Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 24
menntun 24 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Átaksverkefnið „Virkjum alla– rafrænt samfélag“ hefurnú opnað rafrænar þjón-ustugáttir á fimm veftorg- um, sem finna má á vefsíðunni www.skjalfandi.is. Verkefnið hefur staðið yfir frá árinu 2004 og er sam- starfsverkefni þriggja sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu, Aðaldælahrepps, Norðurþings og Þingeyjarsveitar, sem ásamt Heilbrigðisstofnun Þing- eyinga og Sparisjóði Suður-Þing- eyinga hlutu styrk frá Byggðastofnun til að efla notkun upplýsinga- tækninnar, íbúum til hagræðingar og hagsbóta. Að sögn Susan Martin verkefna- stjóra eru miklar vonir bundnar við að þetta framtak á landsbyggðinni geti flýtt fyrir lausn í fjarskiptamál- um í héraðinu, en mikið vantar upp á að íbúar í dreifðustu byggðunum sitji við sama borð hvað varðar aðgang að háhraðatengingum, farsíma og jafn- vel góðum sjónvarpsskilyrðum. Markmið verkefnisins er tvíþætt, annars vegar að auka þekkingu íbúa á upplýsingatækni með fjölbreyttu úr- vali tölvunámskeiða og hinsvegar að færa þjónustu sveitarfélaganna og samstarfsaðila þeirra í rafrænt form og gera íbúum þannig kleift að sinna erindum sínum á viðkomandi þjón- ustutorgum á vefsíðunni www.skjalf- andi.is. Verkefnið skiptist í nokkra þætti sem miða allir að markvissri uppbyggingu hins rafræna samfélags. Settir voru á laggirnar vinnuhópar um einstaka verkþætti. Í þeim störf- uðu yfir sextíu manns og skiluðu þeir niðurstöðum, sem notaðar eru við að skipuleggja þjónustu veftorganna. Ungir kenndu öldnum „Stefnt er að því að uppræta hræðslu og kunnáttuleysi og gefa íbú- um tækifæri til þess að nýta kosti tækninnar sér og sínum til framdrátt- ar. Virkjum alla hefur skipulagt fræðsludagskrá í samráði við Þekkingarsetur Þingeyinga sem tók að sér umsjón með tölvunámskeiðum í fjórum grunnskólum í sýslunni. Eldri kynslóðin fékk sérstaka aðstoð frá nemendum í grunnskólanum á Húsavík, á námskeiði sem kallast „ungir kenna öldnum“. Þar snýst hlutverkaskipanin við og yngri kyn- slóðin leiðbeinir þeim eldri við að læra á tölvuna og rata um netið. Þá munu íbúar fá aðgang að fjarnámi á Þekkingartorgi með gagnvirku kennsluefni um tölvunotkun þar sem leitast verður við að gera námið áhugavert og skemmtilegt. ANZA, sem sá um tæknilega verkefnisstjórn, hannaði vefnámskeiðið sem upp- haflega kom frá Menntasmiðju kvenna og spannar allar helstu að- gerðir sem tölvunotendur þurfa að kunna skil á ásamt þjálfun í notkun netsins við að rata um völundarhús veraldarvefjarins. Þá voru keyptar tíu fartölvur í fær- anlegt tölvukennsluver, sem flutt er á milli staða í sérstökum ferðakössum og segja má að nú sé hægt að halda námskeið við kertaljós úti í sveit ef þurfa þykir. Tölvukennsluverið hefur verið í nær stöðugri notkun og gert stéttarfélögum og félagasamtökum kleift að bjóða stærri hópum fleiri námskeið, sem haldin eru um allt hér- aðið,“ segir Susan Martin. Mikil áhersla verður lögð á rann- sóknir á áhrifum verkefnisins á sam- félagið svo hægt sé að meta hvaða áhrif aukin notkun upplýsingatækn- innar hefur á íbúa, fyrirtækjarekstur og þjónustu opinberra stofnana. Rannsóknastofnun Háskólans á Ak- ureyri framkvæmir rannsóknirnar og leggur mat á árangur verkefnisins áður en verkefnatímanum lýkur um þar næstu áramót. „Viljum uppræta hræðslu og kunnáttuleysi“ Fimm rafrænar þjón- ustugáttir hafa verið opn- aðar íbúum Þingeyj- arsýslu, fólkinu til framdráttar í leik og starfi. Jóhanna Ingv- arsdóttir kynnti sér þjón- ustutorgin fimm. Morgunblaðið/Golli Markmiðin Verkefninu er ætlað að auka þekkingu íbúa á upplýsingatækninni og færa þjónustu sveitarfélaga og samstarfsaðila í rafrænt form og auðvelda þannig aðgengi íbúa að stofnunum á svæðinu. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson Verkefnastjórinn Susan Martin segir miklar vonir bundnar við að þetta framtak á landsbyggðinni geti flýtt fyrir lausn fjarskiptamála. Þau fimm veftorg, sem nú hafa verið opnuð og eru aðgengileg á vefsíðunni www.skjalfandi.is, eru Skjálfandatorg, Íbúatorg, Þekking- artorg, Sparitorg og Heilsutorg.  Skjálfandatorg opnar fólki aðgang að þjónustu, fróðleik og af- þreyingu sem í boði verður á hin- um veftorgunum. Skjálfandatorg er þannig rafræn ásýnd byggð- arlagsins sem kappkostað verður við að halda lifandi og ferskri, t.d. með fréttum af framgangi verkefn- isins.  Íbúatorg er sameiginlegur vettvangur sveitarfélaganna, rík- isins, þjónustustofnana og fyrir- tækja sem veita íbúum aðgang að stjórnsýslusviðum, upplýsingum og gagnvirkri þjónustu með einföld- um hætti. Íbúatorgið er einnig vettvangur fyrir lýðræðislega um- ræðu, svo sem með opnu sam- skiptakerfi og viðhorfskönnunum um ýmis málefni, sem snerta byggðarlagið. Notendur Íbúatorgs munu skrá sig inn í upphafi og fá sent lykilorð, sem gefur þeim að- gang að rafrænum umsóknum og erindakerfi, sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn. Netsamtal við þjón- ustufulltrúa og stjórnendur sveit- arfélaganna geta m.a. flýtt fyrir afgreiðslu erinda og geta íbúar fengið svör við fyrirspurnum um hæl.  Þekkingartorg miðlar upp- lýsingum um nám af öllu tagi og þar er að finna margvíslega gagnabanka með hagnýtum fróð- leik fyrir íbúa. Einnig gagnvirkt tölvunám fyrir þá, sem vilja læra á tölvu og stjórna sjálfir námstíma og mætingu.  Sparitorgi er ætlað að efla íbúa til góðrar fjármálastjórnunar í heimilis- og fyrirtækjabókhaldinu með því að auka við þjónustu, sem þeim stendur til boða í heimabönk- um. Lögð verður áhersla á fræðslu og fólki lögð til ýmis verkfæri sem auðvelda því að skipuleggja út- gjöld sín og sparnað.  Heilsutorgi er ætlað að vera lykill að betri heilbrigðisþjónustu með nýjum samskiptaleiðum til að auðvelda aðgengi íbúa að heilsu- gæsluþjónustu og miðla upplýs- ingum um heilbrigt líferni. Þá mun Heilbrigðisstofnunin taka í notkun nýtt rafrænt tímabókunarkerfi heimilislækna á Heilsutorgi sem þróað var í samstarfi við Theriak/ TM Software á Akureyri. Einnig geta íbúar sótt rafrænt um end- urnýjun lyfseðla og sótt lyfin sín í þau sex lyfjaútibú, sem starfrækt eru á verkefnasvæðinu. Þjónustu- torg www.skjalfandi.is FJÓLUBLÁIR kjólar, svartir og skærbláir, minna óneitanlega á vet- urinn en þeir voru með- al þess sem pólskir fata- hönnuðir sýndu í Varsjá um helgina. Sterkir lit- irnir voruóneitanlega sumir í austur-evrópsk- um anda, sem og glans- andi glitþræðir sem prýddu kjólana. En öll bar hönnunin engu að síður litríki og sköp- unargleði fatahönn- uðanna sterkt vitni. Reuters Fjólublátt Fyrirsætan er í klæðnaði sem er hannaður af Pólverjanum Agnieszka Maciejak. Líflegt Svart og hvítt er einkenn- andi fyrir þessa hönnun pólska hönnuðarins Wojtek Dziedzica. Blátt Breska fyrirsætan Naomi Campbell í skærbláum kjól hönn- uðarins Agnieszka Maciejak. Flegið Naomi Campbell í fatnaði sem hannaður er af pólska hönn- uðinum Wojtek Dziedzica. Pólsk tíska

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.