Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 49
GÓMSÆT OG
HOLL TEIKNIMY-
ND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
EINGÖNGU SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
STÓRAR HUGMYNDIR
/ KRINGLUNNI
THE DEPARTED kl. 8 - 10:10 B.I. 16 DIGITAL
JÓNAS: SAGA UM GRÆNMETI m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
ADRIFT kl. 8 - 10:10 B.I.12
THE LAST KISS kl. 8 B.I. 12
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ
eeee
Kvikmyndir.is
"...LOKSINS FUNDINN LEIKARI SEM FYLLIR SKARÐ
CONNERYS. HANN HEFUR MÝKT OG HÖRKU,
DROTTNANDI ÚTGEISLUN OG ER ÁMÓTA KARLMANN-
LEGUR Á VELLI OG SKOTINN."
SV MBL
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali!
eee
ÞETTA ER MYND SEM ÉG HVET
FOLK AÐ TAKA BÖRNIN SÍN
MEÐ Á OG SEGI ÉG BARA Í
LOKIN: GÓÐA SKEMMTUN.
Þ.D.B.KVIKMYNDIR.IS
MÖGNUÐ SPENNU-
MYND SEM BYGGÐ
ER Á SÖNNUM
ATBURÐUM.
eeee
Þ.Þ, FBL
“Besta Bond myndin frá upphafi...Bond er
kominn aftur með látum, hefur aldrei verið
betri...Alvöru Bondarnir eru nú orðnir tveir”
eeee
V.J.V, Topp5.is
“Besta Bond myndin
í áraraðir”
the last kiss eeee
EMPIRE MAGAZINE
eee
L.I.B. Topp5.issíðasti
kossinn
eee
Kvikmyndir.isSYSTURNAR
/ ÁLFABAKKA
CASINO ROYALE kl. 4:30 - 7:30 - 10:30 B.i.14
CASINO ROYALE VIP kl. 4:30 - 7:30 - 10:30
JÓNAS: SAGA UM GRÆNMETI m/ísl. tali kl. 4 - 5:45 LEYFÐ
FLY BOYS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.I. 12
ADRIFT kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i.12
THE DEPARTED kl. 7:30 - 10:30 B.i. 16
THE LAST KISS kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
JACKASS NUMBER TWO kl. 4 B.i. 12
ÓBYGGÐIRNAR m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ
18.11.2006
5 20 24 26 36
5 0 3 2 5
6 7 9 4 4
25
15.11.2006
2 19 27 37 44 47
1812 26
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Eðli tilraunastarfsemi er að fara vit-
laust að hlutunum þar til maður kemst
að því hvaða aðferð er rétt. Leiktu þér
og losaðu þig við sjálfsgagnrýni, nú er
rétti tíminn til þess að skuldbinda sig til
þess að gera fáein yndisleg mistök.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Stundum er undirmeðvitund nautsins
bara of brögðótt til þess að hægt sé að
halda henni niðri. Tilviljanakenndir val-
kostir leggjast saman í eitthvað sem
virðist ásetningur. Þú verður hissa á
því sem þú veist (en vissir ekki að þú
vissir).
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn er nógu auðmjúkur og hrein-
skilinn til þess að viðurkenna breysk-
leika sinn. Þannig fer hann að því að
glíma við hlutina með öðru fólki og eiga
ánægjulega samleið með öðrum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Öfund gæti breytt gangverki þýðing-
armikillar vináttu. Sjáðu það fyrir og
forðastu yfirlýsingar sem gætu vakið
úlfúð. Túlkaðu vísbendingar frá ástvin-
um – þú ert mjög góður í því.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Allt sálarlíf ljónsins er innstillt á
heppni. Taktu áhættu í nýrri leið til
fjáröflunar. Gamla aðferðin er ann-
aðhvort orðin of leiðigjörn eða gengur
ekki sem skyldi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Grikkir trúðu því að persónutöfrar
væru gjöf frá guðunum. En eins og all-
ar guðlegar gjafir sér hún til gjalda. Í
dag gæti afleiðingin verið sú að þú laðir
að þér þreytandi persónu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Fólk er sífellt að sá fræjum hugsana í
kollinum á þér. Hvort þau vaxa eða ekki
veltur á því hversu mikla athygli þú ert
tilbúinn að veita.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekann langar til þess að vera
mildur og góður, en skynjar að það sem
aðrir þurfa mest á að halda er strangi
yfirliðþjálfinn sem býr innra með þér.
Þú hefur rétt fyrir þér. Bein skipun frá
þér fær hjólin til að snúast.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn þráir það sem hann getur
ekki fengið. En gættu þess að velja þér
ekki takmark bara af því að það virðist
nánast ómögulegt. Að fjármálunum:
ávísunin er virkilega í póstinum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fólk með reynslu hefur mikið að bjóða
steingeitinni, ekki síst núna, þegar
hlutleysi er nánast óhugsandi. Miðlaðu
hugsunum þínum til einhvers traust-
vekjandi og hlustaðu á svarið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Gáðu að því hvernig þér líður nálægt
vinum og kollegum. Líkaminn gefur
þér merki sem hjálpa þér að greina á
milli viðbragða sem helgast af ást og
þeirra sem ráðast af stjórnsemi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn þarf á stuðningshópi sínum
að halda núna, en á ekki að gera ráð
fyrir ofurmannlegri viðleitni. Einbeittu
þér að því sem þú hefur fulla stjórn á.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Í dag er síðasti dagur sól-
arinnar í merki sporð-
drekans, orka sporðdrek-
ans er persónuleg, dular-
full og inn á við. Söfnum
saman lífsorkunni og
rúllum í stóran feitan bolta – við fáum
senn tækifæri til þess að sólunda
henni. Sól verður í bogmanni á morg-
un og ber með sér frjálslegan og fjör-
ugan tón. HEITA mátti uppselt á tónleika
þeirra Kristins Sigmundssonar og
Jónasar Ingimundarsonar á laugar-
dag þrátt fyrir óhagstæða tímasetn-
ingu. Efnisskráin var fjölbreytt með
Vier ernste Gesänge Brahms á milli
ljóðrænni laga F. P. Tostis í byrjun
og Songs of Travel Vaughans Willi-
ams eftir hlé.
Innbyrðis marglitust voru
kannski fjögur lög Tostis, L’alba
sepàra dalla luce l’ombra, ’A vucc-
hella, Sogno og Per morire, eins og
vel kom fram af víðfeðmri inntaks-
túlkun Kristins jafnvel þótt allt efni
dagsins væri flutt af blaði. Þykir sá
háttur oftar hamla frjálsa söngtján-
ingu en hitt – en svo var þó greini-
lega ekki í þessu tilfelli. Ástríðufyllst
var síðasta lagið Per morire, en í
hinum enda tilfinningaskalans hið
ljúfgælna ’A vucchella við hæfi tán-
inga í tilhugalífi.
Svanasöngvar Brahms frá 1896
verkuðu frekar valdsmannslegir að
þessu sinni, að maður segi ekki
dómsdagsbásúnaðir, og hefði að
ósekju mátt heyra bljúgu sotto voce
auðmýktina víðar en í 3. lagi, O Tod,
wie bitter bist du. Fyrir vikið færð-
ust þessi döpru en samt mæðuróru
lífskveðjulög lengra frá áheyrendum
en vera bar.
Hinn alkunni lagaflokkur Ralphs
Vaughan Williams, Songs of Travel
(1904), minnir um margt á smækk-
aða enska gerð af Vetrarferð Schu-
berts. Alltjent er kveðskapur Ro-
berts Louis Stevensons fráleitt síðri
en Wilhelms Müllers, og í þokkabót
umblásinn ferskari og norrænni
sjávargusti en gætir í austurríska
bálkinum. Margt var hér frábærlega
gert, og landskunn rósfingruð tón-
gæði Jónasar blómstruðu víðar á
slaghörpunni en í The Roadside Fire
og The Infinite Shining Heavens.
Samt hefði stundum mátt setja
lægra þak á söngstyrkinn, því á út-
opnustu stöðum var bókstaflega eins
og söngvarinn ætti við aftakabrim að
etja – með samsvarandi ótæpu
strigaraspi.
Þá er ég heldur ekki frá því að ögn
frjálslegri tímamótun – meira í ætt
við engilsaxneskt sveiflukraun en
klassískt rúbató – hefði gert enska
textanum talsvert gagn. Engu að
síður var hér mikil og vönduð túlkun
á ferð, og í ljósi hins ærna framboðs
á krafti var því auðveldara að falla
fyrir hlutfallslega fágætari mýkt-
inni, t.d. í Bright is the ring of
words. Enda stóð ekki á hlýjum
undirtektum frá áheyrendum að
bálki loknum, og jukust þær frekar
en hitt eftir aukalagið, Drauma-
landið Sigfúsar Einarssonar.
Ærinn kraftur, minni mýkt
TÓNLIST
Salurinn
Sönglög eftir Tosti, Brahms og Vaughan
Williams. Kristinn Sigmundsson bassi,
Jónas Ingimundarson píanó. Laugardag-
inn 18. nóvember kl. 16.
Ljóðatónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
TÖFRAMAÐURINN
David Blaine ætlar sér að
hanga í 15 metra hæð yfir
Times-torgi í New York í
tvo daga, fastur inni í
snúði sem mun snúast um
átta hringi á mínútu.
Snúðurinn (e. gyroscope)
er tæki sem getur haldið
óbreyttri stefnu og bygg-
ist á því lögmáli að hlutur
sem snýst hratt um ás
vinnur gegn öllum breyt-
ingum á stefnu snúnings-
ássins. Þá mun Blaine
freista þess að losna úr
snúðinum þegar tveir sól-
arhringar eru liðnir.
,,Ég held ég verði að
halda mér vakandi allan
tímann. Þetta er spenn-
andi áskorun, hún er
skemmtileg,“ sagði
Blaine þegar hann lét vita
af þessu. Hjálpræðisher-
inn mun fá allan ágóða
sem hlýst af brellu Blai-
nes.
Fyrr á þessu ári dvaldi
Blaine í sjö daga í vatns-
tanki í New York. Hann
fékk næringu og súrefni
um leiðslur sem lágu inn í
köfunargrímu sem hann
hafði á sér. Hann var afar
illa haldinn að þeirri
þrekraun lokinni. Ana-
nova segir frá þessu. Reuters
Ætlar að
snúast í snúði
í tvo daga
Maldíveyjar samanstanda af 1.192
litlum kóraleyjum sem dreifast yfir
850 km svæði þvert á miðbaug jarð-
ar.
Cruise og Holmes gengu í það
heilaga í Róm á laugardag, og er
þetta þriðja hjónaband Cruise en
fyrsta hjónaband Holmes.
Aðþrengda eiginkonan Teri Hatc-her á nú í ástarsambandi við
leikstjórann Stephen Kay sem áður
var unnusti Evu Longoria sem leik-
ur með Hatcher í Aðþrengdum
eiginkonum. Hatcher, sem hefur
gengið í gegnum tvo skilnaði, segir
að Longoria hafi lagt blessun sína
yfir sambandið. Sjálf er Longoria
með körfuboltakappanum Tony
Parker.
„Eva og Tony hafa aldrei verið
hamingjusamari og Eva óskar þess
að Teri upplifi sömu hamingju,“ seg-
ir Liza Anderson, talsmaður Hatc-
her.
Stephen Kay er þekktastur fyrir
að hafa leikstýrt kvikmyndinni Get
Carter sem skartaði Sylvester Stal-
lone í aðalhlutverki.
Fréttir á SMS