stjórnmálasögu, listasögu og al- menningsheill á ýmsan máta? Sveinn Björnsson, Ólafur Thors, Einar Olgeirsson, Þorsteinn Ö. Stephensen, Árni Kristjánsson, Björk og Músíktilraunir, þetta eru aðeins örfá dæmi sem gefa vonandi einhverja hugmynd um efnið í safni RÚV. Þó hefur varla verið minnst á talmálsefni, fréttir og fréttatengt efni, erindi, frásagnir, sagnaþætti og allt mögulegt af þeim toga – efni sem hlýtur að hafa gríðarmikið sögulegt gildi. Óhætt er að fullyrða að íslensk tónlistarsaga sé fyrst og fremst skráð í safni Ríkisútvarpsins, í upp- tökum hljóðvarps og sjónvarps, og á árum áður þótti það nokkur mæli- kvarði á velgengi tónlistarmanna ef búið var að gera með þeim stúd- íóupptöku í Útvarpinu. Það er brýnt verkefni að allt efni í safni RÚV verði dregið fram í dags- ljósið og hægt verði að gera grein fyrir því, þegar og ef breytingar á eignarformi verða staðfestar. Það hefur ekki verið rætt um sölu á hlut almennings á eina hlutnum í RÚV o.hf., en að því gæti auðvitað komið síðar meir. Þá er betra að vita hvað er í pakkanum. Með samningi RÚV og menntamálaráðuneytis verður eldra efni gert aðgengilegt Menningarverðmæti í húfi Morgunblaðið/Árni Sæberg Ríkisútvarpið Óhætt er að fullyrða að íslensk tónlistarsaga sé fyrst og fremst skráð í safni Ríkisútvarpsins, í upptökum hljóðvarps og sjónvarps. FLUTNINGSRÉTTUR á efni í safni RÚV varir í 50 ár frá fyrsta flutn- ingi sem þýðir að sé efni búið að vera í safninu þann tíma má útvarp- ið nota það að vild. Höfundarréttur er annað; hann verndar hagsmuni þess sem skapar efnið, höfundarins. Hann gildir í 70 ár frá andláti höfundar og erfist. Þótt flutningsréttur flytjenda sé fallinn úr gildi getur þó enn hvílt höfundarréttur á sama efni. Þegar talað er hér um afnotarétt á efni í safni RÚV, er átt við hvaða heimildir og/eða takmarkanir gilda um að nota það efni í dagskrárgerð. Fullur afnotaréttur felur í sér að öllum hlutaðeigandi, höfundum og flytjendum hefur verið greitt fyrir og útvarpið hefur ótakmörkuð not af efninu. Þetta á til dæmis við um ýmiss konar tónlistarupptökur, einkum þær sem hafa verið gerðar í hljóðveri. Áður fyrr var afnotarétt- ur með ýmsu móti og ekki endilega keypt full afnot af hljóðrituðu efni. Ýmsar tónlistarupptökur, þar á meðal frá tónleikum, hafa til dæmis verið keyptar með rétti til eins flutnings og samkvæmt því þyrfti að semja aftur um greiðslu kæmi til þess að efnið yrði flutt í annað sinn. Þetta hefur að vissu leyti hamlað því að RÚV hafi getað nýtt sér að vild allt það efni sem til er í þess fórum. Það hefur kostað minna að kaupa efni með rétti til eins flutn- ings en til fullra afnota en því fylgir sem fyrr segir takmarkað nota- gildi. Þá má líka gera ráð fyrir að í safni RÚV sé efni sem hafi verið hljóðritað fyrst og fremst vegna heimildagildis og að ekki hafi verið samið um neins konar flutningsrétt. Afnot safna- efnis RÚV Dýrmætt Píanóleikur Árna Kristjánssonar; söngur Maríu Markan; leikur Gísla Halldórssonar; heimsókn Ómars til Gísla á Uppsölum; danslögin með Hauki Morthens; Halldór Laxness skrafar um Beethoven; Sigríður Ella syngur djass; Ingibjörg Þorbergs spilar klarinettuverk Brahms. Menningar- og listasaga DÓRA Ingvadóttir er fram- kvæmdastjóri Útvarpsins. Dóra segir að áherslan á íslenskt efni sem um er rætt í samningnum milli RÚV og menntamálaráðu- neytisins eigi fyrst og fremst við um sjónvarpið, enda sé sjálfgefið að talmálsefni í útvarpi sé íslenskt. Hvað tónlist í útvarpinu snerti, þá verði erlend tónlist áfram spiluð í bland við þá íslensku. Um ákvæði samkomulagsins er snýr að því að semja við rétthafa um notkun á eldra efni safnsins, segir Dóra það lítið hafa verið rætt innan útvarps- ins að svo stöddu. „Þetta verður ekki gert öðru vísi en að fjármunir komi í verkefnið.“ Dóra upplýsir að RÚV eigi ekki afnotarétt af þáttum og dag- skrárefni öðru en því sem fastir starfsmenn hafi gert. „Af öðru efni er greitt þegar því er útvarpað.“ Dóra segir tónlistarefni safnsins mjög mikið en misjafnt að gæðum – sumt komið mjög til ára sinna. „Þetta er auðvitað allt varðveitt hérna og það er stöðugt unnið í því að yfirfæra eldra efni í betra form svo við björgum því minnsta kosti frá glatkistunni. Gömlu seg- ulböndin eru mörg orðin léleg og efni á lakkplötum getur máðst. Þetta er tímafrek vinna og kostn- aðarsöm.“ Að sögn Dóru er margt af elsta efninu í safni RÚV komið úr flutn- ingsrétti. Eldri samningar um afnot af efni voru orðnir flóknir en nú er greitt samkvæmt samningum sem hafa verið einfaldaðir. „Ef efni, til dæmis tónlistarupptökur, er flutt oftar en einu sinni er greitt fyrir það samkvæmt þessum samningi en lægra gjald en fyrir frumflutninginn. Ákvæðin um afnotin voru orðin svo snúin að þau voru tekin út úr samningum við tónlist- armenn og þess í stað ákveðið að hafa þetta svona,“ segir Dóra, en samningsaðilar tónlist- armanna eru hagsmunafélög þeirra, FÍH og FÍT. Aðspurð hversu mikið efni sé til í safni RÚV sem aldrei hafi verið keypt afnot að eða samið um á nokkurn hátt segir Dóra erfitt að segja til um það. „Enn vantar á að allt eldra efni í safni RÚV sé tölvuskráð og hversu hátt þetta hlut- fall er af því efni sem geymt hefur verið er úti- lokað að segja til um nú,“ segir Dóra Ingva- dóttir, framkvæmdastjóri Útvarpsins. Fjármunir verða að koma til Dóra Ingvadóttir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.