Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ INNIHELDUR MAGNAÐAR ÁTAKASENUR Í HÁLOFTUNUM SEM OG FRÁBÆRAR TÆKNIBRELLUR. FRÁ FRAMLEIÐANDA „THE PATRIOT“ OG „INDEPENDENCE DAY“ MEÐ ÞEIM JAMES FRANCO ÚR „SPIDERMAN“ MYNDUNUM OG JEAN RENO („THE DA VINCI CODE“). eee V.J.V. Topp5.is ALLT MUN EKKI VERÐA Í LAGI SPENNANDI OG FRUMLEG VÍSIN- DASKÁLDSAGA FRÁ HÖFUNDI BLADE RUNNER. MEÐ ÞEIM KEANU REEVES, ROBERT DOWNEY JR, WOODY HARRELSON, WINONA RYDER OFL. ÓTEX TUÐ eeeee V.J.V. TOPP5.IS KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK BESTA MYND MARTINS SCORSESE TIL ÞESSA eee V.J.V. Topp5.is A SCANNER DARKLY ÓTEXTUÐ kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 16.ára MÝRIN kl. 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára FLY BOYS kl. 6 - 9 B.i. 12.ára THE DEPARTED kl. 9 B.i. 16.ára THE QUEEN kl. 7 B.i. 12.ára BÖRN kl. 6 - 8 B.i.12.ára BÖRN eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919 eeee DV eeee Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com eeeee Jón Viðar – Ísafold eeeee Hallgrímur Helgason – Kastljósið eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL INNIHELDUR MAGNAÐAR ÁTAKASENUR Í HÁLOFTUNUM SEM OG FRÁBÆRAR TÆKNIBRELLUR. eeee Empire kvikmyndir.is HINIR RÁFÖLLNUF HINIR RÁFÖLLNUF Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÝND MEÐATH! NÝJU DIGITAL TÆKNINNI flugstrákar flugstrákar eeee H.Ó. MBL eee LIB Topp5.isAsnakjálkar : númer tvö Drottningin ROFIN PERSÓNUVERND / AKUREYRI JÓNAS: SAGA UM... m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ FLY BOYS kl. 8 B.I. 12 BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ THE DEPARTED kl. 8 B.I. 16 / KEFLAVÍK CASINO ROYALE kl. 7 - 10 B.I. 14 BORAT kl. 8 - 10 B.I. 12 Þriðjudagar eru bíódagar 2 fyrir 1 í Sambíóin fyrir viðskiptavini Sparisjóðsins eeee H.J. Mbl. 5 Edduverðlaun besta mynd ársins, besti leikar ársins, besti leikstjórinn, besti aukaleikarinn og besta tónlistin (Mugison) Til yfirdýralæknis ÉG HEYRÐI í fréttum útvarps í há- deginu 20. nóvember, að fuglar í Húsdýragarðinum hefðu verið aflíf- aðir með eitri. Var ekki hægt að nota mannúðlegri aðferðir? Og hvers vegna þurfti að aflífa alla fuglana? Mér skilst að það hefðu ekki verið nema fjórir smitaðir. Var ekki hægt að setja þá í sóttkví og athuga málið betur? Þetta kemur illa við marga að heyra um slík vinnubrögð og ég veit um barn, sem fer oft í Húsdýragarð- inn, það fór að gráta. Ég er líka dýravinur og mér líka ekki svona vinnubrögð. Sigrún Reynisdóttir. Íslendingaslagur MIKIL umræða hefur átt sér stað að undanförnu um þátt Íslendinga í knattspyrnuleikjum í Bretalandi. Iðulega kalla íslenskir íþróttafrétta- ritarar leiki þar sem tvö Íslendinga- lið mætast „Íslendingaslag“. Það er alveg ljóst að heimur knattspyrn- unnar er harður heimur, enda hafa rannsóknir sýnt fram á að allt að 50% atvinnuknattspyrnumanna eiga við eiturlyfjavandamál eða spilafíkn að stríða. Það er því varla á það bæt- andi. Ég vil því mælast til að Íslend- ingar í boltanum standi saman, eins og við bændur höfum löngum gert í því eilífa harki sem lífsbaráttan er. Íslendingaslagur er rangnefni. Ís- lendingar eiga að hjálpast að, ekki slást. Eða er ekki verið að fjalla um knattleik? Það mætti oft halda að verið væri að fjalla um hnefaleik. Hvað er þetta? Maður spyr sig. Fyrrum bóndi, Guðmundur Þormarsson. Húsið Norðurpóll FYRIR nokkrum dögum sá ég í Vel- vakanda að kona var að gera fyrir- spurn hvar húsið Norðurpóll væri staðsett sem var á Hverfisgötu 125. Til þess að gleðja konuna þá er húsið núna staðsett vestur á Fiskislóð á Granda. Þar er það ásamt öðru gömlu húsi. Hafliði Helgason. Ljósvakar KONA hringdi og vildi vekja athygli á tvennu. Annarsvegar, hvað Sjón- varpið sýnir oft áhugaverðar myndir of seint að kvöldi. Fólk sem þarf að mæta snemma í vinnu, getur ekki horft og er það miður. Hinsvegar, ungt fólk hefur komið að orði við hana, að í þætti Jóns Ólafs eru oft sýndir bútar úr göml- um skemmtiþáttum og leikritum. Hví er þetta ekki endursýnt svo að unga fólkið fái að njóta þess gamla og góða sem var? Guðbjörg. Hæll glataðist BRÚNN og þykkur hæll, ekki pinnahæll, glataðist aðfaranótt sunnudags niðri í miðbæ Reykjavík- ur, líklega í eða nálægt Bankastræti. Skilvís finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 690 1430. Myndir í óskilum velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Þekkir einhver þessa stúlku. Mynd- in gæti verið u.þ.b. 10 ára gömul. Upplýsingar í síma 569 1324. Það er ekki á hverj-um degi að Vík- verji þarf að taka sér skóflu í hönd og moka snjó en það gerðist sl. sunnudag. Svo hressi- lega fennti og skóf um nóttina að Víkverji þurfti að brjótast út úr híbýlum sínum í einu úthverfa borgar- innar um morguninn. Mikill skafl hafði lagst á dyrnar. Víkverji gróf sér leið út á bíla- plan þar sem bifreið hans var tiltölulega óspillt af ofankom- unni. Neðar í heim- keyrslunni var aftur á móti mynd- arlegur skafl. Svo langt er síðan Víkverji hefur lent í þessum að- stæðum að hann vanmat skaflinn. Lét einfaldlega vaða á hann – og sat pikkfastur fyrir vikið. Eftir nokkuð juð sá Víkverji sæng sína uppreidda og kyngdi stoltinu. Fékk frú Víkverja til að setjast undir stýri en fór sjálfur út að ýta. Lögð- ust tveir synir hans með honum á húddið. Þetta lið var ekki lengi að losa bílinn. Einhver nostalgískur unaður tók sig upp við átökin enda losaði Vík- verji ófáa bíla úr sköflum norður í landi í gamla daga. Þegar sonur hans festi sig í sama skafli um kvöldið kom Víkverji líka reykspólandi út á inniskónum til að ýta. Voru það engu minni átök og „mottubragð- inu“ m.a. beitt. Víkverji bíður spenntur eftir næstu sköflum. x x x Víkverji varð vitniað vaskri fram- göngu knattspyrnu- þjálfara í 4. flokki drengja um helgina. Tvö lið af höfuðborgar- svæðinu voru að etja kappi og var undiralda í leiknum. Eitthvað fór dómgæslan í taugarnar á öðru liðinu og tók einn leikmanna þessi vonbrigði sín út á andstæðingi – skellti honum flötum. Þetta sá þjálfarinn og kall- aði sinn mann umsvifalaust út að hliðarlínu þar sem honum var les- inn pistillinn. Sá brotlegi reyndi án árangurs að malda í móinn. „Ég sá hvað þú gerðir og þetta gerir þú ekki aftur, karlinn! Farðu beint og biddu manninn afsökun- ar,“ heyrðist þjálfarinn segja lang- ar leiðir. Gekk sá brotlegi lúpuleg- ur á vettvang glæpsins og tók innilega í hönd brotaþolans. Það er næsta víst að hann hefur lært sína lexíu. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is            dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er þriðjudagur 21. nóvember, 325. dag- ur ársins 2006 Orð dagsins : Og ef þér reynist ekki trúir í því sem annars er, hver gefur yður þá það, sem yðar er? (Lúk. 16, 12.) Hjónin nýbökuðu, Tom Cruise ogKatie Holmes, hafa hafið brúð- kaupsferð sína en þau flugu til Maldíveyja á Indlandshafi, lentu á Hululle-alþjóðaflugvellinum aðfara- nótt sunnudags. Málverk eftir Caravaggio í eiguElísabetar II. Englands- drottningar er nú loks til sýnis í Termini listasafninu í Róm eftir sex ára langa viðgerð. Verkið sem var fram að því talið eftirgerð og ekki eftir Caravaggio, lá í geymslu í höll- inni Hampton Court við ánna Tha- mes í Lundúnum og safnaði ryki og skít. Verkið heitir ,,Köllun heilags Pét- urs og Andrésar“ og er metið á 50 milljónir punda. Verkið er sýnt til heiðurs Maurizio Marini, Ítala sem fyrstur hélt því fram að það væri eft- ir Caravaggio. Talið er að Cara- vaggio hafi málað verkið í Róm. Á myndinni sést Kristur boða bræðr- unum að fylgja sér og ,,menn veiða". Um 50 málverk eru eignuð Cara- vaggio í heiminum. Fólk folk@mbl.is Bandaríska leikkonan EllenBurstyn telur bandaríska leik-ara ekki standa sig nógu vel og telursjónvarpsleik um að kenna. Burstyn er margverðlaunuð leikkona, hefur hlotið Óskars-, Tony- og Emmy- verðlaun svo eitthvað sé nefnt. Hún segir leikara hlaupa á milli tökuvera í sjónvarpi og þeir fái ekki næga æf- ingu með því að leika á sviði. Burstyn sagði í samtali við Reu- ters-fréttastofuna að leiklistin þyrfti á innspýtingu að halda í Bandaríkj- unum. Sjónvarpið hefði dregið úr gæðum leiklistar og það sæist á frammistöðu leikara á Broadway í New York. ,,Mér er misboðið. Ég sá nokkur leikrit sem sögð voru góð en þau voru skelfilega léleg. Ég get ekki mælt með neinu sem sýnt er á Broadway,“ sagði Burstyn. Leikferill Burstyn spannar 50 ár og hefur hún leikið á sviði, í kvikmyndum og í sjónvarpi. Hún hlaut Óskarsverðlaun fyrir bestan leik kvenna árið 1974 fyrir hlutverk sitt í Alice Doesn’t Live Here Any- more. Hún hefur auk þess verið til- nefnd sex sinnum til verðlaunanna, hlotið sjö tilnefningar til Golden Globe, Tony-verðlaun fyrir leik á sviði og tilnefningu til Emmy- verðlauna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.